Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 Tilvera Z>V Kaffibrúsakarlarnir með hádegisgrín á föstudögum: Höfum sjóast í sam- skiptum við konur - segja þeir Júlli Brjáns og Gísli Rúnar brestimir. Þeir voru ekki djúpspakir, blessaðir karlamir, og hafa lítið þroskast." Júili: „Þetta eru samt ekkert óskap- lega vitlausir menn. Svona diskúsjónir hafa heyrst á mörgum kaffistofum. Ég meina af þessari dýpt.“ Gísli Rúnar: „Já, eða þessum grunn- leika. Það er kannski þess vegna sem fólk, ómeðvitað, kannast við þetta og hefur gaman af. í því liggur galdur- inn.“ Ættum að fá laun úr krana Júlli: „Á þessum þrjátiu árum hafa lika farið fram vísindalegar rannsókn- ir á hlátri og hann er miklu hollari en almennt var talið. í raun ættum við að vera á vegum heilbrigðisráðuneytisins og fá laun úr krana hjá Tryggingastofn- un eins og sérfræðingar. Það eru hald- in hlátumámskeið því hlátur er svo mikil heilsubót. Það er endorfín sem sprautast út í líkamann við hláturinn sem má likja við morfrn og aðra vímu- gjafa. Þetta er náttúrulegt verkja- og deyfilyf." Gísli Rúnar: „Þannig að auglýsingin ætti að hljóða svó: „Sértu þjáður af hausverk, tíðaverkjum eða tannpínu. Komdu þá í Iðnó að kynnast kaffi- brúsakörlunum." -Gun. arettar vom hljóðritaðir og settir á disk sem kemur út um helgina. Afmæl- ishaldið gerði sig þannig að fjöldi manns varð frá að hverfa og þessar góðu undirtektir í vor em ástæðan fyr- ir þvi sem við erum að gera núna.“ Skraut í skemmtanaflóruna Júlli: „Okkur fmnst svona hádegis- grin vera smá skraut í skemmtanaflór- una. Það hefur löngum verið vitað að fólk gerir sér stundum dagamun og fer út að borða í hádeginu, ekki sist í viku- lokin og nú ætlum við að bjóða því upp á að hlæja og borða og fara svo „bros- andi“ í vinnuna - nú eða í helgarfríið. Það á ekki að þurfa að fara í pælingar eftir matinn og reyna að komast til botns í einhveiju sem hér hefur farið fram. Efhið gefúr ekki tilefhi til þess.“ Gisli Rúnar: „Eða eins og gagnrýn- andinn sagði i sjónvarpinu um árið: „Þetta skildi nú ekki mikið eftir sig.“ En starfsfólk hússins er sérhæft í að hjálpa gestum sem missa niður á sig og svelgist á súpunni." „Við verðum með nýja prógrammið sem við fluttum á afmælinu í vor en samkvæmt sérstökum óskum fær stöku sparibrandari frá fyrri tíð að fljóta með. Kaffibrúsakarlamir voru ekki þekktir fyrir að vera með rammar ádeilur eða ætla að breyta samfélaginu. I besta falli voru það konumar sem urðu fyrir barðinu á þeim.“ Gísli Rúnar: „Samtöl brúsakarla snemst iðulega um konur, ekki síst þeirra eiginkonur og persónubresti þeirra. Þá flokkaðist þetta undir mein- fýsni en tveimur árum síðar var farið að kaila svona lagað kvenfyrirlitningu. En þá höfðu Kaffibrúsakarlamir líka forðað sér af sjónarsviðinu." Júlli: „Já, við vorum ungir og ólofað- ir en munum taka allt annan pól í hæð- ina í dag. Við höfúm sjóast svo ansi mikið í samskiptum við konur." Gísli Rúnar: „Efnið sem þessir kaffi- brúsakarlar ___ spunnu úr var í raun mannlegt og Þeir vom staddir niðri í Iðnó eitt síð- degið í vikunni, Júlli Bijáns og Gísli Rúnar. Gervin koma kunnuglega fýrir sjónir þótt liðin séu ár og öld, derhúf- umar, köflóttu skyrtumar og bláu smekkgallabuxumar. Kaffibrúsakarl- amir komu þjóðinni til að hlæja fyrir þijátíu árum og kunna það ömgglega enn. Skyldu þeir nú vera búnir að her- taka sviðið í Iðnó til að sötra þar sitt kaffi? Júlli: „Já, en bara sviðið. Við geflim öðra fólki eftir salinn og þar getur það setið við langborð og snætt hádegis- verö frá veitingahúsinu Tjamarbakk- anum um leið og það fylgist með okk- ur. Við byijum kl. tólf og emm búnir eitt og erum á fóstudögum til að byija með. Við viljum nefliilega að fólk fari brosandi inn i helgina." Diskur kominn á koppinn Gisli Rúnar: „Við áttum 30 ára leikafmæli í vor og úr varð að við vökt- um upp þessa karla sem við jörðuðum með viðhöfn á sínum tíma eftir að hafa notað gervin þeirra í rúmt ár sam- kvæmt hollráðinu: „Hætta ber leik þá hæst hann stendur." Við héldum upp á afmælið með því að búa til nýtt prógramm, fengum til liðs við okkur nokkra af samferða- mönnum okkar gegn um tíðina og höfðum tvo kabaretta í ís- lensku óper- unni fyrir fullu húsi. Þeir kab- DV-MYND E.ÓL. Kaffibrúsakarlarnir „Eins oggagnrýnandinn sagði í sjónvarpinu um árið: „Þetta skildi nú ekki mikið eftir sig. “ En starfsfólk hússins er sérhæft í að hjálpa gestum sem missa nið- ur á sig og svelgist á súpunni. “ í Sungfð að hættl Slnatra Geir Ólafsson hefur sérhæft sig í tónlist sem Frank Sinatra hélt lengi á lofti. Hér heiðrar hann „Frankie Boy“ með söng sínum. Broadway: Geir og stór- sveitin sló í gegn Söngvarinn Geir Ólafsson eöidi til tónleika á Broadway á fostudags- kvöldið þar sem hann bauð upp á big-band tónleika. Til liðs við sig hafði Geir fengið marga af fremstu tónlistarmönnum íslands, þeirra á meðal 13 blásara. Margmenni mætti til að hlýða á stórsveitina og söngvar- ana og setið var við hvert borð á Broadway og komust fáerri en vildu í sæti. Þeir sem stóðu skiptu tugum en létu það ekkert á sig fá og skemmtu sér hið besta. Á dagskránni vom lög sem menn eins og Sammy Davis, Dean Martin og Frank Sinatra hafa gert fræg gegnum tlðina, en útsetningar laganna þetta kvöld vom nýjar og í höndum Þóris Baldurssonar. Þá var frumflutt lag Ólafs Gauks, „Farvel Frans, sem Ólaf- ur Gaukur samdi er hann fregnaði and- lát Sinatra. Stjómaði Ólafúr Gaukur stórhljómsveitinni í þessu lagi og fékk stórkostlegar undirtektir. Mál margra var að tímabært væri að bjóða reglulega upp á big-band tónleika sem þessa og þeir þúsundir dansáhuga- manna sem landið byggja geti notið sín í rómantísku andrúmslofti og stigið dans við viðeigandi tónlist. Viðtökur tónleikagesta á Broadway vom góðar og stóðu gestir á fætur undir lok tón- leikanna og hylltu söngvarann með glymjandi lófataki. -rt Tommy Lee fertugur Rokkarinn og vand- ræðagemlingurinn Tommy Lee á stóraf- mæli í dag. Hvort hann eyðir því í fanginu á bamsmóður sinni Pamelu Anderson er óvíst. Þau hafa á undanfomum áram verið að skilja og taka saman aftur í tíma og ótíma. Fyrir utan að vera með- reiðarsveinn Pamelu er Tommy Lee þekktastur fyrir að vera í þungarokks- hljómsveitinni Mötley Cme. Tommy er grískrar ættar og fæddist í Aþenu. Flutti snemma til Bandarikjanna þar sem hann ásamt vini sínum Nikki Sixx stofnaði Crae þegar þeir vom í skóla. Gildir fyrir föstudaginn 4. október Vatnsberinn (20. ian,-18. febr.l: Þú ert búinn að koma þér í einhver vandræði og enginn nema þú sjálfur getur losað þig út úr þeim. Happatölur þínar eru 5, 27 og 31. Fiskamir(19. febr,-20. marsl: Það ríkir glaumur og gleði í kringum þig og fleira er í boði en þú getur með góðu móti sinnt. Ferðalag er á döflnni. Happatölur þínar eru 1, 15 og 16. Hrúturinn . mars-19. apríh: Vinir þínir eru eitt- hvað að bralla sem þú mátt ekki vita af. Það skýrist í kvöld hvað um er að vera. Happatölur þínar eru 3, 28 og 29. Nautið (20. april-20. maí): Einhver biður þig um greiða og þér er ljúft að verða við þeirri bón. Hugsaðu þó um það sem þú þarft sjálfur að gera. Kvöldið verður mjög ánægjulegt. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): V Ástin er í aðalhlut- y^^verki hjá þér og fer __I mikill tími í að sinna henni. Bjartir timar eru fram undan hjá þér. Þú færð óvæntar fréttir í kvöld. Krabblnn (22. íúní-22. iúiíi: Morgxmninn verður drýgsti timi dagsins til að sinna nauðsynlegum verkefnum. Síðdegis verður þér htið úr verki vegna truflana sem þú verður fyrir. Llónið (23. iúlí- 22. áeústl: Þú þarft að sinna mörgu í einu og átt í erfiðleikum með að koma öllu sem þér finnst þú þurfa að gera á dagskrána hjá þér. Mevlan (23. áeúst-22. sept.l: Gerðu ekkert sem þú ert ekki viss um að sé ^^W^»*rétt. Einhver er að * ' reyna að fá þig til að taka þátt í einhverju vafasömu. Happatölur þínar eru 7,14 og 30. Vogin (23. sept-23. okt.): J Þér gengur best að vinna einn þar sem Vaðrir virðast aðeins r f trufla þig. Þú nýtur aukinnar virðingar í vinnunni. Happatölur þínar eru 3, 9 og 16. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.): Gerðu ekkert nema að vel athugðu máh. Það er ýmislegt sem þú þarft að varast og því nauðsynlegt að fara varlega. Kvöldið verður ánægjulegt með fjölskyldunni. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: Öll viðskipti ættu að ganga einstaklega vel og þú nýtur þess að vasast í þeim. Líklegt er að þú flytjir búferlum á næstunni. Stelngeltin (22. des.-19. ianl: Vertu ekki of trúgjam, það gæti komið þér í koll. Það er ekki öllum að treysta þó að þeir láti sem svo sé. Gamall vinur skýtur upp kollinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.