Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
Islendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
■BB
95 ára____________
Ámi Kr. Hansson,
Digranesvegi 20, Kópavogi.
Laufey Stefðnsdóttlr frá
Munkaþverá,
Dvalarheimilinu Hlíö,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Maöur hennar var Baldur
Eiríksson skrifstofumaöur
sem er látinn. Laufey
býður ættingjum og vinum í kaffi
laugard. 7.12. í Hátíðarsalnum á Hlíð
kl. 15.00-17.00.
Ragnheiður Guöbrandsdóttir,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
80 ára________________________________
Axel Þór Friðriksson,
Sjávargötu 33, Njarövík.
María Magnúsdóttlr,
Eyrarvegi 8, Flateyri.
Sæmundur Jónsson,
Bjargi, Eskifirði.
75 ára________________________________
Ágústa Þórðardóttir,
Geitlandi 12, Reykjavík.
Björn Sveinsson,
Njarövíkurbraut 6, Njarövík.
Guðmundur Óli Ólafsson,
Reykjanesi, Selfossi.
70 ára________________________________
Erla Sigurvinsdóttlr,
Þangbakka lO, Reykjavík.
Halldór E. Ágústsson,
Ljósheimum 20, Reykjavík.
Þórmundur Þórmundsson,
Mánavegi 13, Selfossi.
60 ára________________________________
Einar Einarsson,
Ystaseli 30, Reykjavík.
Elín Jónsdóttir,
Hofteigi 19, Reykjavík.
Kristján Kristjánsson,
Bakkavegi 15, ísafiröi.
Rannvelg Alfreðsdóttir,
Lönguhlíð 7c, Akureyri.
90 ára
50 ára__________________________
Anna Dóra Guðmundsdóttir,
Skildinganesi 16, Reykjavík.
Einar Ólafsson,
Engimýri 14, Akureyri.
Guðmundur Magni Þorsteinsson,
Reykjafold 18, Reykjavík.
Haukur Jónsson,
Steinahliö 3a, Akureyri.
Helga Jónsdóttir,
Kleppsvegi 24, Reykjavík.
Hinrik Olsen,
Geröhömrum 12, Reykjavík.
Jakob Bjarnason,
Digranesvegi 80, Kópavogi.
Kristín V.A. Sveinsdóttir,
Reyðarkvísl 7, Reykjavík.
Matthildur S. Haligrímsdóttir,
Hjarðarhaga 48, Reykjavík.
Sigurjón Hreiðarsson,
Miðgaröi 1, Keflavík.
40 ára__________________________
Árni Sverrir Reynlsson,
Sólvöllum 1, Stokkseyri.
Erna Andreassen,
Njálsgötu 28, Reykjavík.
Friðgelr Rögnvaldsson,
Duggugerði 3, Kópaskeri.
Guðbjörn Guðmundsson,
Hólagötu 8, Vestmannaeyjum.
Sigrún Kærnested Óladóttir,
Baugholti 25, Keflavík.
Sigurður G. Krlstjánsson,
Botnahlíö 6, Seyðisfiröi.
l#
r~~: ~~~i
Aðventu-U 12V Sent í póstkröfi iíðiskrossar 34V j, sími 431 1464
Smáauglýsingar
550 5000
Jóhannes Bergsveinsson
yfirlæknir viö geðdeild Landspítala - háskólasjúkrahúss
Jóhannes Bergsveinsson, yflr-
læknir við geðdeild Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, áfengisdeild, Báru-
götu 35, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp i Vesturbænum. Auk
þess var hann mikið á sumrin að
Hvallátrum í Breiöafirði.
Jóhannes lauk stúdentsprófi frá
MR 1953, embættisprófi í læknis-
fræði frá HÍ 1962, stundaði sérfræði-
nám í geðlækningum við University
of London, Institute of Psychiatry
Maudsley Hospital 1964-66 og Stads-
hospitalet í Glostrup 1966-67.
Að loknu kandidatsnámi starfaði
Jóhannes við The Associated
Bethlehem Royal and Maudsley
Hospital í Lundúnum og Queen
Mary’s Hospital for Sick Children í
Carshalton í Bretlandi 1964-66;
Stadshospitalet í Glostrup, Vejle
Amts og Bys Sygehus og Odense
Amts og Bys sygehus í Danmörku
1966-68.
Jóhannes hefur verið geðiæknir
við Kleppsspítalann og geðdeild
Landspitalans frá ársbyrjun 1969 og
yfirlæknir sjúkradeilda ríkisins fyr-
ir drykkjusjúka frá 1975.
Jóhannes hefur verið stundakenn-
ari við HÍ frá 1971 og var stunda-
kennari við Hjúknmarskóla íslands
í geðlæknisfræði 1969-86.
Jóhannes átti sæti í Áfengisvarna-
ráði 1983-98, hefur sinnt ýmsum
nefndarstörfum og stjómarstörfum í
Geðlæknafélagi íslands.
Jóhannes hefur skrifað ýmsar
greinar í tímaritum um heilbrigðis-
og geðverndarmál.
Að undanskildum námstíma í
Bretlandi og Danmörku hefur Jó-
hannes lengst af búið í Vesturbæ
Reykjavíkur, norðanvert í Landa-
kotshæðinni.
Fertugur
Lýður Ámason heilsugæslulækn-
ir, Hrannargötu 2, Flateyri, er fer- ■
tugur i dag.
Starfsferill
Lýður fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og i Hafnarfirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MS 1982, útskrifað-
ist frá læknadeild HÍ 1990 og varð
sérfræðingur í heimilislækningum
1995.
Lýður hefur starfað sem hjúkrun-
arfræðingur og læknir víða um land
en varð yfirlæknir Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Flateyri 1996 og hef-
ur verið þar síðan.
Á námsárunum stofnaði hann
hljómsveitina Kartöflumýsnar til að
hafa eitthvað skapandi við að sýsla
með fram leiðinlegu námi og hafa
Mýsnar gefiö út tvo geisladiska.
Hann hefur um árabil verið forseti
Karlrembusamtakanna sem sendu
frá sér Karlrembuplötuna 1999 og
var henni ætlað að undirstrika mik-
ilvægi karlmennskunnar sem mjög
á undir högg að sækja.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 25.8.1956 Auði
Garðarsdóttur, f. i Reykjavik 21.5.
1934, húsmóður og fyrrv. skrifstofu-
manni við Tryggingastofnun ríkis-
ins. Foreldrar hennar vom Garðar
Jónsson, f. 6.11. 1898, d. 17.9. 1967,
sjómaður og verkstjóri hjá Skipaút-
gerð ríkisins, og k.h., Jóna Bjöms-
dóttir, f. 26.9. 1896, d. 29.3. 1966, hús-
móðir.
Böm Jóhannesar og Auðar eru
Jóhannes, f. 26.11. 1966, rafvirki og
verkstjóri hjá Öryggismiðstöð ís-
lands, búsettur í Kópavogi, en sonur
hans Aron Ingi, f. 30.5. 1999; Elín, f.
5.9. 1971, sjúkraliði, búsett í Kópa-
vogi, en maður hennar er Guðni
Jónsson, f. 22.11. 1969, vélvirki, og
eru börn þeirra Garðar Már, f. 11.6.
1995, og Helga Kristin, f. 21.7. 2002;
Bergsveinn, f. 5.9. 1971, blikksmið-
ur, búsettur í Mosfellsbæ, en kona
hans er Kristín Sólveig Kristjáns-
dóttir, f. 27.9. 1972, hjúkrunarfræð-
ingur og eru böm þeirra Auður
Agla, f. 26.10. 1992, og Jóhannes
Tumi, fæddur 6.11. 1999.
Systkini Jóhannesar: Ólafur Að-
alsteinn Bergsveinsson, f. 19.10.
1938, skipasmiður í Reykjavík, en
kona hans er Sjöfn Axelsdóttir, f.
5.6. 1945; Guðrún Lára Bergsveins-
dóttir, f. 15.4. 1940, röntgentæknir
við Landspítala - háskólasjúkrahús,
en maður hennar er Gylfi Jónsson,
f. 25.3. 1938, flugstjóri hjá Flugleið-
um.
Foreldrar Jóhannesar voru Berg-
sveinn Ólafsson, f. í Hvailátrum á
Breiðafiröi 25.8. 1901, d. 27.12. 1981,
augnlæknir í Reykjavík og varö
fyrsti yfirlæknir augndeildar
Landakotsspítalan er hún var stofn-
uð við 1969, og Elín Jóhannesdóttir,
f. á Seyðisfirði 16.6. 1909, d. 13.4.
1973, húsmóðir.
ÉÉF J
Lýður hefur látið kvikmyndagerð
til sín taka og stofnaði í félagi við
Jóakim Reynisson, kvikmyndafélag-
ið I einni sæng. Félagið hefur fram-
leitt þrjár stuttmyndir, Lausnina,
Einglyrnið og verðlaunamyndina
Ertu sannur? sem hlaut hin sam-
norrænu Panoramaverðlaun. Hæst
ber þó sjónvarpsmyndina í faðmi
Ætt
Bergsveinn var
sonur Ólafs, út-
vegsb. og skipa-
smiðs í Hvallátr-
um, Bergsveins-
sonar, smiðs í
Sviðnum og
Bjameyjum,
Ólafssonar, hag-
leiksmanns í
Sviðnum, Teits-
sonar. Móðir
Bergsveins smiðs
var Björg Eyjólfs-
dóttir, b. I Svefn-
eyjum, Einars-
sonar. Móðir
Ólafs skipasmiðs
var Ingveldur
Skúladóttir.
Móðir Berg-
sveins augnlæknis var Ólína Jó-
hanna Jónsdóttir, b. í Skógum í
Þorskafirði, Þórðarsonar, og Krist-
ínar Daníelsdóttur.
Elin var systir Lárusar, alþm. og
hæstaréttardómara, og Önnu, móð-
ur Matthíasar Johannessens skálds.
Elín var dóttir Jóhannesar, alþm. og
bæjarfógeta, Jóhannessonar sýslu-
manns Guðmundssonar, b. á Mikla-
hóli, bróður Halls, foður Sigurðar,
langafa Páls á Höflustöðum. Annar
bróðir Guðmundar var Jóhannes,
hreppstjóri í Hofsstaðaseli, afi Vil-
hjálms Stefánssonar landkönnuðar.
Guðmundur var sonur Jóns, b. á
Bjarnastöðum, Jónssonar, íjórð-
ungslæknis í Viðvík, Péturssonar.
Móðir Jóhannesar bæjarfógeta var
Maren Ragnheiður F. Lárusdóttir,
sýslumanns að Enni, Thorarensens,
Stefánssonar, amtmanns á Möðru-
völlum, Þórarinssonar, ættföður
Thorarensenættar, Jónssonar. Móð-
ir Lárusar var Ragnheiður Vigfús-
dóttir, sýslumanns á Víðivöllum,
hafsins sem var páskamynd ríkis-
sjónvarpsins 2002.
Lýður komst í kastljós fjölmiðla
þegar hann, ásamt Ólafi Ragnars-
syni skipstjóra, sótti um Flateyrar-
prestakall og vildi láta launin fyrir
það renna til fátækra. Áður höfðu
þeir félagar staðið fyrir frægri rokk-
messu í kirkjunni á staðnum og
náðu að tvífylla hana sama kvöldið
og hefur slíkt ekki gerst fyrr né síð-
ar. Síðar hefur þessi messa verið
flutt i ýmsum útgáfum víðar um
landið.
Lýður hlaut á dögunum kvik-
myndaverðlaun Önfirðingafélagsins
sem Þorfinnur Ómarsson afhenti
honum og kom þar fram að nú
liggja fyrir kvikmyndasjóði þrjú
kvikmyndahandrit eftir hann sem
bíða afgreiðslu. Nú síðast vann Lýð-
ur smásagnakeppni Þyrnirósarút-
gáfu með sögunni Fríið hennar
Nínu.
Ekki er haldin sú skemmtun á
Flateyri að Lýður og fjarbýliskona
hans, iris, komi þar nærri með
glens og gríni og kynna sig þá jafn-
an sem læknamafiuna.
Fjölskylda
Lýður er í fjarbúð frá 1997 með
Schevings. Móðir Marenar var Elín
Jakobsdóttir Hafstein, systir Péturs
Hafstein amtmanns, fóður Hannes-
ar ráðherra.
Móðir Elínar var Jósefina
Antónína, systir Haralds Blöndals
ljósmyndara, afa Halldórs alþingis-
forseta. Jósefma var dóttir Lárusar
Blöndals, amtmanns á Kornsá,
Bjömssonar Blöndals, ættfóður
Blöndalsættar Auðunssonar. Móðir
Jósefinu var Kristín, dóttir Ásgeirs,
dbrm og bókbindara á Lambastöð-
um á Álftanesi, bróður Jakobs,
langafa Vigdísar Finnbogadóttur,
en móðir Kristínar, Sigríður, var
systir Þuríðar, langömmu Vigdísar.
Sigríður var dóttir Þorvalds, pr. og
skálds í Holti, Böðvarssonar, pr. í
Holtaþingum, Högnasonar, presta-
fóður á Breiðabólstað.
Jóhannes og Auður taka á móti
gestum á afmælisdaginn kl.
16.00-19.00 í Kirkjuhvoli, safnaðar-
heimili Vídalinskirkju í Garðabæ.
írisi Sveinsdóttur, f. 8.11. 1967,
heilsugæslulækni í Bolungarvík.
Foreldrar hennar eru Sveinn M.
Sveinsson yfirlæknir og Guðrún Á.
Kristjánsdóttir, kaupkona á Selfoss
Böm Lýðs em Laufey, f. 7.7. 1993
en móðir hennar er Unnur Carls-
dóttir; Lovísa, f. 19.7. 1998 en móðir
hennar er íris Sveinsdóttir
Hálfsystkini Lýðs, samfeðra, eru
Amdís, f. 14.12. 1958, búsett í
Reykjavík; Jón Gauti, f. 1960, búsett-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Lýðs eru Ámi L. Jóns-
son, húsgagna- og söðlasmiður í
Hafnarfirði, og Margit Sofie Jóns-
son hjúkrunarfræðingur.
Ætt
Foreldrar Áma voru Jón Lýðs-
son, verkstjóri hjá Reykjavíkur-
höfn, og Guðrún Gísladóttir hús-
móðir.
Foreldrar Margit voru Martin
Henriksen múrarameistari og
Laura Sofie Henriksen húsmóðir.
Lýður verður með opið hús á
hinni landsþekktu knæpu, Vagnin-
um á Flateyri, frá kl. 21.00 að kvöldi
afmælisdags þar sem verður stuð og
stemma fram eftir öllu.
/
Lýður Arnason
heilsugæslulæknir á Flateyri
Merkir Islendingar
Rögnvaldur Ólafsson arkitekt fæddist í
Ytri-Húsum í Dýrafirði 5. desember
1874. Hann var sonur Ólafs Zakaríasson-
ar, bónda þar, og Veróníku Jónsdóttur
húsfreyju.
Rögnvaldur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið 1900
og stundaði nám í Det Tekniske Sel-
skabs Skole í Kaupmannahöfn
1901-1904. Þá sneri hann heim sökum
veikinda. Hann var ráðunautur rikis-
stjómarinnar um húsagerð frá 1904 og
til æviloka 1917 og er almennt talinn
fyrsti íslenski húsameistarinn.
Rögnvaldur er án efa einn merkasti ís-
lenski arkitektinn. Hann teiknaði mörg af
glæsilegustu timburhúsunum sem reist voru í
Rögnvaldur Á. Ólafsson
Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar, t.d.
nokkur við Tjarnargötuna og þar með tal-
inn Ráðherrabústaðinn. Þá teiknaði hann
tuminn á Bemhöftstorfunni við Amt-
mannsstig 1, Húsavíkurkirkju og kirkj-
una í Hjarðarholti í Dölum. Auk þess
er hann höfimdur að ýmsum svip-
mestu fyrstu steinhúsunum, s.s. Póst-
húsinu í Pósthússtræti, Vífilsstaða-
spítala og skólahúsum á Hvanneyri og
á Hólum. Mörg húsa Rögnvalds era
snilldarleg, íslensk útfærsla á Sveitser-
stíl og ný-klassík. Þá má sjá Mansard-
þök á sumum húsa hans, s.s. Pósthúsinu.
En það sem einkum einkennir persónuleg-
an stíl hans er afar næm tilfinning fyrir
hlutfoflum og vandaðar útfærslur.
Andlát
Andri Orn Clausen lést að morgni
þriðjud. 3.12.
Inga Guðriður Þorsteinsdóttir, Lönguhlíö
3, lést á lungnadeild Landspítalans
Fossvogi sunnud. 1.12.
Halldóra Sigfúsdóttir frá Steinsstööum í
Öxnadal, lést á dvalarheimilinu Hlíö,
Akureyri, laugard. 30.11.
Þórhildur Magnúsdóttir, Lyngmóum 1,
Garöabæ, lést á Landspítalanum
Fossvogi mánud. 2.12.
Steinunn Sveinsdóttlr lést á hjartadeild
Landspítalans þriöjud. 3.12.
Steinunn Arnórsdóttir, Hrisrima 25,
Reykjavík, lést laugard. 30.11.
Guðrún Pétursdóttir frá Vík í Mýrdal
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstööum mánud. 2.12.