Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 24
48
______________________________________________________________MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
Tilvera DV
Steven Spielberg
Leikstjórin vinsæli ætiar aö heim-
sækja Kúbu á næstu dögum og
spjalla viö þarlenda um bíómyndir.
Spielberg sýnir
myndir á Kúbu
Bandarlski leikstjórinn Steven
Spielberg verður í Havana á Kúbu á
næstu dögum vegna sérstakrar hátíð-
ar þar sem kvikmyndir hans verða
sýndar. Sjálfur verður Spielberg við-
staddur frumsýningu nýjustu mynd-
arinnar, Minority Report.
Á meðan á dvölinni stendur mun
hann hitta kúbverska starfsbræður
sína og einnig ræða við nemendur í
alþjóðlegum kvikmyndaskóla sem kól-
umbíski rithöfundurinn Gabriel
Garcia Marquez stofhaði.
Spielberg hefur aldrei áður komið
til Kúbu og fékk sérstakt leyfi frá rík-
isstjóm Bush forseta til fararinnar.
„Steven hefur ávallt sagt að kvik-
myndin sé alþjóðlegur listrænn miðill
sem nái til allra, yfir landamæri og
milli menningarheima," sagði tals-
maður leikstjórans í yfirlýsingu.
„Hann er mjög spenntur fyrir að hitta
kvikmyndagerðarmenn og kúbversk-
an almenning.“
Höfum engu gleymt
- segja sportlega vaxnir íþróttaboltar á Hvammstanga
DVWYND JÖHANN ÖRN ARNARSON
Kormáksmenn
Hér eru nokkrir íþróttamenn á Hvammstanga, Kor-
máksmenn, ungir og aöeins eidri, menn sem hafa
engu gleymt. íþróttahúsiö nýja er stór plús fyrir
byggöina, á því leikur enginn vafi.
„Við höfum engu gleymt," sögðu
þungavigtarmenn iþróttanna á
Hvammstanga þegar DV hitti þá að
máli í nýju íþróttahöllinni þeirra. Sú
bygging olli nokkru fjaðrafoki áður en
farið var að reisa hana í fyrra - en eft-
ir að mannvirkið er komið upp og vel
nýtt af heimamönnum hafa gagnrýn-
israddir hljóðnað. íþróttahús og sund-
laugar eru þess eðlis að engum dettur
i hug að amast út í þau mannvirki.
Enda varla vafi á að hér er um heiisu-
bót að ræða fyrir alla íbúa þorpsins.
Kristján Björnsson annast um nýja
íþróttahúsið. „Þetta lofar mjög góðu
og greinilegt að þörfin fyrir húsið var
mikil,“ sagði Kristinn. Hann segir að
í húsinu fari fram skólaleikfimi fyrir
hádegi, íþróttafélagið Kormákur var
með iþróttanámskeið í haust. í húsinu
er spilaður körfubolti og fótbolti og al-
menningur nýtir húsið fyrir bad-
minton, blak og fleiri innanhúss-
íþróttir. Konur í þorpinu hafa komið
sér upp aerobikleikfimi.
Nýja íþróttahúsið fær líka gesti - í
haust var unglingalandsliðið í
körfuknattleik á ferðinni og var með
æfingar í húsinu.
-JBP/JÖA
Hljómplötur
Ýmsir - Benedikt búálfur ★★★
Söngleikjasagan blandast nútímanum
Geisladiskurinn Benedikt búálfur
geymir lög úr samnefhdu leikriti með
stuttum frásögnum til að ungir hlust-
endur nái áttum hvað söguþráð varðar
eða geti jafnvel rifjað upp leikritið ef svo
vill. Höfundur tónlistar er Þorvaldur
Bjami Þorvaldsson og textahöfundur
Andrea Gylfadóttir. Eftir að leikendur
hafa sungið fimmtán lög eru þau spiluð
án söngs svo að allir (sem nenna) geta
sungið með. Gott mál að hvetja unga
hlustendur til að spreyta sig.
Diskurinn hefst á hressilegu kynn-
ingarlagi Benedikts, Komdu inn i álf-
anna heim, og fljótlega fylgir eitt besta
lag disksins, Nú er illt í efni. Því miður
er það líka stysta lagið. Tóti tannálfur er
fremur hvimleitt lag í reggae-takti og
textinn i slappara lagi. Litriki hellirinn
er lagið þar á eftir, alveg prýðilegt og
kannski svona dæmigert söngleikjalag.
Sama má segja um Jósafat mannahrelli
sem er mjög leikrænt og sver sig í ætt
við kunnuglega söngleikjahefð. Sveinn
Þór Geirsson fer alveg á kostum sem
Jósafat. Þvílík kvöl er ágætt með soldið
geggjuðu saxófónsólói.
Álfheimasöngurinn og flestöii lögin
sem á eftir fara sýna ótvíræða hæfileika
Þorvaldar til að semja leikhústónlist.
Það er mátulega mikið leitað til söng-
leikjasögunnar eftir hugblæ og siðan
blandað nútímalegri hugmyndum í ein-
hverjum tilvikum. Laglinur vel ofnar og
margar hverjar fallegar. Útsetningar við
hæfi. Þar sem undirritaður hlýddi á sín-
um tíma á Ávaxtakörfuna er ljóst að
músíklegur samanburður er þessum
diski mjög í hag. Lagið Góða ferð fellur
þó í þá gryfju að hljóma eins og hundrað
önnur. Ef ég væri hugaður er með miili-
kafla sem er óþægilega líkur gamla lag-
inu Æ, ó, aumingja ég. Hann kemur nú
bara fyrir einu sinni og að öðru leyti er
lagið skemmtilegt. Textar Andreu Gylfa-
dóttur eru á einfóldu máli, hreinir og
beinir og eflaust þægilegir til söngs.
Stundum er farið á svig við ströngustu
bragfræðireglur. Stuðlar eru notaðir í
fleiri tilvikum en ekki og höfuðstafir af
og til, þó oftar en ekki. Þetta er svo sem
í lagi en skemmtilegra hefði verið að
fara alla leið og hafa allt þetta kórrétt.
Leikaramir úr leikritinu (geri ég ráð
fyrir) syngja prýðilega. Hinrik Ólafsson
hljómar eins og Egill Ólafsson í
Stríðslaginu. Flott. Stundum veit maður
vart hvaða persóna hefur upp raust sína
hverju sinni þar sem maður þekkir ekki
leikritið. Hver er Sölvar súri? Hver
syngur það hlutverk? Hann er allavega
ekki talinn upp með persónum og leik-
endum. Björgvin Franz Gíslason er í að-
alhlutverkinu og sýnir og sannar að
hann á létt með söng. Lára Sveinsdóttir
sem leikur Dídí hefur ágæta, bjarta
rödd. Maður nennir varla að minnast á
hina miklu sönghæfileika Selmu
Bjömsdóttur og Jóhanns Sigurðarsonar.
Hljómsveitin er fín og í heild er þetta
hinn ágætasti diskur.
Ingvi Þór Kormáksson
^ÓVAOAFAHANDBÓK dv
Jólagjafahandbók DV hefur verið
ómissandi við undirbúning jólanna
og val jólagjafa í yfir 20 ár.
) ólagj afahandbók
Ef þú, auglýsandi góður, vilt ná til
þíns markhóps þá er þetta miðillinn
þínn. Þetta er stórt og efnismikið
blað þar sem iögð er áhersla á
skemmtilega umfjöllun um jólin og
undirbúning þeirra.
Við viljum minna auglýsendur á
að tekið er við pöntunum til
22. nóvember.
Með jólakveðju.
Auglýsingadeild DV.
Sími 550 5000.