Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002 Menning I>V Áþreifanlegar hugsanir Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Ég veit ekki hversu oft ég hef fjallað um verk Sigurðar Guð- mundssonar á opinberum vett- vangi undanfarinn aldaríjórð- ung. Hins vegar get ég fullyrt að listamaðurinn hefur aldrei brugðist vaentingum mínum; hann hefur einfaldlega sniðgeng- ið þær. Þannig hefur honum tek- ist að opna mér og öðrum sýn inn í ófyrirséð sjón- og merking- arsvið. Sömuleiðis hefur honum tek- ist að slá vopnin úr höndum gagnrýnenda sinna með staðhæf- ingum sínum um að röksemdir séu gagnslausar þegar myndlist er annars vegar, eina leiðin til að njóta listar sé að elska hana. „í samanburði við ástina, sem alltaf er gefin beint í æð, eru rök- semdirnar ófullkomnari, óná- kvæmari." Þar með klippir hann nett á meint tengsl millum lista- verka sinna og viðtekinnar fag- urfræði með öllu sínu trússi. Samkvæmt þe'ssu verða lista- verk Sigurðar ekki gagn- rýnd/metin út frá fyrirfram gefnum menningartengdum for- sendum, annaðhvort fellur áhorfandinn fyrir þeim eða ekki. Áður en við afskrifum þessa bláeygu afbyggingu hefðbund- innar listheimspeki, ættum við ef til vill að gefa Sigurði séns og velta fyrir okkur hvort löngun okkar til að eignast tiltekin listaverk og hafa þau fyrir augum okkar upp á hvem dag eigi ekki eitthvað skylt við ástarskot. Konfektmolar og frostrósir Þótt hér vilji Sigurður draga burst úr nefi listgagnrýninnar eru auövitað efni til að ræða þróun þessara viðhorfa hans gagnrýnislaust. Einkum með tilliti til þess að á nýjustu sýn- ingu sinni í Galleríi i8 virðist hann að ýmsu leyti hverfa aftur til uppruna síns. Á sýning- unni eru tvær tegundir verka. Annars vegar eru uppstækkaðar eftirmyndir belgískra konfektmola, steyptar í málma og lakk eða klappaðar í grjót af miklum hagleik af kín- verskum handverksmönnum. Hins vegar eru stækkaðar teikningar, setningar eða nöfn, steyptar í postulín þannig að þau/þær minna á frostrósir eða þrívíðar kökuskreytingar. Konfektmolamir liggja á víð og dreif, en teikn- ingamar og orðin hanga í kippum á veggjun- Frá sýningu Sigurðar Guðmundssonar í i8 Ef til vitl má líta á konfektmolana sem hlutgervinga hinna mörgu og lokkandi nautna sem hvarvetna blasa viö nútíma- manninum. um allt um kring. Á leið niður í kjallara geng- ur áhorfandinn í gegnum forhengi úr sundur- klipptum segulböndum sem varðveita hug- renningar listamannsins; hugsanir hans strjúka andlit okkar. Myndlist Allt þetta styður þá sannfæringu mína að listrænar rætur Sigurðar sé að flnna í hug- myndafræði konkretlistar. Ólíkt lausbeislaðri afstraktlistinni gefur konkretlistin sig ekki út fyrir að vera samantekt þess sem við vitum og sjáum, hún vill vera viðauki við veruleikann. Lokkandi nautnir Ég minni á einkunnarorð stórrar bókar sem gefin var út um verk Sigurðar árið 1991, en þar segir hann: „List min er ekki túlkun/á atburð- um sem ég hef upplifað. /Svo mikil er reynsla mín ekki.“ Hann klykkir út með að líkja verk- um sínum við „storknaðar minningar" atburð- anna sjáifra. Myndverk Sigurðar eru borin uppi af lönguninni til að bæta við veruleikann „storknuðum" minningum, hugsunum, hug- dettum, löngunum og kenndum mannsins, og gera sýnilegar helstu eigindir þeirrar veraldar sem við hrærumst í: tíma, rúm og óravíddir. Ef til vill má líta á konfektmolana sem hlut- gervinga eftirlöngunarinnar, og þar með einnig hinna mörgu og lokkandi nautna sem hvarvetna blasa við nútímamanninum. í uppi- hangandi postulínsorðunum mynda lögun og merking nýja heild sem hægt er að þreifa á. Af hvérju þessi orð? Jú, vegna þess að listamann- inum þykir vænt um þau. „Ég vil vera með þeim í einhvem tíma,“ segir hann í sýningar- skrá. Aðalsteinn Ingólfsson Sýningin stendur til 23.11. og er opin þrið.-laug. kl. 13-17. Tónlist Leikið á brennivínsflösku Bandaríska tónskáldið John Cage þótti einu sinni framúrstefnulegur með aíbrigðum, og margir voru yfir sig hneykslaðir á tónlist hans. Ég man að þegar hann sótti okkur íslendinga heim á listahátið fyrir um tuttugu árum lá við illindum þegar verk hans voru rædd. Ekki bætti úr skák að hann þóttist vera skyggn og átti það til að meta hæfni íslenskra tónlistarmanna eftir því hvemig árur þeirra litu út! Á tónleikum í 15:15-röðinni á Nýja sviði Borg- arleikhússins á laugardaginn flutti siagverkshóp- urinn Benda, sem samanstóð af Eggerti Pálssyni, Pétri Grétarssyni og Steef van Oosterhout, auk Snorra Sigfúss Birgissonar pianóleikara, tvær tónsmiðar eftir Cage. Hin fyrri bar nafnið Amor- es fyrir slagverk og „sérútbúið píanó“ (prepared piaho). Það þýðir venjulega að allskyns drasli hefur verið raðað á píanóstrengina eða troðið á milli þeirra til að breyta hljómnum. Víst heyrð- ust hin skringilegustu hljóð úr flyglinum, og ... mannsgaman flissuðu nokkrir söngnemendur fyrir aftan mig þegar Snorri Sigfús hóf leik sinn. Verkið er þó enginn skrípaleikur, það hefur sterkan, hug- leiðslukenndan heildarsvip og þagnimar á milli kaflanna voru þrungnar djúpstæðri, óskilgrein- anlegri merkingu. Erfitt er að lýsa verkinu að öðru leyti (ef maður á ekki að flækja málin með leiðinda fagmáli), en leikur fjórmenninganna var bæði einbeittur og innilegur og tókst þeim að skapa töluverða stemningu á tónleikunum. Hin tónsmíðin eftir Cage, Living Room Music, var talsvert nýstárlegri og alls ekki „stofutón- list“, þ.e. kammertónlist eins og maður á að venj- ast. Hér sátu fjórmenningamir við óhrjálegt borð og léku sér að einfaldri hrynjandi með því að hamra á ýmiskonar dót, tölvulyklaborð, brenni- vínsflösku og annað sem finna má í venjulegri stofu. Síðan fóru þeir með ljóð eftir Gertrude Stem með ótal endurtekningum og ýktri hrynj- andi, og var raddböndunum þannig breytt í lif- andi trommur. Hinir kaflarnir voru eftir þessu og má segja að fjórmenningarnir hafi sannað fyr- ir áheyrendum að hægt sé að búa til tónlist úr hverju sem er. Var þeim líka klappað óspart lof í lófa af æstum tónleikagestum. Eftir hlé flutti Benda, Snorri Sigfús og Eiríkur Örn Pálsson trompetleikari L’oops eftir Pétur Grétarsson. Var það rismikil tónsmíð með sterkri djassáferð, fyrst og fremst hrynrænt spil þar sem fjölbreytt litbrigði komu fyrir. Gat mað- ur nánast heyrt í tónunum heila sögu sem var hin skemmtilegasta, enda glæsilega sögð af hljóð- færaleikurunum. Ekki síðri var Forspil/Millispil/Eftirspil eftir Snorra Sigfús. Það var í fyrstu þéttur vefur af fjörmiklum hendingum sem síðan umbreyttist í allskonar hljóðlátt bergmál sem var svo áferðar- fagurt að maður gat næstum fundið angan af tón- listinni. Þetta var sérlega falleg tónsmíð og með þeim betri sem ég hef heyrt eftir tónskáldið; glæstur endir á frábærum tónleikum. Jónas Sen mibi Af klæðum þjóðanna Það er eitthvað í mannssálinni sem segir hverju tetri aö safna, sanka að sér, fylla hús sín af munum og minjum. íbúðir fólks eru söfn. Meira og minna. Hillu- metrar af minningum. Var að þessu sinni staddur á heimili manns sem kominn var á efstu ár. Einbúi hafði hann verið alla sína tíð, samgróinn veggjum og horn- um og lagi þessa litla húss við Grettisgötu. Ey- steinn stóð á bjöllunni, handskrifað og ekkert gefið uppi um faðernið. Aðeins stakt nafnið og bjölluhljómurinn veikur ef eitthvað var. Hann kom til dyranna boginn og hægur og bauð mér hönd sína horaða, leiddi mig varfærn- um skrefum til stofu. Þar settist ég í kringum mesta safn af þjóðbúningadúkkum sem ég hafði augum litið á ævinni. Eitthvað á áttunda hund- rað hélt hann drafandi röddu og sýndi mér eina þá fágætustu frá hiröingjum i Mongólíu. Hann hafði safnað í sextíu ár og átti vandað safn vina um allan heim sem voru með dúkkur á heilanum eins og hann. Þama sátum viö nokkra stund. Og ræddum klæði þjóðanna, liti og snið. Og æ siðan hef ég vitað allnokkuð um dúkkur. -SER. Einkasýning Hildar Myndlistarmaðurinn Hildur Ásgeirs- dóttir Jónsson opnaði einkasýningu á verkum sínum um helgina í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti. Hildur á glæsilegan feril sem listamaður og kennari undanfarin ár í Bandaríkjunum og hefur hlotið margvisleg verðlaun og viðurkenningar. Opið á verslunartíma. Raddir þjóðar Sigurður Flosason og Pétur Grétarsson kynna nýjan geisladisk sinn, Raddir þjóðar, á útgáfutónleikum í Tjarnarbíói annað kvöld kl. 20.30. í Röddum þjóðar er nýjum tónsmíðum og ferskum spuna blandað við gamlar upp- tökur af söng. Alls syngja með Pétri og Sigurði 22 íslendingar, flestir löngu látn- ir. Sá elsti var fæddur 1830 og látinn um 1910. Sungnar eru bamagælur og fælur, drykkjuvísur, klámvísur, ættjarðarljóð og sálmar - allt sem,þjóðinni var tamt. Pétur Grétarsson leikur á frumskóg af slagverkshljóðfærum og stýrir raftækj- um en Sigurður spflar á ýmsar stærðir saxófóna, klarinett og flautur. Frumrit hljóðritananna eru varðveitt á Stofnun Áma Magnússonar og Þjóðminjasafni íslands og hafa ekki komið út áður. Edda - miðlun og útgáfa gefur diskinn út. Skipulag byggðar Á morgun kl. 12.05 heldur Trausti Valsson skipulagsfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags íslands sem nefnist „Skipulag byggðar á íslandi. Útkoma yfirlitsrits". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulags- mál. í fyrirlestrinum mun Trausti kynna helstu niðurstöður úr nýrri bók sinni sem nefnist „Skipulag byggðar á íslandi. Frá Landnámi tfl liðandi stundar". Fyrst verður sjónum beint að náttúru- öflunum sem lengst af voru stærstu áhrifavaldar um mótun byggðar og hins manngerða umhverfis hérlendis. Þá verða þau lögmál útskýrð, sem eru al- mennt að verki í byggðarmótun, og síð- an verður þróun þéttbýliskjama lands- ins lýst. Loks verður fjallað um nýjar hugmyndahræringar við aldamótin 2000 og hvemig þær leiða til breytinga á því hvemig stærstu bæir og byggðasvæði í landinu þróast. Útrás bókmenntanna Boð berast nú um vinsældir islenskra bókmennta erlendis og varða þau tvo ástmegi þjóðarinnar, þá Þor- vald Þorsteinsson og Arnald Indriðason. Annað bindiö af Blíð- finni Þorvalds kemur út í flokknum Tres Edades eða „Þt’jú ríki“ eins og hið fyrsta, hjá spænska bókaforlag- inu Siruela, en sá flokkur er geysivin- sæll og hugsaður fyrir aldurshópinn 8-88 ára. Einnig kemur Blíð- finnur út á ungversku á næstunni. Fyrsta Blíðfinnsbókin er væntanleg í kilju á þýsku á útmánuðum í 100.000 eintökum. Röddin eftir Amald er varla farin aö kólna í bandinu hér heima þegar samn- ingar hafa tekist um útgáfu hennar hjá Bastei-Lúbbe í Þýskalandi. Verk Amald- ar em reyndar væntanleg í sjö Evrópu- löndum á næsta ári enda hafa þau vak- ið mikla athygli erlendis og er þess skemmst að minnast að stærsta útgáfu- fyrirtæki heims, Random House, keypti réttinn á Grafarþögn og Mýrinni í Bret- landi nú í haust og á bókastefnunni í Frankfurt í október bitust norskir útgef- endur hart um réttinn á verkum hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.