Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002
DV
Fréttir
Hjördís Eyþórsdóttir bridgespilari unir því ekki að hafa verið svipt heiðri:
Þetta er fáránlegt mál
- annar keppandi neitaði að fara í lyfjapróf en hélt gullverðlaunum
Hjördís Ey-
þórsdóttir,
fyrsti keppnis-
spilarinn í
bridge sem hef-
ur verið sviptur
verðlaunum
vegna lyfja-
prófs, segir vís-
bendingar um
að brotið hafi
verið á sér með
ýmsum hætti. Hún útilokar ekki
lögsókn ef ekki vill betur og er
harðákveðin í að una ekki niður-
stöðunni.
Hjördís var svipt silfurverð-
launum sem hún vann á heims-
meistaramótinu í sveitakeppni
kvenna i bridge í Kanada eftir að
hún neitaði að fara í lyfjapróf að
mótinu loknu. í samtali við DV í
gær sagði Hjördís að fyrir mótið,
sem fram fór í Kanada í ágúst,
hafi hún farið til þriggja keppnis-
stjóra og eins áhrifamanns í
heimsbridgesambandinu að auki
og skýrt þeim frá að hún væri á
ákveðnu lyfi og spurt hvort það
væri vandamál. Þeir gátu ekki
svarað því, að sögn Hjördísar, en
einn þeirra sagðist ætla að láta
hana vita ef lyfið reyndist fyrir-
staða. Síðan hafi mótið hafist og
hún hafi gengið út frá að allt væri
í lagi. Hjördís vill ekki svara um
hvaða lyf sé að ræða en segir að
það innihaldi örvandi efni.
Ætlaöi í lyfjapróf síðar
Að keppni lokinni hafi svo ver-
ið hringt í hana upp á hótelher-
bergi og henni sagt að hún ætti
að fara í próf. Hún hafi spurt um
afleiðingar ef hún neitaði að taka
prófið eða hvað myndi gerast ef
hún mældist jákvæð. Enginn hafi
getað svarað því eins og þeim
hafi þó verið skylt og hún hafi
neitað að fara í prófið í kjölfarið.
Hjördís segir einnig að reglur um
fylgdarmann hafi verið brotnar.
Hún hafi verið búin að verja
nokkrum tíma alein uppi á hótel-
Hjördís
Eyþórsdóttir.
Fjármögnun Stálpípuverksmiðjunnar:
Niðurstöðu að
vænta fyrir árslok
- segir fulltrúi International Pipe & Tube
David Snyder, framkvæmda-
stjóri þróunardeildar
International Pipe & Tube í Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum, segir að
undirbúningi vegna fjármögnun-
ar á fjögurra milljarða sam-
nefndrar stálpípuverksmiðju í
Reykjanesbæ sé nú i fullum
gangi.
„Fjármögnun fer fram i gegn-
um alþjóðlegar fjármálastofnanir.
Við höfum verið í sambandi við
fjölmargar fjármálastofnanir og
evrópska banka og erum í við-
ræðum við þessa aðila einmitt
þessa stundina," sagði David
Snyder í samtali við DV síðdegis
í gær. „Við gerum þvi ráð fyrir að
niðurstöðu um fjármögnun verk-
smiðjunnar liggi fyrir undir lok
ársins. Þá ætti endanleg ákvörð-
un að liggja fyrir og framkvæmd-
ir gætu þá hafist á fyrri helmingi
næsta árs.“
David segir að fyrirtækið
International Pipe and Tube hafi
verið sérstaklega stofnað utan
um þetta verkefni á Islandi. Eig-
endur og starfsmenn hafi mikla
reynslu í stáliðnaði og viðskipt-
um sem og í stjórnun á stálpípu-
framleiðslu. Hann segir að allar
áætlanir um fjármögnun og fram-
kvæmdir hafi gengið eftir eins og
um var talað. Ekki sé þó enn búið
að tryggja 100% fjármögnun verk-
efnisins en fyrirtækið sé komið
vel á veg með það. -HKr.
Frá Helguvík
Fulltrúi International Pipe & Tube segir niöurstööu aö vænta fyrir árslok varöandi fjár-
mögnun fjögurra milljaröa stálpípuverksmiöju sem fyrirhugaö er aö reisa í Heiguvík.
herbergi eftir mótið þegar hún
fékk skilaboðin um lyfjaprófið og
hafi m.a. verið búin að fá sér
rauðvínsglas.
Tveimur dögum seinna barst
Hjördisi bréf og i kjölfarið var
haldinn fundur þar sem ákveðið
var að hún færi í lyfjaprófið
þremur dögum eftir mótslok. Þá
hefði hún verið búin að fá upplýs-
ingar um að allt yrði í lagi ef hún
mældist aðeins með þetta eina lyf
í blóðinu en svo furðulega hefði
viljað til að síðar um daginn
hefði henni verið tilkynnt að
hætt hefði verið við lyfjaprófið.
Næsta morgun hefði hún verið í
miðri keppnisspilamennsku og þá
hefði hún fengið bréf þar sem
henni var tilkynnt að hún væri
svipt bæði silfurverðlaunum,
stigunum sem hún ávann sér og
titlinum.
Hjördís segist leita allra leiða
til að fá leiðréttingu á málinu.
„Þessi framgangur er mjög slæm-
ur á allan hátt en ég finn fyrir
miklum stuðningi og trúi því að
ég fái medalíuna mína aftur um
siðir,“ segir Hjördís.
Lyf hjálpa ekki í bridge
Umdeilt hefur verið að sömu
lyfjareglur gildi um annars vegar
hugaríþrótt eins og bridge og
hins vegar líkamlegar íþróttir.
Hjördís segir það einfaldlega fá-
ránlegt. „Það eru engin hugsan-
leg jákvæð áhrif af þessu lyfi sem
ég var á. Bridge og lyf fara ekki
saman.“
Þá segir Hjördís, sem býr í Ala-
hama og er eini íslenski atvinnu-
maðurinn í bridge, að ein kvenn-
anna sem hafi unnið gullverðlaun
á mótinu hafi einnig neitað að
fara i lyfjapróf af læknisfræðileg-
um ástæðum. Hún hafi borið við
að hún ætti í vandræðum með að
taka prófið vegna fötlunar og eng-
inn hafi gert athugasemdir við
það. Málið sé því vægast sagt
furðulegt í heild sinni.
-BÞ
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Hrunlð skoöaö
Þau voru aö skoöa ummerkin eftir hruniö, frá vinstri Fríöa Brá Pálsdóttir,
Einar Siguröur Jónsson og Eiríkur Vilhelm Siguröarson.
Mikið grjóthrun við
golfvöll og reiðleiðir
! nótt féll grjótskriða úr Víkur-
hömrum nokkra kílómetra aust-
an við Vík í Mýrdal. Ekkert fólk,
skepnur eða mannvirki urðu fyr-
ir skriðunni svo vitað sé. Skriðan
féll efst úr svokölluðum Helj-
arkinnarhaus sem er uppi af hin-
um tignarlega Víkurkletti en
þama féll skriða síðast fyrir 10 til
15 árum síðast. Þarna hefur orðið
talsvert jarðrask, heilu björgin
hafa losnað úr berginu. Fremur
óvenjulegt er að skriður verði um
þetta leyti árs, frekar á vorin þeg-
ar frost fer úr jörðu. Eflaust hafa
miklar rigningar undanfarið haft
sitt að segja um þessa grjót-
skriðu. Skammt frá staðnum er
golfvöllur og reiðleiðir hesta-
manna. -SKH
HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ
VISTA FILMUNA
frá AGFA ^ ?
KJÖRIN BESTA FILMAN
í EVRÓPU 2001 OG 2002
Gæða framköllun HEIMSMYNDIR
Smiðjuvegi 11,- gul gata -, 200 Kópavogur, sími 544 4131
Alþjóðahúsið:
Forstöðumaðurinn
svarar engu
„Það er fjárhagsvandi
hér í starfseminni og í
framhaldi af því hafa komið
upp ákveðnir samskipta-
örðugleikar milli mín og
stjómarinnar. Mér skilst að
stjómin sé núna að skoða
þetta mál frekar og hvernig
má leysa þennan peninga-
vanda. Öðru ætla ég ekki að
svara til um þetta mál,“
sagði Bjarney Friðriksdótt-
ir, forstöðumaður Alþjóðahússins, í
samtali við DV.
Bjarney
Frlðriksdóttir.
sagði
Eins og DV greindi frá í
gær var henni sagt upp
störfum um sl. helgi en hún
mun starfa áfram út upp-
sagnarfrestinn. Hún vildi
ekki svara neinu öðru til
um uppsögn sína - svo sem
hvort hún liti svo á að trún-
aðarbrestur hefði orðið
milli sín og stjórnarinnar,
eins og formaðurinn,
Hrannar B. Arnarsson,
hér i blaðinu í gær.
-sbs
Heilabilunardeild opnuð
Ólafur Örn Har-
aldsson, þingmaður
Framsóknarflokks
og formaður ijár-
laganefndar, kveðst
munu beita sér fyr-
ir því að Landspítal-
inn fái þær 30 millj-
ónir sem upp á þarf
svo hægt verði að halda deild fyrir
heilabilaða sjúklinga opinni á
Landakotsspítala. Þingmaðurinn
kveðst í samtali við mbl.is hafa
fundið fyrir mikilli reiði almennings
vegna lokunar deildarinnar fyrir
skömmu.
Úrskurður staðfestur
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess
efnis að heimilt sé að skrá upplýs-
ingar úr skrá um stofnfjáreigendur í
SPRON. Stofnfjáreiganda var í sum-
ar bannað að búa til skrá um stofn-
fjáreigendur í SPRON.
LSH greiðir skuldir
Landspítalinn háskólasjúkrahús
hefur greitt um 276 milljónir króna
til fyrirtækja innan Samtaka versl-
unarinnar. Vanskil sjúkrahússins
munu nema um 435 milljónum með
dráttarvöxtum. Þetta kemur fram í
könnun sem Samtök verslunarinnar
hafa látið gera.
Eykur fylgi um 1%
Sjálfstæðisflokkur eykur fylgi sitt
um 1% en Framsóknarflokkur tapar
0,8% frá síðustu þingkosningum.
Þetta er meðal .niðurstaðna nýrrar
könnunar Félagsvísindastofnunar
Háskóla íslands fyrir Morgunblaðið.
Samkvæmt könnuninni fékk Sjálf-
stæðisflokkur 41,7%, Samfylking
27,1%, Framsóknarflokkur 17,6%,
Vinstri hreyfingin grænt framboð
11,7% og Frjálslyndi flokkurinn
1,6%. Úrtakið var 1200 manns og
43,9% aðspurðra neituðu að svara.
Sakaður um kynferðisbrot
Lögreglumaður í Kópavogi hefur
verið kærður fyrir kynferðislegt of-
beldi. Brotin eru talin hafa beinst að
tveimur stúlkum. Rannsókn málsins
er í höndum lögreglunnar í Reykja-
vík.
Sölubann á rjúpu
Sölubann á rjúpu hefur mesta
þýðingu til verndar rjúpnastofnin-
um. Þetta segir Sigmar B. Hauksson,
formaður Skotveiðifélags íslands, í
samtali við mbl.is. Hann segir að
auk sölubanns sé ráðlegt að félagið
leggi til friðað svæði í nágrenni höf-
uðborgarinnar og rannsóknir á
stofninum verði auknar.
-aþ
helgarblað
breyttist á
einni sekúndu
í Helgarblaði
DV á morgun er
viðtal við Óskar
Þór Halldórsson
á Akureyri og
dóttur hans, Sig-
rúnu Maríu, en
Sigrún er í hjóla-
stól eftir alvar-
legt umferðar-
slys sem fjölskyldan lenti í á ferð í
Danmörku í sumar. Allt líf þeirra
breyttist á einni sekúndu.
Einnig er rætt við Felix Bergsson
leikara um poppstjörnuárin, leik-
listina og einu kynverurnar i heim-
inum. Guðbergur Bergsson rithöf-
undur tjáir sig um hræðilegar, sög-
ur, greind og lýsisneyslu og fjallað
er um fáfama staði á öræfum ís-
lands sem munu hverfa vegna Kára-
hnjúkavirkjunar.
irrai
Lífið