Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 11
11 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002______________________________________________________________________________________________ DV Útlönd Cheney gagnrýnir kröfur demókrata um viðbrögð við skýrslu CIA um flugrán: Varaforsetinn varar viö alvarlegri hryöjuverkum Nokkrir framámenn á Banda- ríkjaþingi kröföust þess í gær að fá að vita hvort bandarísk stjómvöld hefðu búið yfir nægilegum upplýs- ingum til að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásimar 11. september síðastliðinn. Dick Cheney varafor- seti sagði hins vegar að gagnrýni demókrata væri óábyrg á sama tima og enn alvarlegri hryðjuverk kynnu að vera í undirbúningi. Embættismenn Hvíta hússins sögðu að upplýsingar frá leyniþjón- ustunni sem George W. Bush for- seta voru afhentar i ágúst hefðu ver- ið of almennar til að hægt hefði ver- ið að grípa til aðgerða. „Ég tel ekki að nokkur maður hefði getað spáð því fyrir fram að þessir menn myndu taka flugvél traustataki og fljúga henni á World Trade Center, taka svo aðra vél og fljúga henni á Pentagon,“ sagði Condoleezza Rice, þjóðaröryggisráð- gjafi Bush forseta. Bush sagði á lokuðum fundi með repúblikönum á þingi að það væri pólitísk lykt af árásum demókrata á hann vegna þessa máls, að sögn heimildarmanna. Hvíta húsið viðurkenndi að Bush hefði verið varaður við því fyrir 11. september að stuðningsmenn Osama bin Ladens hefðu uppi áform um að ræna flugvél, en þó ekki fyrr en eftir að CBS-sjónvarpsstöðin skýrði fyrst frá málinu. Cheney varaforseti sagði að það væri „fullkomið ábyrgðarleysi og ekki sæmandi þjóðaleiðtogum á stríðstímum" að láta að því liggja, eins og demókratar hefðu gert, að hægt hefði verið að koma í veg fyr- ir hryðjuverkaárásirnar. Þingmenn eru famir að þrýsta á með vaxandi þunga að óháðri rann- sóknarnefnd verði falið að rannsaka hvað stjómvöld vissu fyrir 11. sept- ember og hvort rétt hefði verið brugðist við. REUTERSMYND Til varnar forseta sínum Condoleezza Rice, þjóöaröryggisráögjafi Bush Bandaríkjaforseta, vergjöröir forsetans í kjölfar viövarana um hugsanleg flugrán fylgismanna bin Ladens. Jan Peter Balkenende, væntanlega nýr forsætisráöherra Hollands Talið er nokkuö öruggt aö Beatrix Hollandsdrottning muni veita Jan Peter Balkenende, leiötoga Kristilega demókrataflokksins, formlegt stjórnarmyndunarumboð strax eftir helgi, en flokkur hans fékk langmest fylgi í þingkosningunum á mibvikudaginn. Hér á myndinni fagnar Balkenende sigrinum ásamt eiginkonu sinni Biöncu Balkenende. Þreifingar hafnar í Hollandi Daniel Pearl llla farnar líkamsleifar sem taldar eru vera af bandaríska blaðamann- inum Daniel Pearl, fundust í ná- grenni Karachi í gær. Líkamsleifar Daniels Pearl líklega fundnar Sérfræðingar yfirvalda í Pakistan rannsaka nú illa farnar líkamsleifar sem grafnar vom upp í Gaddap í Baluchistan-héraði í nágrenni borg- arinnar Karachi í suðurhluta lands- ins í gær og taldar eru vera af blaða- manninum myrta, Daniel Pearl. Líkfundurinn varð í kjölfar hand- töku þriggja Sunni-múslíma í tengslum við sjálfsmorðsárásina á frönsku tæknimennina í Karachi í síðustu viku, en þeir munu hafa bent á staðinn eftir yfirheyrslur. Talsmaður pakistönsku lögregl- unnar sagði að ómögulegt væri að bera kennsl á líkið sem væri mjög illa farið, en staðfesti að fimrn sér- fræðingar heíðu verið sendir á stað- inn til að rannsaka líkamsleifamar. Það gætu þvi liðið nokkrir dagar ef ekki vikur þar til niðurstöður DNA- rannsókna lægju fyrir. Fymun blaðamaðurinn Mat Her- ben var í gær kosinn nýr leiðtogi hægri öfgaflokks hins myrta Pims Fortuyns, sem óvænt náði öðru sæt- inu í holiensku þingkosningunum á miðvikudaginn. Mat, sem er 49 ára, mun þvi leiða flokkinn í væntanlegum stjórnar- myndunarviðræðum, en að hans sögn er flokkurinn meira en tilbúinn til að taka þátt í nýrri ríkisstjóm. Spurður um helstu áherslur sagðist hann leggja áherslu á að hrista duglega upp í kerfinu, með aukna hagsæld, baráttu gegn glæpum og frekari uppbyggingu í heilbrigðis- og menntamálum sem meginbaráttumál. Talið er nokkuð öruggt að Beatrix Hollandsdrottning, sem fundaði með ráðgjöfum sínum í gær, muni veita Jan Peter Balkenende, leiðtoga Kristi- legra demókrata, sem hlutu mest fylgi i kosningum, formlegt umboð til stjómarmyndunar strax eftir helgi, en miðað við úrslit kosninganna er talið líklegast að Balkenende reyni í fyrstu myndun samsteypustjórnar með flokki Fortuyns, LPF, og Frjálslynd- um, WD, en saman hafa þessir þrir flokkar 92 þingsæti af 150. Kallsberg tekur tímann sem þarf Stjórnmálamenn í Færeyjum bíða nú spenntir eftir næsta leik Anfinns Kallsbergs lögmanns í tilraunum hans tii að mynda meirihlutastjórn. Kallsberg sagöi við færeyska út- varpið í gærkvöld að hann ætlaði að taka sér þann tima sem þyrfti og því væri ekki að vænta tíðinda fyrir hvítasunnuna. Kallsberg vildi ekki segja við hverja hann hygðist ræða fyrst. Hann lagði þó áherslu á að ekki hefði borið mjög mikið í milii þegar slitnaði upp úr viðræðum núver- andi stjórnarflokka, Fólkaflokksins, Þjóðveldisflokksins og Sjálfstýris- flokksins, við Jafnaðarflokkinn. Danir með undir flugskeytaskildi Danski landvarnaráðherrann Svend Aage Jensby segir að Danir verði að verði að hafa skilning á óskum Bandaríkjamanna um að koma sér upp eldflaugavarnarkerfi. Danir verði í því skyni að leyfa þeim að nota herstöðina í Thule. GLÆÐIR -áburðarvökvi úr klóþangi! GLÆÐIR er mjög næringarrikur áburðar- vökvi sem hentartil notkunar á grasflatir, íþrótta- og golfvelli, tré, runna, úti- og inni- plöntur, kartöflur og flestan annan gróður. GLÆÐIR er seldurí5,10 og 20 lítra brúsum, 120 lítra tunnu og 1000 lítra tanki. Nánari upplýsingar á útsölustödum. GLÆDIR er seldur í blóma- og garðvöruverslunum. Framleiðandi Guðjón D. Gunnarsson Reykhólum. S: 434 7785 og 866 9386 BALL A CHAMPION S ALLTAF DANSLEIKIR UM HELGAR: 17. & 18. MAÍ Hljómsveitin Þotuliðið FRÍR AÐGANGUR ...þor sem meistararnir mœta! 17/5/2002 Kl. 18.15 England - Swiss U21 18/5/2002 Kl. 11.00 Aston Villa - Everton Kl. 17.00 Þyskaland - Austurríki Kl. 18.45 Frakkland - Belgía Kl. 20.00 Prinsinn Naseem - Manuel Calvo 20/5/2002 Kl. 15.00 Portugal - Sviss Kl. 18.30 Ítalía - England 21/5/2002 Kl. 10.30 Kórea - England Kl. 18.30 Belgía - Frakkland Stórhöfði I7 • www.champions.is • Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.