Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 20
20
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Stórafmæli
80 ára
% Sigríður Ó. Ellingsen,
Holtsbúð 87, Garðabæ.
Trausti Magnússon,
Ólafsvegi 32, Ólafsfirði.
75 ára_______________________
Elnar Jónsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
70 ára_______________________
Erla Þóroddsdóttir,
Hraunbæ 178, Reykjavík.
Erla Jóhannsdóttir,
Hraunbæ 74, Reykjavík.
Margrét Ásgeirsdóttir,
1* Mávabraut 4d, Keflavik.
Ómar Elísson,
Háholti 29, Akranesi.
Hann verður aö heiman í dag.
Aase Vllborg Madelaire Dunn,
Hnjúkabyggð 27, Blönduósi.
60 ára_______________________
Guörún V. Ragnarsdóttir,
Seljabraut 66, Reykjavik.
Karl Sigurðsson,
Bræðratungu 5, Kópavogi.
Þórunn Matthíasdóttir,
Þverholti 7, Mosfellsbæ.
Bjarni Ólafur Kristjánsson,
Aðalstræti 41, Þingeyri.
Sigurður Jónasson,
ráðgjafi hjá European
Consulting Partners og
framkvæmdastjóri ZooM,
Kristnibraut 35,
Reykjavík.
í tilhefni afmælisins er
fjölskylda Sigurðar með opið hús fyrir
ættingja, vini og starfsfélaga að
Súlunesi 7, Garðabæ, i dag, milli kl.
16.00 og 19.00.
Stefán Sigurðsson,
veitingamaður á Vitanum í
Sandgerði,
Brekkustíg 2, Sandgeröi,
veröur 50 ára laugard.
18.5. nk.
Stefán og eiginkona hans,
Brynhildur Kristjánsdóttir, taka á móti
gestum föstudagskvöldiö 17.5. milli kl.
20.00 og 23.00 á Vitanum.
Halldóra Birna Gunnarsdóttlr,
Blöndubakka 16, Reykjavik.
Guðrún Ingveldur Baldursdóttir,
Reynilundi 5, Akureyri.
Lilja Rnnbogadóttir,
Þverholti 4, Akureyri.
Gunntaugur S. Stefánsson,
( Heydölum, Breiödalsvik.
Una A. Sölvadóttir,
Norður-Nýjabæ, Hellu.
40?rG__________________________________
Sveinbjörn Gizurarson,
Aflagranda 7, Reykjavík.
María Aletta Margeirsdóttir,
Bröndukvísl 21, Reykjavík.
Jón Guðbjörn Bjarnason,
Markarflöt 14, Garðabæ.
Georg Óskarsson,
Suðurbraut 6, Hafnarfirði.
Kristmann Kristmannsson,
Ölduslóð 45, Hafnarfiröi.
Þorgils Óttar Mathiesen,
Lóuási 7, Hafnarfirði.
Óiafur Elís Gunnarsson,
starfsmaður Útgerðarfélags
Akureyringa,
Hjallalundi 13a, Akureyri.
Svandís Þóroddsdóttir,
Löngumýri 32, Akureyri.
Ólöf Guðmundsdóttir,
Hvammi, Akureyri.
. ^Brynja Marvinsdóttlr,
Engjavegi 18, Selfossi.
Sigþrúður Jónsdóttir,
í Tröð, Selfossi.
Jaröarfarir
• IJ.IIMilllMIWWMW————■
Valgerður Jónsdóttir, Þangbakka 10,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugar-
neskirkju föstud. 17.5. kl. 13.30.
Útför Guðjóns Jónssonar, Hafnarstræti
47, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju
föstud. 17.5. kl. 13.30.
Sölvi Guttormsson frá Síöu, Nestúni 6,
Hvammstanga, verður jarðsunginn frá
^ Hvammstangakirkju 17.5. kl. 14.00.
Halldóra Borg Jónsdóttir, til heimilis i
Daltúni 23, Kópavogi, verður jarðsungin
frá Hallgrímskirkju föstud. 17.5. kl.
10.30.
Útför Helgu Stellu Guðmundsdóttur, áð-
ur til heimilis í Hólmgarði 40, Reykjavík,
fer fram frá Bústaðakirkju föstud. 17.5.
kl. 13.30.
Útför Kristjáns Elíasar Kristinssonar,
''►Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði, fer fram
frá Hafnarfjarðarkirku 17.5. kl. 15.00.
50 ara
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
I>V
Fólk í fréttum
Örlygur Hnefill Jónsson
stjórnarmaöur í Byggðastofnun
Örlygur Hnefill Jónsson, hdl. og
stjómarmaður í Byggðastofnun,
Laugum í Reykjadal, hefur verið í
fréttum vegna málefna Byggðastofn-
unar.
Starfsferill
örlygur Hnefill fæddist á Húsa-
vik 28.8. 1953 og ólst þar upp. Hann
varð stúdent frá MT 1975, stundaði
nám í bókmenntafræðum við HÍ
1975-76 og lauk embættispróf í lög-
fræði frá HÍ 1982.
Örlygur stundaði einkum sjó-
mennsku á námsárum sínum, jafnt
á bátum og togurum. Hann hefur
rekið eigin lögfræðiskrifstofu á
Húsavík frá 1982. Hann er varaþm.
Samfylkingarinnar í Norðurlands-
kjördæmi eystra frá 1999 og situr í
stjóm Byggðastofnunar.
Örlygur sat í stúdentaráði HÍ
1975-76 fyrir Verðandi, sat í stjóm
kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra
1983-84 og 1988-89, var formaður
ráðsins 1991-92, var varaformaður
stjómar Fiskiðjusamlags Húsavíkur
hf. og útgerðarfélaganna íshafs hf.
og Höfða hf. og sat í stjóm Kísiliðj-
unnar við Mývatn.
Fjölskylda
Eiginkona Örlygs er Valgerður
Gunnarsdóttir, f. 17.7. 1955, BA í ís-
lenskum fræðum og almennum bók-
menntum, skólameistari Fram-
haldsskólans á Laugum og fyrrv.
bæjarfulltrúi á Húsavík. Foreldrar
hennar: Gunnar Þór Jóhannsson, f.
2.12. 1926, d. 7.11. 1987, skipstjóri á
Dalvík, og k.h., Ásta Jónina Svein-
bjamardóttir, f. 27.11.1934, húsmóð-
ir.
Börn Örlygs og Valgerðar eru
Emilía Ásta Örlygsdóttir, f. 17.10.
1977, nemi í stjómmála- og kynja-
fræði við HÍ, og er sonur hennar
Garpur Hnefill Valsson, f. 11.4. 2001;
Örlygur Hnefill Örlygsson, f. 23.10.
1983, nemi við MA og ritstjóri Mun-
ins; Gunnar Hnefill örlygsson, f.
2.1. 1990, nemi í Litlu-Laugaskóla.
Háifbræður Örlygs, samfeðra, eru
Kristján Jóhann Jónsson, f. 10.5.
1949, rithöfundur og kennari, en
kona hans er Dagný Kristjánsdóttir,
prófessor við HÍ; Jakob S. Jónsson,
f. 7.5.1956, leikhússtjóri í Jönköping
í Svíþjóð.
Örlygur er sonur dr. Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar, f. 29.3. 1927, pró-
fessors við HÍ, og Emilíu Sigurjóns-
dóttur, f. 2.8. 1927, bókara á Húsa-
vík.
Ætt
Meðal systkina Jóns em Ragnar
Ingi, kennari og ljóðskáld; Stefán,
forstöðumaður Norræna genabank-
ans í Osló; Hákon, hagyrðingur og
skógarbóndi, og Guðrún, móðir
Hrafnkels héraðsskjalavarðar. Jón
er sonur Aðalstein, b. á Vaðbrekku,
hálfbróður Jóns, langafa Stefáns
Hagalín rithöfundar. Aðalsteinn var
sonur Jóns Hnefils, b. á Fossvöllum,
Jónssonar, b. á Bæ í Lóni, Jónsson-
ar, hreppstjóra í Hafnarnesi, Magn-
ússonar, pr. í Bjarnanesi, Ólafsson-
ar, sýslumanns í Haga á Barða-
strönd, Árnasonar. Móðir Jóns
Hnefils á Fossvöllum var Steinunn
Pálsdóttir. Móðir Aðalsteins var
Guðrún Björnsdóttir.
Móðir dr. Jóns Hnefils var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. í Tunguhaga,
Péturssonar, b. á Gíslastöðum, bróð-
ur Jóns, fóður Þorsteins M. bókaút-
gefanda. Pétur var sonur Óla, b. á
Útnyrðingsstöðum, bróður Jóns, afa
Róberts Arnfinnssonar leikara.
Móðir Péturs var Guðný Pétursdótt-
ir. Móðir Jóns var Sigurbjörg Jóns-
dóttir. Móðir Ingibjargar var Jó-
hanna Halldóra Stefánsdóttir, b. á
Strönd, Jónssonar, b. i Grófargerði,
Eiríkssonar.
Emilía er systir Evu, móður Egg-
erts Jónssonar yfirlæknis. Emilía er
dóttir Sigurjóns, útvegsb. og oddvita
í Útibæ í Flatey á Skjálfanda, Jónas-
sonar, útvegsb. í Flatey, Jónsson-
ar, b. á Finnastöðum, Péturssonar.
Móðir Emilíu var Jakobína, syst-
ir Marsilínu, móður Stefáns Jóns-
sonar, rithöfundar og alþm., fóður
Kára, forstjóra íslenskrar erfða-
greiningar. Jakobína var dóttir
Páls, b. á Brettingsstöðum, bróður
Vilhjálms, afa Thors Vilhjálmsson-
ar rithöfundar. Annar bróðir Páls
var Hallgrímur, langafi Herdísar,
móður Hallmars Sigurðssonar leik-
hússtjóra. Systir Páls var Valgerð-
ur, amma Valtýs Péturssonar list-
málara. Páll var sonur Guðmundar,
b. á Brettingsstöðum, Jónatansson-
ar. Móðir Jakobínu var Sigurbjörg
ísaksdóttir, b. á Auðbjargarstöðum í
Kelduhverfi, Sigurðssonar, b. í
Brekkukoti, Guðbrandssonar, b. í
Sultum, Pálssonar, bróður Þórarins,
afa Ólafar, langömmu Bjama Bene-
diktssonar forsætisráðherra, fóður
Bjöms, borgarstjóraframbjóðanda
sjálfstæðismanna. Systir Guðbrands
var Ingunn, langamma Sveins, ætt-
föður Hallbjarnarstaðaættar, afa
Kristjáns Fjallaskálds og langafa
Jóns Sveinssonar, Nonna.
Vilborg Sigþórsdóttir
húsmóðir og fyrrv. starfsstúlka
Vilborg Sigþórsdóttir, húsmóðir gagnabólstr-
og fyrrv. starfsstúlka, Kaplaskjóls-
vegi 31, Reykjavík, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Vilborg fæddist á Svalbarðseyri
en flutti með foreldmm sínum til
Akureyrar er hún var fjögurra ára.
Hún var í Bamaskóla Akureyrar,
stundaði nám við Gagnfræðaskól-
ann á Akureyri og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi 1932.
Vilborg starfaði á Kristneshæli á
unglingsárunum og fram yfir tví-
tugt. Hún stundaði jafnframt
saumaskap með hléum.
Vilborg og maður hennar fluttu
til Reykjavíkur 1941 og hefur hún
verið búsett þar síðan. Auk húsmóð-
urstarfa vann Vilborg á saumastofu
í Reykjavík í fjögur ár en hóf síðan
störf við Landakotsspítala 1972 og
vann þar til 1987 er hún hætti störf-
um fyrir aldurs sakir.
Fjölskylda
Vilborg giftist 1938 Þorsteini
Þórðarsyni, f. 10.2.1915, d. 1978, hús-
ara. Hann
var sonur
Þórðar
Þórðarson-
ar, f. 1846,
lausamanns, og Ingibjargar Jó-
hönnu Þorsteinsdótur, f. 1878, frá
Harðbala i Kjós, húsmóður.
Böm Vilborgar og Þorsteins eru
Þór Rúnar Þorsteinsson, f. 31.8.
1938, tæknifræðingur og kennari
við Borgarholtsskóla, búsettur í
Kópavogi, en kona hans er Ema
Ámadóttir og eiga þrjár dætur; El-
ísabet Þorsteinsdóttir, f. 19.11. 1943,
meinatæknir við Landspítalann við
Hringbraut, búsett í Reykjavík og á
hún þrjár dætur.
Systkini Vilborgar: Þóra, f. 1909,
d. 1977 verkakona á Akureyri og síð-
an í Reykjavík; Skafti, f. 1911, d.
1985, hljómlistarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Vilborgar voru Sigþór
Jóhannsson, f. 1885, d. 1940, starfs-
maður Rafveitu Akureyrar, og Guð-
rún Jónsdóttir, f. 1882, d. 1964, hús-
móöir.
Vilborg er að heiman í dag.
Fímmtugur
Hannes Jóhannsson
bóndi og garðyrkjufræðingur í Stóru-Sandvík 5
Hannes Jóhannsson, bóndi og
garðyrkjufræðingur, Stóru-Sandvík
5, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Hannes er fæddur í Stóru-Sand-
vík, ólst þar upp og hefur átt þar
heima alla sína tíð. Hann gekk í
bama- og gagnfræðaskóla á Selfossi,
stundaði siðar nám í Garðyrkju-
skóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi
og útskrifaðist þaðan sem garð-
yrkjufræðingur 1972. Hann hefur
verið bóndi og garðyrkjufræðingur
í Stóru-Sandvík 5.
Hannes hefur verið formaður
Skógræktarfélags Sandvíkurhrepps
um árabil og hefur setið í stjóm
Félags gulrófnabænda mörg undan-
farin ár.
Fjölskylda
Hannes kvæntist 1.3. 1984 írisi
Sigrid Guðmundsdóttur, f. 12.8.
1951, húsmóður. Þau skildu. For-
eldrar hennár: Guðmundur Lofts-
son bóndi og Marta Hanna Loftsson
húsmóðir.
Börn Hannesar og írisar: Jó-
hanna Sigríður, f. 1982, verslunar-
maður, en unnusti hennar er Guð-
mundur Karl Steindórsson, kosn-
ingastjóri hjá framsóknarmönnum
á Selfossi; Jóhann, f. 1985, nemi við
FS; Guðmundur Marteinn, f. 1986,
nemi; Fjóla Signý, f. 1989, nemi.
íris átti áður Maríu Dórótheu
Jensdóttur, f. 1971, starfar við
veisluþjónustu.
Systkini Hannesar: Benedikt, f.
1951, sálfræðingur í Reykjavík, en
kona hans er Lára Halldórsdóttir
sálfræðingur; Sigríður Kristin, f.
1953, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Stóru-Sandvík, en maöur hennar er
Samúel Smári Hreggviðsson, bygg-
ingatæknir og starfsmaður Fast-
eignamats rikisins; Magnús, f. 1954,
líffræðingur og sér um útibú veiði-
málastjóra á Selfossi, en kona hans
er Margrét Ófeigsdóttir meinatækn-
ir.
Foreldrar Hannesar: Jóhann
Hannesson, f. 1912, d. 1979, bóndi í
Stóru-Sandvík, og k.h., Málfríður
Benediktsdóttir, f. 1926, nú látin,
húsfreyja.
Merkir Islendingar
Haukur Morthens dægurlagasöngvari fæddist í Reykjavík 17.
mai. 1924, sonur Edvards Morthens frá Nærö í Noregi og
Rósu Guðbrandsdóttur, af Lækjarbotnaætt. Meðal systkina
Hauks er Kristinn listmálari, faðir Tolla myndlistarmanns
og Bubba söngvara.
Haukur lauk sveinsprófi í prentiðn 1948 og starfaði um
skeið í ísafoldarprentsmiðju. Hann hóf söngferil sinn á
stúkuskemmtunum í Góðtemlparahúsinu 1944, varð einn
vinsælasti dægurlagasöngvari sem um getur hér á landi,
hélt vinsældum sínum til hinstu stundar og söng ógrynni
íslenskra dægurlaga inn á hljómplötur.
Haukur söng m.a. með Alfreð Clausen; Crasy Rhythim-
kvartett; Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar; KK-sextett; GO-
kvintettinum; Orion-kvintettinum; Hljómsveit Gunnars
Sveinssonar; Tríói Eyþórs Þorlákssonar; Hljómsveit Jöm
Grauengaard og fjölda annarra. Hann stofnaði eigin hljómsveit
1958 og söng síðan lengst af með henni, fór söngferðir til Danmerk
', Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Englands, Sovétríkjanna,
Kanada, Bandaríkjanna og Austurrikis og hlaut verðlaun og
viðurkenningar i dægurlagakeppnum erlendis.
Fyrsta tveggja laga plata Hauks kom út 1954 en það ár
komu út níu tveggja laga plötur með honum þar sem m.a. er
að finna lögin Ó borg mín borg, Bjössi kvennagull og Ég er
kominn heim. Fyrsta breiðskífa Hauks kom hins vegar út
hjá Fálkanum 1962 en alls mun hann hafa sungið um þrjú
hundruð lög inn á hljómplötur.
Haukur hóf störf sem stefhuvottur um 1963 og dró þá
nokkuð úr söngnum en starfrækti þó eigin hljómsveit fram
á miðjan áttunda áratuginn. Hann hóf síðan að syngja aft-
ur um 1980 en síðast kom hann fram opinberlega á síðasta
nýársdag sem hann lifði. Hann fékk viðurkenningu DB fyrir
störf að dægurlagatónlist, var heiðursborgari Winnipegborgar,
var heiðraður af STEF fyrir útbreiðslu fslenskrar tónlistar og
var sæmdur fálkaorðunni 1992. Haukur lést 13. október 1992.
Haukur Morthens