Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 14
14 FOSTUDAGUR G. SEPTEMBER 2002 Menning Á Hakinu ofan við Al- mannagjá á Þingvöllum hefur verið reistur skáli, látlaus og smekklega hann- aður, þar sem komið hefur verið fyrir þremur tölvum með skjám fyrir ofan. Á einfaldan hátt geta gestir staðarins kallað þar fram myndir og lesinn texta á þremur tungumálum, ís- lensku, ensku og þýsku, sem rekja fyrir þeim sögu íslands eins og hún tengist Þingvöllum, og upplýsing- ar um mótun staðarins og náttúrufar hans. Auk þess er breiddinni á skálanum œtlað að sýna sérstaklega hvað svœðið hefur víkkað út vegna landreks undan- farin þúsund ár. Á Þingvöllum hefur verið opnuð margmiðlunarsýning fyrir ferðamenn: Fræöslusetriö á Hakinu ofan við Almannagjá á Þingvöllum íslendingar veröa að gæta sín að vanmeta ekki skynsemi túrista. Ný tœkni - gömul saga Einar Á.E. Sæmundsen er skrifaður fyrir textanum en tölvuvinnslan var í höndum fyr- irtækisins Gagarín. DV fékk tvo sagnfræð- inga, Gunnar Karlsson og Sverri Jakobsson, til að skoða sýninguna og spjalla um túlkun- ina á íslandssögunni sem þar kemur fram. Einkum voru þeir inntir eftir því hvort sögu- skoðun, túlkun eða orðalag á texta væri í samræmi við rannsóknir og niðurstöður sagnfræðinga á undaníomum áratugum. Hæpið að tala um ríki Þaö vakti fyrst athygli i texta sýningarinn- ar, bæði á skjá og í lesnum texta, að talað var um aö stofnun Alþingis á Þingvöllum hefði lagt grunn að þjóöríki. „Þjóðríki verða ekki til fyrr en á 19. öld þvi það er talað um ríki sem þjóðríki þegar al- menningur fer að taka aukinn þátt i stjómun þeirra," segir Sverrir. „Fram að því voru riki ekki þjóðríki og mjög hæpið er að tala um ís- lenska þjóðveldið sem ríki, það skortir bein- linis ríkisvald." „Mér finnst þó allt í lagi að halda því fram sem skoðun að það hafi verið þjóðríki," segir Gunnar, „en það er ekki hægt að setja það fram sem staðreynd. Eins er með söguna af upphafi Alþingis - söguna af þeim fóstbræðr- um, Olfljóti sem sækir lög til Noregs og Grími geitskör sem fer um landið og velur Þingvelli sem þingstað, þetta eru sagnir og það má ekki segja þær eins og staðreyndir." „Og það er ekki nóg að bæta við fyrirvör- um á borð við „aö því er talið er“ eða nota varfærnislegt orðalag af öðru tagi, það miss- ir marks," bætir Sverrir við, „miklu nær væri að nefna bara heimildina". „Megingallinn á þessum texta flnnst mér að höfundar nota sér ekki hvað fræðileg óvissa er í sjálfu sér skemmtileg ef maður fær að vita í hverju hún er fólgin," segir Gunnar. „Til dæmis er settur fyrirvari um Lögberg, hvar það hafi verið nákvæmlega, en lausnin á því í textanum er bara sú að flestir fræði- menn haldi aö það haff verið þar sem fáninn er nú. Skemmtilegra hefði verið að leiða áhorfandann inn í vandamálið - hvar héldu aðrir að Lögberg hefði verið og hver voru rökin með og á móti. Á myndum hefði ekki verið neinn vandi að sýna þessi ólíku Lög- berg og svo hefðu áhugasamir gestir getað farið sjálflr og athugað málið.“ Myndir til skrauts Þetta atriði leiðir talið að myndefninu sem sagnfræðingimum fannst illa notað og mun verr heppnað en í náttúruhluta sýningarinn- ar. Þar er tölvugraflk notuð markvisst til að sýna hvemig staðurinn mótaðist og samræmi er milli texta og kvikmynda af landslagi, gróðurfari og dýralífi. Með sögulega hlutan- um em til dæmis myndir eftir breska málar- ann W.G. Collingwood, sýndir fiölmargir bút- ar úr heimildamyndum, fréttamyndum og ís- lenskum kvikmyndum og mátti þar oft þekkja atriði úr Útlaganum, frægri bíómynd Ágústs Guðmundssonar eftir Gísla sögu Súrs- sonar. En hvergi kom nafn þeirrar bíómynd- ar eða leikstjóra hennar fram, aðeins nafn fyrirtækisins sem fær þakkir eins og önnur fyrirtæki í sérstöku skjali. Gestir sem hefðu áhuga á að sjá þessar kvikmyndir í heilu lagi fá ekki aðstoð þar. Þó sérkennilegt sé er myndefni frá Þingvöllum sjálfum af skomum skammti og kort af staðnum eru óskýr. „Miðað við kennslu Eggerts Þórs Bern- harðssonar í Háskólanum um notkun myndefnis þá var þetta ekki vel gert,“ segir Sverrir, „aðstandendur sýningarinnar gera, held ég, flestar vitleysumar sem hann varaði við. Það á ekki að nota myndefni nema skýrt sé til hvers það er, mynd á aldrei að vera bara til skrauts, en þarna var obbinn af myndefni eingöngu myndskreyting. Þegar sagt er frá róstum á Alþingi þá kemur bútur úr kvikmynd þar sem menn em að berjast en við vitum ekkert hvað hún á að sýna.“ „Gott dæmi er líka þegar sagt er frá því að Sveinn Bjömsson hafi verið kosinn fyrsti for- seti landsins á lýðveldishátíðinni 1944. Þá sjá- um við tvo karla takast í hendur á mynd en maður verður að þekkja Svein Björnsson til að vita hvor er hvor,“ segir Gunnar. „Eða þegar ónafngreindur maður sést stjóma húrrahrópum á lýðveldishátíðinni, það væri gaman að minnsta kosti fyrir ís- lenska gesti að vita að þetta er Bjöm Þórðar- son forsætisráðherra," bætir Sverrir við. „Annaðhvort þarf að hafa skýringartexta inni á myndinni eða segja i lesnum texta hvað er að gerast á henni; frysta myndina á með- an eða stækka myndina af þeim sem er nefndur sérstaklega. Obb- inn af þeim sem skoða sýninguna hefur ekki hug- mynd um hverjir eru á þessum myndum, hvort verið er að sýna Ólaf Ragnar Grímsson, Karl Sigurbjömsson eða einhverja aðra, en kannski hefðu þeir áhuga á að vita hverja þeir em að horfa á. Fyrst verið er að sýna myndir af þessum mönnum verður að gera ráð fyrir að þær hafi eitthvert gildi.“ „Það er eins og lesari textans hafi ekki hug- mynd um hvaða mynd er á skjánum á sama tima - á milli texta og myndar er allt of lítið samband,“ segir Gunnar. „Einn hluti sýningarinnar sýnir á hreyfi- mynd leið nokkurra persóna á þing, einnar úr hverjum landsfiórðungi," segir Sverrir. „Það er í sjálfu sér frumleg notkun á myndefni. En að velja ýmist sögulegar per- sónur, eins og Þorgeir Ljósvetningagoða, eða persónur úr íslendingasögunum, eins og Gunnar á Hlíðarenda, finnst mér hæpið. Og svo er ekkert gert með erindi þeirra á Alþingi þannig að alveg eins vel hefði verið hægt að nota tilbúnar persónur. Úr því að Gunnar var valinn hefði til dæmis mátt velja Hallgerði Höskuldsdóttur líka og láta hann koma að suðaustan og hana að vestan og segja söguna úr Njálu af því þegar þau hittust á Þingvöll- um. Og í stað þess að senda Hrafnkel úr Hrafnkels sögu Freysgoða á Þingvöll hefði átt að senda Sám úr sömu sögu vegna þess að í sögunni er það ferð Sáms á Alþing sem er spennandi. Það vantar undirbyggingu undir þessi atriði eins og fleiri." íhaldssöm sagnfræði - Var eitthvað í þessum texta sem gengur beinlínis gegn rannsóknaniðurstöðum ís- lenskra sagnfræðinga undanfama áratugi? Er þetta með öðrum orðum „gamaldags" saga? „Nei, ekki þannig að það séu villur í hon- um,“ segir Sverrir, „en andinn finnst mér gamaldags. Efnisvalið er ógurlega íhalds- samt, þarna er allt sem maður getur búist við á svona sýningu og allt sem hefði verið á svona sýningu fyrir 30 árurn." - En er eitthvað að því? „Nei, en ekki finnst manni það spennandi! Það er ekki nóg að saga sé villulaus, hún verður líka að vera ögrandi, ýta við manni, koma á óvart.“ „Mér finnst það líka, eins og ég sagði áðan, gamaldags sagnfræði að setja sagnir fram sem staðreyndir," bætir Gunnar við. „Há- skólamenntaðir erlendir gestir sem koma hingað og vita ekki neitt um íslenska sögu fyrir skynja þessa efnismeðferð sem gamal- dags. Þeir vilja fá svör við spurningunni hvemig vita menn þetta? Upprunagoðsagnir á borð við söguna um upphaf þinghalds á Þingvöllum eru afar skemmtilegar í sjálfum sér og þær eiga að fá að njóta sín sem slíkar. En þessi texti er laus við þjóðrembu. Til dæmis er ekki sagt að þetta hafi verið fyrsta þingið í heiminum eða að ríkið sem stofnað var hafi verið lýðræðissamfélag, þær gömlu klisjur era eiginlega horfnar. Stóra hættan við alþýðlega miðlun sögunnar er þó að þeg- ar þjóöemiskenndin hverfur út úr henni þá verði staðreyndimar sem eftir eru óttalega leiðinlegar. í staðinn væri hægt að magna upp spennu milli staðreynda og sagna, milli þess hvað er vitað og hvað ekki. Það þarf að gæta sín á að vanmeta ekki skynsemi túrista." Sýningin er opin frá kl. 9 á morgnana til kl. 17 alla daga vikunnar. Sverrlr Jakobsson skoðar hvernlg Lögrétta var skipuð Tölvugrafik er stundum notuö skemmtilega í sögulegum hluta sýningarinnar. __________________________DV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is The Saga of Gudridur Síðustu sýningar sumarsins á The Saga of Gudridur eftir Brynju Benediktsdótt- ur verða í Skemmti- húsinu við Laufásveg 22 um helgina. Sýning- ar hafa staðið frá þvi 6. júní síðastliðinn á fimmtudögum, föstu- dögum og sunnudögum og hafa viðtökur farið fram úr björtustu vonum aðstand- enda. Þar sem verkið er flutt á ensku hef- ur meirihluti áhorfenda verið ferðamenn í heimsókn á íslandi en einnig hefur tölu- vert af íslendingum sótt sýninguna, auk nýbúa og erlendra stúdenta sem hér em við nám. Sýningarnar um helgina verða á fimmtudag, föstudag og sunnudag kl. 20.30 en auk þess verður verkið sýnt á ráðstefn- unni Saga og samfélag í Borgamesi annað kvöld. Að loknum þessum sýningum verður reglulegu sýningarhaldi hætt fram til næsta vors, utan sýninga sem pantaðar eru vegna ráðstefnu- og fundahalda. Ævisaga Jóns Baldvins Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á fyrra bindi ævisögu Jóns Baldvins Hanni- balssonar, Tilhugalíf, sem út mun koma hjá Vöku-Helgafelli um miðjan nóvember. Höf- undur bókarinnar, Kol- brún Bergþórsdóttir, hefur unnið að verk- inu í Washington ásamt Jóni Baldvini og er þar nú að ganga frá lokagerð þess. Kol- brún byggir á samtölum sínum við hann og samferðamenn hans, minnispunktmn og einkabréfum. í ævisögunni greinir Jón Baldvin ítarlegar frá einkalífi sinu en áður, m.a. samskiptum sinum við föður sinn, Hannibal Valdimarsson, uppvexti á Vestfiörðum og í Reykjavík, eigin- konu sinni, Bryndísi Schram, námi heima og erlendis, skóla- meistaraámm á Isafirði, ritstjóraferli sín- um á Alþýðublaðinu og uppgjörinu við Vilmund Gylfason í kjölfar deilna kring- um blaðið. Þá birtir hann umbúðalaust skoðanir sínar á mönnum og málefhum. Kolbrún Bergþórsdóttir hefur verið áberandi í íslensku bókmenntalífi um árabil sem gagnrýnandi. Nú sest hún hin- um megin við borðið og skrifar sögu Jóns Baldvins sem í ævisögu Steingríms Her- mannssonar er nefndur „glaumgosi ís- lenskra stjómmála". Námsgengi ungmenna Félagsvísindasofnun og Háskólaútgáfan hafa gefið út bókina Ungt fólk og framhaldsskólinn - Rannsókn á námsgengi og afstöðu ‘75 árgangsins til náms eftir Jón Torfa Jónasson og Kristjönu Stellu Blöndal. í bókinni eru kynntar niðurstöður rannsóknar Jóns Torfa og Kristjönu Stellu á námsferli og námsgengi fólks sem fæddist árið 1975. Rannsóknin veitir yfir- gripsmiklar upplýsingar um menntun ungs fólks að loknum grunnskóla auk þess sem varpað er ljósi á fiölmargt um ís- lensk skólamál. Fjallað er um námsstöðu fólks viö 24 ára aldur og afstöðu til náms í grunn- og framhaldsskóla í ljósi námsár- angurs í grunnskóla, kyns og búsetu. Jafnframt er fiallað um ástæður brottfalls úr framhaldsskóla. Kynntar eru fyrstu niðurstöður um tengsl sjálfsálits viö námsframvindu og afstöðu til náms og samanburður á niðurstöðum þessarar rannsóknar og sambærilegrar rannsókn- ar sem náði til ‘69 árgangsins. Jón Torfi Jónasson er prófessor í upp- eldis- og menntunarfræði við félagsvís- indadeild Háskóla íslands. Hann hefur á undanfomum árum staðið fyrir rann- sóknum á íslenska skólakerfinu, starfs- menntun og fullorðinsfræðslu og birt fiöl- margar greinar um menntamál, hér á landi og erlendis. Kristjana Stella Blöndal er aðstoðarforstöðumaður Félagsvísinda- stofnunar Háskóla íslands og stundakenn- ari við félagsvísindadeild.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.