Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 15
15 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 PV_____________________________________________________________________________________________________Menning Mögnuð stemning stund. Sem fyrr voru hljóðfæra- leikararnir full- komlega samstillt- ir, enginn að reyna að troða sér fram fyrir annan, og heldur ekki fram fyrir tónlist- ina, sem fékk að njóta sín, óheft og ómenguð. í stuttu máli voru þetta frábær- ir tónleikar með framúrskarandi listafólki, og er þeim hér með þakkað fyrir nota- lega kvöldstund. Jónas Sen Fiðluleikararnir Hildigunnur Hall- dórsdóttir og Sigur- laug Eðvaldsdóttir stilltu sér upp við helgidóm Bústaða- kirkju á sunnudags- kvöldið ásamt Guð- mundi Kristmunds- syni víóluleikara og Sigurði Halldórssyni sellóleikara og léku strengjakvartett nr. 12 í Des-dúr opus 133 eftir Shostakovich. Tónleikarnir voru á vegum Kammermús- íkklúbbsins, og kannski hefur ein- hverjum fundist þeir byrja illa. Þessi kvartett Shosta- kovich er ekki eins aðgengilegur og margt annað eftir hann, því verkið er dv-myndir pók samið undir áhrifum af tólftónatónlistinni, sem sumum þykir tor- melt enn þann dag í dag. Snilld tónskáldsins skein þó í gegnum net sérkennilegra tónahend- inga og flókinnar hrynjandi, og smátt og smátt magnaðist upp stemning sem hlýtur að hafa náð tökum á hverjum einasta tónleikagesti. Sérstaklega áhrifamikill var ljóðrænn hluti síðari kaflans, og hörkulegt strengjaplokk fyrstu fiðlu þar á eftir, sem minnti á slagverk, kom prýðilega út. Leikur fjórmenninganna var í fremstu röð, öll hljóðfærin voru samtaka og ekki varð maður var við að eitthvert þeirra væri of sterkt, eins og stundum vill brenna við í kammertónlist. Túlkunin var látlaus og inn- hverf, en þó var ógnþrungin undiraldan, sem einkennir tónlist Shostakovich, ávallt nærri. Á tónleikunum var einnig leikinn kvintett fyrir klarínettu, tvær fiðlur, víólu og selló í h- moll opus 115 eftir Brahms, og bættist þar Ár- mann Helgason klarinettuleikari í hópinn. Var flutningurinn síst verri; ljúf stemning tónsmíð- arinnar hélst órofin allan tímann og var það svo óskaplega þægilegt að maður gat ekki ann- að en lokað augunum og horfið inn á við um Hvar sem ég verð Ingibjörg Har- aldsdóttir skáld hélt upp á sex- tugsafmæli sitt þann 21. október með því að senda frá sér nýja ljóðabók og skulu henni færðar innilegar hamingjuóskir með hvort tveggja. Átta ár eru liðin síðan Ingibjörg gaf út ljóðabókina Höfuð konunn- ar sem á sínum tíma hlaut af- burðadóma gagnrýnenda og hlýjar viðtökur lesenda. Þetta er sjötta bók Ingi- bjargar og ber heitið Hvar sem ég verð. Henni er skipt í sex kafla og er bókartitill- inn dreginn af lokahlutanum, ljóðabálkinum Hvar sem ég verð. í ljóðum bókar- innar yrkir Ingibjörg um hverful- leika lifsins, grimmd þess og óbil- girni, sjálfa lífshvötina andspænis tortímingunni og löngu liðna tíð mitt 1 þeirri andrá sem er að líða. Og stundum um óvænta hamingj- una mitt í hvunndeginum: Fráleitt aö eiga sér draum ífebrúar fjúka um strœtin frá sér numin í febrúar fráleitt Mál og menning gefur bókina út. Kápumynd og hönnun var í höndum Ingibjargar Eyþórsdótt- ur. BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur STÓRA SVIÐ SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Frumsýnmg fö. 25/10 kl. 20 - UPPSELT. 2. sýn. Gul kort - su. 27/10 kl. 20 3. sýn., rauð kort - fö. 1/11 kl. 20 4. sýn., græn kort - su. 3/11 kl. 20 HONKl UÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles ogAnthony Drewe Gamansönpleikur fyrir alla fjölskylduna. Su. 27. okt. kl. 14 Su 3. nóv. kl. 14 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau. 26. okt. kl. 20 Lau. 2. nóv kl. 20 ATH. Fáar sýningar cftir. MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi. 24. okt. kl. 20 - UPPSELT Fi. 31. okt. kl. 20 - UPPSELT Lau. 9. nóv. kl. 20 - 60. sýning - AUKAS. Lau. 16. nóv. kl. 20 - AUKASÝNING Fim. 21. nóv. kl. 20 - AUKASÝNING NÝJA SVIÐ JÓN OG HÓLMFRÍÐUR FrekarerótískiF'l. 24/10 kl. 20 Fö. 25/10 kl. 20 Lau. 26/10 kl. 20 Fö. 1/11 kl. 20 - UPPSELT AND BJÖRK, OF COURSE .. e. Þorvald Þorsteinsson Su. 27. okt. kl. 20 - AUKASÝNING 15.15 TÓNLEIKAR Ferðalög Lau. 26/10 Anna Sigr. Helgadóttir ATH.: SIÐASTA SOLUVIKA ÁSKRIFTAR- OG AFSLÁTTARKORTA ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ í VETUR 7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin. 10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun. Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000. GRETTISSAGA www.hhh.is Saga Grettis. Leikrit eftir Hilmarfánsson /yggt á Grettissögu fös. 25. okt. kl. 20, laus sæti lau. 26. okt. kl. 20, nokkur sæti fös. 1. nóv. kl. 20 lau. 2. nóv. kl. 20 fos. 8.nóv. kl. 20 lau. 9. nóv. kl. 20 lau. 16. nóv. kl. 20 Sellófon eftir Björk Jakobsdöttur mið. 23. okt., uppselt fim. 27. okt., uppselt þri. 29. okt., uppselt mið. 30. okt., uppselt sun. 3. nóv., uppselt mið. 6. nóv., uppselt sun. 10. nóv., uppselt þri. 12. nóv., örfá sæti mið. 13. nóv., uppselt SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR í IÐNÓ Mið 23/10, kl.21 Fim 24/10, kl. 21 Sun 27/10, kl. 21 Fös 1/11, kl. 21 Fös 1/11, kl. 23 Lau 2/11, kl. 21 Lau 2/11, ki. 23 Fös8/11,kl. 21 Fös 8/11, kl. 23 Lau 9/11, kl. 21 Lau 9/11, ki. 23 Fim 14/11, kl. 21 Fös 15/11, kl. 21 Lau 16/11, kl. 21 Lau 16/11, M. 23 Fim 21/11, kl. 21 Fös 22/11, Id. 21 Lau 23/11, kl. 21 Lau 23/11, kl. 23 Fös 29/11, kl. 21 Aukasýning - örfá sæti Uppselt Uppselt Uppselt Laussæti Örfásæti Aukasýning - laus sæti Uppselt Aukasýning - örfá sæti Uppselt Aukasýning - örfá sæti Laussætí Örfásæti Uppselt Aukasýning - laus sætí Laussæti Örfásætí Laussæti Aukasýning - örfá sætí Laussætí (9 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Fjársjóður í fáum tónum Tónleikar f Háskólabíói 24. október, kl. 19.30 Páll P. Pálsson: Norðurljós GustavMahler: Sinfónía nr. 5 Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Miðaverð: 2600 / 2200 /1800 Sími miðasölu: 545 2500 Miðasalan í Iðnó er opin frá 10-16 alla virka daga, 14-17 um helgar og frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar. Listasafn Islands Fríkirkjuvegi 7, við Tjömina www.listasafn.is Þrá augans Saga Ijósmyndarinnar 1840-1990 Um 200frummyndir Salir, safnbúð og kaffistofa, opið 11-17. Viðamikil fræðsludagskrá. Sun. 27. okt. Myndbandasýning: Helmut Newton kl. 15-16.30. Pharmaco er aðalstyrktaraðili Listasafns Islands 2002-2003 www.pharmaco.is Tónlistardagar Dómkirkjunnar - Soli Deo Gloria - 26.10-17.112002 26.10 kl. 16.00 Setning Tónlistardaga Dómkórinn frumflytur kórlög eftir Báru Grímsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Jón Hlöðver Áskelsson og Snorra Sigfiís Birgisson. Frítt inn. 27.10 kl. 11.00 Hátíðarmessa á kirkjuvígsludegi Prestun sr. Hjálmar Jónsson. 27.10 kl. 17.00 Tónleikar Dómkórsins Flutt verður efnisskrá kórsins úr tónleikaferð til írlands í apríl sl. og mótettan Der Geist hilft unser Schwachheit auf eftir J. S. Bach. Aðgangur kr. 1000. 3.11 kl. 17.00 Tónleikar tónlistarfólks úr nágrenni Dómkirkjunnar. Fritt inn. 5.11 kl. 20.30 Orgeltónleikar. Við orgelið: Hilmar Örn Agnarsson. Fritt inn. 10.11 kl. 17.00 Kórtónleikar. Flytjendur: Barnakór Biskupstungna. Sljórnandi: Hilmar Öm Agnarsson. Bamakór Dómkirkjunnar. Stjórnandi: Kristín Valsdóttir. Aðgangur kr. 500. 17.11. kl. 11.00 Messa í Dómkirkjunni. Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur. Kl. 17.00 Kórtónleikar í Hallgrimskirkju. Flutt verður lcantatan Saint Nicolas eftir B. Britten. Flytjendur: Garðar Thor Cortes tenór, Skólakór Kársness, stjómandi: Þómnn Björnsdóttir, Dómkórinn, kammerhljómsveit, stjórnandi: Marteinn H. Friðriksson. Aðgangur 1.500 kr. í forsölu, 2.000 kr. við innganginn. Aðgöngumiðar eru seldir í Dómkirkjunni alla virka daga á milli kl. 10 og 17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.