Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 26
50
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
Islendingaþættir______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
’ IH
90 ára_______________________________
Þráinn Sigurösson,
Bjarkargrund 22, Akranesi.
<* 85 ára___________________________________
Jóhanna Jónsdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
75 ára_______________________________
Bjarni ísleifsson,
Háaleitisbraut 97, Reykjavík.
Hörður Hjartarson,
Skipholti 43, Reykjavík.
Matthías B. Axfjörð,
Austurbyggð 14, Akureyri.
Njáll Þorgeirsson,
Fannborg 8, Kópavogi.
70 ára_______________________________
Guðmundur Svavar Valgarðsson,
Starengi 18, Reykjavík.
Sigrún Astrið Kaaber,
Sæviðarsundi 33, Reykjavík.
60 ára_______________________________
Birgir Sigurösson,
Strandgötu 35, Akureyri. Hann tekur á
móti gestum í Kiwanissalnum, Sunnu-
hlíð, laugardaginn 16.11. frá kl. 19.00.
Ásdís Kristmundsdóttir,
Laugarnesvegi 72, Reykjavík.
Gústaf Magnússon,
Móabarði 36, Hafnarfiröi.
Monika Magnúsdóttir,
Birkimel 8b, Reykjavík.
Ólöf Birna Blöndal,
Selási 15, Egilsstöðum.
Viðar Zophoníasson,
Seftjörn 9, Selfossi.
Lára
Magnúsdóttir,
Reyrengi 6,
Reykjavík, og
Súsanna María
Magnúsdóttir,
Lautasmára
47, Kópavogi.
Þær reka saumastofuna í Fákafeni 9.
Eiginmaöur Láru er Bjarni Björgvinsson
en eiginmaður Súsönnu Mariu er
Jóhann Bergmundsson.
Þær verða að heiman.
Elísabet Bjargmundsdóttlr,
j Marklandi 4, Reykjavík.
Guðmundína Hallgrímsdóttir,
Jörundarholti 107, Akranesi.
Gunnar B. Ringsted,
Hamravík 12, Borgarnesi.
Jóhanna Einarsdóttir,
Ásvallagötu 75, Reykjavík.
Kristín Bjargmundsdóttir,
Grundarbraut 36, Ólafsvík.
Kristín V. Valdimarsdóttir,
Stórateigi 16, Mosfellsbæ.
Sigurður Gunnlaugsson,
Borgarlandi 10, Djúpavogi.
Þorbjörg Ársælsdóttir,
Fossheiði 50c, Selfossi.
40 ára_________________________________
Áslaug Guðjónsdóttlr,
Granaskjóli 31, Reykjavík.
Björn Hróarsson,
m Löngufit 16, Garöabæ.
Hrafnhildur Karlsdóttir,
Þrastarima 1, Selfossi.
Ingibjörg Þórólfsdóttir,
Borgarbraut 9, Grundarfiröi.
Lára Kristín Sturludóttlr,
Rekagranda 10, Reykjavík.
Nanna Sigríður Dungal,
Leirubakka 32, Reykjavík.
Ragnar Þórisson,
Holtagerði 10, Kópavogi.
Skarphéðinn Ólafsson,
Hlíðarvegi 10, Grundarfirði.
Stefanía Óttarsdóttir,
Vesturgötu 23, Reykjavík.
Sveinn Giovanni Segatta,
Dalalandi 11, Reykjavík.
Valdís Gunnarsdóttir,
Þingholtsstræti 15, Reykjavík.
X Þorgelr Baldursson,
Móasíðu 4f, Akureyri.
Órn Sigurösson,
Nökkvavogi 30, Reykjavík.
Guðmundur Klartan
Runólfsson,
hljóðfæraleikari og
vélstjóri, lést á Long
Beach Memorial
Hospital 27.10. sl.
Bálför hans hefur
þegar verið gerð og fór
minningarathöfn fram
á heimili hans laugard. 2.11.
Fjölakylda Kjartans á fslandi, dóttir hans
og systkini, standa fyrir minningarathöfn
í dag, mánudaginn 11.11., í
Fossvogskapellu og hefst athöfnin kl.
13.30.
Fimmtugur
Kolbeinn Kristinsson
forstjóri Myllunnar-Brauös hf
Kolbeinn Kristinsson, forstjóri
Myllunnar-Brauðs hf., Krókamýri
78, Garðabæ, er fímmtugur í dag.
Starfsferiil
Kolbeinn fæddist i Reykjavík og
ólst þar upp við Álíheimana. Þá var
hann þrjú sumur í sveit hjá Jóni
Jónssyni, bónda í Árteigi í Kinn í
Þingeyjarsýslu, og k.h., Hildi Jóns-
dóttur húsfreyju. Kolbeinn var í
Langholtsskóla, Vogaskóla, að Laug-
um í Þingeyjarsýslu og Gagnfræða-
skóla Austurbæjar. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla íslands
1974 og stundaði nám í viðskipta-
fræði við HÍ í eitt og hálft ár.
Kolbeinn tók við og starfrækti
Bókabúðina Álfheima 6 1974-76, hóf
fullt starf hjá fyrirtæki foður síns,
Brauði hf. 1978, er síðan heitir
Myllan-Brauð hf. frá 1982, og hefur,
ásamt bróður sínum, starfað við fyr-
irtækið síðan. Hann varð fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og hef-
ur verið forstjóri Myllunar-Brauðs
hf. frá 1992.
Kolbeinn lék með unglingahljóm-
sveitinni Mods 1966-68. Hann hóf
ungur að æfa körfubolta, lék með
meistaraflokki ÍR um árabil, varð
fimm sinnum íslandsmeistari með
ÍR og lék með íslenska landsliðinu
1970-80.
Kolbeinn sat í stjórn Verslunar-
ráðs íslands frá 1992, sat í fram-
kvæmdastjórn Verslunarráðs
1992-96 og var formaður Verslunar-
ráðs íslands 1996-2000, sat i fram-
kvæmdastjóm VSl í þrjú ár, sat í
stjóm Lífeyrissjóðs verslunar-
manna 1995-2002, situr í stjórn
Glitnis ehf. frá 1999, í stjórn Eim-
skipafélags islands frá 2000 og hefur
verið formaður sjálfseignarstofnun-
ar Verslunarráðs íslands um við-
skiptamenntun (rekstur Verslunar-
skóla íslands og Háskóla Reykjavík-
ur).
Fjölskylda
Eiginkona Kolbeins er Ruth
Gylfadóttir, f. 3.4.1965, flugfreyja og
öryggiskennari hjá Flugleiðum, i
MÁ-námi við HR. Hún er dóttir
Gylfa Guðmundssonar veitinga-
manns og Guðrúnar Skarphéðins-
dóttur húsmóður sem nú er látin.
Dætur Kolbeins frá fyrra hjóna-
bandi eru Guðrún Kristín, f. 25.8.
1976, nemi í Boston í Bandaríkjun-
um; Magndís Anna, f. 17.5. 1978.
fatahönnuður í Reykjavík; Kristin
Kolbrún, f. 29.1. 1987, nemi.
Stjúpsonur Kolbeins er Marteinn,
f. 4.7. 1995.
Systkini Kolbeins eru Jón Albert
Kristinsson, f. 19.11. 1948, bakara-
meistari í Reykjavík; Anna Kristín
Kristinsdóttir, f. 30.12. 1949, bókari
við HR, búsett í Reykjavík; Laufey
Kristinsdóttir, f. 24.5. 1961, tónlistar-
kennari í Reykjavík.
Foreldrar Kolbeins: Kristinn Al-
bertsson, f. 10.4. 1927, d. 13.7. 1983,
bakarameistari í Reykjavík, og Dýr-
leif Jónsdóttir, f. 14.4. 1926, húsmóð-
ir.
Ætt
Kristinn var sonur Alberts,
verkamanns á Húsavík, Flóvents-
sonar og Kristjönu Sigtryggsdóttur.
Dýrleif er dóttir Jóns Péturs, fisk-
verkanda á Drangsnesi, Jónssonar,
á Drangsnesi, Jónssonar. Móðir
Jóns Péturs var Anna Sigríður
Árnadóttir. Móðir Dýrleifar var
Magndís Aradóttir.
í tilefni af þessum timamótum
munu þau Kolbeinn og Ruth vera
með móttöku á Grand Hóteli í dag
milli kl. 18.00 og 20.00.
'g
Sigrún Björnsdóttir
skólastjóri Nýja tónlistarskólans
Sigrún Bjömsdóttir, skólastjóri
Nýja tónlistarskólans, Fannafold
172A, Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Sigrún fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Hálsi í Fnjóskadal, i Reykja-
vik og á Akureyri. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MA 1962, burtfarar-
prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleik-
hússins 1967, stundaði framhalds-
nám við Schule des Theaters í Köln
í Þýskalandi í eitt ár, stundaði söng-
nám hjá Engel Lund við Tónlistar-
kólann í Reykjavík, hjá Sigurði
Demetz við Nýja tónlistarskólann
og í einkatímum hjá Guðmundu El-
iasdóttur, og í Svíþjóð hjá Torsten
Föilinger og Giesellu May í söng og
söngtúlkun og leiklistarkennslu fyr-
ir söngvara. Þá stundaði hún nám-
skeið í listasögu og leikritunarsögu
við HÍ 1987-88 og hefur auk þess
stundað fjölda námskeiða fyrir leik-
ara og söngvara, hér á landi og er-
lendis.
Sigrún var ritari landlæknis
1976-77, lausráðinn leikari við Þjóð-
leikhúsið 1967-83, leikari við Al-
þýðuleikhúsið, leikstjóri hjá BÍL og
Leikfélagi Akureyrar, var leiklistar-
kennari á vegum BÍL og fleiri aðila,
fastráðinn kennari við söngdeild
Nýja tónlistarskólans frá 1980 og
varð skólastjóri Nýja tónlistarskól-
ans 1998 en er nú í ársfríi.
Sigrún starfaði jafnframt við dag-
skrárgerð við Ríkisútvarpið 1968-97.
Þá hefur hún stundað þýðingar fyr-
ir leikhús og útvarp.
Sigrún var formaður 4. deildar
Félags íslenskra leikara og fulltrúi
hennar i trúnaðarmannaráði FÍL
1979-82, sat í samninganefnd leikara
við Þjóðleikhúsið 1974 og sat í stjórn
Vesturgötu 3 hf. (Hlaðvarpans) frá
stofnun 1985-88.
Fjölskylda
Sigrún giftist 30.12. 1961 Ragnari
Björnssyni, f. 27.3. 1926, fyrrum
dómorganista og skólastjóra Nýja
tónlistarskólans og stjómanda
Karlakórsins Fóstbræðra um árabil.
Hann er sonur Bjöms Guðmundar
Bjömssonar, bónda í Torfustaða-
húsum í Ytri-Torfustaðahreppi og
síðar smiðs og organista á Hvamms-
tanga, og k.h., Sigrúnar Ragnheiðar
Jónsdóttur, hjúkrunarkonu, sauma-
konu og harmoníkuleikara.
Dætur Sigrúnar og Ragnars eru
Guðríður Ragnarsdóttir, f. 24.7.
1962, búsett í Reykjavík; Bima, f.
27.12.1968, söngkona í Reykjavík og
á hún fjögur böm.
Stjúpdætur
Sigrúnar og dæt-
ur Ragnars frá
því áður eru
Hrefna Nellý
Ragnarsdóttir, f.
11.10. 1947, leik-
skólakennari í
Hafnarfirði, og á
hún þrjú böm en
sambýlismaður
hennar er Jón
Sigurbjömsson;
Sigrún Ragnars-
dóttir, f. 31.5.
1955, framhalds-
skólakennari, og
eignaðist hún
þrjú börn; Ólöf
Ragnarsdóttir, f.
17.6. 1959 hjúkr-
unarfræðingur
og á hún tvo syni.
Systkini Sigrúnar eru Ingibjörg
Ragnheiður Bjömsdóttir, f. 14.9.
1925, fyrrv. yfirpóstafgreiðslumað-
ur, búsett í Reykjavík; Vigfús
Bjömsson, f. 20.1. 1927, bókbands-
meistari og rithöfundur á Akureyri;
Sigríður S.P. Bjömsdóttir, f. 5.11.
1929, listmálari og listmeðferðar-
fræðingur; Oddur Björnsson, f.
25.10. 1932, rithöfundur í Reykjavík.
Foreldrar Sigrúnar voru Bjöm O.
Björnsson, f. 21.1. 1895, d. 29.9. 1975,
prestur og ritstjóri, og k.h., Guðríður
Vigfúsdóttir, f. 2.6. 1901, d. 12.4. 1973,
húsmóðir.
Sigrún tekur á móti vinum og
vandamönnum í tilefni sextugsaf-
mælisins í húsakynnum Nýja tónlist-
arskólans, Grensásvegi 3, 3. hæð t.h.,
laugardaginn 23.11. kl. 20.00.
Andlat
Jóna Ármanía Sveinsdóttir
húsmóðir og verkakona
Jóna Ármanía Sveinsdóttir,
verkakona og húsmóðir, lengi til
heimilis að Hverfisgötu 49, Reykja-
vík, síðast á Sólvangi í Hafnarfirði,
lést á Sólvangi þann 5.11. sl. Útfór
hennar verður gerð frá Fossvogs-
kapellu þriðjudaginn 12.11. og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Starfsferill
Jóna fæddist á Barðsnesi við
Norðfjörð og ólst þar upp. Hún
stundaði lengst af almenn verka-
kvennastörf en eftir að hún flutti til
Reykjavíkur starfaði hún lengi í
þvottahúsi Landspítalans. Hún var
síðast búsett á Sólvangi í Hafnar-
firði.
Fjölskylda
Eiginmaður Jónu var Axel Sig-
geirsson frá Reyðarfirði, f. 22.10.
1910, d. 14.9. 1991, sjómaður. Hann
var sonur Siggeirs Eyjólfssonar,
sonar Eyjólfs Ólafssonar beinharða,
b. á Sléttu, og Sæbjargar Jónsdótt-
ur. Móðir Axels var Guðrún Eyjólfs-
dóttir úr Skaftafellssýslu.
Jóna átti eina hálfsystur, Hólm-
fríði Sveinsdóttur, sem nú er látin.
Þá átti hún fóstbróður, Einar Guð-
mundsson, sem einnig er látinn.
Foreldrar Jónu voru Sveinn Stef-
ánsson, bóndi á Kirkjubóli í Vaðla-
vík og síðan á Barðsnesi við Norð-
fjörð, og k.h., Sólveig Hermanns-
dóttir húsfreyja.
Ætt
Sólveig var dóttir Hermanns, b. á
Brekku í Mjóafirði og á Barðsnesi í
Norðfirði, Vilhjálmssonar, b. á
Brekku í Mjóafirði, hálfbróður,
samfeðra, Hjálmars, hreppstjóra á
Brekku, langafa Vilhjálms Hjálm-
arssonar á Brekku, fyrrv. mennta-
málaráðherra. Vilhjáhnur var son-
ur Hermanns, b. í Firði, Jónssonar
pamfils.
Móðir Sólveigar var Guðný Jóns-
dóttir, pr og alþm. á Skorrastað og í
Heydölum, Hávarðssonar, að Hólum
í Norðfirði, Jónssonar, í Austdal,
Hávarðssonar. Móðir Jóns, pr. í
Heydölum, var Guðný Þorsteins-
dóttir, pr. á Skorrastöðum, Bene-
diktssonar. Móðir Guðnýjar Jóns-
dóttur var Sólveig Benediktsdóttir,
pr. á Skorrastöðum, Þorsteinssonar.