Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Qupperneq 24
48 ______________________________________________________________MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 Tilvera DV Steven Spielberg Leikstjórin vinsæli ætiar aö heim- sækja Kúbu á næstu dögum og spjalla viö þarlenda um bíómyndir. Spielberg sýnir myndir á Kúbu Bandarlski leikstjórinn Steven Spielberg verður í Havana á Kúbu á næstu dögum vegna sérstakrar hátíð- ar þar sem kvikmyndir hans verða sýndar. Sjálfur verður Spielberg við- staddur frumsýningu nýjustu mynd- arinnar, Minority Report. Á meðan á dvölinni stendur mun hann hitta kúbverska starfsbræður sína og einnig ræða við nemendur í alþjóðlegum kvikmyndaskóla sem kól- umbíski rithöfundurinn Gabriel Garcia Marquez stofhaði. Spielberg hefur aldrei áður komið til Kúbu og fékk sérstakt leyfi frá rík- isstjóm Bush forseta til fararinnar. „Steven hefur ávallt sagt að kvik- myndin sé alþjóðlegur listrænn miðill sem nái til allra, yfir landamæri og milli menningarheima," sagði tals- maður leikstjórans í yfirlýsingu. „Hann er mjög spenntur fyrir að hitta kvikmyndagerðarmenn og kúbversk- an almenning.“ Höfum engu gleymt - segja sportlega vaxnir íþróttaboltar á Hvammstanga DVWYND JÖHANN ÖRN ARNARSON Kormáksmenn Hér eru nokkrir íþróttamenn á Hvammstanga, Kor- máksmenn, ungir og aöeins eidri, menn sem hafa engu gleymt. íþróttahúsiö nýja er stór plús fyrir byggöina, á því leikur enginn vafi. „Við höfum engu gleymt," sögðu þungavigtarmenn iþróttanna á Hvammstanga þegar DV hitti þá að máli í nýju íþróttahöllinni þeirra. Sú bygging olli nokkru fjaðrafoki áður en farið var að reisa hana í fyrra - en eft- ir að mannvirkið er komið upp og vel nýtt af heimamönnum hafa gagnrýn- israddir hljóðnað. íþróttahús og sund- laugar eru þess eðlis að engum dettur i hug að amast út í þau mannvirki. Enda varla vafi á að hér er um heiisu- bót að ræða fyrir alla íbúa þorpsins. Kristján Björnsson annast um nýja íþróttahúsið. „Þetta lofar mjög góðu og greinilegt að þörfin fyrir húsið var mikil,“ sagði Kristinn. Hann segir að í húsinu fari fram skólaleikfimi fyrir hádegi, íþróttafélagið Kormákur var með iþróttanámskeið í haust. í húsinu er spilaður körfubolti og fótbolti og al- menningur nýtir húsið fyrir bad- minton, blak og fleiri innanhúss- íþróttir. Konur í þorpinu hafa komið sér upp aerobikleikfimi. Nýja íþróttahúsið fær líka gesti - í haust var unglingalandsliðið í körfuknattleik á ferðinni og var með æfingar í húsinu. -JBP/JÖA Hljómplötur Ýmsir - Benedikt búálfur ★★★ Söngleikjasagan blandast nútímanum Geisladiskurinn Benedikt búálfur geymir lög úr samnefhdu leikriti með stuttum frásögnum til að ungir hlust- endur nái áttum hvað söguþráð varðar eða geti jafnvel rifjað upp leikritið ef svo vill. Höfundur tónlistar er Þorvaldur Bjami Þorvaldsson og textahöfundur Andrea Gylfadóttir. Eftir að leikendur hafa sungið fimmtán lög eru þau spiluð án söngs svo að allir (sem nenna) geta sungið með. Gott mál að hvetja unga hlustendur til að spreyta sig. Diskurinn hefst á hressilegu kynn- ingarlagi Benedikts, Komdu inn i álf- anna heim, og fljótlega fylgir eitt besta lag disksins, Nú er illt í efni. Því miður er það líka stysta lagið. Tóti tannálfur er fremur hvimleitt lag í reggae-takti og textinn i slappara lagi. Litriki hellirinn er lagið þar á eftir, alveg prýðilegt og kannski svona dæmigert söngleikjalag. Sama má segja um Jósafat mannahrelli sem er mjög leikrænt og sver sig í ætt við kunnuglega söngleikjahefð. Sveinn Þór Geirsson fer alveg á kostum sem Jósafat. Þvílík kvöl er ágætt með soldið geggjuðu saxófónsólói. Álfheimasöngurinn og flestöii lögin sem á eftir fara sýna ótvíræða hæfileika Þorvaldar til að semja leikhústónlist. Það er mátulega mikið leitað til söng- leikjasögunnar eftir hugblæ og siðan blandað nútímalegri hugmyndum í ein- hverjum tilvikum. Laglinur vel ofnar og margar hverjar fallegar. Útsetningar við hæfi. Þar sem undirritaður hlýddi á sín- um tíma á Ávaxtakörfuna er ljóst að músíklegur samanburður er þessum diski mjög í hag. Lagið Góða ferð fellur þó í þá gryfju að hljóma eins og hundrað önnur. Ef ég væri hugaður er með miili- kafla sem er óþægilega líkur gamla lag- inu Æ, ó, aumingja ég. Hann kemur nú bara fyrir einu sinni og að öðru leyti er lagið skemmtilegt. Textar Andreu Gylfa- dóttur eru á einfóldu máli, hreinir og beinir og eflaust þægilegir til söngs. Stundum er farið á svig við ströngustu bragfræðireglur. Stuðlar eru notaðir í fleiri tilvikum en ekki og höfuðstafir af og til, þó oftar en ekki. Þetta er svo sem í lagi en skemmtilegra hefði verið að fara alla leið og hafa allt þetta kórrétt. Leikaramir úr leikritinu (geri ég ráð fyrir) syngja prýðilega. Hinrik Ólafsson hljómar eins og Egill Ólafsson í Stríðslaginu. Flott. Stundum veit maður vart hvaða persóna hefur upp raust sína hverju sinni þar sem maður þekkir ekki leikritið. Hver er Sölvar súri? Hver syngur það hlutverk? Hann er allavega ekki talinn upp með persónum og leik- endum. Björgvin Franz Gíslason er í að- alhlutverkinu og sýnir og sannar að hann á létt með söng. Lára Sveinsdóttir sem leikur Dídí hefur ágæta, bjarta rödd. Maður nennir varla að minnast á hina miklu sönghæfileika Selmu Bjömsdóttur og Jóhanns Sigurðarsonar. Hljómsveitin er fín og í heild er þetta hinn ágætasti diskur. Ingvi Þór Kormáksson ^ÓVAOAFAHANDBÓK dv Jólagjafahandbók DV hefur verið ómissandi við undirbúning jólanna og val jólagjafa í yfir 20 ár. ) ólagj afahandbók Ef þú, auglýsandi góður, vilt ná til þíns markhóps þá er þetta miðillinn þínn. Þetta er stórt og efnismikið blað þar sem iögð er áhersla á skemmtilega umfjöllun um jólin og undirbúning þeirra. Við viljum minna auglýsendur á að tekið er við pöntunum til 22. nóvember. Með jólakveðju. Auglýsingadeild DV. Sími 550 5000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.