Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2002, Blaðsíða 1
Siónvarpsmiðstöðin
RAFTÆKJflVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 SOBO YTT'TfTIWT*
Þetta er
svo rosalega
gaman
S.B.D.
Sætúni 4 • Sími 562-6066
Smur- bón og dekkjaþjónustan
VETRARDEKK
ZtMDGESTOnE
KVENNALANDSLIÐIÐ I FIMLEIKUM
KEPPIR í STOKKHÓLMI. BLS. 29
HARÐKORNADEKK
DAGBLAÐIÐ VISIR
255. TBL. - 92. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Tryggingastofnun ríkisins og Tannlæknafélag íslands:
Samningur á lokastigi
- eftir fjögurra ára samningsleysi - breytingar á endurgreiðslum og samskiptareglum
Gerð samnings milli Tann-
læknafélags íslands og Trygginga-
stofnunar er nú á lokastigi. Sam-
kvæmt upplýsingum DV standa
jafnvel vonir til þess að hann
verði undirritaður af samningsað-
ilum í kvöld. Síðasti samningur
milli stofnunarinnar og tann-
lækna rann út fyrir um það bil
fjórum árum. Tilraunir til að ná
samkomulagi hafa ekki skilað ár-
angri fyrr en á síðustu mánuðum
að skriður komst á viðræðumar.
Samninganefndir hafa svo hist
daglega að undanförnu.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
er þessi samningur sem er í burðar-
liðnum gjörólikur þeim sem áður
var í gildi milli aðila. Til að mynda
kveður hann á um frjálsa verðlagn-
ingu tannlækna. Þá er tryggð ein
skoðun barna. Loks má nefna
ákvæði um samskiptareglur, auk
fjölmargra annarra atriða.
Þórarinn Jónsson, formaður
Tannlæknafélags íslands, kvaðst i
morgun ekkert vilja segja um
innihald samningsins fyrr en
hann hefði verið undirritaður.
Hann sagði að samninganefndir
aðila hefðu setið á tíðum samn-
ingafundum að undanförnu. Ár-
angur af þeim virtist nú vera að
koma í ljós.
„Þessi samningur mun engu
breyta fyrir tannlækna," sagði
Þórarinn. „En vonandi er þetta
bót fyrir sjúklingana varðandi
endurgreiðslu. Þá bætir þessi
samningur vonandi samskipti á
mili tannlækna, Tryggingastofh-
unart og heilbrigðisyflrvalda al-
mennt. Við erum að vinna að því
að reyna að laga þau samskipti,
þau voru ekki nógu góð. Ég er að
vona að þessi samningur komi
þessu öllu í fastari skorður."
Þórarinn sagði enn fremur að
tannlæknar hefðu horft upp á það
að endurgreiðsla hefði staðið í
stað miðað við verðlagið. „Það
hefur ekki verið gott fyrir okkar
skjólstæðinga,“ sagði hann. „En
tilgangurinn er að laga það með
þessu.“
Ekki náðist f Karl Steinar
‘Guðnason, forstjóra Trygginga-
stofnunar, vegna málsins í morg-
un.
-JSS
ftre$tone^l
Bush með
öll trompin
á hendinni
Repúblikanar unnu í gær af-
gerandi sigur í kosningum til
bandaríska þingsins og hafa nú
tryggan meirihluta í báðum
deildum. Sigurinn er sögulegur
og lyftir Bush Bandaríkjaforseta
á stall með þeim Franklin Roose-
velt og Bill Clinton, sem fyrir
voru einu forsetar Bandaríkj-
anna á síðustu öld sem ekki
töpuðu fylgi í kosningum á miðju
kjörtímabili, en það gerðist hjá
Roosevelt árið 1934 og Clinton
árið 1998.
Fyrir kosningarnar höfðu
repúblikanar sex sæta meiri-
hluta í fulltrúadeildinni sem þeir
halda og vel það, en í öldunga-
deildinni stefndi í jafna stöðu
sem þýðir að tvöfalt vægi Dick
Cheneys varaforseta í deildinni
tryggir þeim meirihluta.
Úrslitin koma sér vel fyrir
Bush forseta sem nú hefur öll
valdatrompin á hendinni, en fram
að þessu hafa fulltrúar demókrata
í öldungadeildinni flækst fyrir og
gert honum lifið leitt.
Trent Lott, leiðtogi nýs meiri-
hluta repúblikana í öldungadeild-
inni, sagði í morgun að nú yrði
tekið til hendinni við að hreinsa
upp þau mál sem strandað hefðu
í meðfórum þingsins og þar á
meðal mál er varða öryggismála-
frumvarp forsetans sem dagaöi
uppi í þinginu vegna andstöðu
demókrata.
IN'NWl
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 10 í DAG
VALENTINA KAI
TÓNLISTARKENNARI:
Frá Rússlandi
til Ólafsvíkur
TEITUR ER HyíTTUR VIÐ
AÐ Hi€TTA:
Bush og aftur Bush
Gærdagurinn var sannkallaður Bush-
dagur í Bandaríkjunum. George W. Bush
Bandaríkjaforseti og Repúblikajpflokkur I
hans juku fylgi sitt í kosninguji til þings*
ins og hafa nú meirihluta í báÉum deild-
um þess. Þá náöi yngri bróöir forseíans,
Jeb Bush, endurkjöri sem ríkisstjóri í
Flórída. Jeb haföi því ríka ástæöu til aö
Flórída. Jeb haföi því ríka ástæöu til aö
fagna eins og hann gerirJÍ þessari mynd.