Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 DV Fréttir Aðhaldsaðgerðir deCODE með fækkun starfsmanna úr 650 í 450: „Þetta sýnir að fyrir- tækinu er alvara" - hefur leitt til hækkunar hlutabréfa, segir verðbréfamiðlari Barátta gegn offitu vekur tlltrú Samningur íslenskrar erföagreiningar og Merck & Co„ Inc. um umfangsmikiö samstarf um þróun nýrra meöferöarúr- ræöa gegn offitu viröist ætla aö skapa aukna tiltrú sérfræöinga á fyrirtækinu. Valdimar Þorkelsson, verðbréfa- miðlari hjá íslandsbanka, segir að erfitt sé að spá um gengi hlutabréfa í deCODE næstu misserin. Aðhalds- aðgerðir fyrirtækisins með fækkun starfsmanna úr G50 i 450 hafi þó klárlega áhrif til hækkunar á verði bréfanna á Nasdaq-markaði undan- fama daga. „Þetta sýnir að fyrirtæk- inu er alvara með kostnaðaraðhald og alvara með að reyna að láta þessa peninga sem þeir hafa í kass- anum duga þangað til þeir byrja að skila hagnaði." Valdimar segir aö það sem var einna helst á bak við allra mestu lækkanimar í sumar, úr 5 i 2 doll- ara, hafi verið breytingar á forsend- um. Nasdaq-markaðurinn hafi t.d. farið niður um 40%. Þegar menn hafi á sama tíma horft fram á að fyr- irtækiö ætti ekki til peninga í kass- anum nema til að reka félagið út næsta ár, þá hafi þeir hinir sömu misst tiltrúna á deCODE. Þetta hafi síðan greinilega breyst eftir að kunngerðar voru stífar aðhaldsaö- gerðir i fyrirtækinu. Vandræði í Vatnsmýrii Þrlöjl hlutl Fleiri stoðir - Er þá kannski rétti timinn að kaupa núna? „Það er góð spuming. Það hefur tvennt jákvætt gerst núna i siðustu viku. Annars vegar jákvæðar að- gerðir í kostnaðaraðhaldi og hitt sem er sýnu jákvæðara er að þeir náðu sambandi við annan aðila en lyfjarisann Hoffman-LaRoche. Þeir em því komnir í samstarf við þriðja aðila, en lengi vel hefur fé- lagið verið mjög háð LaRoche." Þarna vísar Valdimar til samn- ings íslenskrar erfðagreiningar og Merck & Co., Inc. um umfangsmik- ið samstarf um þróun nýrra með- ferðarúrræða gegn offitu. Samning- urinn er til þriggja ára og mun að sögn fyrirtækisins skapa íslenskri erfðagreiningu umtalsverðar tekj- ur. Þar er um að ræða fastar rann- sóknagreiðslur, greiðslur fyrir að- gang að tækni og þjónustu, áfanga- greiðslur þegar ákveðnum áföng- um í þróun lyfja er náð, svo og hlutdeild í tekjum af sölu nýrra lyfja. Virði samningsins fyrir ís- lenska erfðagreiningu gæti orðið meira en 90 milljónir Bandaríkja- dala ef Merck tekst að þróa og markaðssetja fleiri en eina afurð sem byggist á samstarfinu. í þess- ari upphæð er ekki tekið tillit til hlutdeildar í hugsanlegri sölu nýrra lyfja. Rétt að halda í bréfin Valdimar segir að það hafi verið viðloðandi hlutabréfamarkaðinn frá þvi hann byrjaöi hérlendis 1985, að hlutabréf væru langtímafjárfesting. Það eru einmitt þau skilaboð sem hérlendar fjármálastofnanir hafa sent fjárfestum, ásamt því að menn tækju tillit til áhættudreiflngar. Þetta breyttist nokkuð með „Net- bólunni“ svokölluðu sem sprungiö hefur illilega í andlitið á fjölmörg- um fjárfestum. Valdimar telur að miðað við það verð sem sést hafi á bréfum deCODE undanfama daga, þá væri réttast hjá mönnum að reyna að halda í sín bréf í deCODE Genetics. Gallaðar greiningar Mat sem þekktir bandarískir fjárfestingabankar á borð við Morg- an Stanley og Lehman Brothers gáfu út í ágúst 2000 á framtíðar- verði deCODE Genetics, reyndist verulega skakkt. Mat þeirra, sem gert var skömmu eftir að deCODE var skráð á Nasdaq-markaði, hljóð- aði upp á að framtíðarverð til 12 mánaða yrði á bilinu 35 til 37 Bandaríkjadalir. Það gerðist hins vegar ekki og hæst fór gengið skömmu eftir þetta mat í 29 dollara í september 2000. Síðan var fallið hratt. „Það er erfitt að segja til um hvaða skýringar liggja að baki þessu ofmati Morgan Stanley og fleiri aðila. í greiningarskýrslum í fyrrahaust kom fram að bréfm væru um 12 til 15 dollara virði. Það stoppaði í um 10,60 dollurum um áramótin síðustu og hefur síðan verið beint strik niður. Forsendur fyrir þessum greiningum voru gall- aðar að því leyti að verið var að taka mælistikur sem hafa verið að virka í líftækniiðnaðinum og heim- færa þær upp á deCODE. Þeir höfðu ekkert annað í höndunum þar sem fyrirtækið hafði aldrei skilað hagnaði," segir Valdimar Þorkelsson. Ekkert í hendi Hann bendir á að menn hafi í raun ekki haft neitt í höndunum til að meta deCODE. Ekki frekar en mörg þessara „dot com“ og Netfyrir- tækja fyrir nokkrum árum og höfðu aldrei skilað hagnaði og ekki heldur haft jákvætt sjóðsstreymi. Allar hefð- bundnar greiningar- og matsaðferðir byggi á að um jákvætt sjóðsstreymi og hagnaö sé að ræða. Það sé því enn sem komið er fátt annað en vænting- ar sem hægt er að byggja á. Vanmat hérlendis Hérlendir verðbréfamiðlarar mátu aðstæður einnig greinilega rangt skömmu áður en fyrirtækið var skráð á Nasdaq-markað í júlí 2000 er verð á gráa markaðnum var um 25 dollara á hlut. Héldu margir verðbréfamiðlarar hérlendis þá áfram að leggja að eigendum bréf- anna að halda þeim enn um sinn. í maí 2000 var jafnvel talað um að fyr- irtækið gæti verið allt aö tífalt verð- mætara en markaðsverðmætið þá stundina gæfi til kynna. Ekkert af þessu gekk eftir og margir þurftu því að sitja eftir með sárt ennið og mikið tap á þessum hlutabréfavið- skiptum. Breytinga að vænta í ljósi orða Valdimars virðast for- sendur fyrir mati á fyrirtækinu vera að breytast. Hann ítrekar þó að mikið flökt sé enn á mörkuðum, meðal annars vegna yfirvofandi stríðs í írak og neikvæð áhrif vegna hækkandi olíuverðs. Mikið fall hlutabréfavisitalna siðan á áramót- um ætti þó að gefa vísbendingar mn aö rétt sé að kaupa nú. Þá geti menn líka nýtt sér afar sterka stöðu krón- unnar gagnvart dollar. Ekkert sé þó geflð um að vísitölur geti ekki lækk- að enn frekar. Bendir hann í því sambandi á að nokkuð hafi verið um afkomuviðvaranir fyrirtækja á þriðja ársfjórðungi. Það hafi kynt undir enn frekari lækkunum og flökti á markaði. Á móti gera menn ráð fyrir að þegar kemur fram í lok október, þá nái markaöurinn að rétta við og muni hækka það sem eftir er árs. Hvort það hafl áhrif á stöðu deCODE sé hins vegar erfitt að segja til um. Til lengri tíma litið ætti hlutabréfaeign í fyrirtækinu og í þessum geira að geta verið góð fjárfesting. Jákvæðar aðgerðir Almar Guðmundsson, hjá grein- ingadeild íslandsbanka, segir að nýjustu aðgerðir íslenskrar erfða- greiningar hljóti að vera jákvæðar í augum markaðarins. Miðað við áætlanir félagsins ætti það að tryggja að félagið nái fyrr jafnvægi en áætlað var. „Menn verða þó auðvitaö að sjá hvemig þetta skilar sér i ársfjórð- ungslegum tölum sem félagið skilar frá sér. Það mun þó ekki koma fram strax, enda tóku þeir fram að þeir muni næst inna af hendi ákveðnar gjaldfærslur sem tengjast m.a. þess- um breytingum." Almar segir þó varlegt að gefa út einhverjar spár um gengi fyrir- tækja eins og deCODE. Það sé ein- faldlega erfitt þar sem tekjugrunn- urinn sé tiltölulega veikur. Hann segir að spár um fyrirtæki í þessari grein séu háð mikilli óvissu sem minnki þó í tilfelli deCODE eftir þær breytingar sem nú eiga sér stað. Eftir þetta þurfi þeir ekki eins á auknu fjármagni að halda inn í reksturinn. Hann segir að menn hafi einmitt horft á fyrirtæki í Bandaríkjunum lenda í vandræð- um vegna þess að þeir hafi stólað á að geta útvegað sér aukið fjármagn á markaði. Þetta er nú mjög erfitt og raunar telur Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, að það sé nær útilokað í dag. „Ef þeir ná sínum markmiðum með þessum aðgerðum, þá verða þeir komnir í tiltölulega gott jafn- vægi strax á næsta ári. Það munar mikið um slíkt og auðveldara verð- ur þá að gera raunhæft mat á fyrir- tækinu," segir Almar Guðmunds- son. „Menn bíða bara spenntir eftir að sjá hvort áætlanir félagsins ganga upp.“ -HKr. Rannsóknarvinna í íslenskri erfðagrelningu Menn bíöa spenntir eftir aö sjá hvort áætlanir félagsins í kjölfar aöhaldsaö- geröa ganga upp. Stofnun Umferðarstofu Umferðarstofa tók til starfa í fyrradag en henni er ætlað að fara með stjómsýslu á sviði umferðar- mála, einkum varðandi umferðar- reglur, ökutæki, ökupróf, slysarann- sóknir, fræðslu, slysaskráningar og fleira. í Umferðarstofu sameinast Skráningarstofan ehf. og Umferðar- ráð en einnig flytjast til stofnunar- innar verkefni frá dómsmálaráðu- neyti. Dómsmálaráðherra, Sólveig Pétursdóttir, var viöstödd formlega opnun Umferöarstofu. Ráðgjöf fyrir foreldra Foreldrasamtökin, Vímulaus æska, sem reka Foreldrahúsið opn- uðu nýja heimasíðu i gær. Knútur Hauksson, aðstoðarforstjóri Sam- skipa, hleypti heimasíðunni af stokkunum en Samskip eru styrkt- araðilar Vímulausrar æsku. Á síðunni eru margvíslegar upp- lýsingar fyrir foreldra ungra vímu- efnanotenda, ráðgjöf og yfirlit yfir starf samtakanna. Slóðin er www.foreldrahus. is. Sátt í „diekamáli" Deiluaðilar vegna heimilda- myndarinnar, 1 skóm drekans, hafa komist að sam- komulagi. Aðstand- endur Ungfrú ís- land.is og þátttak- endur í keppni ætla að falla frá lögbanni sem þeir fengu sett á myndina í vor. Þó setja að- standendur ákveðin skilyrði sem mun felast í því að andlit stúlkn- anna verða hulin í nokkrum atriö- um myndarinnar. Á þetta hefur framleiðandinn, 20 geitur, fallist og ætti því ekkert að standa i vegi fyr- ir opinberri sýningu myndarinnar. Skelfiskkvóti skertur Kvóti á skelfisk í Breiðafuði hefur skerst um 39% frá síðasta fiskveiði- ári. Á síðustu þremur árum hefur heildarkvótinn við íslandsstrendur skerst um tæp 50%. Breiðafjörður geymir stærstu skelflskmiðin viö ís- landsstrendur, en frá 1985 hefur heildaraflamark þar hrapað jafnt og þétt. í fyrra var leyfilegt að veiða þar 6.500 tonn en á nýju fiskveiðiári, sem hófst þann 1. september sl., verður leyft að veiða 4.000 tonn. Talaö við álfa Kvikmyndafélagið Pegasus hefur undanfarið verið við myndatöku á frönsku sjónvarpsmyndinni, Virus au Paradise, í Hólum í Nesjum. Þar kom Þorleifur bóndi Hjaltason til skjalanna en hann leikur álfamiðU í myndinni. Sagðist hann kunna því hlutverki vel en hann er enginn ný- græðingur þegar kemur að kvik- myndaleik, hefur leikið í nokkrum myndum. Að sögn forráðamanna hafa tökur gengið vel og veður hef- ur leikið við kvikmyndafólkið. -aþ/JI/GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.