Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 11 DV Útlönd Al-Qaeda-samtökin grunuð um aðild að tveimur tilræðum í gær: Hamid Karzai heppinn að sleppa lifandi frá morðtilræði í Kandahar - að minnsta kosti 26 fórust og um 150 slösuðust í bílsprengjutilræði í Kabúl Hamid Karzai, forseti Afganistans, kom til Kabúl, höfuðborgar landsins, í gær, eftir að hafa sloppið ómeiddur frá morðtilræði í borginni Kandahar í suðurhluta landsins í gær. Atburður- inn átti sér stað í miðborg Kandahar, heimaborg Karzais, þegar forsetinn og fylgdarlið hans fór þar um á leið tO brúðkaups yngri bróður Karzais. Þús- undir ibúa borgarinnar fögnuðu Karzai og þegar hann ætlaði að taka kveðju ungs drengs úr hópnum með þvi að teygja sig út um topplúgu bfls- ins hóf einkennisklæddur maður skot- hríð að bílnum. Tilræðismanninum tókst að skjóta Qórum skotum að bílnum án þess að hæfa Karzai áður en hann var skotinn til bana af bandarískum öryggisvörð- um forsetans, en að sögn sjónarvotta var það kraftaverk að Karzai skyldi Hamid Karzai Karzai bar sig vel eftir tilræöið en sagðist þó vera brugðið. sleppa. Ein kúlan mun hafa flogið rétt við eyra hans og lent í höfði Guls Agha Sherzai, héraðsstjóra í Kandah- ar, sem þó hlaut aðeins smávægileg meiðsli. Tvær kúlur fóru í gegnum rúður bifreiðarinnar. Einn afganskur öryggisvörður forsetans mun hafa faÚið í tilræðinu. Borin hafa verið kennsl á tilræðis- manninn, sem er Abdel Raham frá bænum Kajaki í Helmand-héraði í suðurhluta landsins, en héraðið er þekkt sem eitt helsta vígi stuðnings- manna talibana í Afganistan. Raham mun hafa gengið til liðs við öryggissveitir Sherzais héraðsstjóra fyrir um það bil hálfum mánuði, en að sögn héraðsstjórans hafa bandarískar sérsveitir, sem leita uppi liðsmenn al- Qaeda, oft orðið fyrir árásum stuðn- ingsmanna talibana í héraðinu. Sjálfur bar Hamid Karzai sig vel eftir tilræðið og sagðist líða vel þó honum hefði brugðið. „Eins og ástandið er í landinu, þá verð ég að gera ráð fyrir að slíkt geti gerst,“ sagði Karzai. Yfirvöld í Afganistan gruna alþjóð- leg hryðjuverkasamtök sem tengjast al-Qaeda-samtökunum um að hafa staðið að tilræðinu, en þau eru einnig grunuð um að hafa staðið fyrir öflugri bflsprengingu í höfuðborginni Kabúl í gær þar sem að minnsta kosti 26 manns létu lífið og um 150 slösuðust. Öll öryggisgæsla hefur verið efld til muna í Kabúl, en óttast er að hryðju- verkamenn ráðgeri að minnast þess að á miðvikudaginn er liðið ár frá hryðjuverkaárásunum sem al-Qaeda- samtökin eru grunuð um að hafa stað- ið að í Bandaríkjunum. Aukið öryggi í flugi. Ný lög samþykkt sem leyfa vopna- burð flugmanna Bandaríska Öldungadefldin sam- þykkti í gær með miklum meiri- hluta ný lög sem leyfa bandarískum flugmönnum vopnaburð. Atkvæðagreiðslan fór 87-6 og gera lögin ráð fyrir að flugmenn far- þegaþotna geti beitt vopnavaldi tfl að verja öryggi flugvéla sinna. Lögin eru hluti af nýjum lagatfl- lögum Bush Bandaríkjaforseta vegna stofnunar nýs heimaöryggis- málaráðuneytis, sem teknar voru til umræðu í Öldungadeildinni fyrr í vikunni. Fulltrúadefld Bandarikjaþings hafði þegar samþykkt lögin sem leyfa um 70 þúsund flugmönnum í áætlunarflugi um Bandaríkin að bera á sér byssur að eigin vilja í stjómklefum hafi þeir hlotið til þess sérstaka þjálfun á vegum yfirvalda. Tfl að ná fullu lagagfldi þurfa lög- in samþykkt forsetans, en hann var í upphafi á móti vopnaburði flug- manna og sama er að segja um flest stóru flugfélögin. REUTERSMYND Blelukallinn komlnn á skriö Það er ekki undarlegt þótt litla barnið í kerrunni horfi forviða á þrítuga kaupsýslumanninn Rob Moroney í Sydney í Ástralíu. Moroney er uppnefndur „bleiukallinn “ þessa dagana vegna uppátækis síns að skríða á fjórum fótum, í stórri bleiu einni fata, 42 kílómetra leiðina sem maraþonhlauparar á Ólympíuleikunum árið 2000 hlupu. Moroney gerir ráö fyrir að skríða teiðina á níu dögum og með þessu ætlar hann að safna fé fyrir barnaspítalann í Sydney. Málmbræðsla eyðilögð á Gaza í morgun: ísraelsher hefndi hermanna ísraelskar árásarþyrlur eyðflögðu málmbræðslu í Khan Younis-flótta- mannabúðunum á Gaza í morgun, að því er virðist í hefndarskyni fyr- ir árásir Palestínumanna þar sem tveir hermenn féllu og skriðdreki eyðilagðist. Hermenn létu til skarar skríða aðeins örfáum klukkustundum eftir að Ariel Sharon forsætisráðherra hét því að halda áfram baráttunni við „hryðjuverkahópa". í Vesturbakkaborginni Jenín fundust tveir palestínskir harðlínu- menn skotnir til bana snemma í morgun. Sjónarvottar sögðu að ísra- elskir hermenn hefðu gert áhlaup á felustað mannanna og skotið þá. Per Stig Moller, utanrikisráð- herra Danmerkur sem er í forsæti Evrópusambandsins, sagði við lok heimsóknar til Mið-Austurlanda í gær að friðaráætlunum ESB hefði verið betur tekið en búist hefði ver- ið við. Stig Moller sagði eftir fund með Hosni Mubarak Egyptalandsforseta að fulltrúar ESB, SÞ, Bandaríkj- anna og Rússlands myndu vinna frekar að tillögunni. Colin Powell Bandaríski utanríkisráðherrann fékk að kynnast afrískum regnskógi af eigin raun í Gabon í gær. Powell á fílaslóð í regnskóginum Colin Powell, utanrikisráðherra Bandarikjanna, fór í gær í göngutúr á fflaslóð í þjóðgarði í regnskógin- um í Gabon í miðhluta Afríku og lýsti því yfir að það hefði verið há- tindur stuttrar heimsóknar sinnar til álfunnar. Leiðsögumaður Powells og ferða- félaga hans, líffræðingurinn Mich- ael Fay, reyndi hvað hann gat að fmna fílakúk til að sýna fram á að dýrin hefðu nýlega verið á ferð á þessum slóðum, en hafði ekki erindi sem erfiði. Það spillti þó ekki fyrir ánægju bandaríska ráðherrans. Powell kom einnig við í olíurík- inu Angóla í gær á leið sinni heim frá ráðstefnu SÞ um sjálfbæra þró- un í Jóhannesarborg. Þar hvatti hann tfl þjóðarsáttar, eftir 27 ára borgarastríð. Powell lagði einnig áherslu á að stjómvöld þyrftu að hefja bæöi pólitiskar og efnahags- legar umbætur í landinu. Stoiber heilsað með eggjakasti Edmund Stoiber, kanslaraefni þýskra íhaldsmanna, fékk skæða- drífu eggja og tómata yfir sig þegar hann kom til kosningafundar í Hamborg í gær, fjarri heimahögun- um í Bæjaralandi. Stoiber átti í mesta basli með að láta heyra í sér, svo mikið púuðu viðstaddir á hann. Þykir mörgum sem þett auki enn á efasemdir manna um að Bæverji úr suðri geti nokkurn tíma unnið hug og hjörtu norðlendinga. Tæpar þrjár vikur eru þar til Þjóðverjar ganga að kjörborðinu og er nokkuð jafnt með þeim Stoiber og jafnaðarmanninum Gerhard Schröder kanslara. Hundruð vel búinna lögreglu- þjóna sáu um að óróaseggir kæmust ekki of nærri Stoiber. Danir gefa gest- um dýrar gjafir Háttsettir stjórnmálamenn og embættismenn frá Evrópusamband- inu fara ekki tómhentir heim frá Danmörku þessa mánuðina þegar Danir gegna formennsku í ESB. Að sögn Jyllands-Posten er heildarand- virði gjafanna rúmar þrjátiu millj- ónir íslenskra króna. Hinir tignu gestir fá meðal annars hnífaparasett sem hannað er af hinum fræga Ame Jacobsen. Játningar á al-Jazeera: Bin Laden ábyrgur Arabíska sjónvarpsstöðin al- Jazeera sagðist í gær hafa undir höndum játningar tveggja manna úr al-Qaeda-samtökum Osama bin Ladens um að samtökin bæru ábyrgð á hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september í fyrra. Annar mannanna, Ramzi bin al- Shaibah frá Jemen, deildi einhverju sinni íbúð með Mohamed Atta sem stjórnaði annarri flugvélanna sem flugu á World Trade Center. Hinn maðurinn, Khaled al-Sheikh Mo- hammad, er á lista yfir eftirlýsta menn á vefsvæði bandarísku alrík- islögreglunnar FBI. í fyrsta hluta heimildarmyndar sem al-Jazeera sýndi í gærkvöld kom fram að viðtöl hefðu verið tek- in við mennina tvo i Karachi í Pakistan en ekki var sagt hvenær. Játningar tvímenninganna koma fram í öðrum þætti myndarinnar en hann verður ekki sýndur fyrr en næsta fimmtudag. Að sögn frétta- mannsins sem gerði myndina kem- ur þar fram hvernig al-Qaeda undir- bjó og framkvæmdi árásimar. V Skemmtistaður , Laugardagskvöld STÓRDANSLEIKUR Danshljómsveit Geirmundar Vatýssonar skemmtir! Árshátíðir og samkvæmi. Tökum að okkur matarveislur og skemmtanahald. _________Upplýsingar í síma 867 4069 og 892 5431 Odd-Vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.