Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 DV Fréttir Skoðanakönnun DV um hvar fólk gerir reglulega innkaup til heimilisins: Um 70 prósent kaupa inn í verslunum Baugs - á höfuðborgarsvæðinu en 54 prósent á landinu öllu. Bónus vinsælasta verslunin Hvar kauplr fólk reglulega Inn tll helmlllslns? Allt landlð Höfuðborgarsvæölö Landsbygg&ln I I Baugur [___] Samkaup [_]■ Kaupás U1 Europrls Einstakar verslanlr á höfuðborgarsvæðlnu Bónus Hagkaup Nóatún nefnda 2001. Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. og Kaupfélag Suðumesja eru aðaleigendur. Sam- kaup rekur verslanimar Samkaup, Úrval, Spar- kaup, Strax, Nettó og Kaskó. Ríflega annar hver maður, eða 54 prósent landsmanna, kaupir reglu- lega inn til heimilisins 1 verslunum í eigu Baugs, en alls 70,4 prósent sé eingöngu litið til ibúa höfuðborgar- svæðisins. 16 prósent á landinu öllu gera regluleg innkaup í verslunum Samkaupa, 11,4 prósent í verslunum Kaupáss og 18,5 prósent annars staðar. Langsamlega flestir kaupa inn í Bónus, eða 41,1 prósent á land- inu öllu, en nærri annar hver á höf- uðborgarsvæðinu, eða 47,7 prósent. Önnur vinsælasta verslunin á landsvísu er Hagkaup en 8,8 prósent kaupa reglulega inn þar. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönnun- ar DV sem gerð var á fimmudag. Spurt var: í hvaða verslun gerir þú reglulega innkaup til heimilis- ins? Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar sem og kynja. Svar- hlutfallið var mjög hátt, eða 99 pró- sent. Á bak við tölur fyrir höfuðborgar- svæðið annars vegar og landsbyggð- ar hins vegar eru 300 svarendur í hvoru tilfelli. Annar hver í Bónus Þeir sem búa á höfuðborgarsvæð- inu nefndu alls 14 verslanir í þess- ari könnun. Níu þessara verslana tilheyra verslunarsamstæðunum Baugi, Kaupási og Samkaupum. Langflestir sögðust gera regluleg innkaup til heimilisins í Bónus, eða 48.6 prósent. Hagkaup kom þar á eft- ir með 16 prósent, þá Nóatún með 8.6 prósent, Fjarðarkaup með 7,1 prósent, 10-11 með 5,8 prósent, Nettó með 4,4 prósent, Krónan með 3,4 prósent og Europris með 2,7 pró- sent. Aðrar verslanir voru nefndar sjaldnar. Sé litið tU hlutdeUdar verslunar- samstæða sögðust 70,4 prósent gera regluleg innkaup í verslunum Baugs, þ.e. Bónus, Hagkaupi og 10- F]ar&arkaup 10-11 Nettö Krónan Europris 0% 10% 20% 30% 11. Bónus tekur þar tU sín tæp 70 prósent viðskiptavinanna. 13,3 sögðust kaupa inn í verslun- um Kaupáss, þ.e. Nóatúni, Krón- unni og 11-11. Fjarðarkaup kemur á eftir þessum stóru blokkum en 7,1 prósent sögðust gera innkaup þar. 5,4 prósent íbúa á höfuðborgarsvæð- inu sögðust kaupa inn í verslunum Samkaupa. Samkaup urðu tU þegar Matbær, áður verslunarsvið Kaupfélags Ey- firðinga og Samkaup hf., sameinuð- ust undir merkjum hins síðar- Samkaup sterk úti á landi Á landsbyggðinni voru, eðli máls sam- kvæmt, nefndar mun fleiri verslanir en á höf- uðborgarsvæðinu, eða samtals 30. Af þeim tU- heyra 10 verslanir ein- hverri þeirra þriggja '40% blokka sem nefndar voru að ofan, Baugi, Kaupási eða Samkaupi. Af einstökum verslunum sögðust flestir kaupa reglulega inn tU heim- Uisins 1 Bónus, eða 34,8 prósent. Langt er I næstu verslun, Samkaup, þar sem 8,8 prósent sögðust kaupa reglulega inn. Þá kemur Krónan með 8,1 prósent, Nettó með 6,4 pró- sent og Sparkaup með 4,7 prósent. Aðrar verslanir voru nefndar sjaldnar. Baugur er vinsælasta verslana- blokkin á landsbygginni, eins og á höfuðborgarsvæðinu, en 38,5 sögð- ust gera regluleg innkaup i ein- hverri af verslunum Baugs, þar af 9 af hverjum 10 í Bónus. Samkaup kemur á eftir Baugi í vinsældum en 23,6 prósent sögðust kaupa inn í verslunum undir þeim hatti. Þá kemur Kaupás þar sem 9,8 prósent kaupa reglulega ixm. Á meðfylgjandi gröfum má sjá töl- ur úr þessari könnun. í takt við aðrar tölur í skýrslu Samkeppnisstofnunar um matarverð á árinu 2000 koma fram tölur yfir áætlaða markaðs- hlutdeild verslana á íslandi það ár. Þar kemur fram að Baugur sé með 43-44 prósent markaðshlutdeild en í könnun DV sögðust 54 prósent gera þar reglubundin innkaup til heimil- isins. í skýrslu Samkeppnisstofnun- ar var Kaupás talinn með 22-23 pró- senta markaðshlutdeild en aðeins 11,4 prósent nefndu verslanir Kaupáss í könnun DV. Verslanir Matbæjar, Samkaupa og Sparkaupa þóttu hafa 16-18 prósenta markaðs- hlutdeild i fyrrgreindri skýrslu en 16 prósent nefndu verslanir Sam- kaupa í könnun DV. Frá því skýrsla Samkeppnisstofn- unar var gerð hafa Nýkaup orðið að Hagkaupum, verslunum hefur fjölg- að og Europris hefur komið til sög- unnar. Sú verslun er aðeins um 3 mánaða gömul og hefur því ekki sama forskot og aðrar verslanir sem byggt hafa upp tryggð meðal við- skiptavina. Hreyfing Mikil hreyfing er á þessum mark- aði, að minnst kosti í huga fólks. DV spurði einnig hvort fólk hefði íhug- að að gera regluleg innkaup í annarri verslun.Tæplega helmingur þeirra sem svöruðu sagðist hafa hugleitt að kaupa inn annars staðar. Nánar verður fjallað um niðurstöð- ur við þeirri spurningu í blaðinu á morgun. -hlh Forstöðumaöur samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar Reytum ekki hár okkar yfir álagningu Baugs „Forsvarsmenn Baugs hafa tjáð sig um álagningartölur sem birtar hafa verið í fjölmiðlum og sagt þær óná- kvæmar. Við teljum okkur hafa sannreynt ýmsar meðalálagningar- tölur sem forsvarsmenn fyrirtækis- ins hafa nefnt og höfum ekki talið ástæðu til að reyta hár okkar út af þessu að svo komnu máli,“ segir Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs Samkeppn- isstofnunar, um umræður um meinta svimandi háa álagningu Baugs sem verið hefur til umræðu í fjölmiðlum. Guðmundur segir rann- sóknir Samkeppnisstofnun- ar ekki renna stoðum undir fullyrðingar um að meðal- talsálagning í Bónus skipti tugum prósenta. Fullyrt hef- ur verið að Bónus hafi að meðaltali lagt 42% á vörur frá Nordica í Bandaríkjun- um, en Jón Bjömsson, fram- kvæmdastjóri Baugs ís- lands, hefur sagt að meðal- talsálagning Baugs á matvöru sé ríf- lega 21%. Álagningin í skýrslu Samkeppnis- stofnunar um matvöru- markaðinn frá þvi í fyrra, sem byggði á upplýsingum frá haustinu 2000, koma fram ýmsar áhugaverðar niðurstöður um álagningu smásöluverslana. Tekið er fram að álagningin geti verið mjög breytileg, en að verslanir leggi að meðal- tali 50-70% á ferskt brauð; á hrökkbrauð og kex 30-50%; á hrís- grjón 15-30%; á pasta 15-25%; á morgunkom og aðrar kornvörur 25-30%; á hangikjöt, pylsur, bjúgu, lifrarkæfu og ýmislegt álegg 20-40% á algengustu vörutegund- ir; á ferska ýsu 15-20%; á mjólk, rjóma, skyr og jógúrt 10-15%; á tvær algengar ostategundir 17-18%; á egg 50-70%; á sykur 15-25%; á súkkulaði og sælgæti 40-50%; á nokkrar algengar ísteg- undir 25-30%; á kaffi 20-30%; og á ávaxtasafa og gosdrykki 30-50%. Meginniðurstaða Samkeppnis- stofnunar var sem kunnugt er á þá leið, að í kjölfar samruna á matvörumarkaði fyrri hluta árs 1999 hefði samkeppni minnkað og álagning smásöluverslana aukist. Markaðshlutdeildin í skoðanakönnun DV, sem greint er frá annars staðar í blað- inu í dag, kemur fram að markaðs- hlutdeild Baugs er gríðarleg. Guð- mimdur Sigurðsson segir mark- aðshlutdeild af þessu tagi vart þekkjast annars staðar. „Víðast í Vestur-Evrópu og raunar víðar hefur orðið mikil samþjöppun á matvörumakaði svipað og hér, en þar sem við erum fá og smá verður þetta svo- lítið öfgafullt hjá okkur miðað við það sem annars staðar gerist. Ég held að það sé fátltt að svona keðj- ur fari upp fyrir 25-30% markaðs- hlutdeild. Guðmundur segir Samkeppnis- stofnun telja óheppilegt að mikil samþjöppun verði á markaði en vill ekki fullyrða að neytendur þurfí að hafa áhyggjur af stöðu mála hér. „Það væri samt æskilegra að fleiri keppinautar væru á markaðnum," segir Guðmundur. -ÓTG Dekkjahótel vib geymum dekkin fyrir þig gegn vægu gjaldi SÓU/iMG (onlinenlal* Kópavogi - Njarbvfk - Selfoss Guðmundur Sigurðsson. Nýjasta tækni Magnús Guðmundsson og Siv Frið- leifsdóttir skoða nýja diskinn. Gagnvirkt íslandskort Landmælingar íslands hafa gefið út nýjan geisladisk með íslandskortum fyrir PC-tölvur. Siv Friðleifsdóttir tók á móti fyrsta diskinum úr hendi Magnúsar Guðmundssonar, forstjóra Landmælinga, við hátíðlega athöfn i Ráðhúsinu í gær. Diskurinn er gagnvirkur sem merkir að notendur geta sjálfir skráð inn örnefni, merkt landsvæði og fært inn ferðaleiðir. Á nýja kortadiskinum er að frnna nokkur kort af íslandi. Þar á meðal eru kort i kvarðanum 1:250.000, ferða- kort í mælikvarðanum 1:500.000, stjómsýslu- og sveitarfélagakort og gróðurmynd. Enn fremur er að finna yfirlitskort og gervitunglamynd á diskinum. Skoðunarhugbúnaður á diskinum gerir notendum jafiiframt kleift að leita að ömefnum; með því einu að slá inn ömefnið þá fmnur diskurinn stað- setningu þess á íslandskortinu. Þá er hægt að mæla fjarlægðir og flatarmál með hugbúnaðinum. Bónus gaf 25 milljónir Bónus færði Mæðrastyrksnefiid 25 milijóna gjöf í gær. Gjöfm er í formi fimm þúsund matarmiða og mun Mæðrastyrksnefnd úthluta þeim í sam- starfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Öryrkjabandalag íslands. Byrjað verð- ur að dreifa matarmiðunum í desem- ber og fá handhafar þeirra úttektar- miða að upphæð krónur fimm þúsund í Bónusi. Jóhannes Jónsson, stofnandi Bón- uss, sagði við afhendinguna að hérlend- is væri rík hefð fyrir samhjálp og að styðja þá sem standa höllum fæti í þjóð- félaginu. Viðstödd afhendingu þessarar stórgjafar voru Ásgerður Flosadóttir, formaöur nefndarinnar, Garðar Sverr- isson ffá ÖBÍ, Jónas Þórisson hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Karl Sigur- bjömsson biskup íslands. Varað við sandfoki Vegagerðin í Vík varaði í gær við sandfoki á Mýrdalssandi. Við Vík í Mýrdal er ljósum skrýtt aðvörunar- skilti - þegar gulu ljósin á skilti i út- jaðri bæjarins blikka er hætta á ferðum, sandfok á Mýrdalssandi. Það getur orðið hýsna vont mál að lenda í slíku. Það er hins vegar orð- ið sjaldgæft að bílstjórar lendi í hremmingum af þessum sökum á Mýrdalssandi, því Landgræöslan hefur unnið gott starf við að græða upp verstu svæðin við þjóðveginn. Vegagerðarmaður sagði að um tíma í gær hefði ástandið verið á mörkunum, sérstaklega við Múla- kvísl. Bilstjóri sem fréttamaður DV hitti sagðist hafa lent í sandfoki en aðallega miklu mistri, sem eru eftir- stöðvar Skaftárhlaupsins, flngerður jökulleir þomar og fýkrn- upp úr far- veginum. -JBP/SKH/aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.