Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Blaðsíða 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára_________________________
Jóhannes Kristjánsson,
Helgamagrastrasti 44, Akureyri.
Una Magnúsdóttir,
Heiöarbæ 7, Reykjavík.
80 ára__________________
Jóhannes Guömundsson,
Barónsstíg 11, Reykjavík.
J5 árg__________________
Áróra Oddsdóttir,
Orrahólum 7, Reykjavik.
Guðmundur Björnsson,
Vallargeröi 27, Kópavogi.
Ólöf Ólafsdóttir,
Efstasundi 95, Reykjavík.
70 ára__________________
Björgvin Jakobsson,
Austurbrún 2, Reykjavík.
Guörún Ingólfsdóttir,
Grundargarði 4, Húsavík.
60 ára_________________________
Ljubov Pinjukovskaja,
Melaheiöi 3, Kópavogi.
Sigríöur Þóra Ingadóttir,
Hjaltabakka 14, Reykjavík.
Sigrún Jónsdóttir,
Baughóli 3, Húsavík.
50 ára_________________________
Axel Erlendur Sigurösson,
Heiövangi 1, Hafnarfirði.
Björn Björnsson,
Seiöakvísl 35, Reykjavík.
Guöríöur Ósk Axelsdóttir,
Hringbraut 13, Hafnarfirði.
Haukur Georgsson,
Sunnuhlíö, Vopnafirði.
Hiidur R. Guömundsdóttir,
Ástúni 14, Kópavogi.
Hjörtur Þór Guöbjartsson,
Bogabraut 11, Skagaströnd.
Júlianna Helga Friðjónsdóttir,
Breiövangi 2, Hafnarfiröi.
Oddgeir B. Guöfinnsson,
Hamrabergi 20, Reykjavík.
Sævar Reynisson,
Heiðarbóli 55, Keflavík.
Þorvaldur Sigurbjörnsson,
Bollagötu 1, Reykjavík.
40 ára_________________________
Alfreö Þór Alfreösson,
Ásabraut 13, Akranesi.
Árni Ólason,
Dynskógum 19, Egilsstöðum.
Bjarni Einar Einarsson,
Langholti 25, Akureyri.
Eiríkur Sören Guönason,
Nesgötu 29, Neskaupstað.
Esther Laufey Þórhallsdóttir,
Eyktarási 21, Reykjavík.
Gísii Kristjánsson,
Langagerði 68, Reykjavík.
Hafdís Hilmarsdóttir,
Lerkiási 10, Garðabæ.
Hrönn Waltersdóttir,
Borgarhrauni 18, Hverageröi.
Jun Nakajima,
Jörfa, Rúðum.
Laufey Anna Ingimundardóttir,
Grundartúni 10, Hvammstanga.
Magnea Sigrún Símonardóttir,
Heiðarbrún, Selfossi.
Smáauglýsingar
550 5000
Daníel S. Lárusson, Óðinsgötu 8,
Reykjavík, lést I Búdapest mánud.
21.10.
Ingibjörg Guörún Bjarnadóttir frá Flatey
á Breiðafirði, Sundstræti 26, ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafiröi
föstud. 11.10. Útförin fór fram í kyrrþey
laugard. 19.10. aö ósk hinnar látnu.
Gísli Ólafsson, Glæsibæ 4, Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi sunnud.
20.10.
Oddný Dóra Halldórsdóttir, Heiðarbóli 9,
Keflavík, lést á heimili sínu laugard.
19.10.
Guöbjörg Jón Helgadóttir Ólsen,
órvadsvej 23, Árósum, Danmörku, lést
á heimili sínu föstud. 18.10. sl.
Margrét Blöndal Mcaleer, Shalimar,
Flórida, lést föstud. 11.10. Útförin hefur
farið fram.
Guðný G. Sigurrós Guömundsdóttir
(Rósa), Neðstaleiti 13a, Reykjavík, lést
á Landspítala Landakoti föstud. 18.10.
Sextugur
Halldór Baldursson
bæklunarlæknir við Landspítalann
Halldór Baldursson læknir, Tún-
götu 51, Reykjavlk, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Útey í Laugar-
dal en ólst upp í Kópavoginum
lengst af. Hann varð stúdent frá ML
1962, lauk embættisprófi í læknis-
fræði frá HÍ 1969 og stundaði fram-
haldsnám í bæklunarlækningum í
Svíþjóð. Hann varð sérfræðingur í
bæklunarlækningum og hlaut dokt-
orsgráðu í bæklunarlækningum frá
háskólanum í Lundi 1979. Þá sótti
hann námskeið fyrir verðandi frið-
argæsluliða í Sessvollmoen í Noregi
1999 og námskeið í bráðalækning-
um á vegum danska hersins í Ðan-
mörku 2000.
Haildór hefur starfað á hinum
ýmsu spítölum bæði hér á landi og
í Svíþjóð. Enn fremur var hann hér-
aðslæknir í Eskifjarðarhéraði
1970-71 og kennari í bæklunarfræði
við háskólann í Lundi veturinn
1974-75 þar sem hann flutti fyrir-
lestra fyrir nema í sjúkraþjáifun.
Á árunum 1981-91 var Halldór yf-
irlæknir bæklunar- og slysadeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
og hefur síðan verið sérfræðingur
við bæklunardeild Landspítalans.
Hann var læknir og majór í norska
NATO-friðargæsluliðinu í Kosovo
frá því í desember 2000 og fram í
mars 2001.
Halldór var formaður læknaráðs
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
1988-90, hefur verið formaður Fé-
lags islenskra bæklunarlækna frá
1990, var varaforseti norræna bækl-
unarlæknasambandsins 1996-98 og
forseti þess 1998-2000. Þá var hann
formaður byggingarnefndar Nes-
stofusafns 1997-2000.
Að frátaldri doktorsritgerðinni,
„Total hip replacement in
rheumatoid arthritis“, hefur Hali-
dór ritað ýmsar greinar um bæklun-
arlækningar, röntgenskoðanir á
fornleifum og um sögu íslands og
greinar í Læknablaðið og erlend
læknarit.
Halldór var sæmdur norska her-
þjónustumerkinu 2001 og heiðurs-
merki NATO 2002 fyrir þjónustu í
friðargæslusveitum í Kosovo.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 27.1. 1967 Mar-
gréti Snorradóttur, f. 13.3. 1944,
lækni. Hún er dóttir Snorra Hall-
grímssonar læknis og Þuríðar
Finnsdóttur húsmóður.
Börn Halldórs og Margrétar eru
Sigrún, f. 24.2. 1967, nemi í tölfræði
í Gautaborg en maður hennar er
Anders Claesson og er sonur þeirra
Karl, f. 2001; Snorri, f. 15.11. 1970,
efnaverkfræðingur, Ph.D. en kona
hans er Laufey Einarsdóttir og er
dóttir þeirra Margrét, f. 2000; Stefán,
f. 2.4. 1976, þjónustufulltrúi hjá
Landsímanum; Auður, f. 8.2. 1982,
stúdent við nám í Frakklandi.
Systkini Halldórs eru Nanna, f.
24.2.1941, húsmóðir i Reykjavík, gift
Ólafi Gamalíel Sveinssyni og eiga
þau þrjú börn; Ingibjörg, f. 2.2. 1944,
hjúkrunarfr. í Kópav. og á hún eina
dóttur; Guðmundur, f. 30.8.1945, bif-
reiðastj. í Kópav., fyrri kona Lára
Vilhelmína M. Jónsdóttir og eignuð-
ust þau þrjú börn, nú í sambúð með
Antoníu Erlendsdóttur; Bragi, f.
25.5. 1947, bifreiðastj. í Reykjav.,
kvæntur Guðrúnu L. Erlendsdóttur
og eiga þau þrjú böm; Sigríður, f.
19.2. 1951, húsmóðir í Kópav., gift
Sverri Jónssyni og eiga þau eina
dóttur; Þorgrímur, f. 25.2.1953, sím-
virki og loftskeytamaður í Kópav.,
kvæntur Jennýju Guðbjörgu Sigur-
bjömsdóttur og eiga þau tvo syni;
Kristín, f. 4.10.1958, húsmóðir í Nor-
egi, gift Sigurði Þ. Guðmundssyni
og eiga þau þrjú böm; Friðrik, f.
22.3. 1960, garðyrkjufulltrúi í
Kópav.; og Ólafur, f. 6.12. 1962, vist-
maður á Tjaldanesheimilinu.
Foreldrar Halldórs eru Baldur
Kristjónsson, f. 29.12. 1909, fyrrum
bústjóri í Útey og síðar íþróttakenn-
ari, búsettur í Kópavogi, og Vilborg
Halldórsdóttir, f. 13.5. 1920, húsmóð-
ir.
Ætt
Baldur var bróðir Bergsteins, foð-
ur Harðar, barnalæknis í Reykja-
vík. Annar bróðir Baldurs var
Kristjón, faðir Braga fornbókasala.
Baldur var sonur Kristjóns, b. í Út-
ey í Laugardal, bróður Guðrúnar,
ömmu Matthíasar Sigurðssonar í
Europris. Kristjón var sonur Ás-
mundar, b. á Apavatni efra í Laug-
Fimmtugur
Þröstur Guðbjartsson
leikari og leikstjóri
Þröstur Guðbjartsson, leikari og
leikstjóri, Barónstig 63, Reykjavík,
er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Þröstur fæddist í Bolungarvík og
ólst þar upp til tíu ára aldurs en síð-
an í Reykjavík. Hann stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík 1969-73,
lærði brauðgerð hjá Angantý Vil-
hjálmssyni í Njarðvíkurbakaríi og
lauk sveinsprófi í þeirri grein. Þá
stundaði hanri nám í Leiklistar-
skóla SÁL 1974-75 og í Leiklistar-
skóla íslands 1975-78.
Frá þvi Þröstur útskrifaðist frá
Leiklistarskóla íslands hefur hann
stundað leiklist sem aðalstarf. Hann
hefur m.a. leikið hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu, Leik-
félagi Akureyrar; Alþýðuleikhúsinu
og á vegum fjölda sjálfstætt starf-
andi leikhópa.
Þröstur hefur jafnframt verið
leiðbeinandi og leikstjóri á vegum
áhugaleikfélaga víða um land. Hann
hefur leikið í nokkrum íslenskum
kvikmyndum, í Sjónvarpinu, út-
varpi og í stuttmyndum. Þá starfar
Þröstur sem húsamálari á sumrin
og er hann á frí frá leikhúsunum.
Fjölskylda
Hálfbróðir Þrastar, sammæðra, er
Öm Guðjónsson, f. 24.9. 1945, mál-
arameistari í Hveragerði.
Alsystkini Þrastar: Vilhelm Val-
geir, f. 8.8. 1948, málarameistari og
hópferðabílstjóri á Hvammstanga;
Ólöf María, f. 18.1.1950, starfsmaður
íslandspósts í Reykjavík; Svanur, f.
27.3. 1951, stýrimaður i Reykjavík;
Guðrún, f. 24.5. 1955, húsmóðir i
Sandgerði; Unnur, f. 7.9. 1956,
kirkjuvörður í Hafnarfirði; Kristín
Þóra, f. 28.11. 1960, grafiskur hönn-
uður í Reykjavík; Birna, f. 6.4. 1962,
húsmóðir í Bolungarvík.
Hálfsystur Þrastar, samfeðra:
Bára, f. 4.1. 1962, húsmóðir á
Hvammstanga; Sif Ásthildur, f. 21.5.
1972, nemi við HÍ.
Foreldrar Þrastar eru Guðbjartur
Þórir Oddsson, f. 20.3. 1925, málari,
búsettur á Hvammstanga, og Krist-
ín Ólafsdóttir, f. 17.10.1920, húsmóð-
ir í Reykjavík.
Þröstur verður í útlöndum.
MIÐVTKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
DV
ardal Eiríkssonar, b. á Gjábakka i
Þingvallasveit, bróður Jóns, langafa
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.
Eirikur var sonur Gríms, b. á Nesja-
völlum í Grafningi Þorleifssonar,
ættföður Nesjavallaættar Guð-
mundssonar, b. í Norðurkoti í
Grímsnesi, Brandssonar, b. á Krossi
í Ölfusi, Eysteinssonar, bróður
Jóns, föður Guðna í Reykjakoti, ætt-
föður Reykjakotsættar, langafa Hall-
dórs, afa Halldórs Laxness. Guðni
var einnig langafi Guðna, langa-
langafa Vigdisar Finnbogadóttur.
Móðir Ásmundar var Guðrún Ás-
mundsdóttir, b. á Vallá á Kjalamesi
Þórhallssonar, og Helgu Alexíus-
dóttur. Móðir Helgu var Helga Jóns-
dóttir, ættföður Fremra-Hálsættar
Árnasonar.
Móðir Baldurs var Sigríður ljós-
móðir, systir Vigdísar, ömmu Þor-
kels Bjarnasonar hrossaræktar-
ráðunautar. Sigríður var dóttir
Bergsteins, b. á Torfastöðum í
Fljótshlíð Vigfússonar, b. á Gmnd í
Skorradal Gunnarssonar. Móðir
Vigfúsar var Kristín Jónsdóttir, b. á
Vindási á Landi Bjamasonar, ætt-
föður Víkingslækjarættar Halldórs-
sonar. Móðir Bergsteins var Vigdís
Auðunsdóttir, pr. á Stóruvöllum
Jónssonar, langafa Jóns, foður Auð-
ar Auðuns og bróður Amórs,
langafa Hannibals Valdimarssonar,
föður Jóns Baldvins sendiherra.
Móðir Sigríðar var Kristín Þor-
steinsdóttir, b. á Norður-Hvoli í
Mýrdal Magnússonar. Móðir Þor-
steins var Sigríður Þorsteinsdóttir,
systir Bjama amtmanns, föður
Steingríms Thorsteinssonar skálds.
Móðir Sigríðar var Kristín Hjartar-
dóttir, b. á Norður-Hvoli Loftssonar,
bróður Ólafs, langafa Ingigerðar,
langömmu Páls, föður Þorsteins
sendiherra.
Vilborg er dóttir Halldórs, sjó-
manns í Hafnarfirði Teitssonar, og
Ingibjargar Jónsdóttur, b. á Vindási
á Rangárvöllum Jónssonar, b. í
Húnakoti i Þykkvabæ Jónssonar, b.
í Stööulkoti Guðnasonar. Móðir
Jóns í Vindási er Guðríður Þórðar-
dóttir, b. í Miðkoti Jónssonar. Móð-
ir Ingibjargar var Þorbjörg Einars-
dóttir, b. í Norðurgarði í Hvolhreppi
Einarssonar, b. á Minna-Moshvoli
Einarssonar. Móðir Þorbjargar var
Þorbjörg Sigurðardóttir, b. í Skarðs-
hlíð undir Eyjafjöllum Jónssonar.
Ragnar Pálsson
fyrrv. sjómaður og kranamaður á Akureyri
Ragnar Pálsson, Skarðshlíð 40f,
Akureyri varð sjötugur í gær.
Starfsferill
Ragnar fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp fram á unglingsárin.
Þá flutti hann og fjölskyldan til
Akureyrar og hefur hann verið
þar búsettur allar götur síðan.
Ragnar lauk Gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar vorið
1946.
Ragnar hefur stundað margvís-
leg störf gegnum tíðina. Hann var
togarasjómaður á Akureyrartog-
urunum um langt árabil, var síð-
an verkstjóri hjá Möl og Sandi í
mörg ár. Hann starfaði sem
kranamaður við löndun úr togur-
um Útgerðarfélags Akureyringa í
áratug. Síðar vann hann hjá BSO
og nú síðustu árin hjá Vörubif-
reiðastöðinni Stefni.
Ragnar hefur alla tíð verið mik-
ill tónlistarunnandi. Auk þess er
hann góður skákmaður. Skák-
þrautir hafa verið honum hug-
leiknar í áratugi enda hefur hann
samið margar slíkar.
Skáldskapur Ragnars á skák-
borðinu hefur borist víða enda
hafa margar af hans þrautum
birst í víðlesnum blöðum og bók-
um, innlendum sem erlendum.
Fjölskylda
Eiginkona Ragnars er Katrin
Ingvarsdóttir f. 8.12. 1932, verslun-
armaður. Hún er dóttir Ingvars
Ólafssonar frá Brekku, og Viglín-
ar Sigurðardóttur.
Böm Ragnars og Katrínar eru
Jóhanna f. 26.6. 1952, búsett í Dan-
mörku en eiginmaður hennar er
Kristján Matthiasson; Ingvar f.
17.7. 1954, d. 1971; Albert, f. 11.9.
1958, kerfisfræðingur 1 Mosfells-
bæ en eiginkona hans er Bryndís
Viðarsdóttir; Níels, f. 11.1. 1964,
kerfisfræðingur i Reykjavík en
eiginkona hans er Þórhildur Vil-
hjálmsdóttir; Ragnar f. 26.1. 1965,
d. 1980.
Foreldrar Ragnars eru Páll Ein-
arsson og Jóhanna Nielsdóttir.
Ragnar verður í hjólreiðatúr á
afmælisdaginn.
Ekta fiskur ehf
J S.4á*>10l6J
Útvatnaður saltfiskur,
án beina, til ao sjóða.
Sérútvatnaður saltfiskur,
án beina, til að stetkja.
Saltfisksteikur (Lomos)
fyrir veitingabús.