Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 9
9 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 x>v íslandsbanki áformar að lækka útgefiö hlutafé um 4% íslandsbanki hf. ráðgerir að færa 400 milljónir króna að nafhvirði af eigin bréfum til lækkunar á útgefnu hlutafé. Endanleg ákvörðun um lækkunina verður tekin þegar ársuppgjör bankans liggur fyrir í janúar. Útgefið hlutafé í Is- landsbanka er 10 milljarðar króna að nafnverði þannig að ef af verður þá lækkar útgefið hlutafé um 4%. íslandsbanki mun hinn 15. janúar 2003 kaupa 1.470 miiljónir króna að nafnverði af eigin bréfúm í samræmi við samning sem gerður var við Orca- hópinn svokallaða í ágúst. Alls kaupir bankinn eigin bréf að nafnverði 2.178 miiijónir króna, en þegar hefur verið gengið frá kaupum á 708 milljónum og þau bréf seld áfram til fagfjárfesta. Af þeim 1.470 milljónum sem keypt verða í janúar eru nú þegar frágengnir samn- ingar um sölu á 718 miiljónum króna að nafnverði til fagfjárfesta. Áfram er unn- ið að sölu á um 100 milljónum króna til viðbótar. Þá standa eftir um 650 milljón- ir króna að nafnverði og samkvæmt frétt frá íslandsbanka verða 400 milljón- ir af því færðar í fjárfestingarbók í jan- úar og síðan til formiegrar lækkunar á útgefnu hlutafé. Það sem þá verður eft- ir, eða 250 milljónir króna að na&verði, er stefnt að því að bjóða til kaups á næstu mánuðum í samræmi við mark- mið um dreifða eignaraðild. Skýrr hýsir net- þjóna Friðriks Skúlasonar Friðrik Skúlason ehf. og Skýrr hf. hafa gert með sér samning um hýs- ingu á póstsíukerfinu F-Prot AVES. Samkvæmt samningnum tekur Skýrr hf. netþjóna Friðrik Skúlason- ar ehf. í hýsingu í tækjasal sínum. Friðrik Skúlason ehf. síar tölvu- veirur og ruslpóst úr tölvupósti fyr- irtækja, bæði hér heima og erlendis. F-Prot AVES hindrar að tölvuveirur og ruslpóstur berist til fyrirtækja með því 'að fjarlægja eða merkja slíka óáran áður en skeyti er skilað áfram til tölvukerfis viðskiptavina. „Vegna eðlis þessarar þjónustu lagði Friðrik Skúlason ehf. mikla áherslu á stöðugt netsamband, ör- yggi tölvubúnaðar og bilanavakt all- an sólarhringinn þegar kom að vali á hýsingaraðila fyrir F-Prot AVES póstsíukerfið, þess vegna varð hýs- ingarþjónusta Skýrr hf fyrir val- inu,“ segir Friðrik Skúlason. í frétt frá fyrirtækjunum kemur fram að með þrefaldri tengingu sinni við Netið getur Skýrr hf. tryggt Frið- riki Skúlasyni ehf. öruggt netsam- band með lágmarks niðritíma. Tækja- salur Skýrr hf. er með öruggari véla- sölum landsins en hann er byggður upp samkvæmt ströngustu öryggis- stöðlum, meðal annars frá Verisign, einu þekktast fyrirtæki á sviði tölvu- öryggis. Þá tryggir Skýrr hf. einnig öryggi þjónustunnar með aðgengi að þjónustuborði allan sólarhringinn, alla daga ársins. Samningurinn tekur gildi þann 1. október og verður tíminn þangað til notaður tU undirbúnings á flutningi miðlara inn tU Skýrr hf. Viðskipti Umsjón: Viðskiptabladið Starfsmenn Baugs í Svíþjóð 150 - útþenslu á Norðurlöndum ekki lokið Baugur-ísland ætlar ekki að láta útþenslunni lokið á Norðurlöndum þótt fyrirtækið hafi nú opnað 9.500 fermetra Debenhams-verslun í mið- borg Stokkhólms. Fyrirtækið hyggst opna aðra Debenhams-verslun í Kaupmannahöfn árið 2004, í stórri verslunarmiðstöð sem á að rísa í nýja hátækni- og verslunarhverfinu Drestad. Auk þess hefur Baugur á prjónunum að opna ýmsar smærri Topshop og Miss Selfridge-verslanir á Norðurlöndum á næstunni. Debenhams-verslunin í Stokkhólmi er um 9.500 fermetrar. Þar af eru 7.500 fermetrar nýttir undir sjáifa verslun- ina, en afgangurinn fyrir geymslur og skrifstofur. Verslunin er því um tvö- falt stærri en sú í Smáranum. Ný stórverslun hefur ekki verið opnuð í Stokkhólmi í 98 ár en húsnæðið á sér ákaflega virðulegar rætur og hýsti áður sænska póstinn. Hann hélt á vit nýtískulegri aðstæðna annars staðar í borginni fyrir nokkrum árum, en byggingin sat eftir í hálfgerðu reiði- leysi. Jón Björnsson, framkvæmda- stjóri Baugs-íslands, segir að húsnæð- ið hafi verið ein helsta ástæða þess að ákveðið var að opna Debenhams- verslun í Stokkhólmi. Jón sagði að komið hefði til tals að Debenhams í Bretlandi tæki þátt í rekstri verslananna á Norðurlöndum. Baugur hefði að ýmsu leyti breytt áherslum sínum og orðið alþjóðlegra fyrirtæki að undanfórnu. Starfsmenn- irnir í Svíþjóð væru til að mynda orðnir um 150 talsins, og væru nær allir Svíar. Það sama yrði væntanlega uppi á teningnum í Danmörku. Skuldir ríkissjóös mestar í dollurum Langtímaskuldir ríkissjóðs í lok síðasta árs voru mestar í Banda- ríkjadollurum en tæp 30% skulda ríkissjóðs liggja í dollurum. Skuldir ríkissjóðs í krónum námu alls rúmum 27%. Þess verður þó að geta að krónan var ákaflega veik um síðustu áramót. Styrking hennar frá áramótum leiðir til þess að skuldir ríkissjóðs í erlend- um gjaldmiðlum minnka í hlut- falli við skuldir í krónum og er því ansi líklegt að skuldimar i dag séu mestar í krónum. Rúm- lega 7% skulda ríkissjóðs lágu í breska pundinu og 5% í þýska markinu og japanska jeninu. Skuldir í svissneskum frönkum námu 2,3% um síðustu áramót sem hlutfall af heildarskuldum. ÞETTAER ALVEG ÚT L\ í Höni ArnaWs Ifvrirburinn i lifir £!óöu lífi 9 "771025 9560091 ■HE iir i ■ ■ \ «- - * i \\ 1 I ITTTjl I I ■ [* 1 jþ | || w p | E Bf • t 11 r*. ral

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.