Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 20
20
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002
DV
íslendingaþættir
LÍmsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
9Q ára_________________________________
Slgurveig Jónsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Einar Magnús Matthíasson,
Hrauntúni 12, Breiðdalsvík.
Hrafnhlldur Héöinsdóttir,
Jökulgrunni 24, Reykjavík.
70 ára_________________________________
Kristján J. Bergjónsson,
Dalbraut 6, Búöardal,
varö sjötugur í gær.
Hann er að heiman.
QPára__________________________________
Brynja BJarnadóttir,
Lækjargötu 8, Hvammstanga.
Daníel P. Baldursson,
Norðurtúni 1, Siglufirði.
Halldór Ármannsson,
Fellsmúla 10, Reykjavík.
Hrefna Guömundsdóttir,
Fellsmúla 4, Reykjavík.
Kristín Guðbjörg Baldursdóttir,
Hólavegi 75, Siglufirði.
Magnús Bergsson,
Vesturvegi llb, Vestmannaeyjum.
Magnús Gunnlaugsson,
Karlsrauðatorgi 26d, Dalvík.
Pamela Morrison,
Klettahllð 6, Hveragerði.
Sigrún Jóhannesdóttir,
Frostaskjóli 85, Reykjavík.
Þórey Bergsdóttir,
Hafnarstræti 21, Akureyri.
50 ára
Hr Alexandersdóttir,
3, Kópavogi, föstud.
4.10. kl. 20.00.
Anna Dóra Antonsdóttir,
Barónsstíg 65, Reykjavík.
Anna Dóra Snæbjörnsdóttir,
Helluvaði 1, Reykjahlíð.
Anna Gísladóttir,
Lindasmára 37, Kópavogi.
Árnl Helgi H. Ragnarsson,
Birkihlíö 14, Sauöárkróki.
Guölaugur Stefánsson,
Jðklafold 11, Reykjavík.
Guömundur Karl Þorieifsson,
Efstaleiti 51, Keflavík.
Helga Eyberg Ketllsdóttir,
Spóaási 14, Hafnarfirði.
Helgi Benóný Gunnarsson,
Fornasandi 5, Hellu. Hann tekur á móti
gestum að heimili sínu laugardaginn
5.10. frá kl. 17.00.
Hlldur Ellertsdóttir,
Suðurvöllum 4, Keflavík.
Sigurveig H. Kristjánsdóttir,
Garðabraut 13, Akranesi.
Þór Kristjánsson,
Wnufelli 23, Reykjavík.
40ára_________________________________
Anna Guöný Sigurgeirsdóttir,
Aðalstræti 50, Akureyri.
Ásgeröur Hallgrímsdóttir,
Grasarima 3, Reykjavík.
Geirþrúður Ester HJaltalín,
Heiðarbrún 43, Hverageröi.
Halldór Heimir ísleifsson,
Stórholti 12, Reykjavlk.
Halldóra Björk Jónsdóttlr,
Njörvasundi 14, Reykjavík.
Hlynur Helgi Sigurösson,
Njálsgötu 42, Reykjavík.
Jón Magnússon,
Hringbraut 73, Hafnarfirði.
Oddrún Vala Jónsdóttir,
Hörpugötu 13, Reykjavík.
f orsteinn Kristjánsson,
Oddnýjarbraut 5, Sandgerði.
Andlát
Ásdís Þóra Kolbelnsdóttir, Dalsbyggð 4,
Garðabæ, lést á gjörgæsludeild
Landspítala Fossvogi sunnud. 29.9.
Anna Ingadóttir, Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík, lést á Landspltala við
Hringbraut þriðjud. 1.10.
Helgi Kristbjarnarson læknir, Miklubraut
48, lést á heimili sínu mánud. 30.9.
Fimmtugui'
Ólafur S. Ástþórsson
aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar
Ólafur Svavar Ástþórsson, að-
stoðarforstjóri Hafrannsóknastofn-
unarinnar, Safamýri 21, Reykjavík,
er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavik og
ólst þar upp hjá foreldrum sínum i
Norðurmýrinni og í Fossvoginum.
Hann lauk stúdentsprófi frá MH
1972, B.Sc.-prófi i líffræði frá HÍ 1975
og doktorsprófi frá Háskólanum 1
Aberdeen í Skotlandi 1980. Fjallaði
ritgerðin um vistfræði og orkubú-
skap dýrasvifs i sjó.
Að háskólanámi loknu hóf Ólafur
störf sem sérfræðingur á Svif- og
botndýradeild Hafrannsóknastofn-
unar. Hann vann einkum að rann-
sóknum á líf- og vistfræði dýrasvifs,
m.a. útbreiðslu tegunda og lang-
tímabreytingum í hafinu við ísland
og tengslum dýrasvifs og afkomu
lirfa og seiða nytjafiska.
Árið 1990 varð Ólafur forstöðu-
maður Sjó- og vistfræðisviðs Haf-
rannsóknastofnunarinnar og gegndi
því starfi þar til hann var skipaður
aöstoðarforstjóri i janúar 2000.
Ólafur hefur verið stundakennari
við Líffræðiskor HÍ um nokkurra
ára skeið.
Á undanfornum árum hefur Ólaf-
ur sinnt fjölmörgum stjómunar- og
nefndarstörfum á vegum Hafrann-
sóknastofnunarinnar. Hann hefur
tekið þátt í vinnunefndum innan Al-
þjóða hafrannsóknaráðsins og er nú
annar fulltrúa íslands í stjóm ráðs-
ins. Ólafur sat í Rannsóknarráði ís-
lands og var fulltrúi íslands í stjóm-
arnefndum rammaáætlana Evrópu-
sambandsins um hafvísindi og um-
hverfi.
Ólafur hefur skrifað tugi fræði-
greina í erlend fagtímrit um sjávar-
líffræði, auk fjölda skýrslna um
rannsóknir sínar. Hann hefur
einnig skrifað alþýðlegar greinar
um sjávarlíffræði og haldið fyrir-
lestra víða um heim um rannsóknir
sínar og starfsemi Hafrannsókna-
stofnunarinnar.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 28.9. 1990 Ástu
Guðmundsdóttur, f. 27.1. 1957,
stærðfræðingi. Foreldrar hennar:
Guömundur M. J. Bjömson, verk-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Verkfræðistofunnar Hnit, og fyrri
k.h., Ingibjörg Ólafsdóttir húsmóðir.
Böm Ólafs og Ástu eru Guðlaug,
f. 10.6.1989; Guðrún f. 17.7 1991; Ásta
f. 30.10. 1993.
Systur Ólafs eru Anna Guðlaug, f.
6.11. 1954, ljósmóðir, gift Hallgrími
Gunnari Magnússyni, f. 19.4 1955,
húsgagnasmið, og eiga þau tvö
böm, Halldóru Ósk, f. 23.3. 1980, og
Ástþór Óla, f. 22.4 1987; Ásta, f. 29.1.
1959, röntgentæknir, gift Rúnari Má
Sverrissyni, f. 26.3 1959, tæknifræð-
ingi, og eiga þau Maríu, f. 17.6 1986.
Foreldrar ÓMs: Ástþór Sveinn
Markússon, f. 18.12. 1923 í Vest-
mannaeyjum, fyrrv. verkstjóri hjá
Steypustöðinni, og Halldóra Gísla-
dóttir, f. 10.4. 1920 í Reykjavík, hús-
móöir
Ætt
Faðir Ástþórs Sveins var Markús,
útvegsbóndi á Fagurhóli í Vest-
mannaeyjum, bróðir Nínu Sæ-
mundsson myndhöggvara. Markús
var sonur Sæmundar, b. í Nikulás-
arhúsum, bróður Sæmundar í Mó-
húsum á Stokkseyri, langafa Páls
Sigurðssonar, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra, föður Daggar hrl. Sæmundur
var sonur Helga, b. í Nikulásarhús-
um í Fljótshlíð, Guðmundssonar, b.
í Nikulásarhúsum, Helgasonar,
bróöur Bjama, langafa Guðbjama,
föður Sigmundar, fyrrv. háskóla-
rektors. Móðir Markúsar var Þór-
unn Gunnlaugsdóttir.
Móðir Ástþórs var Guðlaug Ólafs-
dóttir, b. í Skarðshlíð undir Eyja-
fjöllum, bróður Sveins, langafa
Höllu M. Ámadóttur söngkonu.
Ólafur var sonur Jóns b. á Lamba-
felli, bróður Jóns, langafa Jóns
Helgasonar, fyrrv. ráðherra. Systir
Jóns var Guðlaug, amma Ástu,
ömmu Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Jón var sonur Jóns, b. í
Heiðarseli á Síðu, bróður Eiríks,
langafa Runólfs, föður Sveins land-
græðslustjóra.
Halldóra er dóttir Gísla, verka-
manns í Reykjavík Sigurðssonar, á
Króki í Ölfusi, Pálssonar, b. á Björk
í Flóa, bróður Einars, íoður Brynj-
ólfs, hreppstjóra á Sóleyjarbakka,
langafa Helgu Sigurjónsdóttur lög-
fræðings og Ingibjargar Sólrúnar
Gisladóttur borgarstjóra. Bróðir
Brynjólfs var Matthías, langafl Har-
aldar Matthíassonar, menntaskóla-
kennara á Laugarvatni, fóður Ólafs
alþm., foður Haraldar Arnar fjall-
göngugarpa. Páll var sonur Gísla, b.
á Sóleyjarbakka, Jónssonar, b. á
Spóastöðum, Guðmundssonar, ætt-
foður Kópsvatnsættar, Þorsteins-
sonar. Móðir Gísla verkamanns var
Sigríður Gísladóttir
Móðir Halldóru var Anna Einars-
dóttir, frá Reykjum í Ölfusi.
Sjötug
Kolbrún M. Kristjánsdóttir
matráðskona á Akureyri
Kolbrún Magnea Kristjánsdóttir
húsmóðir, Melateigi 17, Akureyri,
er sjötug í dag.
Starfsferill
Kolbrún fæddist á Akureyri, ólst
þar upp og hefur búið þar lengst af.
Hún gekk þar i Bamaskóla Islands
á Akureyri og Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar.
Kolbrún stundaði verslunarstörf
en lengst af hefur hún verið mat-
ráðskona á Hótel Eddu á Akureyri
og við mötuneyti kennara við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar þar sem hún
hefur starfað sl. eÚefú ár.
Kolbrún var m.a. einn af stofn-
endum Söngfélagsins Gígjunnar,
var ritari félagsins og var þar virk-
ur félagi þau sautján ár sem það hef-
ur starfað. Hún er félagi í kvenna-
deild Slysavamafélags íslands á Ak-
ureyri og hefur setið í stjóm þess,
hefur starfað mikið með Kvenfélagi
Akureyrarkirkju og var formaður
æss um skeið. Þá hefur hún sungið
með kór Akureyrarkirkju og syngur
með Kór eldri borgara á Akureyri.
Fjölskylda
Kolbrún giftist 30.12. 1951 Þor-
valdi Nikulássyni, f. 26.3. 1927,
tæknifulltrúa hjá Pósti og síma.
Hann er sonur Nikulásar Ásgeirs
Steingrimssonar, vélstjóra og kenn-
ara í Reykjavík, og Kristínar Sigríð-
ar Magnúsdóttur húsmóöur.
Böm Kolbrúnar og Þorvaldar eru
Kristján Ásgeir, f. 30.7. 1951, húsa-
smiður, búsettur í Noregi, í sambúð
með Astrid Ström, f. 17.10. 1948,
garðyrkjufræðingi; Anna Sigríður,
f. 24.12.1952, húsmóðir, búsett í Sví-
þjóð, hennar maður er Stefan Berg,
f. 27.7. 1953, vélaverkfræðingur;
Smári, f. 9.7. 1954, byggingaverk-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
kona hans er Marianne Berg, f. 12.2.
1957, leikkona; Ámi, f. 27.3. 1956,
vélamaður, búsettur á Akureyri;
Margrét, f. 11.1. 1958, grunnskóla-
kennari, búsett á Akranesi, hennar
maður er Kristján Kristjánsson, f.
9.2.1960, skjalavörður; Magnús Már,
f. 11.1. 1958, arkitekt og bygginga-
fulltrúi, búsettur á Vopnafirði, kona
hans er Dagný Siguijónsdóttir, f.
16.10. 1963, húsmóðir; Helga Gunn-
ur, f. 18.6. 1968, sölufulltrúi, búsett i
Reykjavík, í sambúð með Þorleifi
Eggertssyni, f. 10.1.1963.
Barnabörn Kolbrúnar og Þorvalds
eru átján talsins en barnabarnabörn-
in tvö.
Bróðir Kolbrúnar er Baldur Árni
Kristjánsson, f. 23.10. 1945, bifvéla-
virki, búsettur á Akureyri, kvæntur
Lilju Ragnarsdóttur húsmóður en
hann á þijár dætur.
Foreldrar Kolbrúnar vom Krist-
ján Ólafur Valdimarsson, f. 19.10.
1909, d. 12.7. 1983, vörubifreiðarstjóri
á Akureyri, og k.h., Anna Steinunn
Árnadóttir, f. 21.9. 1911, d. 7.4. 1985,
húsmóðir. Þau bjuggu á Akureyri.
Ætt
Kristján var sonur Valdimars
Pálssonar, verkamanns á Akureyri,
og Helgu Kristjánsdóttur af
Bucksættinni.
Anna Steinunn var dóttir Árna
Jóhannssonar, aðalgjaldkera KEA,
bróður Ingimars Eydal, afa Ingimars
Eydal hljómlistarmanns en móðir
Önnu Steinunnar var Nikólína
Sölvadóttir af Brúarætt.
Kolbrún tekur á móti vinum og
vandamönnum í Húsi aldraðra,
Lundargötu 7, laugard. 5.10. kl. 19.00.
lyierkír Islendingar
Jakob Jóhannesson Smári, skáld, kennari
og rithöfundur, fæddist á Sauðafelli í
Miðdölum 9. október 1889. Hann var sonur
Jóhannesar Lárasar Lynge Jóhannssonar,
prests á Kvennabrekku, og f. k.h., Stein-
unnar Jakobínu Jakobsdóttur húsfreyju.
Jakob var hálfbróðir, samfeðra, Ragn-
heiðar, móður Vífils verkfræðings og
læknanna Ólafs Hergils og Þengils
Oddssona. Hálfsystir Jóhannesar á
Kvennabrekku var Valgerður,
langamma Jóns Steffensens læknapró-
fessors.
Jakob lauk stúdentsprófi í Reykjavík
1908, stundaði nám í norrænum fræðum við
Kaupmannahafnarháskóla og lauk þar meist-
araprófi 1914.
Jakob Jóhannesson Smár:
Jakob var kennari við ýmsa skóla í Reykja-
vik 1914-1920 og við MR 1920-36.
Jakob sendi frá sér ljóðabækurnar
Kaldavermsl, 1920, Handan storms og
strauma, 1936, Uridir sól aö sjá, 1939, og
Vió djúpar lindir, 1957. Hann var nýróm-
antískt skáld, skáldskapurinn ljóðrænn
og átakalítill, sonnettan hans aðalljóða-
form en yrkisefnið gjaman sótt í kyrrð
og fegurð íslenskrar náttúra. Hann var
því ekki beint bam síns tíma þegar leið
á ferilinn. Samt urðu ýmis ljóða hans vel
þekkt og oft sungin.
Jakob þýddi m.a. sum verka Gunnars
Gunnarssonar, leikrit eftir Ibsen og Strind-
berg, óperettur, og Bókina um veginn eftir La-
o-tse, ásamt Yngva Jóhannessyni.
Jarðarfarir
Ármann Brynjólfsson, vélstjóri frá
Þingeyri, til heimilis á Hrafnistu I
Reykjavík, áður til heimilis á Rauðalæk
33, verður jarðsunginn frá Áskirkju I
Reykjavík fimmtud. 3.10. kl. 13.30.
Marta Sigríður Böövarsdóttir
kjólameistari, Espigerði 4, áður
Álfheimum 30, veröur jarösungin frá
Langholtskirkju fimmtud. 3.10. kl.
13.30.
Brynjólfur Jónsson, dvalarheimilinu Hlíö,
áður Víðilundi 20, Akureyri, lést laugard.
28.9. Hann verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju föstud. 4.10. kl. 13.30.
Hólmsteinn Slgurðsson frá Ytri-
Hofdölum verður jarösunginn frá
Sauðárkrókskirkju laugard. 5.10. kl. 14.
*