Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Prófkjör Samfylkingarinnar um helgina:
Sama fylkingin
í Helgarblaðsviðtali við DV fyrir
hart nær tveimur mánuðum sagði Öss-
ur Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, meðal annars þetta:
„Við þurfum að vera með mjög öfl-
uga sveit. Mér er engin launung á því:
ég er í sögulegum leiðangri að koma
þessum flokki á fullorðinsár og það
kostar meðal annars það að við þurfum
að sýna endumýjun í þingflokknum og
það mun verða erfitt fýrir okkur. En
það er nauðsynlegt og það verður gert.“
Það sem liggur fyrir eftir prófkjör
Samfýlkingarinnar um helgina bendir
ekki til þess að formanninum verði að
ósk sinni.
Lítt breytt skipan
Ef frá er talin Sigríður Jóhannes-
dóttir í Suðurkjördæmi tókst þing-
flokknum eins og hann leggur sig að
skjóta öllum nýliðum aftur fyrir sig.
Það er kannski tii marks um styrk sitj-
andi þingmanna, að Þórunn Svein-
bjamardóttir, sem fjölmargh' höfðu
talið að ætti í vök að verjast, burstaði
hreinlega baráttuna um þriðja sætið i
Suðvesturkjördæmi með tæplega eitt
þúsund atkvæðum í fyrsta til þriðja
sæti gegn tæpum sex hundrað atkvæð-
um næsta frambjóðanda.
Þeir sem fylgja á hæla þingmönn-
unum í Reykjavík teljast heldur tæpast
nýliðar; þeir Mörður Ámason, vara-
þingmaður til átta ára, og Helgi Hjörv-
ar, fyrrverandi forseti borgarstjómar.
Ný kynslóð
Ekki verður þó litið fram hjá góðum
árangri nokkurra ungra frambjóðenda.
Katrín Júlíusdóttir, aðeins 27 ára að
aldri, náði fjórða sæti í Suðvesturkjör-
Aðrar áherslur
fá hljómgrunn
„Það er ljóst að
aðrar áherslur en
þær sem ég stend
fyrir eiga mestan
hljómgrunn í Sam-
fylkingunni. Það
virðist jafnframt
takmakaður hljóm-
grunnur um
hvemig skapa
megi ný sóknar-
færi í íslensku at-
vinnulífi og
stækka þjóðarkökuna. Umræðan og
áhugi kjósenda snýst frekar um að
verja fé en afla þess,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon, varaþingmaður.
Árangur hans í flokksvali Samfylk-
ingar á laugardag var ekki í samræmi
við markmið hans sjálfs. Hann
stefndi á annað sætið en hafnaði í því
tíunda. -sbs
Rúsínur
Heslihnetur
Fíkjur
... allt sem þaifí baksturinn!
dæmi, sem verður baráttusæti í kom-
andi þingkosningum. Ágúst Ólafur
Ágústsson er enn yngri, aðeins tuttugu
og fimm ára. Hann varö á undan
reyndum kempum og náði áttunda sæt-
inu í Reykjavík, sem líka verður bar-
áttusæti. Björgvin G. Sigurðsson náði
þriðja sætinu í Suðurkjördæmi sem
heita má nokkuð öraggt þingsæti.
Ýmis tíðindi
Össur Skarphéðinsson hlaut ekki
nema ríflega 55% stuðning I fyrsta sæt-
ið og svo virðist sem hann hafi aðeins
mátt við að tapa 190 atkvæðum - þá
hefði kosning hans í fyrsta sæti ekki
verið bindandi samkvæmt reglum próf-
kjörsins!
Mest era vonbrigðin hins vegar hjá
Jakobi Frímanni sem ste&di á 2.-3.
sæti. Hann átti að visu fjórða mesta
stuðning í 1.-2. sæti eins og sést á með-
fylgjandi töflu, en virðist hafa sett
markið of hátt.
Athygli vekur að Bryndís Hlöðvers-
dóttir er óralangt frá því að fella Jó-
hönnu Sigurðardóttur úr öðru sæti, en
hafði þó meðal annars yfirlýstan stuðn-
ing Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
Reykjavík: 1. 1.-2. 1.-3.
Össur 1989 2292 2502
Jóhanna 913 1878
Bryndís 1165 1662
Ásta R. 438 1205
Guðrún 271
Möröur 219
Helgi 113
Ágúst 106
Einar K 84
Jakob 72 552 789
Suövestur:
1. 1.-2. 1.-3.
Guömundur Árni 1094
Rannveig 558 995
Þórunn 70 551 991
Katrín 33 282 594
Ásgeir 52 227 460
Valdimar 9 35 101
borgarstjóra í farteskinu. Bryndís lét
hafa eftir sér að auglýsingar og slíkt
„skram“ hefðu greinilega ekki haft
áhrif á kjósendur. Og víst er það, að
auglýsingar virðast ekki hafa hjálpað
þeim sem sóttu að þingmönnum að ná
hetri árangri en kollegar þeirra í Suð-
1.-4. 1.-5. 1.-6. 1.-7. 1.-8.
1671
1203 1685
1551 2026
1363 1779
1343 1681 2010
528 1853
917 1067 1242 1685
1. - 4. 1. - 5. 1. - 6.
1669
1526
1525
914 1449
766 1002 1193
718
vesturkjördæmi, en þar gerðu fram-
bjóðendur samkomulag um að auglýsa
ekkert.
Skref til vinstri?
„í öðra lagi þarf ég að fá fólk sem
hefúr öðlast reynslu úr atvinnulífinu
og hefur sannað sig og skírst í öðram
eldi en bara þeim sem brennur á hin-
um pólitíska velli,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson í fyrmefhdu viðtali. Þetta
hefðu til dæmis getað verið menn á
borð við Ásgeir Friðgeirsson, Einar
Karl Haraldsson og Jakob Frímann.
Ljóst er að framgangur þeirra hefði
getað gefið flokknum „frjálslyndari"
blæ - eða miðjublæ - en flestir sitjandi
þingmanna hafa einkum getið sér orð
fyrir mjög eindregna áherslu á velferð-
armál. „Er þetta hópur sem ræður við
atvinnumálin?" spurði Samfýlkingar-
maður í viðtali við DV. „Nær hann inn
á miðjuna?"
Á móti má spyija hverju góður ár-
angur Ágústs Ólafs sæti fýrst þetta sé
raunin því að hann er hugsanlega sá
hægrisinnaðasti í hópnum. Hætt er við
að hugmyndafræðilega breytur séu of-
metnar - rétt eins og máttur auglýsing-
anna - og að hinn illskilgreinanlegi
„kjörþokki" ráði úrslitum þegar öllu er
á botninn hvolft. -ÓTG
Spáð í spilin á kosningavöku
Egill Helgason og Heimir Már Pétursson voru meöal gesta á kosningavöku
Samfylkingarinnar sem var haldin á Hótel Borg. Biöin eftir tölum var löng og
ströng aöfaranótt sunnudagsins.
Uppsafn-
ao fylgi:
Tölurnar sýna
uppsafnaö fylgi
frambjóöanda í
viökomandi
sæti.
Margrét Frímannsdóttir sigraði í flokksvali í Suðurkjördæmi:
Framboð úr heima-
bænum felldi mig
- segir Sigríður Jóhannesdóttir sem missti þingsæti sitt
Margrét Frímannsdóttir vann sig-
ur í flokksvali Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi á laugardag. Hún
hlaut 1.167 atkvæði í fýrsta sæti eða
49,53% greiddra atkvæða. Alls tóku
2.350 þátt í flokksvalinu eða 70,3% af
þeim 3.342 sem voru á kjörskrá.
„Mér líður mjög vel eftir að hafa
heyrt þessa niðurstöðu, ég er í fyrsta
sætinu með góðum mun á þann sem
er I öðra sætinu, það styrkir stöðu
mína,“ sagði Margrét Frímannsdótt-
ir við DV þegar úrslit lágu fyrir eftir
talningu i gær. Margrét sagði að
fram undan væri að setja saman
sterkan lista fyrir komandi kosning-
ar, á næstu dögum yrði farið á fúllt
við það og stefnt væri á stórsigur í
kjördæminu í vor. „Til þess eru öll
efni,“ sagði Margrét.
Lúðvík Bergvinsson úr Vestmanna-
eyjum lenti í ööra sætinu meö 1.150 at-
Kátar
Margrét Frímannsdóttir
og Elín Björg Jónsdóttir.
kvæði, hann vantaði 254 atkvæði til að
sigra Margréti.
„Mér sýnist á þessari niðurstöðu að
við Margrét séum að fá afgerandi kosn-
ingu í okkar sæti. Það sem er fram
undan er að nú snúum við bökum sam-
an og vinnum saman að því verkefni
sem er fram að kosningum við að ná
saman lista og starfa af krafti til sigurs
i kosningabaráttunni," sagði Lúðvík
Bergvinsson alþingismaður i gær-
kvöld.
Björgvin Sigurðsson varð í þriðja
sæti með 1.002 atkvæði. Jón Gunnars-
son i íjórða með 1.133 atkvæði og vant-
aði 77 upp á að ná þriðja sætinu. í
fimmta sæti varð síðan Sigríður Jó-
hannesdóttir alþingismaður.
„Ég met þessa niðurstöðu eins og
hún liggur fýrir, ég er ekki að fá traust
til að sitja áfram á þingi,“ sagði Sigríð-
ur Jóhannesdóttir við DV í gærkvöld.
„Það voru margir sem stefndu á þetta
sæti og það sem var mér ekki síst að
falli var að fá ffamboð Jóhanns Geir-
dal, héðan úr mínum heimabæ, með
stefhu á sama sæti og ég setti markmið
mitt ásagði Sigríður Jóhannesdóttir.
-NH
DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON
Dyraveröir VestQarðaganganna
Óskar Gústav Ingjaldur Ólafsson og Bjarni
Jóhannsson í björgunarsveitinni Björgu á
Suðureyri gættu gangamunnans í Súg-
anafirði meöan á æfingunni stóð.
Virkuöu „þokkalega"
Síðastliðinn laugardag voru jarð-
göngin undir Breiðadals- og Botns-
heiði lokuð í tvær klukkustundir í
kringum hádegið þegar lögregla,
björgunarsveitir og slökkvilið settu á
svið og æfðu stórslys í göngunum.
Alls munu fimmtíu manns hafa tekið
þátt í æfmgunni. Seinast þegar æfing
fór fram í göngunum kom í ljós að
fjarskiptum var mjög ábótavant. Til
dæmis virkuðu neyðarsímar oft á tíð-
um ekki sem skyldi. Að þessu sinni
gegndu símamir hlutverki sinu
„þokkalega“, að sögn nokkurra sem
tóku þátt í æfingunni. Æfingin gekk
vel í heildina, að sögn manna, þó svo
að eftir væri að setjast niður og fara
yfir hlutina í smáatriðum. Vegfarend-
ur tóku með jafhaðargeði þeim töfum
sem æfingunni fýlgdu.
Útlánin tvöfalt meiri
Árið 1998 voru
tíu þúsund félags-
legar ibúðir í
landinu, þ.e. 6.600
félagslegar eignar-
íbúðir og um 3.400
leigu- og kaup-
leiguíbúðir. Frá
stofnun íbúða-
lánasjóðs 1999, eða
á síðustu tæpum
fiórum árum, hafa um sjö þúsund fjöl-
skyldur fengið félagslega aðstoð í hús-
næðismálum. Þetta kom fram í ræðu
Páls Péturssonar félagsmálaráðherra
á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna
sem fram fór á fostudag. Páll sagði
jafhframt að um 5.800 íbúðir með við-
bótarláni hefðu verið byggðar eða
keyptar og um 1.200 leiguíbúðir fyrir
tekjulága. Frá 1. janúar 1999, eða á
tæpum fjóram árum, hafa útlán á fé-
lagslegum grunni, þ.e.a.s. viðbótarlán
og leiguibúðarlán, tvöfaldast úr 50
milljörðum í yfir 100 milljarða.
Grænaborg brann
Eyðibýlið Grænaborg á Vatnsleysu-
strönd brann til kaldra kola á laugar-
dagskvöld. Slökkvilið Brunavama
Suðurnesja var kvatt á staðinn.
Slökkvilið mat það svo að best væri
að leyfa húsinu að brenna.
Fundur um ristilkrabba
Opinn fundur um ristilkrabbamein
verður haldinn annað kvöld á vegum
Krabbameinsfélags Reykjavikur,
Styrks og Stómasamtaka íslands. Ás-
geir Theódórs læknir mun á fundin-
um ræða um ristilkrabbamein og
kynna vitundarvakningu sem nú
stendur yfir. Fundurinn verður hald-
inn í húsi Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8 og hefst klukkan 20.
Menntun forsenda framfara
Stjórn Bandalags háskólamanna
samþykkti á fostudag harðorða álykt-
un þar sem gerðar eru alvarlegar at-
hugasemdir við að æðstu ráðamenn
þjóðarinnar skuli ítrekað hafa vegið
að heiðri sérfræðinga og vísinda-
manna með niðrandi og oft á tíðum
órökstuddum ummælum um störf
þeirra. „Bandalagið minnir á að
starfsheiður vísindamanna byggir á
hlutlægri öflun gagna og túlkun á nið-
urstöðum um leið og það bendir á að
menntun er forsenda framfara í ís-
lensku atvinnulífi,“ segir m.a. á álykt-
un stjómar. -aþ/bj/VH
RDGUM Á MDRGUN
Fá&u þér miöa í síma 800 6611 e&a á hhi.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings