Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 13
13 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 JDV Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 5.762 m.kr. Hlutabréf 588 m.kr. Húsbréf 2.604 m.kr. MEST VIÐSKIPTI j © Pharmaco 193 m.kr. j © Þorm. rammi-Sæb. 150 m.kr. íslandsbanki 37 m.kr. MESTA HÆKKUN © Sjóvá-Almennar 2,4% j © íshug 2,1% | © Skeljungur 1,4% MESTA LÆKKUN ©Hlbrsj. Búnb. 2,3% © Marel 1,7% ©ísl. hlbrsj. 1,7% ÚRVALSVÍSITALAN 1.321 - Breyting 0,08% Bandaríkin: Góð vika að baki Miklar hækkanir einkenndu hlutabréfamarkaði í Bandaríkjun- um í síðustu viku og hækkuðu helstu vísitölur um og yfir 6% innan vikunnar. Vísitölumar máttu vel við þessari hækkun, en 9. október féllu þær í fimm ára lágmark og virtist gífurleg nei- kvæðni einkenna fjárfesta vestra. í vikunni sem leið birti hins veg- ar þriðjungur félaga í S&P 500 visitölunni árshlutauppgjör sín og voru þau umtalsvert hetri en spár höfðu gert ráö fyrir, en hagnaður fyrirtækja var 13% meiri en fyrir ári. í þessari viku munu álíka mörg fyrirtæki og í síðustu viku birta uppgjör sín og verði þau í sam- ræmi við það sem áður hefur ver- ið birt má allt eins búast við að markaðir haldi áfram að hækka. Mikið fjármagn hefur verið bund- ið á peninga- og skuldabréfamark- aði en væntanlega kemur að því að hluti þess fjármagns færist yflr á hlutabréfamarkað. Enn er þó langt í land eftir miklar lækkanir á þessu ári og þykir raunar sýnt að árið 2002 verði þriðja árið í röð þar sem helstu hlutabréfavísitölur lækka. Þarf að fara aftur til stríðs- áranna 1939-1941 til að finna ann- að dæmi um þriggja ára lækkun. Viöbrögð ritstjóranna Ritstjórar evrópskra stórblaða bregðast misvel við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á ír- landi um Nice-sáttmálann. Tel- egraph kallar niðurstöðuna sigur evrópsku elítunnar. Le Figaro segir að draga þurfl úr vægi þjóð- aratkvæðagreiðslna í ESB. Frank- furter Rundschau segir niðurstöð- una skilja eftir sig vont eftir- bragð og spyr hvort Nice hefði verið keyrður í gegn af jafnmikl- um þunga ef stórþjóð hefði haft sömu efasemdir og litla írland. Og Independent gagnrýnir að ESB láti ávallt kjósa aftur líki því ekki niðurstaðan; ESB minni þannig á enska túrista í útlönd- um, sem telji gjaman að besta ráðið til að fá innfædda til að skilja sig sé að brýna raustina og spyrja aftur. Lettar tvístígandi Með samþykki íra er einni hindrun rutt úr vegi stækkunar ESB. Almenningur í aðildarríkj- unum á hins vegar vitanlega síð- Umsjón: Viðskiptablaðiö Íslandssími kaupir meirihluta hlutafjár í Tali Viðskipti Sameining kynnt Á blaöamannafundi á föstudag. Þórólfur Ámason, forstjóri Tals, mun ekki starfa hjá hinu sameinaða félagi. Íslandssími hefur keypt 57% hlut Westem Wireless Intemational í Tali. Kaupverðið er 2.349 milljónir króna og heildarverðmæti Tals samkvæmt því 4.100 milljónir króna. Lengi hefur verið rætt um möguleikann á sameiningu fé- laganna og sérstaklega eftir að íslands- síma var, samhliða kaupunum á Halló- Fijálsum fjarskiptum, tryggð fjármögn- un til frekari sameininga. Með sameiningu félaganna verður til mim stærra félag sem hefur sterkari stöðu í samkeppninni við Landssím- ann. Áætluð velta sameinaðs félags á yflrstandandi ári er um 5.300 milljónir króna og markaðshlutdeild 22% á fjar- skiptamarkaðinum í heOd. Talsvert hagræði felst í sameiningunni og er þar sérstaklega nefnt sameiginlegur rekstur fjarskiptakerfa og neta, launa- kostnaður og minni fjárfestingarþörf. Með sameiningunni færast viðskipti við mikinn fjölda viðskiptavina til eins félags. Því skapast talsverð ný við- skiptatækifæri við- að bjóða viðskipta- vinum alhliða fjarskiptaþjónustu en kannanir sýna að notendur vilja helst hafa alla fjarskiptaþjónustu sína hjá einum aðOa. PjaOað er um kaupin í Morgunkomi íslandsbanka í gær en þar kemur m.a. fram að þau verði fjármögnuð með nýju hiutafé en félagið hafi tryggingu fyrir sölu á nýju hlutafé að fjárhæð 4.900 mOljónir króna. Það séu Columbia Ventures Corporation, Landsbanki, Búnaðarbanki, FrumkvöðuO og Tal- símafélagið sem veiti sölutrygginguna. Fram kemur að annars vegar verður í ár selt nýtt hlutafé að söluvirði 3.000 mOljónir króna þar sem miðað verður við gengið 1,85. Hins vegar verður hluta- fé að söluvirði 1.900 mOljónir selt í al- mennu útboði á næsta ári en útboðs- gengið verður ákveðið þegar nær dreg- ur. Ætla má að heOdarhlutafé íslands- síma að þessu loknu verði um 3.800 mOijónir króna. Þar er miðað við að út- boðsgengið í almenna útboðinu verði 2,6 og nafnverð útboðsins því 731 mOljón króna. Auk 1.026 mOljóna króna skráðs hlutafjár bætast 414 mOljónir við vegna samrunans við HaOó og 1.622 miOjónir vegna útboðsins í ár. Sé miðað við nú- verandi markaðsgengi (2,6) stefnir markaðsverð Íslandssíma því í að verða um 9.900 mOljónir króna eftir hlutaflár- aukninguna. Jafnframt stendur yfir undirbúningur að endurfjármögnun alira langtímalána íslandssima og Tals. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki samkeppnisyflrvalda, Póst- og fjarskiptastofnunar og að hlut- hafafundur Íslandssíma veiti heimfld tfl hlutafjárhækkunar. Gengi bréfa Íslandssíma hækkaði um 15% á fóstudag í 47 mflljóna króna við- skiptum. Yfir síðustu viku hækkaði gengi félagsins um 43% í 62 mOljóna króna viðskiptum. ísland í efsta lánshæfisflokk Lánshæfismat íslenska ríkisins hef- ur verið hækkað í efsta flokk af Moody’s, einu af þekktustu lánshæfis- matsfýrirtækjum heims. Um er að ræða mat á endurgreiðslugetu ríkisins á langtímaskuldum í erlendri mynt. Stóð þar ísland nokkuð vel að vigi áður, hafði einkunnina Aa3, en hækk- ar nú eins og fyrr segir í hæsta flokk eða Aaa. í tiikynningu frá Moodýs um helgina kom fram að Ástralía og Nýja- Sjáland hefðu verið hækkuð í sömu andrá, enda löndin öfl þroskuð iðnaðar- ríki. Var og talið að hverfandi líkur væru á löndin þrjú gripu tO þess ráðs að frysta endurgreiðslu á rflfisskulda- bréfum, en sú varð tfl að mynda raun- in í Argentínu fyrr á þessu ári. Hærri einkunn fyrir skuldabréf í erlendum gjaldeyri hefur ekki úrslitaþýðingu þar sem í fæstrnn tflvikum er um mflda út- gáfu á slOcum skuldabréfum að ræða. Engu að síður er hún jákvæð á marg- víslegan hátt, ekki síst fyrir stærri fyr- Evrópuvaktín asta orðið um að- ild. Ný skoðana- könnun í Lett- landi sýnir að þar í landi er fólk tvístígandi; 46% segjast hlynnt ESB-aðild en 35% andvíg. Sér- fræðingar hjá ESB segja að stjómvöld í Lettlandi þurfi að setja meira fjármagn í að kynna kosti ESB-aðildar fyrir þjóðinni. Wie bitte? Blaðið Financial Times greinir frá því að tillagna sé að vænta um að ríki Evrópusambandsins greiði sérstakt gjald fyrir að nota sitt eigið tungumál á vinnufund- um Evrópuráðsins, enda blasi við að þýðingarkostnaður aukist til muna þegar tungumálum ESB fjölgar úr 11 í 20 við stækkun sambandsins. Evrópuráðið hefur núna 50 milljónir evra til ráðstöf- unar á ári vegna þýðinga á fund- um og er þá ótalinn kostnaður við um 550 skjalaþýðendur. irtæki hér innanlands. ROciseinkunnin myndar nokkurs konar áhættuviðmið og má ætla að hækkað mat ætti að geta leitt tfl betri lánskjara i erlendri mynt fyrir stærstu fyrirtæki landsins. Þá ætti að vera hægt að selja skuldabréf i erlendri mynt á lægri ávöxtunarkröfu en áður hefúr þekkst, en fáir flokkar eru nú útistandandi enda hefur rOíis- sjóður haft takmarkaða lánsfjárþörf á undanförnum árum. í tilkynnúigu frá Moody’s kemur fram að nýtt lánshæfismat byggi á end- Rekstur Norðuráls skflaði 760 milljóna króna hagnaöi fyrstu níu mánuði ársins 2002. Nettóvelta fyr- irtæksins var 6,4 milljarðar króna eða 73 mflljónir Bandaríkjadala fyrstu níu mánuðina. Á sama tíma- bfli árið 2001 var velta fyrirtækisins 62 mflljónir doUara. Framleiðsla á áli var 68 þúsund tonn á tímabOinu en árið áður höfðu verið framleidd 52 þúsund tonn. Framleiðsluaukn- ing á mflli ára skýrist af því að á miðju ári 2001 var framleiðslugeta álversins aukin úr 60 þúsund tonna ársframleiðslu í 90 þúsund tonn. Þriðji ársfjórðungur yfirstand- andi árs var fyrirtækinu hagstæður þrátt fyrir lækkandi álverð og fór urskoðun á fyrri matsaðferðum en einnig er ísland nú að uppskera fyrir efnahagsumbætur á nýliðnum áratug. 1 Ástralíu og Nýja-Sjálandi styrktust heimagjaldmiðlarnir umtalsvert í kjöl- far fréttarinnar. Ekki er ólíklegt að ís- lenska krónan muni og styrkjast á gjaldeyrismarkaði í dag og á skulda- bréfamarkaði ætti þessum fregnum að vera tekið fagnandi. Hærra lánshæfis- mat íslands ætti að öflu jöfnu að geta haft áhrif tfl lækkunar ávöxtunarkröfu í markflokkum skuldabréfa. hagnaður vaxandi. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 360 miOjónir króna á móti um 200 mflljónum að meðaltali á fyrsta og öðrum árs- fjórðungi. Álverð var 1350 dollarar á tonn fyrstu níu mánuði yfirstand- andi árs en var 1490 doUarar á sama tímabUi í fyrra. Útlit er fyrir frem- ur lágt álverð það sem eftir er árs- ins og er verðið um 1300 doUarar á tonn um þessar mundir eða svipað og meðalverð á þriðja ársfjórðungi. Rekstur Norðuráls hefur gengið vel og eru horfur á áframhaldandi hagnaði af rekstri fyrirtækisins út árið 2002 þrátt fyrir lækkun álverðs. Norðurál áætlar að framleiða rúm- lega 90.000 tonn á árinu. Ágæt afkoma hjá Norðuráli: 760 milljóna króna hagnaður Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk. Skr. 5/99, ek. 38 þús. Verð kr. 890 þus. Toyota Corolla Touring, skr. 8/99, ek. 38 þús. Verð kr. 1340 þús. ymouth Voyager, ssk. Skr. 7/97, ek. ð7 þús. Verð kr. 1250 þús. Galloper 2,5, dísil, ssk. Skr. 9/99, ek. 78 þús. Verð kr. 1490 þús. Nissan Terrano II 2,4, bsk. Skr. 7/01, ek. 43 þus. Verð kr. 2280 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---////--------------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100 Suzuki Grand Vitara, 3 d., ssk Skr. 5/01, ek. 12 þús. Verð kr. 1790 þús. Suzuki Vitara JLX, 5d., bsk. Skr. 6/00, ek. 59 þ s. Verð kr. 1380 þús. Suzuki Vitara dísil TDI, ssk. Skr. 6/97, ek. 196 þ s. Verð kr. 850 þus. Suzuki Jimmy JLX, bsk. Skr. 6/02, ek. 15 þús. Verð kr. 1480 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.