Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 17
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 Skoðun 17 Virðing fyrir opinberum Jyármunum „Ástœða er til að óska Þorfinni Ómarssyni velfamað- ar í starfi sínu. Jafnframt er vonandi að hann, og raunar allir þeir sem bera ábyrgð á ráðstöfun opin- bers fjár, hafi það í huga að opinberir sjóðir eru hvorki ótæmandi né verða þeir til úr engu. Skatt- greiðendur hafa lítið val um hvort þeir taki þátt í kostnaði við rekstur hinna ýmsu gœluverkefna rikis- ins, s.s. kvikmyndagerð. Við undanskotum frá skatti eru þung viðurlög og því er óeðlilegt og óréttlátt ef ógœtileg meðferð skattfjár hefur enga refsingu í för með sér. “ lið Flókið leyfisveitingakerfi er að leggj- ast yfir íslenskan efnahag og endur- nýjun í atvinnugreinum því að hverfa. Alls kyns kvaðir sem stjómvöld og verkalýðsfélög í Evrópusambandinu rotta sig saman um að setja á at- vinnustarfsemi gera það að verkum að mjög fá ný fyrirtæki eru stofnuð, gjaldþrotahrinurnar verða stærri og stærri hjá nýjum fyrirtækjum og endumýjunin minnkar. Unga fólkið fer að vinna á skrifstofum hins opin- bera. Fuml með orkugeirann Skipulagsbreytingar á íslenska orkugeiranum eru stórmál sem þarf að framkvæma af varúð og eftir ís- lenskum forsendum. „Markaðsvæð- ingin“ í Evrópusambandinu er ókræsileg, í Bretlandi rambar helsta „markaðsvædda" orkufyrirtækið á barmi gjaldþrots. Tilskipun Evrópusambandsins um orkugeirann er ekki nothæf hérlend- is og hefur fært mönnum heim sann- inn um að EES-samninginn þarf að losna við sem fyrst, áður en mikil- vægasti vaxtarbroddur íslenskrar at- vinnuþróunar verður Evrópusam- bandstilskipunum að bráð. Það þarf að fresta öllu fálmi með orkugeirann þangað til búið er að breyta EES- samningnum í tvihliða viðskipta- samning. Þaö hlýtur að vera sjálf- sögð krafa almennings að opinberir starfsmenn komi fram með virðingu og af ábyrgð við þá opin- beru fjármuni sem þeim er treyst fyrir. í því felst m.a. að opinberir starfs- menn eiga að halda utan um eigin bókhaldsgögn, gera upp ferðareikninga og skila kvittunum. Ef misbrestur verður á þessu er það skiiyrðis- laus skylda stjórnvalda að grípa af fullri hörku inn í málið, rannsaka það og koma í veg fyrir að það endurtaki sig. í ritstjómarpistli á Deiglunni þann 27. júlí var m.a. fjallað um mál Þor- flnns Ómarssonar. Eii honum tókst einmitt ítrekað að brjóta öll atriðin í ofangreindri upptalningu á skyldum opinberra starfsmanna. Stóralvarlegt Þar sagði m.a.: „Það er afar mikil- vægt að virkt eftirlit sé með meðferð opinbers fjár og að þeir, sem ekki standast þær kröfur sem gerðar eru, séu settir tU hliðar." Nýlegur úrskurður nefndar í máli Þorfinns Ómarssonar vekur hins veg- ar upp alvarlegar spurningar um stöðu opinbera starfsmanna í íslenskri stjómsýslu, sérstaklega þeirra sem meðhöndla opinbera fjármuni. Sam- kvæmt úrskurðinum var menntamála- ráðuneytinu óheimUt að veita Þorf- inni Ómarssyni tímabundna lausn frá störfum þrátt fyrir langa sögu fjár- málaóreiðu í starfl. Það er stóralvar- legt ef hið opinbera getur ekki veitt mönnum tímabundna lausn frá störf- um vegna fjárhaldsóreiðu, aðgerð sem myndi aUtaf verða gripið tU við sam- bærUegar aðstæður í einkageiranum. Varhugavert og vafasamt Álit nefndarinnar sendir varhuga- verð skUaboð tU þeirra rUdsstarfs- manna sem eru að meðhöndla opin- bert fé. Það gefur fordæmi fyrir því að mjög erfitt sé að grípa inn í mál opin- berra starfsmanna þegar bókhalds- óreiða er tU staðar. Að menn geti kom- ist upp með langvarandi fjármála- óreiðu án þess að fá ákúrur sendir hættuleg skUaboð inn í stjómsýsluna. Að auki má færa rök fyrir að álit nefndarinnar hafi verið sett fram á vafasömum forsendum og að með því hafi nefndin komist í þversögn við fyrri úrskurði sina. Um þessa hlið málsins fjaUaði Andri Óttarsson í Deiglunni sl. þriðjudag og sagði m.a.: „Af þessu sést aö álit nefhdarinnar skUur eftir sig mun fleiri spumingar heldur en svör. Það er hins vegar gegnumgangandi allan rökstuðning hennar að hún víkur itrekað frá eigin fordæmum. Með því er nefndin sjálf að brjóta eina mikUvægustu reglu stjórnsýsluréttar sem er jafnræðisregl- an.“ Réttlát krafa í þessu máli hefur umræðan farið um víðan vöU. Sumir hafa gengið svo langt að verja Þorfinn Ómarsson með langsóttum samsærisenningum eða gert lítið úr fjármálaóreiðunni. Það er mikUvægt að menn missi ekki sjónar á uppruna og ástæðum þess að málið fer í gang sem er löng saga fjármála- óreiðu hjá ríkisstarfsmanni. Ástæða er tU að óska Þorfmni Ómarssyni velfarnaðar í starfi sínu. Jafnframt er vonandi að hann, og raunar aUir þeir sem bera ábyrgð á ráðstöfun opinbers fjár, hafi það í huga aö opinberir sjóðir eru hvorki ótæmandi né verða þeir tU úr engu. Skattgreiðendur hafa lítið val um hvort þeir taki þátt í kostnaði við rekstur hinna ýmsu gæluverkefha rík- isins, s.s. kvUonyndagerð. Við undan- skotum frá skatti eru þung viðurlög og því er óeðlUegt og óréttlátt ef ógætUeg meðferð skattfjár hefur enga refsingu i fór með sér. Tækifærið kemur í vor tGuðmundur Árni Stefánsson þ ingmaöur Samfylkingarinnar. Kjallari Það er uppstytta í stjórn- arsamstarfinu. Það fer ekki framhjá nokkrum manni, sem fylgist með stjórnmálaumræðum þessa dagana og vikurnar. Oddvitar stjórnarflokk- anna, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, tala í austur og vestur í hverju málinu á fætur öðru. Lykilmenn i baklandi foringjanna í báðum flokkum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, draga enga dul á þá staðreynd að stjómarsam- starfið er komið á síðasta snúning. Enda brosa nú stjómarliðar í allar áttir og opna á samstarf við aðra. Að visu skulu menn ekki gleyma því að um eitt eru þessir stjórnar- flokkar sammála og verða áfram: Þeir vilja skipta kökunni eftir helm- ingaskiptareglunni, þar sem völdum og áhrifum er deilt millum flokk- anna og þeirra gæðinga. „Einn fyrir mig, annar fyrir þig“-reglan er í fullu gildi millum þessara flokka. Góssinu skipt Nýjasti leikþátturinn í þeim efn- um er á fjölunum þessa dagana: Framsókn fær leyfi Sjálfstæðis- flokksins til að selja hlut Lands- bankans í VÍS, áður en bankinn er seldur. Framsóknarfyrirtæki fá VfS en Sjálfstæðisflokkurinn fær ráð- stöfunarrétt á Landsbankanum. Nokkrir dagar líða, þar til fyrrum varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrum iðnaðarráöherra, Finnur Ingólfsson, er staðinn upp úr stóli seðlabankastjóra og tekinn við stjórn VÍS. Stóll losnar í Seðlabank- anum, sem framsókn telur sig eiga og geta ráðstafað. Hverjum skal skaffað er óvíst þegar þessar línur eru ritaðar, en engum kæmi það á óvart ef „góður og gegn“ framsókn- armaður yrði þar efstur á blaði. Sjálfstæðisflokkurinn ráðstafar síðan eignarhaldi rlkissjóðs í Landsbankanum en hefur á móti gengist inn á það að framsóknar- fyrirtæki „fái“ síðan Búnaðar- bankann þegar kemur að sölu hans. Aflt er þetta í anda fyrri helm- ingaskiptastjóma. Sú er nú hefur setiö umliðin rúm sjö ár sver sig svo sannarlega i ættir við þær fyrri. Allt skal njörvað niður á hefðbundna bása, þar sem flokksfé- lagar eru i forgangi við kjötkatl- ana, en aðrir eigi að sætta sig við brauðmola sem af borðum falla. Sumt breytist seint. Hættan er því sú að þessi sam- eiginlega hagsmunavarsla Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks verði það lím sem dragi þá enn og aftur að stjómarbeðinu, enda þótt „Sjálfstœðisflokkurinn ráðstafar síðan eignar- haldi ríkissjóðs í Lands- bankanum, en hefur á móti gengist inn á það að framsóknarfyrirtæki „fái“ síðan Búnaðar- bankann þegar kemur að sölu hans. Allt er þetta í anda fyrri helminga- skiptastjóma.“ fátt sé orðið um fína drætti þegar kemur að samstarfi þeirra á öðr- um vettvangi þjóðmála. Þörf og nauðsyn Einasta leiðin til að komast út úr þessum fjötrum fortíðar, er að efla jafnaðarmenn til áhrifa. Útkoma Samfylkingarinnar í kosningimum næsta vor mun ráða úrslitum um það hvort núverandi ríkisstjórn verði komið frá. Það er óinndeild staðreynd. Samfylkingin stefnir að því að vera þátttakandi í nýrri ríkisstjóm, sem mynduð verður eftir næstu kosningar. Það er þjóðinni nauðsyn- legt að stefnumið jafnaðarmanna verði í öndvegi við landsstjórnina, þar sem frelsið er raunverulegt, jafnréttið er virkt og samhjálp er í heiðri höfð. Það gerist með góðum sigri Samfylkingarinnar í kosning- unum 10. maí næstkomandi. Oft var þörf. Nú er nauðsyn. Tækifærið kemur í vor. - Grípum það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.