Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 DV Fréttir Félag eldri borgara í Reykjavík: I mál við ríkið vegna skatt- hlutfalls ávöxtunartekna DV-MYND E.ÓL. Gegn ríkinu Formaöur Félags eldri borgara, Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, kynnir málsókn gegn ríkinu vegna skattlagningar ávöxtunarhtuta lífeyristekna. Félag eldri borgara i Reykjavík hefur ákveðið að fara dómstóla- leiðina gegn ríkisvaldinu vegna þess að félagið telur að skattlagn- ing ávöxtunarhluta lífeyrissjóðs- greiðslna sé mjög ranglát. Það er einn af félagsmönnum Félags eldri borgara í Reykjavík sem stefnir ríkinu en málið var þing- fest í Héraðsdómi Reykjavikur í gær. Ríkið hefur 8 vikur til þess að senda inn greinargerð svo þinghald hefst ekki fyrr en um áramót í fyrsta lagi. í stefnunni er þess krafist að álagning tekju- skatts á stefnanda tekjuárið 2001 verði felld úr gildi en með henni voru lífeyrisgreiðslur hans skatt- lagðar með almennu tekjuskatts- hlutfalli, þ.e. 38,7% skatti, og á það bæði við um inngreidd ið- gjöld og uppsafnaða vexti. Sam- kvæmt lögum um fjármagnstekju- skatt frá árinu 1996 skal greiða 10% skatt af öðrum fjár- magnstekjum en vöxtum af ið- gjöldum í lifeyrissjóðum, s.s. vöxt- um, arði, leigu og söluhagnaði. Stefnandi telur að skattreglur mismuni sér vegna þess að hon- um hafi verið skylt að greiða hluta launa sinna í lífeyrissjóð meðan aðrir en launþegar hafi getað lagt fyrir til efri áranna, t.d. með fjárfestingu í hlutabréfum. Honum sé einnig mismunað eftir efnahag en hann hafi ekki átt fjár- muni umfram það sem gengið hafi til framfærslu. Ólafur Ólafs- son, formaður Félags eldri borg- ara, telur að þessi mismunun brjóti í bága við jafnræðisreglu og eignarréttarákvæði stjórnarskrár- innar. Ólafur segir að um prófmál sé að ræða sem hafi vafalítið for- dæmisgildi. Samkvæmt útreikningum tryggingastærðfræðings nema uppsafnaðir vextir og verðbætur 81% af útborguðum lífeyri stefn- anda árið 2001. Ef fallist yrði á sjónarmið hans ættu skattgreiðsl- ur hans að lækka um 56.564 krón- ur, eða um 33%. Stefanía Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri félagsins, segir að þegar fjármagnstekjuskatti hafi verið komið á 1996 hafi ýmsir far- ið að hugleiða þetta hvort það væri réttlátt að skattleggja ávöxt- unarhluta lífeyrissjóðsgreiðslna. „í félaginu eru 8.500 félagar og um 16.000 innan landssambandsins og allir þeir sem hafa verið í lifeyris- sjóði og hafa þegið greiðslur hafa þurft að borga hluta greiðslunnar í tekjuskatt, en iðgjaldið er skatt- frjálst. Vinnist þetta mál hefur það fordæmisgildi, ekki bara fyrir okkar félagsmenn heldur fyrir alla landsmenn. Ég geri þá ráð fyrir að skattalögum verði breytt til samræmis við það,“ segir Stef- ania Björnsdóttir. -GG Hundabú fær lokaviðvörun Hundabúið að Dalsmynni hefur nú fengið lokaviðvörun frá Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur. í bréfl, sem stofnunin sendi forráðamönnum hundabúsins nú í vikunni, segir að þeir fái frest til 28. október næstkomandi til að koma tilteknum atriðum á búinu í lag. Verði það ekki gert muni stofnunin leggja til þess að starfsemi þess verði stöðvuð þar til úrbótum sé lokið. Öm Sigurðsson, skrifstofstjóri Um- hverfis- og heilbrigðisstofu, sagði að forráðamenn búsins ættu eftir að ganga frá atriðum varðandi loftræstikerfi, frá- rennslislagnir og rotþrær. -JSS Skjálftahrina Skjálftahrina varð norðan Öræfajök- uls um tvöleytið i nótt. Stærstu tveir jarðskjálftamir mældust 2,5 á Richter samkvæmt sjálfvirkri úrvinnslu Veð- urstofunnar. Nokkrir minni skjálftar fylgdu í kjölfarið. Þá er jarðskjálfta- virkni stöðug í Mýrdalsjökli, 5-10 skjáiftar á sólarhring. DV-MYND TEITUR Fiörildin frjósa Hætt er viö aö aömírálsfiörildin sem sést hafa víöa um borgina lifi ekki af kaldar nætur. Þeir Guöflnnur Þór Stefáns- son, Egill Björgúlfsson og Karl Torsten Thorbjörnsson reyndu aö halda lífinu í einu slíku fiörildi í gær. Strákarnir fundu fiörildiö á skólalóö Fláteigsskólans - og sögöust ætla aö eiga fiörildiö áfram. Bergvin Jóhannsson, kartöflubóndi á Áshóli: Dreifingaraðilar ekki að drepa bændur - telur bóndann á Lyngási ekki verða feitan af viðskiptum við Bónus Bergvin Jóhannsson, kartöflubóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi, í utan- verðum Eyjafirði, segist ekki sjá að pökkunar- og dreifmgaraðilar á kart- öflum séu að taka mikið til sín eins og Karl Ólafsson í Lyngási 4 á Suðurlandi hefur haldið fram í samtölum við DV. Hann gefur ekki mikið fyrir orð Karls, hvað þá að þessar stöðvar séu að drepa framleiðendur. NOTAÐAR VINNUVÉLAR Tl-018 Massey Ferguson 860 traktorsgrafa, 80 ha. skotbóma, 60 cm bachoskófla, 5300 vst. Ingvar Helgason hf. VÉLADEILD „Þótt Karl segist vera að gera það gott við að selja í Bónus sem selji kíló- ið út úr búð á 62 krónur þá sýnist mér að hann sé að selja þeim fyrir miklu lægra verð en þær 35 krónur að jafnaði sem við emm að fá í gegnum dreifing- arfyrirtækin. Þó sér hann um umbúð- ir, pökkun og dreifinguna sjálfur. Þá segir hann að bændasamtökin skelli á sig hurðum alls staðar, en það er hann sjálfur sem lokar þau úti þar sem hann borgar engin sjóðagjöld og er ekki í neinum félögum sem þar koma að. Þá virðist sem hann tali hreinlega fyrir Jóhannes í Bónus þegar Karl heldur því fram að álagningin þeima sé ekki nema 3-9%.“ Bergvin telur að Karl mætti í leiðinni vel upplýsa þjóð- ina um hvað sé á bak viö gróða hans síðustu 12 árin. Bergvin segist selja í gegnum tvö dreifingarfyrirtæki, Sölufélag garð- yrkjumanna og Kartöflusöluna á Akur- eyri. „Mér sýnist þau ekki taka mikið meira en það sem þau eru að borga í flutningskostnað sem er feikilega mik- ill auk umbúöa- og dreifingarkostnað- ar. Þau taka um 25-30 krónur á kílóið og þá erum við aö fá að jafnaði um 35 Kartoflurækt Skiptar skoöanir eru um hlut dreifingaraöila í kartöfluveröinu. Bóndinn á Ás- hóli segir dreifingarfyrirtækin síst taka of mikið fyrir sinn snúö. krónur. Mjög algengt verð frá dreifing- araðila er um 60 krónur. Síðan kemur virðisaukaskattur og álagning smá- söluverslunarinnar. Út úr algengustu verslunum eru kartöflumar þvi seldar á í kringum 150 krónur. Það er mikið látið af því að þessir „miililiöir" fái mikið. Ég fékk að skoða alla pappíra hjá þeim í vor og fór vel í saumana á því. Það virðist alltaf vera endapunkturinn í keðjunni, eða smá- salan, sem fær flestar krónurnar fyrir minnstu vinnuna. Samt eru framleið- endur með um 80% af kostnaðinum og ég vil meina yfir 90% af erfiðinu,“ seg- ir Bergvin Jóhannsson. -HKr. Bmmemfm t vg ijíiyii/íiJJ REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 17.41 17.26 Sólarupprás á morgun 08.45 08.30 Síödegisflóö 19.31 00.04 Árdegisflóð á morgun 07.46 12.19 Snjókoma eða slydda Norðanátt, víða 8 til 13 metrar á sekúndu fram yfir hádegi en síðan 10-15. Snjókoma eða slydda öðru hverju norðan- og austanlands. Yfirleitt þurrt Skýjaö með köflum og yfirleitt þurrt, en dálítil él norðvestan til. Föstudagur Laugardagur Sunnudagur «16" til 6° til 6° Vtndun Vindun Vindun 10-15«*/* 10-15"V* 6-12 t£ t£ t£ Slydda eöa Slydda eða Víöa dálítll él en skýjaö él en skýjað él. meö köflum með köflum um landlö um landlö suövestan- suövestan- vert. vert. VíntliiraM |Jljgjl| | m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 AKUREYRI snjókoma -1 BERGSSTAÐIR rign. á síð. kls. 5 B0LUNGARVÍK snjókoma -1,4 EGILSSTAÐIR alskýjaö 1 KEFLAVÍK snjókoma 0 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 1 RAUFARHÖFN léttskýjaö 1 REYKJAVÍK alskýjaö 0 STÓRHÖFDI léttskýjaö 0 BERGEN léttskýjaö 1 HELSINKI skýjaö -8,8 KAUPMANNAHÖFN rigning 11 ÓSLÓ slydda 2 STOKKHÓLMUR 3 ÞÓRSHÖFN snjóél á síö. kls. 2 ÞRÁNDHEIMUR snjókoma 3 ALGARVE léttskýjaö 14 AMSTERDAM rigning 11 BARCELONA léttskýjaö 17 BERLÍN rigning 13 CHICAGO alskýjað 4 DUBLIN léttskýjaö 2 HALIFAX rigning 13 HAMBORG heiöskírt 3 FRANKFURT rigning 13 JAN MAYEN moldr. eða sandf. 2 LONDON skýjað 8 LÚXEMBORG rigning 11 MALLORCA léttskýjaö 18 MONTREAL heiöskírt -1,9 NARSSARSSUAQ heiöskírt 5 NEW YORK heiöskirt 11 ORLANDO skýjaö 24 PARÍS skýjaö 11 VÍN súld 9 WASHINGTON heiöskírt 7 WINNIPEG alskýjaö -2,2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.