Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Side 29
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
33
DV
M
agasm
œasssSÍ
Gefur út tónleikadisk með vinsælustu
lögum sínum í gegnum tíðina:
yjólfur
meö engan djass
„Ég tel mig vera betri lagahöf-
und en söngvara, þó ég geti líka
talist betri söngvari en margir
aðrir. Ella hefði ég ekki náð þeim
árangri í tónlistinni sem raunin
er. Almennt er ég líka nokkuð
sáttur við minn tónlistarferil og
ég lít á mig sem ósköp venjulegan
skallapoppara," segir Eyjólfur
Kristjánsson söngvari. Fyrir
skömmu kom út hjá Skífunni ný
geisladiskur hans sem ber heitið
Engan djass hér. Hann hélt sól-
ótónleika í Borgarleikhúsinu í
byrjun september, þar flutti hann
mörg sinna vinsælustu laga sem
þá voru hljóðrituð og eru gefin út
á þessum diski.
Viðamiklir tónleikar
Eyjólfur segist fyrst hafa skoð-
að að gefa út safnplötu með
nokkrum af vinsælustu lögunum
sem með honum hafa verið gefin
út í gegnum tíðina. Þau eru nær
sextíu talsins. „Ég komst hins
vegar að því að hljóðgæði margra
þessara laga væru ekki upp á
marga fiska og því væri betra að
byrja uppá nýtt og hljóðrita þau
aftur. Þannig kom til að ég hélt
þessa tónleika sem eru einhverjir
þeir viðamestu sem íslenskur
poppari hefur haldið," segir
Eyjólfur sem kvaddi hóp valin-
kunnra hljóðfæraleikara úr dæg-
urtónlistinni til liðs við sig, en
einnig strengjasveit.
Sjö gestasöngvarar komu fram
á tónleikunum og má úr þeim
hópi sérstaklega nefna Stefán
Hilmarsson. Saman hafa þeir
Eyjólfur víða komið saman á
undanförnum árum og sungið lög
Simon og Garfunkel enda eru
þeir félagar báðir miklir áhuga-
menn um lög þeirra kumpána.
Mörg af vinsælustu lögum
seinni ára er að finna á nýju plöt-
unni en þau hafa þá verið samin
og sungin af Eyjólfi. Má þarna
nefna Danska lagið, Dagcir, Álf-
heiður Björk, Ég lifi í draumi og
Draumur um Nínu. Tvö síðast-
nefndu lögin náðu á sinni tíð
raunar góðu flugi í Eurovision-
keppninni og fljúga reyndar enn.
Kvöldvakan fræga í
Kerlingarfjöllum
„Fyrr allmörgum árum var ég
að spila á gítar á kvöldvöku inni
í Kerlingarfjöllum þar sem ég var
skíðakennari í mörg sumur. Fé-
laga mínum þótti ég hins vegar
fara offari í gítarleiknum, taka of
mörg slög og hljóma. Hann bað
mig um að lægja dampinn og lét
fylgja aö hann vildi engan djass
hér. Síðan þá hefur þessi frasi
fylgt mér og þannig er nafn plöt-
unnar komið til,“ segir Eyjólfur
Kristjánsson að síðustu.
-sbs
„Eg lít á mlg sem ósköp venjulegan skallapoppara," segir Eyjólfur Kristjánsson
söngvari. A geisladisknum góöa eru lög sem hann hefur gert vinsæl m.a. í
söngvakeppnum, svo sem Draumur um Nínu og Eg lifi í draumi. Magasín-mynd: GVA
nCí/Æíi'Z'í ttínA h
ówÆM
DCS-303 kr.
;d-r/cd-rw/vcd/mp3/dvdr
ðog Diskant»Útvarp með
inngangur og IV inngangur*
ngur«Bassabox 13 x 36 x 36
,AMS»Stillin
TS/Prologii
gur«SuperV
cm»Bak- og Framhatalarar 11x15.5x76 cm«Miðjuháta!ari 20 x 11 x 76 cm
LETTGREIÐSLUR
í ÞRJÁ MÁNUÐI
HJÁ ORMSSON
NS-11 kr.
Geislaspilari • Utvarp • Magnari 110w RMS •
50 w djúpbassi • RCA inngangur •
Allar upplýsingar á kristalsskjá • Útvarp með
RDS og þrjátíu stöðva minni • Fullkomin
fjarstýring •
© ORMSSON
FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI 462 1300
<