Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Síða 28
52
____________________MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
Tilvera DV
Moss talin með
fölsk augnahár
Það er ekki
alltaf tekið út með
sældinni að aug-
lýsa augnháralit.
Breska ofurfyrir-
sætan Kate Moss
hefur svo sannar-
lega fengið að
finna fyrir þvi.
Auglýsingin hefur
verið kærð fyrir viðeigandi yflrvaldi í
Bretlandi og hafa kærendur það helst
út á auglýsinguna að setja að augnhár
fyrirsætunnar, eins og þau birtast í
auglýsingunni, séu allt of flott til að
vera ekta, löng og þétt.
Yfirvaldið hefur úrskurðað að
snyrtivöruframleiðandinn hafi ekki
vísvitandi reynt að blekkja almenning.
Framleiðandinn hefúr viðurkennt að
hafa aðeins flikkað upp á augnhár fyr-
irsætunnar en meðalkonan geti náð
sama árangri.
DVA1YND HH
Heppinn leikhúsgestur
Fyrir miöri mynd er Ragnheiöur Anna Georgsdóttir frá Vestmannaeyjum sem var 20.000 ieikhúsgesturinn. Meö henni á myndinni
eru Guöjón Pedersen leikhússtjóri og leikararnir Eggert Þorleifsson, Steinn Ármann Magnússon og Helga Braga Jónsdóttir.
Með vífið í lúkunum:
Tuttugu
þúsund
gestir
Eitt vinsælasta leikrit síðari ára
er farsinn Með lífið í lúkunum
sem sýndur hefur verið á vegum
Leikfélags Reykjavíkur á þriðja
ár. Yfirleitt hefur alltaf verið fullt
hús og er ekkert lát á aðsókninni.
Um helgina kom tuttugu þúsund-
asti gesturinn á sýninguna. Það
var Ragnheiður Anna Georgsdótt-
ir frá Vestmannaeyjum sem var
heppni leikhúsgesturinn og var
hún leyst út með gjöfum.
Victoria komin
meö samning
Loksins virðist
nú vera farið að
birta til í lífi Vict-
oriu Adams og
Beckhams, fyrrum
kryddpíu og nú-
verandi eiginkonu
Davids spark-
meistara. Mitt í öll-
um þrengingun-
um, svo sem eins og mannránsplotti og
öðrum ósóma, berast fréttir um að frú-
in hafi undirritað nýjan plötusamning.
Að þessu sinni við fyrirtækið Telstar.
„Victoria er harðákveðin í að láta
allt sem gerst hefur upp á síðkastið
ekki standa í veginum fýrir sér,“ segir
vinur söngkommnar.
Ár er nú liðið frá því plötufyrirtæk-
ið Virgin sagði upp samningi sínum
við Victoriu.eftir að tilraunir hennar
til að standa á eigin fótum í tónlistinni
fóru út um þúfur vegna dræmra undir-
tekta almennings. En nú er Posh-kerl-
ingin sem sé klár í slaginn á nýjan leik.
Rakspíri
&
Rakarstofan a
Klapparstig 1
Sími 551 3010 I
OldfSpke
AITER SHAVE
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
Laugardaglnn 9. név. |
Upplýslngar
Islma 580 2525
Textavarp IÚ 110-113
RÚV281, 283 og 284
Jókertölur
laugardags
7 6 9 7 5
23)34)38)
BÓNUSTÖLUR
16) 35
Alltaf á
miðvikudögum
Jókertölur
mlðvlkudags
2 6 17 2
Matthías
á rit-
þingi
Matthias Johannessen, skáld og
fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins,
var heiðursgestur á ritþingi í
Gerðubergi á laugardaginn. Silja
Aðalsteinsdóttir, menningarrit-
stjóri DV, stjórnaöi umræðunum
en blandað var saman upplestrum
r < í
Fjolskyldan saman komin
Brynhildur Ingimundardóttir, Haratd
ur Johannessen og Jóhanna Jo-
hannessen, eiginkona Matthíasar,
hlýddu á umræöur ritþingsins.
DV-MYND R HH
Matthíasar, umræðum og innleggi
tveggja spyrla; Bernards Scudders
og Ástráðs Eysteinssonar. Matthi-
as las upp úr bók sinni, Vatnaskil-
um, sem er væntanleg í bókabúðir
á næstu dögum. Fjölmennt var á
ritþinginu og að því loknu var
opnuð sýning á myndlist í einka-
eigu Matthíasar.
Fagrir tonar
Hin ástsæla söngkona, Diddú
lagið á ritþinginu.
Spjall á milli atriöa
Siguröur A. Magnússon rithöfundur og
Arthúr Björgvin Botiason voru meðal
fjölmargra gesta ritþingsins.
tok
Bíógagnrýni
Biofeiagið lÖÍ í Regnboganum - Kisslng Jessica Stein
Aö þora að elska
Sif
Gunnarsdóttir
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
Helen og Jessica
Jennifer Westfeid og Heather Juergensen leika aöaihlutverkin og skrifa handritiö.
Helen (Juergensen) vinnur í gall-
eríi í New York, gáfuð og afslöppuð
kona sem er oftast með karlmönn-
um en frnnst gott að vera með kon-
um líka. Hún setur einkamálaaug-
lýsingu í blað þar sem hún auglýsir
eftir nánum kynnum við konu.
Jessica (Westfeld) er dagblaðspróf-
arkalesari með fullkomnunaráráttu,
ekki síst þegar kemur að karlmönn-
um. Hún hefur svarað óteljandi
einkamálaauglýsingum og hitt jafn
marga ómögulega karla. Hún svarar
auglýsingu Helen, ekki af því send-
andinn er kona heldur vegna þess
að auglýsingin hefst á tilvitnun úr
skáldskap Rilke og það stenst
Jessica ekki.
Síðan upphefst afar skondið sam-
band þeirra tveggja, en töluverður
munur er á vonum þeirra og vænt-
ingum. Helen vill alvöru ástarsam-
band með heitu kynlífi og djúpum
samtölum en Jessica sér sambandið
meira fyrir sér sem afar náið vin-
konusamband með svolitlu káfl.
Aðalvandræðin skapast samt af því
að Jessica er engan veginn tilbúin
til þess að opinbera þessa „afbrigði-
legu“ hegðun, hvorki fyrir fjöl-
skyldu sinni (woody allenskri gyð-
ingafjölskyldu), yfirmanni sínum
sem einnig er fyrrverandi kærasti
né óléttri vinkonu sinni sem hefur
unnið að því hörðum höndum að
finna handa Jessicu kærasta.
Jessica er nefnilega svolitill heigull,
hún þorir ekki að elska og þorir
heldur ekki að mála. Undir tepru-
legum prófarkalesaranum býr
ástriðufullur listmálari, en óttinn
við höfnun og óttinn við að vera
ófullkomin er bæði ástinni og sköp-
uninni yflrsterkari. Eins og hjá yfir-
manni hennar og fyrrverandi
kærasta sem dreymdi rithöfundar-
drauma en ákvað að það væri bæði
auðveldara og hættumtnna að pota í
texta annarra en að búa sjáifur til
texta sem aðrir gætu gagnrýnt.
Þannig eru alvarlegri mál skoðuð í
bland við grínið, sem er hlæ-upp-
hátt-fyndið, og gerir Kissing Jessica
Stein aö einni af þessum örfáu perl-
um í endalausu flæði af rómantísk-
um gamanmyndum sem flestar eru
hvorki fyndnar né rómó.
Þær Juergensen og Westfeld leika
kærusturnar af leikni. Báðar full-
komlega trúverðugar og renna sér
áreynslulaust á milli tára og hiát-
urs. Scott Cohen (kunnuglegt andlit,
örugglega úr sjónvarpi) er prýðileg-
ur í hlutverki yfmnannsins og fyrr-
verandi kærastans Josh sem fer að
taka eftir gömlu kærustunni aftur
þegar ástin ljær henni roða í kinnar
og styttir pilsin hennar töluvert.
Tovah Feldshuh er frábær í hlut-
verki málgefinnar gyðingamömmu
Jessicu, sem vill dóttur sinni aðeins
það besta, þ.e. góðan, ríkan mann af
gyðingaættum, en sættir sig við allt
annað ef það gleður barnið hennar.
Jackie Hoffman er sömuleiðis litrik
og skemmtileg í hlutverki starfs-
systur og vinkonu Jessicu, alveg
óvenjulega vel hugsuð og leikin
aukapersóna í kvikmynd af þessu
tagi.
Kissing Jessica Stein er sæt
mynd en allt of vitsmunaleg til að
vera ofsykruð a la Hollywood - hún
er frekar eins og blanda af Woody
Allen og Sex in the city. Sjáðu hana
ef þú þorir. Slf Gunnarsdóttlr
Lelkstjórl: Charles Herman-Wurmfeld.
Handrlt: Heather Juergensen & Jennifer
Westfeldt. Aðallelkarar: Jennifer West-
feldt, Heather Juergensen, Scott Cohen,
Tovah Feldshuh og Jackie Hoffman.