Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Page 32
AGFA ^ APS FILMUR Á BETRA VI Framköllunarverð á APS filmum Gæða framköllun HEIMSMYNDIR AGFA<5> Smiðjuvegi 11.■ gul gala -, 200 Kópavogur, simi 544 4131 Viðbótarlífeyrissparnaður ■ Allianz (ííi) FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ - Loforð er loforð i l FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is ^ Val á kjölfestufjárfesti í Landsbankanum: Akvörðun tekin um helgina - tilkynnt á sunnudags- eða mánudagskvöld Niðurstaða fæst um það um helg- ina hvaða hóp fjárfesta fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu velur til frekari viöræðna um kaup á að minnsta kosti 25% hlut í Arcadia sam- - þykkir tilboðið Stjóm Arcadia hefur samþykkt tilboð og yíirtöku Taveta Invest- ment, fyrirtækis fjármálamanns- ins Philps Greens, á bresku verslanakeðjunni Arcadia. Greint var frá þessu í breskum fjöl- miðlum snemma í morgim en fundað var vegna yfir- tökutilboðsins i gærkvöld. í því felst að Baugur, sem átti um 20% í Arcadia, verður keyptur út úr fyrir- tækinu á um 21 milljarð króna. Fyr- irtæki Philips Greens greiðir þar með 408 pens á hvern eignarhlut og er Arcadia samkvæmt því metið á 770 milljónir breskra punda. 1 gær var tilkynnt að þrotlausar viðræður Baugsmanna og Philips Greens hefðu ekki leitt til samninga um samstarf þessara aðila um kaup á Arcadia eða hlutum af verslana- keðjunni. Philip Green er því ekki lengur skuldbundinn því að selja Baugi þau fyrirtæki sem Baugur hafði hug á að kaupa út úr Arcadia, * þ.e. verslanirnar Topshop, Miss Sel- fridge og Top Man. -HKr. Philip Green. EINN EINN TVEIR NEYÐARLfNAN LÖGREGLA SLÓKKVILIÐ SJÚKRALIÐ j Landsbanka ís- lands. „Við höfum verið í sambandi við aðila og feng- ið frá þeim ýmis gögn varðandi málið. Við höf- um spurt um ákveðin atriði og erum að vinna úr því núna þessa stundina," sagði Ólafur Dav- íðsson formaður nefndarinnar í morgun. „Við vonumst til þess að þeirri vinnu ljúki núna um helgina þannig að það muni liggja fyrir strax eftir helgi hvemig framhaldið í þessu verður, þ.e. við hvern þess- ara þriggja hópa við hefjum frekari viðræður." Gert sé ráð fyrir að nefndin tilkynni niðurstöðu sína eftir lokun markaða á mánudags- kvöld en þó gæti það orðið strax á sunnudagskvöld. Fjárfestarnir sem rætt hefur ver- ið við eru sem kunnugt er Björgólf- ur Thor Björgólfsson, Magnús Þor- steinsson og Björgólfur Guðmunds- son; Kaldbakur hf. (fjárfestingarfé- lag KEA, Samherja og Lífeyrissjóðs Norðurlands); og Eignarhaldsfélag- ið Andvaka, Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar, Fiskiðjan Skagfirðingur hf., Kaupfélag Skag- firðinga svf., Ker hf., Samskip hf. og Samvinnulífeyrissjóðurinn. Landsbankinn seldi á dögunum 27% hlut í Vátryggingarfélagi ís- lands félögum í síðast talda hópn- um og var tímasetning þeirra við- skipta, þ.e. á meðan undirbúningur að sölu á kjölfestuhlut í Lands- bankanum stendur sem hæst, gagn- rýnd af Björgólfi Thor Björgólfs- syni. -ÓTG Þjóðhetju pakkað í ál: Mótmælum yfirgangi - „öræfi að eilífu“, sögðu mótmælendur Hópur fólks mótmælti í morgun með táknrænum hætti fyrirhuguð- um virkjanaframkvæmdum á há- lendinu vegna álversframkvæmda fyrir austan. Undir slagorðum hóps- ins „öræfi að eilífu“ var styttunni af þjóðhetju Islendinga á Austurvelli, Jóni Sigurðssyni forseta, pakkað inn í álpappír. „Við erum með þessu að sýna hvemig framtíð íslendinga kemur til með að líta út, innpökkuð í ál,“ sagði einn af talsmönnum hópsins. „Við erum hópur sem erum að mót- mæla þessum yfirgangi ríkisstjóm- ar Islands. Við höfum komið hér saman óformlegur hópur fólks á Austurvelli daglega í hádeginu til að ræða framtíð hálendisins. Þar hafa fæðst ýmsar hugmyndir, þar á meðal þessi,“ sagði ein kona sem stóð að mótmælunum í morgun en vildi ekki láta nafns síns getið. Þegar hópurinn hafði lokið við að pakka Jóni Sigurðssyni inn í ál og var á leið með stiga sína á brott gekk að þeim lögreglumaður og krafðist þess að þau fiarlægðu um- búðimar af Jóni. Neitaði hópurinn að fara að fyrirmælum lögreglu- mannsins. Skráði hann þá niður nöfn og símanúmer þeirra sem að aðgerðum stóðu og gerði þeim grein fyrir að slík neitun gæti haft alvar- lega eftirmála. Lögregla aðhafðist þó ekkert frekar og hvarf hópurinn á brott með stiga sína fyrir homið á Alþingishúsinu. -HKr. DV-MYND TEITUR Þjóðhetju pakkað í ál Hópur fótks mótmælti fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum á hálendi ístands með því að pakka styttunni afJóni Sigurðssyni inn í álpappír í morgun. Á innfelldu myndinni ræðir lögreglan viö mótmælendur. Tilboð berast um aðstöðu fyrir Keikó - sennilega ekki fengiö nóg að éta í Skálavíkurfirði Tilboð frá ýmsum stöðum í Noregi um að vista Keikó í vetur eru farin að berast til Ocean Fut- ure-samtakanna. Þjálfari háhyrn- ingsins, Colin Beard, sem fylgist með honum í Skálavíkurfirði, sagði við DV í morgun að ekki yrði rætt um slíkt frekar fyrr en Keikó hafi verið gefið tækifæri til að fara aftur út á haf. Samtökin munu eiga viðræður við norsk sjávarútvegsyfirvöld í dag en heimafólk í Skálavíkurfirði í kvöld. Á þeim fundi verður þess freistað enn frekar að sjá til þess að fólk láti Keikó í friði og gefi honum ekki að éta. Slíkt var síð- ast gert i gærkvöldi, að sögn þjálf- arans. „Fólk hefur ekki farið eftir því sem við óskum," sagði Beard. Hann segir ljóst að Keikó hafi ekki haft tækifæri til að éta nægi- lega eftir að hann kom i alla at- hyglina í firðinum. Hann hafi ekki möguleika á að kafa niður á 70 metra dýpi til fullnægjandi fæðuöflunar á meðan hann sé inni í firðinum. Þar sé einungis 30 metra dýpi. Þegar DV ræddi við Beard stóð hann á meðal fiölda fólks sem komið hefur hvaðanæfa úr Nor- egi til að berja dýrið augum. „Við erum að reyna að fá fólk til að hætta að gefa Keikó að éta. Ef þú gefur honum ekki þau 50 kíló af fiski sem hann þarf á dag skiptir engu fyrir hann að fá 2 kíló eins og fólk hefur gert. Slíkt er aðeins til þess fallið að við- halda forvitni hvalsins og að hann bíði eftir að fá meira,“ sagði Beard. Keikó hefur ekkert veitt sér til matar á daginn. „Við erum að vona að hann leiti sér fæðu á nóttinni en það er hins vegar Ijóst að hann hefur ekki þá mögu- leika til að afla sér fæðu hér eins og úti á hafi,“ sagði Beard. -Ótt Talaðu við okkur um Auðbrekku 14, sími 564 2141

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.