Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 Sport DV U-19 ára landslið kvenna: Sigur gegn Bosníu íslenska landsliöið skipaö stúlkum 19 ára og yngri bar í gær sigurorð af Bosníu/Her- segóvínu, 1-0, í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM sem fram fer í Póllandi. íslenska liðið sótti lát- laust allan leikinn og fékk fjöl- mörg tækifæri til að skora en tókst þó ekki að koma boltanum í netið fyrr en á 89. mínútu þeg- ar Kristín Ýr Bjamadóttir skor- aði en hún hafði komið inn á sem varamaður tíu mínútum áð- ur. íslenska liðið leikur gegn Póllandi á morgun en auk þess er Belgía í riðlinum. -ósk Bolton og WBA úr leik Ensku úrvalsdeildarliðin Bolton og West Bromwich Al- bion eru úr leik eftir töp gegn 2. deildar liðunum Bury og Wigan í 2. umferð enska deildabikars- ins í gærkvöldi. Guðni Bergsson var ekki i leikmannahópi Bolton sem stillti upp varaliðinu gegn Bury og tapaði 1-0 á heimavelli. Lárus Orri Sigurðsson lék allan leikinn í vöm West Bromwich Albion sem tapaði 3-1 fyrir Wig- an á útivelli. Úrslitin í gær- kvöldi voru eftirfarandi: Bolton-Bury..................0-1 Crystal Palace-Cheltenham .... 7-0 Coventry-Rushden & Diam......8-0 Derby-Oldham.................1-2 Leyton Orient-Birmingham .... 2-3 Nott. Forest-Walsall.........1-2 Sheff. Wed.-Leicester........1-2 Southampton-Tranmere.........6-1 Wigan-WBA ...................3-1 Aston Villa-Luton............3-0 Vogts velur hóp Berti Vogts, landsliðsþjálfari Skota, hefur valið 25 manna hóp fyrir leikinn gegn íslendingum á Laugardalsvelli 12. október næst- komandi. Sex leikmenn, sem voru í hópnum í jafhteflisleiknum gegn Færeyjum, eru ekki með. Vamar- maðurinn David Weir er hættur eins og fram kom í DV-Sport í gær, Stephen Crainey, Paul Dickov og Allan Johnston duttu út úr hópn- um fyrir slaka frammistöðu gegn Færeyingum og Kevin McN- aughton og Derek Mclnnes, félagi Lárusar Orra Sigurðssonar hjá WBA, eru meiddir. Vogts valdi einn nýliða, Paul Devlin frá Birmingham, en hann valdi einnig Russell Anderson, Callum David- son, Stephen Pressley, Jamie McFadden og Jackie McNamara í hópinn á nýjan leik eftir nokkra íjarveru. Hópurinn er skipaður eft- irtöldum leikmönnum: Markverðir: Neil Alexander (Cardiö), Robert Douglas (Celtic), Paul GaUacher (Dundee Utd.). Vamarmenn: Graham Alexand- er (Preston), Russell Anderson (Aberdeen), Christian Dailly (West Ham), Callum Davidson (Leicest- er), Steven Pressley (Hearts), Maurice Ross (Rangers), Robbie Stockdale (Middlesbrough), Lee Wilkie (Dundee). Miðjumenn: Paul Devlin (Birmingham), Barry Ferguson (Rangers), Scot Gemmill (Everton), Paul Lambert (Celtic), James McFadden (Motherwell), Jackie McNamara (Celtic), Dominic Matteo (Leeds), Gary Naysmith (Everton), Scott Severin (Hearts), Gareth Williams (Nott. Forest). Sóknarmenn: Stephen Crawford (Dunfermline), Scott Dobie (WBA), Neil McCann (Rangers), Kevin Kyle (Sunderland), Steven Thomp- son (Dundee Utd.). -ósk Framherjavandamál hjá íslenska landsliðinu fyrir leikinn gegn Skotum: íslenska landsliðið í knattspymu varð fyrir miklu áfalli í síðustu viku þegar ljóst varð að sóknarmaðurinn Ríkharður Daðason, sem leikur með Lillestrom í Noregi, verður ekki með í landsleikjun- um gegn Skotum og Lithá- um 12. og 16. október næstkomandi vegna meiðsla í hné. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir Atla Eðvalds- son landsliðsþjálfara sem hefúr ekki farið í grafgötur með mikilvægi Ríkharðs fyrir liðið. „Ríkharöur hefur sýnt það og sannað í gegnum árin að hann er ótrúlega öflugur í loftinu og sá maður sem ég tel að henti best með Eiði Smára í framlínu liðsins," sagði Atli Eðvalds- son í samtali við DV-Sport fyrir leikinn gegn And- orra 21. ágúst. Atli sagði einnig í samtali við DV-sport fyrir Ungveijaleikinn fyrir tæpum mánuði að Rík- harður gegndi lykilhlutverki í sóknarleik íslenska liðsins og uppbyggingu hans. „Það mun mikið koma til með að mæða á Ríkharði gegn Ungveijum því að hann er einn af mið- punktum sóknarupp- byggingar liðsins. Ég vil að hann fái bolt- ann í fætur, haldi honum og komi honum siðan á Eið Smára eða Rúnar sem geta spilað boltan- um bak við vamir andstæð- inganna. Síðan þurfum við Ríkharð inn i teig til að taka við fyr- irgjöfum frá kantmönnum okkar enda er hann okkar öflugasti skallamaður," sagði Atli. Miðað við þessi orð má draga þá ályktun að hlutverk Rfkharðs í leikjunum tveimur gegn Skotum og Litháum hafi átt að vera veigamikið. Það sýndu einnig vináttuleikimir tveir gegn Andorra og Ungverjalandi þar sem Ríkharður var í byrjunarliðinu þrátt fyrir að hafa verið mikið meiddur imd- anfarið ár. Ríkharður gerði það sem hann þurfti að gera gegn Andorra, skoraði tvö auðveld mörk. Gegn Ungverjum var hann hins vegar meginástæða þess að sóknarleikur íslendinga var eins bit- laus og raun bar vitni og liðið náði ekki að halda boltanum innan liðsins. Hann hélt boltanum illa, skilaði honum enn verr frá sér og svo virtist sem hann væri hræddur við að fá menn I bakið á sér. Kannski ekki skrýtið miðað við rafn Þorvaldsson meiðslasögu hans en framherji hjá íslenska lands- liðinu verður að geta haldið boltanum til að liðið sem heild geti flutt sig framar á völlinn. En hvaða möguleika á Atli Eðvaldsson í stöðunni til að fylla skarð Ríkharðs? Hann hefur kosið að velja fimm sóknarmenn í hópinn fyrir leikina gegn Skotum og Litháum. Það em þeir Heiðar Helguson, Eiður Smári Guðjohnsen, Marel Baldvinsson, Helgi Sigurðsson og Haukur Ingi Guðnason. Af þessum fimm leik- mönnum era aðeins tveir sem gætu hugsanlega tek- ið við stöðu Ríkharðs og hlutverki því sem hann á að gegna í sóknarleiknum. Það era Marel Baldvins- son, sem leikur með Stabæk í Noregi, og Heiðar Helguson sem leikur með Watford. Tveir kostir í stað Ríkharðs Marel hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi i liði Stabæk í sumar og hann hefur ekki sann- fært mig i þeim landsleikjum sem hann hefur spilað að hann sé rétti maðurinn til að taka við af Ríkharði. Hann vant- ar reynsluna til að takast á við vamarmenn í al- þjóðlegum gæðaflokki og hefúr virkað einu núm- eri of lítill gegn sterkari þjóðum. Heiðar er nokkuð væn- legur kostur. Hann er sennilega sá leikmaðúr ís- lenskur sem stendur næst Rík- harði í styrk í skallaeinvígjum og fáir efast um dugnað og fómfýsi hans fyrir málstað- inn. Hann er nýkominn af stað eftir erfið meiðsli en hefur skorað tvö mörk í tveimur leikjum fyrir Watford eftir að hann byrjaði að spOa og ætti því að vera með sjálfstraustið í lagi. Hann hefur hins vegar sjaldan spilað i fremstu víglínu með landsliðinu heldur verið settur út á kant þar sem hann hefur hlaupið úr sér lungu og lifur og tæklað andstæðingana upp í nára íslenskum knattspymuáhugamönnum tU ómældrar gleði. Eiður Smári Guðjohnsen hentar ekki sem staðgengUl Ríkharðs. Hans styrkur liggur í að fá boltann í fætur og hætt er við að hann og hans óumdeUanlegu hæfileikar myndu týnast ef hann yrði einn í framlínunni stökkvandi upp í endalaus skaUaeinvígi gegn mönnum sem hafa það nánast að lifibrauði. Hinir tveir, Helgi og Haukur Ingi, era leikmenn sem treysta á hraða og vUja frekar snúa að marki andstæðinganna og elta boltann heldur en að fá boltann í fætur og halda. Ef Atli ætlar að nota einhvem þessara leikmanna þarf hann að kúvenda áherslum í sóknarleik liðsins sem hefði þýtt að leikimir tveir sem áttu að vera tU undirbúnings fyrir alvöruna nýtast ekki neitt. Rúnar í sóknina? Hér á undan hefur verið einblint á möguleika Atla á að viðhalda þeim sóknarleik sem hann hefur verið að leggja upp að undanfómu. Honum er það hins vegar í lófa lagið að gjörbreyta leikstU liðsins og treysta á getu manna á jörðu niðri frekar en í háloftunum. Hann getur hugsanlega fært Eið Smára upp á topp og Rúnar í stöðuna sem Eiður hefur spUað að undanfömu. Rúnar hefur verið að spUa þá stöðu, sem framliggjandi miðjumaður eða djúpur fram- herji hjá félagi sínu, Lokeren, með góðum árangri að undanfómu. Þessir tveir leikmenn, Eiður og Rúnar, era þeir leUunenn liðsins sem skapa mest. Það hentar Eiði Smára ekki vel að vera einn uppi á toppi þar sem hans styrkur liggur ekki í að hlaupa eins og hestur á mUli vamarmanna andstæðing- anna sem verður óneitanlega oft hlutskipti sóknar- manna sem spUa einir frammi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.