Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Page 6
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
Fréttir
3E>"V"
Seðlabankamenn um lækkun stýrivaxta bankans:
Vaxtalækkun sein að
skila sér í vasa fólks
- Halldór J. Kristjánsson segir eðlilegt að verðtryggðir langtímavextir skili sér seinna
Enn ein vaxtalækkun stýrivaxta
Seðlabankans til viðskiptabanka
var tilkynnt fyrir helgi. Svo virðist
sem vísitala neysluverðs á síðasta
ársQórðungi 2002 verði minni en
bankinn reiknaði með og það hvet-
ur til vaxtalækkunar. Seðlabankinn
hefur hins vegar talið að vísitala
neysluverðs hafi á þessu ári van-
metið undirliggjandi verðbólgu.
„Áhrif þessarar vaxtalækkunar á
hagkerílð ráðast að verulegu leyti af
viðbrögðum langtímavaxta á
skuldabréfamarkaði og hjá lána-
stofnunum enda hafa þeir meiri
áhrif á einkaneyslu og fjárfestingu
en skammtímavextir,“ segir í frétt
frá Seðlabankanum. Birgir ísleifur
Gunnarsson aðalbankastjóri sagði í
gær að hjá bankanum þætti mönn-
um að viðskiptabankar lækkuðu
ekki vexti á verðtryggðum lánum
nægilega í takt við lækkanir á vöxt-
um á markaðnum.
Halidór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankands og formaður
samtaka viðskiptabankanna, segir
að rétt sé að taka fram og ítreka að
viðskiptabankarnir, þ.m.t. Lands-
bankinn, hafa fylgt fast eftir lækk-
unum á óverðtryggðum vöxtum í
bankakerfmu í takt við lækkun á
stýrivöxtum.
„Verðtryggðir langtimavextir
lúta hins vegar alfarið markaðslög-
málum. Bankarnir hafa ekki aðlag-
að langtíma verðtryggða vexti eins
hratt að þeim breytingum eins og á
skammtímavöxtum. Þetta er eðlileg
þróun þvi viðskiptabankarnir þurfa
að horfa til lengri tíma, m.a. að
kanna hvort sú lækkun sem fram er
komin er varanleg. Það er eðlilegt
að lengri tími líði frá því að mark-
DV-MYND GVA
Landsbankinn í jólaljósum
Þótt skiptar skoöanir séu um hvort vaxtalækkanir Seðlabankans skili sér nógu fljótt til almennings í gegnum vaxtakjör
viðskiptabankanna deilir enginn um að Landsbankinn er með á nótunum þegar kemur að því að skapa jólastemningu
í Austurstræti eins og myndin ber með sér.
aðsvextimir þokist niður á við þar
til gjaldskrá bankanna varðandi
langtíma verðtryggða vexti fylgja
eftir. Það má því taka undir það hjá
Seðlabankastjóra að aðlögun bank-
anna að lækkandi vaxtastigi verð-
tryggðra langtímavaxta hefur verið
eitthvað hægari en varðandi
skammtímavextina,“ sagði Halldór
J. Kristjánsson.
Halldór segir að á nokkrum tíma
muni þetta ástand leita jafnvægis og
fullyrðir að almenningur hafi notið
og muni njóta vaxtalækkana í full-
um mæli. -JBP
HM unglinga í skák:
Davíö vann í 8. umferö
Davíð Kjartansson sigraði ind-
verska skákmanninn, R. Naveen í 8.
umferð heimsmeistaramóts unglinga,
20 ára og yngri, sem teíld var í gær-
morgun. Davíð hefur 4 vinninga og
er í 38.-56. sæti. Stefán Kristjánsson
þótti óheppinn að tapa fyrir ind-
verska stórmeistaranum, P. Hari-
krishna í rúmlega 100 leikja skák
þar. Stefán hefur 5 vinninga og er
13.-23. sæti.
Efstir eru armenski stórmeistara-
inn, Levon Aronian, Harikrishna,
enski stórmeistarinn Luke McShane
og rússneski alþjóðlegi meistarinn
Artyom Timofeev með 6 vinninga.
Tilboð
Tilboð
Tilboð
Ódýrir
pallettutjakkar
Tilboðið gildir út
desember, eða meðan
birgðir endast.
Standard
kr 28.573,- m/vsk
Galvaniseraður kr 72.808,- m/vsk
Langur(180 cm) kr 52.260,- m/vsk
/í_ytt'9eta ■
\ 2000 kg/
Y KRAFTVÉIAR
Dalvegur 6-8 ■ 200 Kópavogur • Sími 535 3500 ■ Fax 535 3509 ■ www.kraftvelar.is
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Metstelpur í fiskinum
Þær slá ekki slöku við, stúlkurnar í lausfrystingunni hjá FISK á Sauðárkróki,
enda eru hagur fyrirtækisins góður. Forstjóri þeirra segir þær bera skarðan
hlut frá borði miðað viö sjómenn.
Metafkoma hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi:
Landverkafólk ber
skaröan hlut frá borði
- mun meiri launahækkanir til sjómanna
„Það árar ekki til skamma,“ sagði
Stefán Gestsson, fundarstjóri á aðal-
fundi Fiskiðjunnar Skagfirðings á
fimmtudag, en metútkoma varð á
rekstri Fiskiðjunnar Skagfirðings á
síðasta ári, 286,370 milljóna hagnað-
ur í stað 53,370 milljóna árið á und-
an.
Fram kom bæði í máli Jón E. Frið-
rikssonar framkvæmdastjóra og Þór-
ólfs Gíslasonar stjórnarformanns að
árið hefði verið hagfellt rekstri fyrir-
tæksins, bæði hvað veiðar, vinnslu
og gengismál varðar. Jón E. Frið-
riksson sagði að það stöðuga gengi
sem verið hefði síðasta árið væri
FISK hagstætt, bæði með tilliti til
markaðanna og þess að fyrirtækið
væri tiltölulega lítið skuldsett miðað
við önnur sjávarútvegsfyrirtæki.
Framkvæmdastjórinn fór nokkuð
vitt um völl í skýrslu sinni og ræðu
og dró ekki dul á að honum fyndist
ekki sanngjarnt hvernig arði vinn-
unnar er skipt. Landverkafólk beri
þar skarðan hlut frá borði miðað við
sjómennina og nefndi hann því til
• staðfestingar mun meiri launahækk-
anir þeirra síðarnefndu á liðnu ári.
Þá gagnrýndi Jón auðlindagjald, sem
hann telur hreinan landsbyggða-
skatt, og fram kom í máli hans að
hann teldi stofnanir sjávárútvegsins
betur komnar úti á landi til að
minnka kostnað, auka skilvirkni og
samstarf í greininni. -ÞÁ.
jV'j/ 'og s&'&t&U
RÉYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síödegisflóö
Árdegisflóö á morgun
15.30
11.18
16.37
04.59
14.47
11.30
21.10
08.32
Vetrarlegra fyrir norðan
Slydda eða él norðvestan til nálægt
hádegi en fremur hæg vestlæg átt
og léttir smám saman til
austanlands síðdegis. Kólnar í veðri,
hiti 0 til 7 stig á morgun, hlýjast
suöaustan til.
>íi WLifgiln
v v<S
Milt veöur
Sunnan.5-10 m/s og smáskúrir
suðvestan- og vestantil, en annars
hægari, skýjað með köflum og
úrkomulítið. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast
við suöurströndina.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
HHÍO' Kiti 0° Hiti 0°
til 8° til 7° til 5°
Vtndur Vindur; Vindur:
5-10 m/s 5-10 3-8">/8
1" 7! 71
Sunnan 5-10 Suövestan Hæg breytl-
m/s og smá- 5-10 m/s og leg átt, rign-
skúrir SV- og rignlng meö Ing eöa
V til en ann- kóflum, síst slydda
ars hægari. þó á Austur- noröan og
Skýjaö meö landl. Hltl vestan til,
köflum. Hltl breytlst lítlö. léttlr tli SA-
0-8 stig. lands. Lítiö
■-•: í .1 eitt kólnandl.
f :
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
m
AKUREYRI skýjað 5
BERGSSTAÐIR skýjað 6
BOLUNGARVÍK rigning 5
EGILSSTAÐIR léttskýjað i 1
KEFLAVÍK alskýjað 8
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 4
RAUFARHOFN hálfskýjað 3
REYKJAVÍK rigning 8
STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 7
BERGEN skýjað 2
HELSINKI alskýjað -1
KAUPMANNAHOFN alskýjað 0
OSLO skýjað -4
STOKKHOLMUR -2
ÞÓRSHÖFN léttskýjað 5
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað -10
ALGARVE þokumóða 14
AMSTERDAM alskýjað 3
BARCELONA skýjað 15
BERLÍN alskýjað -4
CHICAGO heiöskírt 2
DUBLIN rigning 5
HALIFAX skúr 6
HAMBORG mistur -3
FRANKFURT rigning og súld 1
JAN MAYEN þokumóöa 3
LONDON rigning og súld 7
LÚXEMBORG þoka 3
MALLORCA léttskýjað 17
MONTREAL alskýjaö -1
NARSSARSSUAQ skýjað -6
NEW YORK skýjaö 6
ORLANDO alskýjað 6
PARÍS rigning 10
VÍN snjókoma -2
WASHINGTON léttskýjað 3
WINNIPEG alskýjaö -1
■ITVFJtl.VÍLÍYE