Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 15
15 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 X>V_________________________________________________________________________________________________Menning Sjaldheyrð en gullfalleg - bandaríski sellóleikarinn Nina G. Flyer leikur með Tríói Reykjavíkur Á sunnudagskvöldið kl. 20 verða fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnarborg- ar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjaröar. Af því tilefni hefur Gunnar Kvaran, sellóleikari tríós- ins, vikið sœti fyrir þekktum bandarískum sellóleikara, Ninu G. Flyer. Hún mun leika með Guðnýju Guðmundsdóttur fiöluleikara og Peter Máté píanóleikara fjögur sjaldheyrð tríó frá 20. öld eftir tékk- neska tónskáldió Bohuslav Mart- inu, Rússann Dmitri Shostakovítsj, Tékkann Josef Suk og Frakkann Claude Debussy. Nina Flyer er íslenskum tónlist- aráhugamönnum aö góðu kunn því hún lék með Sinfóníuhljóm- sveit íslands í hálft annað ár fyrir rúmum tuttugu árum og hefur iðulega komið hingað síðan. Hvemig stóð á þvi að rúmlega tví- tug bandarísk stúlka á hraðri framabraut í heimalandinu kaus að koma til íslands? Island fyrsta útlandið „Guðný Guðmundsdóttir ög ég vorum saman í Eastman Scliöol of Music i Rochester i Bandarikjun- um, við vorum meira að segja her- bergisfélagar," segir Nina og dökk augun eru full af hlátri þegar hún riíjar upp skólaárin. Guðnýju, virðulegan konsertmeistara ís- lensku sinfóníuhljómsveitarinnar, kallar hún GiGi og allt í einu sér maður fyrir sér undurfríða ljósku á léttum sumarkjól. „ísland var fyrsta útlandið sem ég fór til!“ heldur hún áfram, „svo að ísland er ótrúlega stór hluti af lífi minu. Ég var þá að leika með sinfóníuhljómsveit í New Jersey en langaði mikið til Evrópu og þegar Guðný kom í heimsókn, einu sinni sem oftar, spurði hún hvort ég vildi ráða mig hjá Sinfóníuhljómsveit íslands. Ég sagði „Sure!“ og dreif mig hingað. Lék hér bæði í hljómsveitinni og með Reykjavík Ensemble i eitt ár. Þá fór ég með Karsten Andersen hljóm- sveitarstjóra til Noregs og var þar í hálft ár, síð- an til Englands um tíma en kom svo aftur hing- að í hálft ár.“ - Svo þér hefur ekki leiðst svo mikið að þú vildir aldrei koma hingað aftur? „Ekki aldeilis, ég elska þetta land og fólkið mitt hér. Og ég elska íslenskan mat!“ Héðan fór Nina til ísrael og varð sóló sellóleik- ari með Sinfóníuhljómsveitinni í Jerúsalem. Þangað heimsótti Guðný hana líka og saman lögðu þær drög að menningarsáttmála milli þjóðanna sem ekki hafði verið til áður. „Það gerðum við auðvitað til aö við gætum spilað saman,“ segir Nina og hlær dátt. Kringlan var ekki þá - Hefur tónlistarlífið hér á landi breyst mikið síðan þú komst hingað fyrst? „Ja, sinfóníuhljómsveitin er að minnsta kosti orðin æðisleg," segir Nina, „það er auðheyrt af DV-MYND TEmjR Sellóleikararnir og vinlrnir Nina G. Ryer og Gunnar Kvaran Hún grípur hvert tækifæri til að koma aftur til fyrsta útlandsins síns. geisladiskunum sem Guðný hefur gefið mér með hljómsveitinni. Ég tel að Guðný og Gunnar Kvaran séu ábyrg fyrir þessari þróun því þau hafa kennt svo mörgum af ungu hæfileikaríku strengjaleikurunum sem nú leika með hljóm- sveitinni. Svo er auðvitað svo miklu meira um kammertónleika en áður. Þróunin í Bandaríkj- unum er ekki góð. Auðvitað eru milljón konsert- ar í stórborgum eins og New York en í minni borgum er orðið nær ómögulegt að fá styrki til tónleikahalds. Niðurskurður alls staðar. Hér virðist heilsufarið á tónlistarlífmu vera mun betra og ég vona að það haldist. Að öðru leyti er helsta breytingin á íslandi sú að nú eru komnar stórar verslunarmiðstöðvar sem ekki voru í gamla daga!“ - Hvað með efnisskrána? Þekktirðu þessi verk? „Nei, þau eru öll ný fyrir mér sem er stórund- arlegt því ég hef alltaf leikið í tríóum og hélt að ég þekkti allt sem hefði verið samið fyrir þessa hljóðfærasamsetningu. Þegar ég fékk listann yfir þau með tölvupóstinum spurði ég örvæntingar- fúU hvort við gætum ekki leikið einhver önnur verk eftir þessi tónskáld. En yfirskrift tónleik- anna var „Sjaldheyrð tríó frá siöustu öld“ svo því varð ekki breytt! En þessi verk eru svo gullfalleg og skemmtileg að ég er mjög ánægð með að hafa lært þau og ætla sannarlega að stela hugmyndinni og leika þau heima. Til dæmis er verkið eftir Debussy frá því þegar hann var um tvítugt og maður sér bæði ýmis einkenni sem maður kannast ekkert við og önnur sem hann átti eftir að þróa, og það sama má segja um Shostakovítsj sem var bara 16 ára þegar hann samdi sitt tríó.“ - Eru þetta þá ekki auðveld verk úr því þeir voru hálfgerð börn? „Ónei, ekki aldeilis!" segir hún með þunga. „En yndisleg eru þau.“ Kennum börnum líka að hlusta Gunnar Kvaran er ánægður með aðsóknina og áhugann á tón- leikaröðum Triós Reykjavíkur i Hafnarborg sem nú hafa verið haldnar síðan 1990. „Það tók svolítinn tíma að venja fólk á að koma,“ segir hann, „þetta var fremur nýtt þá. En það þarf að vinna vel að kynningu á svona tónleikum. Tríóið ber sjálft fjár- hagslega ábyrgð á launum til tón- listarmannanna, en húsnæðið fáum við hjá Hafnarfjarðarbæ, sem betur fer, og ýmiss konar fyr- irgreiðslu. Nú hefur samkeppnin aukist til muna því alltaf fjölgar því hæfileikarika fólki sem kemur úr námi hér heima og erlendis, og því miður eykst fjöldi gesta ekki I réttu hlutfaÚi við það. Því berjast margir um hóp af fólki sem ekki er alltof stór. Þegar ég hélt tón- leika i Austurbæjarbíói, kornung- ur maður, þá fyllti ég húsið, fékk 800 áheyrendur. Nú er maður sæll og glaður með 120-30 manns á kammertónleika." - Hvað með alla tónlistamemana sem skipta þúsundum á landinu, koma þeir ekki? „Þessari spurningu hef ég lengi velt fyrir mér,“ segir Gunnar. „Þeir skila sér nefnilega ekki sem skyldi og það er okkur að kenna. Við kennum fólki að syngja og leika á hljóðfæri en við höfum ekki kennt því að fara á tónleika og hlusta á tónlist. Maður kemur í bæ úti á landi þar sem er 50-100 manna tónlistarskóli og það koma kannski fimm manns á tónleika! Það er hægt að kenna öllum bömum að meta góða tón- list en það þarf að byija strax í leikskóla. Þessi þáttur uppeldisins hefur bmgðist en með sam- stilltu átaki getum við breytt því!“ Tónleikarnir á sunnudagskvöldið eru hinir fyrstu af femum í vetur. 17. nóvember verða tón- leikar undir yfirskriftinni „Mozart að mestu“, á nýárstónleikum 26. janúar syngja Diddú og Bergþór Pálsson Vínartónlist og sígaunatónlist með tríóinu og 30. mars syngur Elin Ósk Óskars- dóttir ljóð og óperuaríur með tríóinu auk þess sem leikin verða verk eftir Áskel Másson og Mendelssohn. Gestir á sunnudagskvöldið geta keypt áskriftarkort á alla tónleikana og tryggt sér þar með sæti. Tónlist Akademískt teknó UNM-hátíðin, Ung nordisk musik, stendur nú yfir, og á miðvikudagskvöldið var komið að tveimur tónlistarhópum, Poing og UNM-band, að flytja verk eftir nokkur ung norræn tónskáld í Salnum i Kópavogi. Besta verkið var eftir Ólaf B. Ólafsson, Arithmetic exercise of the... Það var látlaus en hæfilega flókin rafræn hrynjandi, sem tónskáldið sjálft kallaði „akademískt teknó“. Ljósin í salnum blikkuðu í takt við tónlistina sem var óþarfi þar sem maður var ekki staddur á dansgólfi og í raun dálítið óþægilegt. Að minnsta kosti hefði viðvörun til flogaveikisjúk- linga átt að fylgja með í efnisskránni; vonandi fékk enginn flog á tónleikunum. Það lá þó við að maður fengi flog af leiðindum við að hlusta á Impressions of an Appearance eftir David Bratlie (Noregur), píanóverk sem Pál Storset flutti af miklum krafti. Krafturinn dugði engan veginn til að lappa upp á tónsmíðina, sem minnti mjög á það sem var í tísku í kringum 1970. í sjálfu sér var verkið ekki illa samið, form þess var skýrt og stígandin rökrétt, en það var afar ófrumlegt og gamaldags, og má því segja að útkoman hafi ekki verið meira spennandi en illa lyktandi sokkar. Ekki betra var Altair 4 eftir Ere Lievonen (Finnland), fyrir flautu, klarinett, slagverk, víólu og kontrabassa. Það mun hafa verið í suö- ur-indversku tónlistarformi sem nefnist kriti og í tónleikaskránni var sagt að hér væri um kriti frá annarri plánetu að ræða. Nú veit maður ekki hvernig tónlist frá annarri plánetu hljómar, það sem heyrðist á tónleikunum var einhvers konar hryglukennt sírenuvæl og hrærigrautur af óskyldum hendingum sem virtust eiga í mikilli baráttu innbyrðis. Verður því miður að segjast að þrátt fyrir góðan og nákvæman flutning hins íslenska UNM-bands hljómuðu herlegheitin eins og þau kæmu úr afturendanum á manni sem er nýbúinn að fara í þarmaspeglun. Verk Önnu S. Þorvaldsdóttur, -mitt- , fyrir selló og píanó var mun áheyrilegra. Það var lýrísk hugleiðing sem komst á flug í fjörlegum millikafla en hneig svo aftur niður i enn meiri innhverfu, og var tónsmíðin glæsilega flutt af Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara. Sama má segja um saxófónverkiö Sick Puppy, Sad Puppy eftir Davíð B. Franzson sem Rolf-Erik Nystrom lék. Þetta er hnitmiðuð tónsmíð, ekkert endilega skemmtileg, en vel unnin. Annað á þessum tónleikum er varla hægt að skrifa um. Uppgjör eftir Guðmund St. Guð- mundsson var skelfilega einhæft, en myndi hugsanlega passa við einhvers konar fræðslu- þátt í sjónvarpinu. Sejd eftir Erik Peters (Sví- þjóð) var bara óskiljanlegt skrjáfur og Giants of Jazz eftir óyvind Torvund (Noregur), sem norski tónlistarhópurinn Poing flutti, var við- undrasýning sem ekki nokkur leið var aö átta sig á, en óneitanlega i stíl við megnið af verkun- um á þessum hálfglötuðu tónleikum. Jónas Sen Vaxtarbroddar I Galleríi Rifi við Sölvhólsgötu 11 - þar sem rapparamir skemmtu á menn- ingarnótt - stendur nú yfir sýning á teikningum og módelum ungra arki- tekta og má þar sjá hvert stefnir í is- lenskri byggingarlist. Þar aö aúki hafa ungu arkitektarnir reist hús sem krakkarnir byggðu á smíðavöllum íþrótta- og tómstundaráðs í sumar til að sýna verk enn þá yngri listamanna. Sýningin hefur nú verið framlengd til 16. september og er opin virka daga kl. 16-19 og um helgar kl. 12-18. Ljóð Einars Más Aðdáendur ljóða Einars Más Guð- mundssonar munu fagna því að nú eru komin út hjá Máli og menningu í einni stórri bók öll ljóð hans frá 1980-1995, al- veg frá litlu kverun- um sem bæði seldust upp til agna, Sendisveinninn er einmana og Er nokk- ur í kórónafötum hér inni, til í auga óreiðunnar frá 1995. Einar Már er kunnastur hér á landi og erlendis sem skáldsagnahöfundur, en í augum margra sem fylgdust með honum frá byrjun er hann fyrst og fremst ljóðskáld - enda ljóðin hans ekk- ert lítið frumleg og skemmtileg. Sum þeirra hafa orðið eins konar orðtæki í málinu - eins og þetta til dæmis úr Kór- ónafötunum: vœri ég bilað sjónvarp mundi ég örugglega valda frekari truflunum í lífi ykkar Ekki reyndist hann þó sannspár þar því ekkert bilað sjónvarp heföi haldið þeirri athygli og aðdáun vakandi sem hann hefur gert með bókum sínum síð- an. Skafti Þ. Halldórsson bókmennta- fræðingur ritar rækilegan inngang um ljóð Einars Más. Mál og menning hef- iu líka gefið út Engla alheimsins í enskri þýðingu Bemards Scudders en hún var fyrst gefin út af Mare’s Nest forlaginu í London 1995. Sagan kom út á ís- lensku 1993 og hlaut Menningarverðlaun DV fyrir það ár og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1995. Arkitektúr og skáldskapur A dagskrá Menningarmiðstöðvarinn- ar Gerðubergs i haust er bæði ritþing og sjónþing þar sem listamenn rekja feril sinn og svara nærgöngulum spurn- ingum sérvalinna spyrla. Þessi þing hafa verið óhemju vinsæl enda veita þau sjaldgæfa innsýn í innra úrverk listamanna. Nú stendur yfir í Gerðubergi norræna farandssýningin Viö með verkum ung- linga sem sýna sjálfskilning þeirra á lif- andi hátt. Seinna í mánuðinum koma átta ólíkar fiðlur frá Bandaríkjunum sem verða kynntar saman og einar sér með tóndæmum úr ólíkum tónverkum. Hinn 28. september verður í fyrsta skipti haldið sjónþing arkitekts. Það er Man- freð Vilhjálmsson sem verður spurður spjörunum úr undir stjórn Aðalsteins Ingólfssonar. Spyrlar eru Albína Thordarson og Pétur Ármannsson. Dagana 19. og 20. október stendur Evr- ópusamband píanó- kennara fyrir nám- skeiði í píanóleik fyr- ir byrjendur og lengra komna. 9. nóvember situr Matthías Jo- hannessen, skáld og fyrrum ritstjóri Morg- unblaðsins, fyrir svör- um á ritþingi. Stjómandi er Silja Aðal- steinsdóttir. Sama dag verður opnuð sýning á verkum úr eigu Matthíasar en hann hefur þekkt marga af helstu myndlistarmönnum þjóðarinnar og á merkilegt safn myndlistar. Hinn árlegi bókmenntadagur bam- anna, Viltu lesa fyrir mig? verður 23. nóvember með upplestri, tónlist og leik- list. Auk þess verður þá opnuð sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum is- lenskum bamabókum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.