Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 27
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 27 DV Sport ísland mætir Ungverjalandi á Egilsstöðum: Vígsluleikur - þegar U-21 árs liðin leika á Vilhjálmsvelli íslenska landsliðiö skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Ungverjum í vináttulandsleik á Viihjálmsvelli á Egilsstöðum á laugardaginn og hefst leik- urinn kl. 13. Leikurinn er merkiiegur fyrir þær sakir að þetta er fyrsti knatt- spyrnuleikurinn sem fram fer á Vilhjálmsvelli en hann hefur áður verið not- aður undir frjálsar iþróttir. Hattarmenn sjá um framkvæmd leiksins og er von á góðri aðsókn enda ekki oft sem landsleikir eru spilaðir á Austurlandi. Ólafur Þórðarson, þjáifari liðsins, gerði átta breytingar á hópnum frá því í leiknum gegn Frakklandi á dögunum og ætlar sér að nota þennan leik til að móta betur hópinn sem hann velur þegar alvaran byrjar, gegn Skotum 9. októ- ber næstkomandi. Sex nýliðar eru í hópnum að þessu sinni. -ósk ^ íslendingar mæta Ungverjum á Laugardalsvelli á laugardaginn: Ahersla á sókn Engar ævisögur Forráðamenn Manchester United ætla í framtiðinni að banna leikmönnum sínum að skrifa ævisögur á meðan þeir eru leikmenn með félaginu. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar útgáfu umdeildrar ævisögu Roy Keane en hann á yfir höfði sér kæru vegna ummæla í bókinni. „Við trúum því að leikmenn geti fundið sér eitthvað betra við tímann að gera en skrifa bækur á meðan þeir spila fyrir okkur. Þeir geta þénað peninga á annan hátt ef það er það sem þeir leita að,“ sagði David Giil, einn af æðstu mönnum félagsins, í gær. -ósk Ragnar er með slitin krossbönd Ragnar Óskarsson, landsliðs- maður i handbolta og leikmaður með franska 1. deildarliðinu Dunkerque, varð fyrir því óláni að slíta krossbönd í æfingaleik á dögunum en þetta kom fram hjá Stöð 2 í gær. Það er ljóst að Ragnar verður frá i hálft ár og missir því af keppni með Dunkerque og íslenska landslið- inu það sem eftir er árs. -ÓÓJ Býst við erfiðum leik - segir Imre Gellei, landsliðsþjálfari Ungverja Imre Gellei, landsliðsþjálfari Ung- verja, var kaldur en léttur í lund þegar DV-Sport ræddi við hann eft- ir æfingu hjá ungverska liðinu á Fram-vellinum í gær. „Við erum nýkomnir til landsins og það er mikill munur á veðrinu hér og heima í Búdapest þar sem er 25 stiga hiti,“ sagði Imre Gellei. Aðspurður um leikinn gegn ís- lendingum á laugardaginn sagðist hann eiga von á mjög erfiðum leik. „íslenska liðið er mjög sterkt. Ég þekki ekki marga leikmenn þess en veit að leikmenn eins og (Eiður Smári) Guðjohnsen og (Rúnar) Kristinsson eru frábærir knatt- spymumenn. íslenska liðið er gífur- lega baráttuglatt, mjög líkamlega sterkt og ég býst við mjög erfiðum leik þar sem ekkert verður gefið eft- ir á laugardaginn. Það hentar okkur vel því aö við erum í riðli meö Sví- um sem eru líka mjög líkamlega sterkir. Við spilum við þá í október þannig að þessi leikur við íslend- inga er góður undirbúningur,“ sagði Imre Gellei. Aðspurður um möguleika liðsins á að komast í lokakeppni EM2004 sagði hann að byrjunin væri mikil- væg. „Okkur gekk ekki vel í síðustu undankeppni og því er mikilvægt fyrir sjálfstraust liðsins að byrja vel núna,“ sagði Imre Gellei. -ósk - segir Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari um leikinn gegn Ungverjum Undirbúningi íslenska landsliðs- ins í knattspyrnu fyrir leikina tvo í undankeppni EM í október lýkur á laugardaginn þegar liðið mætir Ung- verjum á Laugardalsvelli. Það er að mörgu að hyggja hjá Atla Eðvaldssyni landsliðsþjálfara enda er stutt í alvöruna og leikinn mikilvæga gegn Skotum. DV-Sport ræddi við Atla í gær um leikinn og hvaða þýðingu hann hefði í undir- búningnum fyrir leikina gegn Skot- um og Litháum í undankeppni EM í næsta mánuði. Ætlar þú að breyta einhverju frá siðasta leik gegn Andorra? „Það er alveg ljóst að ég mun gera einhverjar breytingar og það gæti jafnvel farið svo að einhverjir leik- menn muni spila stöður sem þeir hafa aldrei spilað áður með landsliðinu. Ég verð að nota tæki- færiö í þessum leikjum til að prófa mig áfram og sjá hvemig liðið virk- ar best. Ég hef hins vegar ekki til- kynnt byrjunarliðið og mun ekki gera það fyrr en seinni partinn á morgun (í dag),“ sagði Atli. Hyað veistu um Ungverjana? „Ég þekki ekki mikið til liðsins en ég þekki nokkra leikmenn. Þeir em meö marga menn sem spila í þýsku deildinni og það eitt segir manni að hér er á ferðinni gott lið. Það er mikil knattspyrnuhefð hjá þeim og þeir sýndu styrk sinn með því að gera jafntefli við Spánverja um dag- inn. Þeir eru reyndar fyrir neðan okkur á styrkleikalista FIFA en það gefur okkur ekkert. Þeir em með gott lið fyrir því og það verður dags- formið sem ræður úrslitum á laugar- daginn. Ef við lendum á rétta leikn- um. þá getum við unnið þá og alla aðra andstæðinga en það er jafnstutt í vesöldina ef við eigum slakan leik.“ Hvernig œtlar þú að leggja upp þennan leik? „Ég legg þennan leik upp svipað og á móti Andorra þó aö andstæð- ingurinn sé mun sterkari í þetta skiptið. Það sem við erum að reyna að gera núna er að fá ákveðið sókn- armynstur í leik liðsins og okkur hefur að því er ég held tekist þaö betur en oft áður í síðustu leikjum. Ég vil láta bakverðina sækja sem mér fannst ganga vel á móti And- orra, sérstáklega vinstra megin. Annað er að við þurfum að finna Eið Smára og Rúnar eins fljótt og nokk- ur kostur er. Ef það tekst þá vil ég að kantmennirnir séu tilbúnir að hlaupa í svæðin bak við vömina og Eiður og Rúnar em báðir það góðir spymumenn og útsjónarsamir að þeir geta splundrað vörnum með einni sendingu. Til þess að þetta sé hægt þurfum við að hafa fljóta kantmenn sem eru hugrakkir og duglegir að stinga sér en einnig fljótir að vinna til baka. Við erum að reyna að skapa ákveðið spilamynstur sem byggir á fyrir fram ákveðnum leiðum í stað tilvilj- unarkenndra hreinsana hér áður fyrr. Við emm með spilandi menn sem verða að fá að njóta sín og því er aðaláherslan á sóknina á laugar- daginn. Mér finnst vamarþátturinn sitja betur og menn vita upp á hár til hvers er ætlast á því sviði. Þess vegna eyðum viö mestum tíma í sóknarleikinn þessa daga sem við eram saman nú,“ sagði Atli Eðvalds- son landsliðsþjálfari í samtali við DV-Sport í gærkvöld. -ósk Atli Sveinn Þórarinsson og Ríkharður Daðason berjast hér um boltann á landsliðsæfingu á miðvikudaginn en Marel Baldvinsson fylgist grannt með að baki þeim. DV-mynd Teitur Bjarni og Sig- urður njósna Atli Eðvaldsson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, nýtur að- stoöar tveggja þjálfara í Síma- deildinni við að fylgjast með andstæðingum íslands í 5. riðli undankeppninnar í fyrstu leikj- um riðilsins. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, verður í Færeyjum á laugardaginn þar sem Færey- ingar taka á móti Skotum og Sig- urður Jónsson, þjálfari FH, verð- ur í Litháen þar sem Þjóðverjar sækja Litháa heim. -ósk Líklegt byrjunarlið gegn Ungverjum Markvörður Árni Gautur Arason 0&k Mörk Sigrar Jafnt. Töp 10 5 7 Leikir 56,8% árangur Fjögurra manna vörn Lárus Orri Sipurösson Sigrar Jafnt. Töp gíji| Mörk 14 7 14 50% árangur Leikir Brvniar Biörn Gunnarsson 0^k Mörk Sigrar Jafnt. Töp 0% 13 Leikir 50% árangur Hermann Hreiöarsson Mörk Sigrar Jafnt. Töp 40^ 19 8 15 Leikir 54,8% árangur Arnar Þór Viöarsson Sigrar Jafnt. Töp Mörk 10 4 5 táSf 63,1%árangur Leikir Fjögurra manna miðja Jóhannes Karl Guöiónsson 0% Mörk Sigrar Jafnt. Töp w A 2 2 2 Leikir 50% árangur Rúnar Kristinsson Sigrar Jafnt. Töp Mörk 34 17 43 á% 45,2% árangur Leikir ívar Inaimarsson Mörk Sigrar Jafnt. Töp 1 3 1 Leikir 50% árangur Hiálmar Jónsson Sigrar Jafnt. Töp Mörk 1 1 . 37,5%árangur Leikir Tveggja manna sókn Eiöur Smári Guöiohnsen Mörk Sigrar Jafnt. Töp 8 8 8 Leikir 50% árangur Ríkharöur Daöason Sigrar Jafnt. Töp Mörk 18 6 17 ffk 51,2%árangur Leikir W Varamannabekkur Birkir Kristinsson 71 leikur/0 mörk 29 sigrar, 16 jafntefli, 26 töp, 52,1% Marel Baldvinsson 8/0 2 sigrar, 3 jafntefli, 3 töp, 43,8% Sævar Þór Gislason 7/0 1 sigur, 2 jafntefli, 4 töp, 28,6% Ólafur Stígsson 6/0 1 sigur, 3 jafntefli, 2 töp, 41,7% Gylfi Einarsson 5/0 3 sigrar, 1 jafhtefli, 1 tap, 70% Haukur Ingi Guönason 4/0 2 sigrar, 1 jafntefli, 1 tap, 62,5% Atli Sveinn Þórarinsson .... nýliði Landsliðsþjálfarinn Atli Eövaldsson ~ \ Sigrar Jafnt. Töp ! -^j 10 5 10 50% árangur Leikir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.