Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 28
52 ____________________MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 Tilvera DV Moss talin með fölsk augnahár Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að aug- lýsa augnháralit. Breska ofurfyrir- sætan Kate Moss hefur svo sannar- lega fengið að finna fyrir þvi. Auglýsingin hefur verið kærð fyrir viðeigandi yflrvaldi í Bretlandi og hafa kærendur það helst út á auglýsinguna að setja að augnhár fyrirsætunnar, eins og þau birtast í auglýsingunni, séu allt of flott til að vera ekta, löng og þétt. Yfirvaldið hefur úrskurðað að snyrtivöruframleiðandinn hafi ekki vísvitandi reynt að blekkja almenning. Framleiðandinn hefúr viðurkennt að hafa aðeins flikkað upp á augnhár fyr- irsætunnar en meðalkonan geti náð sama árangri. DVA1YND HH Heppinn leikhúsgestur Fyrir miöri mynd er Ragnheiöur Anna Georgsdóttir frá Vestmannaeyjum sem var 20.000 ieikhúsgesturinn. Meö henni á myndinni eru Guöjón Pedersen leikhússtjóri og leikararnir Eggert Þorleifsson, Steinn Ármann Magnússon og Helga Braga Jónsdóttir. Með vífið í lúkunum: Tuttugu þúsund gestir Eitt vinsælasta leikrit síðari ára er farsinn Með lífið í lúkunum sem sýndur hefur verið á vegum Leikfélags Reykjavíkur á þriðja ár. Yfirleitt hefur alltaf verið fullt hús og er ekkert lát á aðsókninni. Um helgina kom tuttugu þúsund- asti gesturinn á sýninguna. Það var Ragnheiður Anna Georgsdótt- ir frá Vestmannaeyjum sem var heppni leikhúsgesturinn og var hún leyst út með gjöfum. Victoria komin meö samning Loksins virðist nú vera farið að birta til í lífi Vict- oriu Adams og Beckhams, fyrrum kryddpíu og nú- verandi eiginkonu Davids spark- meistara. Mitt í öll- um þrengingun- um, svo sem eins og mannránsplotti og öðrum ósóma, berast fréttir um að frú- in hafi undirritað nýjan plötusamning. Að þessu sinni við fyrirtækið Telstar. „Victoria er harðákveðin í að láta allt sem gerst hefur upp á síðkastið ekki standa í veginum fýrir sér,“ segir vinur söngkommnar. Ár er nú liðið frá því plötufyrirtæk- ið Virgin sagði upp samningi sínum við Victoriu.eftir að tilraunir hennar til að standa á eigin fótum í tónlistinni fóru út um þúfur vegna dræmra undir- tekta almennings. En nú er Posh-kerl- ingin sem sé klár í slaginn á nýjan leik. Rakspíri & Rakarstofan a Klapparstig 1 Sími 551 3010 I OldfSpke AITER SHAVE VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN Laugardaglnn 9. név. | Upplýslngar Islma 580 2525 Textavarp IÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 Jókertölur laugardags 7 6 9 7 5 23)34)38) BÓNUSTÖLUR 16) 35 Alltaf á miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags 2 6 17 2 Matthías á rit- þingi Matthias Johannessen, skáld og fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, var heiðursgestur á ritþingi í Gerðubergi á laugardaginn. Silja Aðalsteinsdóttir, menningarrit- stjóri DV, stjórnaöi umræðunum en blandað var saman upplestrum r < í Fjolskyldan saman komin Brynhildur Ingimundardóttir, Haratd ur Johannessen og Jóhanna Jo- hannessen, eiginkona Matthíasar, hlýddu á umræöur ritþingsins. DV-MYND R HH Matthíasar, umræðum og innleggi tveggja spyrla; Bernards Scudders og Ástráðs Eysteinssonar. Matthi- as las upp úr bók sinni, Vatnaskil- um, sem er væntanleg í bókabúðir á næstu dögum. Fjölmennt var á ritþinginu og að því loknu var opnuð sýning á myndlist í einka- eigu Matthíasar. Fagrir tonar Hin ástsæla söngkona, Diddú lagið á ritþinginu. Spjall á milli atriöa Siguröur A. Magnússon rithöfundur og Arthúr Björgvin Botiason voru meðal fjölmargra gesta ritþingsins. tok Bíógagnrýni Biofeiagið lÖÍ í Regnboganum - Kisslng Jessica Stein Aö þora að elska Sif Gunnarsdóttir skrífar gagnrýni um kvikmyndir. Helen og Jessica Jennifer Westfeid og Heather Juergensen leika aöaihlutverkin og skrifa handritiö. Helen (Juergensen) vinnur í gall- eríi í New York, gáfuð og afslöppuð kona sem er oftast með karlmönn- um en frnnst gott að vera með kon- um líka. Hún setur einkamálaaug- lýsingu í blað þar sem hún auglýsir eftir nánum kynnum við konu. Jessica (Westfeld) er dagblaðspróf- arkalesari með fullkomnunaráráttu, ekki síst þegar kemur að karlmönn- um. Hún hefur svarað óteljandi einkamálaauglýsingum og hitt jafn marga ómögulega karla. Hún svarar auglýsingu Helen, ekki af því send- andinn er kona heldur vegna þess að auglýsingin hefst á tilvitnun úr skáldskap Rilke og það stenst Jessica ekki. Síðan upphefst afar skondið sam- band þeirra tveggja, en töluverður munur er á vonum þeirra og vænt- ingum. Helen vill alvöru ástarsam- band með heitu kynlífi og djúpum samtölum en Jessica sér sambandið meira fyrir sér sem afar náið vin- konusamband með svolitlu káfl. Aðalvandræðin skapast samt af því að Jessica er engan veginn tilbúin til þess að opinbera þessa „afbrigði- legu“ hegðun, hvorki fyrir fjöl- skyldu sinni (woody allenskri gyð- ingafjölskyldu), yfirmanni sínum sem einnig er fyrrverandi kærasti né óléttri vinkonu sinni sem hefur unnið að því hörðum höndum að finna handa Jessicu kærasta. Jessica er nefnilega svolitill heigull, hún þorir ekki að elska og þorir heldur ekki að mála. Undir tepru- legum prófarkalesaranum býr ástriðufullur listmálari, en óttinn við höfnun og óttinn við að vera ófullkomin er bæði ástinni og sköp- uninni yflrsterkari. Eins og hjá yfir- manni hennar og fyrrverandi kærasta sem dreymdi rithöfundar- drauma en ákvað að það væri bæði auðveldara og hættumtnna að pota í texta annarra en að búa sjáifur til texta sem aðrir gætu gagnrýnt. Þannig eru alvarlegri mál skoðuð í bland við grínið, sem er hlæ-upp- hátt-fyndið, og gerir Kissing Jessica Stein aö einni af þessum örfáu perl- um í endalausu flæði af rómantísk- um gamanmyndum sem flestar eru hvorki fyndnar né rómó. Þær Juergensen og Westfeld leika kærusturnar af leikni. Báðar full- komlega trúverðugar og renna sér áreynslulaust á milli tára og hiát- urs. Scott Cohen (kunnuglegt andlit, örugglega úr sjónvarpi) er prýðileg- ur í hlutverki yfmnannsins og fyrr- verandi kærastans Josh sem fer að taka eftir gömlu kærustunni aftur þegar ástin ljær henni roða í kinnar og styttir pilsin hennar töluvert. Tovah Feldshuh er frábær í hlut- verki málgefinnar gyðingamömmu Jessicu, sem vill dóttur sinni aðeins það besta, þ.e. góðan, ríkan mann af gyðingaættum, en sættir sig við allt annað ef það gleður barnið hennar. Jackie Hoffman er sömuleiðis litrik og skemmtileg í hlutverki starfs- systur og vinkonu Jessicu, alveg óvenjulega vel hugsuð og leikin aukapersóna í kvikmynd af þessu tagi. Kissing Jessica Stein er sæt mynd en allt of vitsmunaleg til að vera ofsykruð a la Hollywood - hún er frekar eins og blanda af Woody Allen og Sex in the city. Sjáðu hana ef þú þorir. Slf Gunnarsdóttlr Lelkstjórl: Charles Herman-Wurmfeld. Handrlt: Heather Juergensen & Jennifer Westfeldt. Aðallelkarar: Jennifer West- feldt, Heather Juergensen, Scott Cohen, Tovah Feldshuh og Jackie Hoffman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.