Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 17
16 DV MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahlió 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deiidir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. . DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Risið gegn óttanum Barátta Guðmundar Sesars Magnússonar gegn svokölluðum handrukkurum hefur vakið þjóð- arathygli. Einn hóf hann baráttu gegn óttanum sem þjakar for- eldra og forráðamenn ungmenna sem ánetjast hafa fikniefnum, varð tákmynd foreldra sem standa frammi fyrir hótunum þrjóta sem einskis svífast, beita kúgunum jafnt sem meiðingum og hika ekki við líf- látshótanir. Flórtán ára dóttir Guðmundar var farin að neyta fíkni- efna. Hann hefur nú komið henni í felur eftir líflátshótan- ir handrukkara úr fikniefnaheiminum. Þessum mönnum hefur Guðmundur sagt stríð á hendur. Hann neitar að láta óttann við þá kúga sig til afskiptaleysis. í Helgarblaði DV sagði Guðmundur þessa sögu. Þar kom fram að í kjölfar af- skipta hans af fíkniefnasölumönnunum fylgdu líflátshótan- ir í garð Guðmundar og fjölskyldu hans. Annaðhvort þeg- ir þú og skiptir þér ekki af þessu eða þú verður látinn hverfa, sagði sendiboði fikniefnaheimsins. Guðmundur lét ekki bugast og kærði til lögreglu í þeirri fullvissu að hann væri að gera rétt, kom síðan fram opinberlega og talaði um þær hótanir sem hann og fjölskyldan stóðu frammi fyrir. Þetta snýst um ótta, segir Guðmundur og bætir því við að það sé fikniefnasölum hagkvæmt að sögur gangi um hörku í þessum viðskiptum. Þótt þær séu ekki allar sann- ar sé ástæða til að taka hótanir alvarlega. Innheimtumenn- irnir spila á ótta fólks, því er hótað líkamsmeiðingum og dauða sem og börnum þess. Hræðsla foreldra og annarra sem fyrir verða er skiljanleg. Margir sjá því ekki önnur ráð en að borga innheimtuþrjótum fíkniefnasalanna það sem upp er sett. Guðmundur segir málið komið út í vit- leysu og óttast ástandið. Hér verði framin morð vegna þessa fljótlega, ef ekki glæpamennirnir þá foreldrarnir. Enginn láti drepa barnið sitt án þess að gera eitthvað í því. Ef samfélagið getur ekki verndað mig þá fer ég sjálfur út í frumskóginn, segir Guðmundur. Með aðgerðum sínum beinir Guðmundur Sesar Magnús- son umræðunni um þetta alvarlega þjóðfélagsmein á nýjar brautir. Hann er öðrum fordæmi vegna þess kjarks sem hann sýnir. Hann lætur ekki undan hótunum. Ef fleiri rísa upp og sætta sig ekki við kúgunina verður baráttan gegn ofbeldismönnunum auðveldari. í leiðurum DV hefur fólk sem orðið hefur fyrir hótunum handrukkara verið hvatt til þess að kæra til lögreglu. Það er sú leið sem er almenningi fær. Hins vegar ber að vara alvarlega við því að fólk taki lögin í eigin hendur. Það endar aðeins með ósköpum. Ábyrgð lögreglu og dómsyfirvalda er því mikil. Fólk í þess- um vanda verður að finna, og geta jafnframt treyst því, að það hafi stuðning þeirra og vernd gegn föntunum. Það er örþrifaráð föður að fela fjórtán ára dóttur fyrir misindismönnum og taka jafnframt þá áhættu að ganga fram fyrir skjöldu í baráttu gegn þeim. Faðirinn kallar því eftir stuðningi og aðgerðum. Hann bendir á að auðveldara sé að fást við fíkniefnasölumenn og fanta á þeirra vegum hér á landi en annars staðar vegna smæðar samfélagsins. Stærð eiturlyfjaheimsins sé orðum aukin og því tækifæri til að grípa í taumana. Öðrum í sömu stöðu og Guðmundur ætti að vera það hvatning til að kæra, og sætta sig hvorki við hótanir né of- beldi, að hann hefur ekki fengið frekari hótanir eftir að hann ákvað að kæra sjálfur og vekja um leið athygli á ástandi sem er ólíðandi. Hann reis gegn óttanum, ákvað að styðja barn sitt en kallar jafnframt eftir hjálp yfirvalda. Þessi faðir og aðrir í sömu stöðu eiga rétt á þeirri hjálp. Jónas Haraldsson Ringlaöir fúskarar „Því hefur verið haldið fram að þátttaka okkar í Schengen hafi kostað okkur milljarða í stofnkostnað. Þurft hafi að ráða 50-70 toll- og lögregluverði til þess að annast eftirlit og afgreiðslu þessa landamærahliðs okkar að Evrópu. “ Hurðinni á skrifstofunni var hrundið upp. í gættinni stóð maður og honum var mikið niðri fyrir. „Stjórn- málamenn okkar eru í besta falli ringlaðir fúskar- ar,“ sagði hann. Ég leit upp úr buröarþolsreikning- um og sagði rólega: „Ertu nú ekki að taka nokkuð djúpt í árinni?" „Nei,“ sagði hann. „Ég var að lesa það eftir veðurstofustjórann að útfærsla kvótakerfisins væri mesta ógæfu- framkvæmd sem dunið hefði yfir ís- lendinga á síðustu áratugum. Pró- fessor við háskólann sagði í útvarps- viðtali að milljarðar hefðu streymt út úr þjóðfélaginu skattfrjálst til út- landa undir öruggri vernd stjórn- valda. Eignatilfærslan á sér ekki hliðstæðu nema þá á tímum svarta- dauða. Og forsætisráðherra er farinn að tala um Schengen! Schengen Því hefur verið haldið fram að þátttaka okkar í Schengen hafi kost- að okkur miiljarða í stofnkostnað. Þurft hafi að ráða 50-70 toll- og lög- regluverði tii þess að annast eftirlit og afgreiðslu þessa landamærahliðs okkar að Evrópu. Rekstrarkostnaður er þannig mörg hundruð milljónir á ári og ávinningurinn er enginn, lík- lega neikvæður. Við þurfum eftir sem áður að taka vegabréfið með til útlanda. Hingaö streymir fólk eftir- litslítið frá Schengensvæðinu og við höfum misst aðstöðu til að skrá ferðamenn. Getur verið að utanríkis- þjónustan hafi þanist svo út, að hún kosti nú um 5000 milljónir króna á ári? Meira að segja Bretar töldu sig ekki hafa efni á að taka að sér svona landamæravörslu fyrir Evrópu- bandalagið." Breytt þjóöfélag Ég reyndi að sveigja samtalið i aðra átt en án árangurs. Þulan hélt áfram. „Hvað með náttúruvemdar- málin?“ sagði hann. Ég sagði að við sem munum kreppu og erfíðleika eft- irstríðsáranna vissum að afla þyrfti tekna til þess að standa undir vel- ferðinni. Við getum ekki bara sifellt talað um ast og frið. Dekurböm vel- ferðarinnar skilja ekki að peningarn- ir vaxa ekki á trjánum. En ég varð fljótlega undir í þessari umræðu. Rökin voru þau að við sem tryðum á tækniframfarir og stöðugt aukinn hagvöxt værum á viiligötum. Við byggðum upp einvítt þjóðfélag tækni og velferðar og skynsemishyggju. Maðurinn gleymdist og þjóðfélag stóriðju væri ekki það þjóðfélag sem við ættum að búa bömum okkar. Sandkom Litli og stóri Gísli Hjartarson, krati og Skutulsrit- stjóri á ísafirði til margra ára, hefur sent frá sér 5. bindi af bókinni „Hundrað og ein ný vestflrsk þjóðsaga". Þar kennir margra grasa og þar á meðal er eftirfar- andi saga: Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrum sýslumaður ísfirðinga um langa hríð, er með alira minnstu mönnum vexti eins og alþjóð mun kunnugt. Hann tók við sýslumannsembætti Selfyssinga í byijun þessa árs. Því emb- ætti hafði áður gegnt sómamaðurinn Andrés Valdimarsson sem lengi var sýslumaður Strandamanna og hvers manns hugljúfi. Andrés er gríðarstór maður, um tveir metrar á hæð, og eftir því gildvaxinn og stórskorinn allur. Skömmu fyrir síðustu jól kvaddi fréttamaðurinn Finnbogi Hermannsson á Svæðisútvarpi Vestfjarða Ólaf Helga sýslu- mann í langt og ítarlegt útvarpsviðtal í tilefni þess að hann var að yfirgefa ísafjörð og flytjast á Selfoss. Fóru þeir félagar á kostum og bar sýslumaður Vestfirðingum vel söguna og sagðist yfirgefa Ísaíjörð með söknuði. í lok viðtalsins spurði fréttamaður sýslumann hvort hann Ummæli ... og brosi gegnum tárin „Alls ekki. Ég þekki ekki þá tilfinningu." Jakob Frímann Magnússon frambjóbandi, spuróur á Stöó 2 hvort hann værí bitur í kjölfar prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavik þar sem hann hafnaói í 10. sæti. Stöðumat stallsystranna „Ef saman yrði dregið hvað upp úr stendur í niöur- stöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavik þá yrði það sennilega eitthvað á þá leið að flokkurinn og forysta hans hafi tapað og sá eini.sem geti komist ná- lægt því að bera höfuðið hátt sé Jóhanna Sigurðardótt- ir sem stóð af sér enn eina atlögu þeirra sem telja sjálfa sig nútímalega en hana steingerða. Það var Ingi- björg Sólrún Gisladóttir sem stóð á bak við framboð Bryndísar Hlööversdóttur gegn Jóhönnu. Sú atlaga þeirra mistókst herfilega og virðist stöðumat þeirra stallsystra ekki alveg í samræmi við það sem stuðn- ingsmenn þeirra gefa tíðum í skyn.“ Vefþjðöviljinn á Andriki.is sandkorn@dv.is hefði nokkuð skroppið suður á Selfoss, svona rétt til að máta nýja stólinn sinn á sýsluskrifstofunni þar. Ólafur Helgi svaraði: Ég get alveg sagt þér það, Finnbogi, ef þú lætur ekki hafa það eftir þér, að það hef ég gert. Stóllinn er ákaflega vel við vöxt. Svartfullur af sveskjugraut I Morgunblaðinu í gær var skondin frétt á baksíðu um mál manns sem endaði fyrir Hæstarétti. Héraðsdómur hafði áður sýknað manninn sem handtekinn haíði verið vegna gruns um ölvunarakstur en Hæstiréttur ómerkti þann dóm. Sagðist maðurinn ekki hafa verið ölvaður við aksturinn heldur hefði hann drukkið úr femu með áfengisblönduðum sveskjugraut eftir að lögreglan handtók hann. Einn góðkunningi Sandkoms úr hópi hagyrðinga samdi af þessu tilefni: Lítiö hann lögin braut, samt lyktaöi hann, þvœldi og hraut. Enginn vill úr því skera, enda sagöist hann vera svartfullur af sveskjugraut. -K Semur við stýrið „Annars er ég í dag að mestu hættur að setjast niður og semja lög. Ég leyfl þeim bara að koma og þau birtast til dæmis þegar ég er að keyra eða að setja i uppþvottavélina.“ Vaigeir Guöjónsson tóniistarmaöur í viötaii í Sunnudagsblaöi Morgunbiaösins Ósáttur við Orðabókina „Að safna saman öllum orðum sem löndum okkar kann um munn að líða er sjálfsagt mál. En að sulla því öllu saman er óhæfa, jafnvel þótt ómálið sé merkt með aðvörun. Slíkt safn á heima í sérstöku sorp-riti. Sorp er eitt algengasta fyrirbrigðið á heimilum manna, en engum dytti þó í hug að stilla því upp á borð með matföngum, þótt sérmerkt væri.“ - Sverrir Hermannsson alþingismaöur í grein í Morgunbiaöinu 41 MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 »V. Skoðun Fegurð náttúrunnar ætti að auðga andann og veita lífmu dýpra gildi en ekki að verða tæki nothyggjunnar til auðsöfnunar. Álver kringum landið og ál mun standa undir 60-70% af tekjum okkar af raforkusölu. Einu sinni var sagt, sterkur stáliðnaður þýðir sterkur efnahagur, nú er það aldeilis breytt. Getur álið ekki farið eins og stálið? Er áhættan rétt met- in? Síðan leit maðurinn heimspeki- lega á mig og sagði: „Ég tek undir með Markúsi Möller hagfræðingi, þegar hann sagði um þá menn sem bera ábyrgð á þessu kvótarugli: „Það stendur í helgri bók að við eigum að fyrirgefa þeim, sem vita ekki hvað þeir gjöra. En það stendur hvergi að við eigum að kjósa þá.““- Síðan vatt hann sér út og ég sat eftir með marg- ar spumingar. Ég velti fyrir mér hvort þetta hafi verið þessi marg- rómaða þjóðarsál sem birtist í dyra- gættinni hjá mér. spelli og telji að sifjaspeU sé á einhvem hátt ekki eins alvarlegur glæpur. Tíma- skekkja er ekki nægilega sterkt orð til þess að lýsa fáránleika þessara reglna. Það er mjög brýnt að 22. og 23. kafli almennra hegningarlaga, þar sem fjall- að er um kynferðis- og ofbeldisbrot, verði teknir til gagngerrar endurskoð- unar. Með þvi að skrifa þessa kafla aft- ur er hægt að leysa dómstólana okkar úr viðjum áralangs dómafordæmis sem veldur því að kynferðisglæpamenn hljóta gjaman svo væga dóma sem raun ber vitni. Eins og sagt er hér að ofan þá hlýtur það að vera markmið allra sem láta sig stjómmálin varða að stuðla að réttlát- ara og betra samfélagi. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur á undanfómum árum farið fyrir afar farsælum rikisstjómum sem hafa staðið fyrir miklum og jákvæðum breytingum á íslensku samfélagi. Ógrynni framfaramála hafa náð fram að ganga. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík þarm 22. og 23. nóvember nk. til þess að bjóða fram krafta mína til að þessi upp- bygging megi halda áfram og að frekari umbætur á íslensku samfélagi, m.a. réttarkerfmu, nái fram að ganga. Öryggi og réttlœti þau skilaboð sem löggjafmn er að senda út í samfélagið. í núgildandi hegningarlögum er heimilt að fangelsa menn í allt að sext- án ár fyrir nauðgun en lágmarksrefsing við slíku broti er eins ár fangelsi - ým- ist bundið skilorði eða ekki. Hér er því um mjög víðan refsiramma að ræða en þótt dómstólum sé heimilt að dæma brotamenn i 16 ára fangelsi þá er raun- in sú að dómamir eru ákaflega sjaldan nema lítið brot af þeim tima, jafnvel þótt um sérlega ógeðfelld brot sé að ræða. Ástæða þessa er sú að ákveðin réttarhefð hefur skapast sem gerir dóm- stólum ókleift að refsa harðar fyrir slík brot. Með því að skilgreina hámarks- og lágmarksrefsingu fyrir tiltekna tegund glæpa hefúr Alþingi möguleika á að senda skýr skilaboð til dómstóla um hvers konar glæpir séu alvarlegri en aðrir. Þannig gefa skilaboð löggjafans til dómstóla, sem gera ráð fyrir 16 ára hámarksrefsingu fyrir nauðgun, tilefni til að álykta sem svo að löggjafarsam- koman telji nauðgun vera mjög alvar- legan glæp. Því geta allir verið sam- mála. í ljósi þessa er hins vegar furðu- legt að sá sem er dæmdur fyrir ára- langa kynferðismisnotkun á bami get- ur að hámarki dæmst til 12 ára fangels- „Það er að mínu mati rangt gagnvart þolendum sifjaspells, að lögin geri sérstakan greinarmun á nauðgun og sifjaspelli, og telji að sifjaspell sé á ein- hvern hátt ekki eins al- varlegur glœpur. Tíma- skekkja er ekki nœgilega sterkt orð til þess að lýsa fáránleika þessara reglna. “ isvistar - og það sem meira er - mis- notkun á bami telst skv. lögunum minna alvarleg ef um ættingja er að ræða. Hámarksrefsing fyrir ættingja í slíku tilfelli er aðeins 10 ára fangelsis- vist. Fáránlegar reglur Það er að mínu mati rangt gagnvart þolendum sifjaspells að lögin geri sér- stakan greinarmun á nauðgun og sifja- Meö reglulegu millibili berast okkur fréttir um kynferöisafbrotamenn sem hljóta væga dóma fyrir afbrot sín. í kjölfar þessara frétta verður iöu- lega mikil umræða í sam- félaginu um hvort ekki sé kominn tími til að „gera eitthvaö" í þessum málum, enda er óréttlæt- ið gagnvart þolendum kynferðisafbrota hróp- andi. Það hlýtm- að vera markmið allra þeirra sem gefa sig að stjómmálastarfi að berjast fyrir réttlátu samfélagi - þótt skilgreiningin á réttlæti sé misjöfn eft- ir því hvaða lífs- og stjómmálaskoðanir fólk aðhyllist. Hins vegar held ég að flestir hljóti að vera sammála um að þegar það kemur að þvi að ákveða hvaða glæpir séu alvarlegir - og hverj- ir ekki eins alvarlegir - þá hljóta þeir glæpir þar sem freklega er brotið á öðr- um einstaklingi með ofbeldi að teljast meðal þeirra verstu. Víður refsirammi Þótt það sé auðvitað hlutverk dóm- stóla að ákvarða þyngd refsingar við lögbrotum, en ekki Alþingis, þá má ekki gleymast, að eitt mikilvægasta hlutverk löggjafans er að skilgreina reglur samfélagsins og gefa skilaboð um það hvers kyns hegðun sé óásættan- leg. Þegar refsingar við kynferðisbrot- um eru svo vægar sem raun ber vitni er ljóst að eitthvað er mjög bogið við Soffía Kristín Þórðardóttir í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins Hárlokkandi „Hjákátlegustu birtingarmyndir persónudýrkunarinn- ar eru síðan frœga fólkið í samtímanum, poppgoð, sjón- varps- og kvikmyndastjörnur í útlöndum eða undan- rennuútgáfa sömu hugsunar sem birtist í íslenskum glanstímaritum, Mannlífi, Séð og heyrt og því öllu saman. “ Friðrik Rafnsson bókmenntafræðingur og þýðandi .. Sem ég lauk upp svefn- drukknum augunum morgun einn nýverið og kveikti á útvarpinu á náttborðinu mínu heyrði ég stórfrétt: „í dag verð- ur haldið uppboð á ýms- um munum úr eigu Elvis- ar Presleys, en meðal þess sem selt verður á uppboðinu er lokkur úr hári goðsins. Áætiað söluverð er tíu þúsund dollarar." Tíu þúsund dollarar, það eru tæpar níu hundruð þúsund íslenskar krónur. Ég kleip mig í handlegginn, en þetta virtust ekki vera neinar leifar af draumórum næturinnar heldur ískald- ur raunveruleiki. Helgi eða hindurvitni? Merkileg sú hlutadýrkun sem felst í þvi sem kallað er relíkur, eða helgigrip- ir á íslensku. Hugmyndin að baki þeim er sú að þeir séu hluti af einhverju heilögu, æðra manninum og að með því að snerta þá eða tilbiðja komist fólk í beinna og nánara samband við almætt- ið. Þetta fyrirbæri fyrirfmnst eflaust í margskonar trúarbrögðum, en skýrasta dæmið er hin kaþólska grein kristninn- ar, og raunar sú grisk-kaþólska líka. Ég man hvað ég fylltist undarlegri tilfmningu þegar ég stóð í fyrsta sinn frammi fyrir dýrlega gullskreyttu skríni í glæsilegri gotneskri kirkju í Frakklandi eða á Ítalíu og rýndi í gegn- um lítið gler á visinn fíngur sem sagð- ur var af heilögum eitthvað. Þessi dýrkun var sem kunnugt er eit- ur í beinum Lúthers gamla á sínum tíma og honum ofbauð skiljanlega verslun og allskyns gróðabrask með meinta helgigripi sem síðan reyndust aukinheldur oft vera hreinasta prett og svik. Þrátt fyrir þetta er dýrkun á helg- um gripum (hárlokki, fmgri, líkklæð- um) enn við lýði, trúin flytur þessi fjöll milli ára og alda. Það er í sjálfu sér merkur leyndardómur. Guðlaus hlutadýrkun Maður var nefndur Vivant Denon. Hann var aðalsmaður á síðari hluta 18. aldarinnar í Frakklandi, grúskari, spek- ingur og hvers manns (en einkum þó hverrar konu) hugljúfi. Nafn hans er einkum þekkt i sögunni fyrir þrennt. í fyrsta lagi kom hann af stað griðarleg- um Egyptalandsáhuga í upphafi 19. ald- arinnar þegar hann fór með Napóleóni þangað sem „hirðljósmyndari", hann koparstakk og teiknaði upp menn og mannvirki þar í landi og gaf síðar út í mikilli bók „Egyptalandsferðin", sem varð biblía Egyptalandsáhugafólks um langt skeið. í öðru lagi fól Napóleon honum að setja saman safh til að sýna afrakstur herferðanna, en það safri varð síðan grunnurinn að því stóra og merka safni í París sem margir þekkja, Louvre, en ein álman í því safni ber nafh Denons nú. í þriðja lagi skrifaði hann stutta, frábæra ástarsögu sem nefnist Point de lendemain (Dagur ei meir, 1777) sem undanfarið hefúr komist aftur í umferð víða um heim, ekki síst eftir að höfð- ingjar eins og Milan Kundera og Phil- ippe Sollers lofuðu hann i hástert í ný- legum bókum sínum. Það forvitnilega við Denon í sam- hengi þessarar greinar um hluta- og persónudýrkun er að hann var trúlaus, en safriaði samt ýmsu forvitnilegu: haim átti lokk úr hári heimspekingsins Voltaires, tönn úr leikskáldinu Moliere og fleira sem hafði tilheyrt þeim mikil- mennum sem haim mat einna mest. Hann safiiaði semsagt ekki hefðbund- unum helgigripum, heldur gripum sem höfðu yfír sér veraldlega helgi, ef svo má segja. Augu Einsteins Til er fræg saga af nemanda þess merka eðlisfræðings, Alberts Einsteins, sem var víst svo miður sín þegar meist- arinn lést að hann lagði mikið á sig til að stinga augun úr líkinu, setti þau síð- an í formalín í krukku og hafði krukk- una uppi á á hillu hjá sér á tilraunastof- unni, þannig að meistarinn gæti haft auga (augu) með öllum þeim tilraunum sem hann var að gera... Þetta er auðvitað nokkuð öfgafullt dæmi, en á þó glettilega margt sam- merkt með margskonar dýrkun á per- sónum, til dæmis persónum lista- manna. Áhangendur Elvisar geta farið til Graceland, hægt er að skoða safn um John Lennon í Tókýó og þau eru ófá rit- höfunda- og skáldahúsin sem fólk heim- sækir víða um heim, oft án þess að hafa nokkum tímann lesið stafki’ók eftir viðkomandi höfund. Enda er auðvitað mesti munur að þurfa ekki að lesa allt torfið sem viðkomandi skrifaði, láta sér bara nægja að skoða pípu, gleraugu, penna, göngustaf og hús... Hjákátlegustu birtingamiyndir per- sónudýrkunarinnar eru síðan fræga fólkið í samtímanum, poppgoð, sjón- varps- og kvikmyndastjörnur í útlönd- um eða undanrennuútgáfa sömu hugs- unar sem birtist í íslenskum glanstíma- ritum, Mannlífi, Séð og heyrt og því öllu saman. Hættulegast er þó þegar þessi sami þankagangur, andi hárlokksins, hár- lokkandinn, færist yfir á stjómmálin, þegar dýrkun kemur í stað hugsunar, tilbeiðsla í stað rökhyggju, máttlaus að- dáun í stað uppbyggilegrar gagnrýni, einræði í stað lýðræðis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.