Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 18
42_____ Ferðir MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 DV Sumarauki á Flórída Heitur sjór Eitt mesta aðdráttarafliö við Flórída er heitur sjórínn þar sem hægt er að stunda sund sem ogýmsar íþróttagreinar. Búdapest Heimsferðir bjóða einstakt tæki- færi til að heimsækja Búdapest á hreint frábærum kjörum, en vegna mikillar eftirspurnar var ferð bætt við. Flogið er frá Kefla- vík kl. 7 á fóstudagmorgun 22. nóv- ember og til baka sunnudaginn 24. nóvember kl. 18. Þessi fallegi stað- > ur hefur heiilað margan ferða- manninn og margar glæsilegar byggingar prýða borgina. Þar bjóðast ótal tækifæri til upplyft- ingar og skemmtunar. Nánari upplýsingar á www.heimsferdir.is. A&ventuferð til Þýskalands Terranova-Sól býður upp á aö- ventuferð tfl Þýskalands 1.-5. des- ember. Verða frægustu jólamark- aðirnir í Rothenburg og Numberg heimsóttir og farið í skoðunarferð um vínsvæðið í Franken þar sem vínbóndi verður heimsóttur. Verð er 61.400 krónur á mann m.v. gist- ingu í tvíbýli. Innifalið er flug, gisting, morgun- og kvöldverður alla daga, aUur akstur, skattar og íslensk fararstjóm. Flogið er tU Frankfurt og gist í 4 nætur í Wurz- burg, Jón Ámi harmonikkuleikari mun sjá um fjörið. Fararstjóri er Hólmfríður (Hófý) Bjamadóttir. Nánari upplýsingar á www.terra- nova.is. A&fentuferð til Dublin Úrval-útsýn býður upp á að- ventufgerð tU Dublin 6.-8. desem- ber. Fararstjórar era SvanhUdur Davíðsdóttir, Stefán Á. Guð- —- mundsson og Kjartan L. Pálsson. Dublin hefur lengi verið meðal vinsælústu áfangastaöa íslendinga á haustin og víst aö margir hafa augastað á ferð þangað á aðvent- unni. Nánari upplýsingar er að finna á www.urvalutsyn.is. Netsmellir Á vef Flugleiða á slóðinni www.icelandair.is má finna NetsmeUi, hagstæð ferðatUboð þar sem bóka verður með tUteknum fyrirvara. Þannig má komast tU Amsterdam fyrir 24.560 krónur ef bókað er með 21 dags fyrirvara. FlugvaUarskattar era innifaldir. Lesendur ættu að heimsækja Flug- ^ leiðavefinn og kynna sér tUboðin og skilmála nánar. -hlh Flugleiðir fljúga reglulega yfir vetrarmánuðina til Flórída, nán- ar til tekið til Orlando sem er nokkurn veginn miðsvæðis á Flórída-skaganum. Fyrir nokkrum árum flugu Flugleiðir einnig til Fort Lauderdale en það er ekki gert lengur. Frá Orlando má segja að leiðir liggi til allra átta en íslendingar sem fara til Flórída og ferðast frá Orlando fara þó aðallega suður á bóginn, til Sarasota, Fort Myers, Miami eða Fort Lauderdale, sem verður viðkomustaður okkar í þetta sinn. Það er mikill munur á Or- lando og Fort Lauderdale. Or- lando er eins og flestir vita mik- il fjölskylduborg, þegar ferða- bransinn er hafðir í huga. Þar er Disneyworld, Universal-svæðið og margt fleira sem þjónar þörf- um barna og allrar fjölskyldunn- ar. Fort Lauderdale er meðal elstu borga í Flórída og því reist á gömlum grunni og verður ferða- langurinn, sem kemur kannski frá gömlu hluta Evrópu, fljótt var við að þarna er ýmislegt sem minnir á evrópska menningu sem ekki er að finna annars stað- ar í Flórída. Strandlengja og snekkjur Fort Lauderdale er við strönd. Ef tekið er svokallað Stóra Fort Lauderdale-svæðið er strandlegj- an um fjörutíu kílómetrar. Eins og við er að búast eru hótel nán- ast meðfram allri ströndinni. Það sem Evrópubúinn rekur fyrst augun í hvað varðar strandlengjuna er hversu breið ströndin er. Þarna hefur verið passað upp á að engin byggð sé það nálægt sjónum að ekki sé rúmgott pláss fyrir þá sem vilja spóka sig á ströndinni. Þegar undirritaður var í Fort Lauder- dale í októberlok var um hádeg- isbil 30 stiga hiti, sjórinn heitur og gola við ströndina, sem eru ákjósanlegar aðstæður fyrir þá sem vilja heitan sumarauka. Fyrir þá sem vilja gera annað við tíma sinn en að liggja í sól- baði og arka eftir hvítum sandi er Fort Lauderdale miðstöð skemmtiferðaskipa sem fara dag- lega í mislangar ferðir um Karí- bahafið. Þá hefur Fort Lauder- dale þá sérstöðu að borgin er öll í síkjum sem notuð eru til báts- ferða. í Fort Lauderdale er hægt að taka svokallaða vatnsleigu- bíla út um alla borg. Þarna er boðið upp á ferðir um síkin og er virkilega gaman að sigla um „göturnar“ og heyra lýsingu leið- sögumanns á borginni, skoða íburðarmiklar villur sem gera það að verkum að viflur á ís- landi eru eins og kofar í saman- burði við þær og heyra leiðsögu- manninn nefna nöfn þeirra sem eiga þær. Þessar villur eru yfir- leitt aðeins í notkun þrjá til fjóra mánuði árins, frá nóvember til febrúar. Veitingastaöir Það fylgir sólarferðum að fara út að borða. Það má segja að þeg- ar á heildina er litið sé veitinga- húsamenning i Fort Lauderdale eins amerisk og í öðrum borgum á Flórídaskaganum. Borgin hef- ur þó eina sérstöðu sem er sjáv- arréttir. Þarna er mikil hefö fyr- ir sjávarréttum og yfirleitt eru bestu veitingastaðirnar sjávar- réttastaðir. í október var mér tjáð að væri tími krabbans og var áhersla lögð á slíka rétti sem þeir vita sem prufað hafa að er með nokkrum sérstökum hætti. Það er nánast sett á viðskipta- vininn svunta og auk venjulegra hnífapara fær hann tangir. Helsta gata Fort Lauderdale heit- ir Las Olas. Þar eru veitingastað- ir af öllum gerðum og stærðum og þeir sem vilja kynnast nætur- lífinu í Fort Lauderdale geta ark- að eftir götunni og fundið skemmtun við hæfi. -HK Villibráðarkvöld á Klaustri: Allt frá fiski upp í dádýr Hótel Klrkjubæjarklaustur. veturinn og það er auðvitað viss höf- uðverkur. Þetta er byggt sem heilsárs- hótel en satt að segja verðum við með þjónustuna í lágmarki í desem- ber og janúar en opnum fyrir hópa, bæði til fundahalda og gistingar." Hann segir Kirkjubæjar- klaustur rómað ur. Kemur sama fólkið til hans helgi eftir helgi? „Nei, þetta byggist mest á utanaðkomandi fólki og það kem- ur alls staðar að, meðal annars úr Reykjavík og austan af landi. Þetta er vinsælt af starfsmannahópum og þeir gista þá á staðnum," segir hann. Haraldur segir Hótel Kirkjubæjar- klaustur rúma yfir hundrað manns í 57 herbergjum með sérbaði, sjónvarpi og síma og á hótelinu séu líka litlir salir, auk aðalmatsalarins. „Smærri salirnir henta vel fyrir fundi og einka- samkvæmi," segir hann. En hvemig skyldi nýtingin vera? „Hún er mjög góð yfir sumarið en eins og víðar á landsbyggðinni dregur úr aðsókn yfir fyrir milt veðurfar, fegurð og fjöl- breytta náttúru allt um kring. „Hér er mikið úrval af skemmtilegum gönguleiðum, bæði lengri og skemmri. Svo þykir fólki gott að slappa af hér og hafa það notalegt," segir hann að lokum. -Gun. Göngulelólrnar eru allt í krlng. „Við höfum verið með villibráð- arkvöld tvær undanfarnar helgar og þau hafa notið slíkra vinsælda að við þurfum að bæta við,“ segir Har- aldur Þorri Grétarsson, hótelstjóri á Kirkjubæjarklaustri. Spurður hvað hann bjóði upp á til matar segir hann það vera allt sem næst í og flokkast undir villibráð. „Þetta er 20-30 rétta hlaðborð og þar er allt frá fiski upp í dádýr,“ segir hann og bætir við að svo sé ball á eftir. En nú er Klaustur ekki ýkja stór stað- Villibráóln er vlnsæl. __ Feröavefur vikunnar < www.earthcam.com t» * fi * o EarthCam HSsSSSEj tiPrTrTTTTW ur* '. KrtT?T|yw ' ■un.Mi.a Sptc* & Scfrnce Cvnt SBgft-ftifamiEgBÆscn If^5sCjra iiÍRi. A£JJ. tifcili I ComruttrCam? ! *■-*■»**. «&***#. *«. ! 5(jyc^>ofi Cmn I Ssam. iteawicusaksi. 4 j Mtito Ctm ! Ntwt C«m» w»»m«r C»mt 'ST] Sct^sCftP* «»*. h*«w. aw* uanak. rcen. kwww &m\r* Þjóðskáldið talaði um aö sitja kyrr á sama stað en samt að vera ferðast. Þessi orð koma upp í hugann þegar vefsvæðið www.eart- hcam.com er heimsótt. Hér er um að ræða vefsíður sem tengjast myndavélum sem era hér og þar á jarðkringl- unni, varpa lifandi myndum eða kyrrmyndum með mis- mikilli uppfærslutíðni, t.d. á 15 sekúndna fresti. Með því að heimsækja þetta vefsvæði má fá svipmyndir frá borgum og bæjum um allan heim, t.d. helstu stórbogum heims. Þannig geta menn sannreynt hvemig veðrið er á hveijum stað. Þá má ekki gleyma um- ferðinni hér og þar, strand- svæðum, fjallasvæðum og sléttum Afríku, svo eitthvað sé nefnt. Þá eru ótaldir skemmtistaöir, ritstjómar- skrifstofur fjölmiöla, trúar- legir staðir og staðir sem eiga heima í furðuflokknum. >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.