Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 4
4
Fréttir
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2002
Ökuskóunn í Mjódd ehf.
óskar viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum
gleðilegs árs og farsældar á nýju ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
SÍmi 567 0300
Ökuskólinn í Mjódd
Þarabakka 3 -109 Re^
S. 567 0300 - mjodd@bilprof.is
<Ú)
• •
OKU
5KOMNN
I MJODD
ENDURSÝNINGAR?
BONUSVIDEO
Leigan í þínu hverfi
Reykjavíkurlistinn á bláþræði fram eftir gærdeginum:
Mögnuð rás atburða
Mörgum sem fylgdust með at-
burðarásinni í kringum Reykjavík-
urlistann í gær - fréttamönnum
jafnt sem stjórnmálamönnum - varð
á orði að þeir hefðu sjaldan eða
aldrei orðið vitni að öðru eins. Það
gekk mikið á.
Klukkan tvö eftir hádegi settust
oddvitar R-listans, borgarstjóri og
forystumenn flokkanna þriggja í
borgarstjóm, á fund til þess að ræða
tillögu borgarstjóra um sættir í mál-
inu. Það sem þá lá fyrir var að borg-
arstjóri hafði fyrir helgi hafnað til-
boði Framsóknar um að Árni Þór
Sigurðsson tæki við af henni; hún
hafði boðið á móti að hún tæki sér
tímabundið leyfi en Framsókn hafn-
aði því og sagði fyrra tilboð vera
lokatilboð. Það stefhdi því í að R-
listanum yrði slitið um helgina.
Á fundinum í gær féllst Ingibjörg
Sólrún á að hverfa úr embætti og
lagði til að fenginn yrði ópólitískur
borgarstjóri; Þórólfur Árnason. Al-
freð Þorsteinsson féllst þegar á til-
löguna enda mun honum ekki hafa
verið ókunnugt um hana fyrir firnd-
inn. Þeir Ámi Þór Sigurðsson og
Stefán Jón Hafstein sögðust hins
vegar þurfa tíma til að ræða hana
við sitt fólk.
Heldur þungt var í Alfreð Þor-
steinssyni eftir fundinn; hann sagði
í viðtaii við fréttastofu Útvarps í
kjölfarið að Samfylking og Vinstri-
grænir hefðu ekki séð sér fært að
samþykkja tillögu borgarstjóra og
því gæti allt eins komið til greina að
framsóknarmenn ákvæðu á fundi,
sem hefjast átti klukkan fimm, að
slíta samstarfmu um R-listann og
mynda nýjan meirihluta með Sjálf-
stæðisflokknum.
Flokkarnir þrír settust í kjölfarið
á fundi hver í sínu lagi; framsóknar-
menn í höfuðstöðvum sínum við
Hverfisgötu. Ekki leið á löngu áður
en þangað komu á harðahlaupum
tveir óháðir R-listamenn, þau Dagur
B. Eggertsson læknir og séra Jóna
Hrönn Bolladóttir, til þess að bera
þau boð inn á fund Framsóknar að
Vinstri-grænir og Samfylkingin
væru reiðubúin að ræða tillögu
borgarstjóra.
Framsóknarmenn funduðu áfram
góða stund en ákváðu síðan að gera
hlé og fóru fram á að þegar yrði
skotið á öðrum fundi oddvita flokk-
anna í Ráðhúsinu. Þegar þangað
kom var engu líkara en kosninga-
sjónvarp eöa álíka umstang stæði
fyrir dyrum því ekki varö þverfótað
fyrir stjómmála- og fréttamönnum
og hver beina útsendingin rak aðra.
Árni Þór og Stefán Jón sögðu al-
rangt að þeir hefðu fyrr um daginn
hafiiað tillögu borgarstjóra en Alfreð
Megum við komast að?
Þau Björn Ingi Hrafnsson og Anna Kristínsdöttir voru ekki á því aö hleypa
séra Jónu Hrönn Bolladóttur og Degi B. Eggertssyni umsvifalaust inn á
lokaöan fund Framsóknarflokksins í gær. Þau síðarnefndu vildu koma í veg
fyrir aö Framsókn slití R-listasamstarfinu án þess aö vita um sáttahug
Samfylkingar og Vinstri-grænna.
Þröngt mega sáttir ...
Þeir Alfreö Þorsteinsson og Árni Þór Sigurðsson halda hér til fundar meö
borgarstjóra eftir aö Framsókn haföi gert hlé á fundum sínum. Húsvöröur
Ráöhússins átti fullt í fangi meö aö bægja fréttamönnum fré.
sagðist kominn í Ráðhúsið til að fá
skýr svör um afstöðu þeirra. Auð-
heyrt var að Framsókn var ekki til-
búin í langar viðræður heldur vildi
útkljá málið fyrir kvöldið og engar
refjar. Við svo búið sluppu þeir þre-
menningar við illan leik undan að-
gangshörðum fréttamönnum inn í
lyftu og héldu á fund borgarstjóra.
Þegar ein beina útsendingin í and-
dyrinu á hæðinni fyrir neðan - þátt-
urinn ísland í dag - stóð sem hæst,
kom Árni Þór Sigurðsson niður af
fundinum og tilkynnti fréttamönnum
að samkomulag hefði náðst. Borgar-
stjóri fylgdi í kjölfarið og greindi frá
efni samkomulagsins. Það var svo
endanlega staðfest á tilfinninga-
þrungnum fundi borgarstjórnar-
flokks R-listans i kjölfarið. -ÓTG
Alfreö mætir í Ráöhúsiö eftir fund
Framsóknar og segist vilja skýr svör
um afstööu samstarfsflokkanna.
~TT
Áramótabrennur 2002
Valhúsahæð kl. 21.00
Æglsíða kl. 20.30
Skerjafjöröur kl. 20.30
Kjalames
Kléberg kl. 20.30
GuftJnes kl. 20.30
Mosfellsbær
Laugarásvegur kl. 20.30 Ullarnesbrekka kl. 20.30
Wj Æ
Suðurhlíðar Id. 20.30
Geirsnef kl. 20.30
'PM
Fylklsvöllur kl. 20.30
Kópavogur ÚHarsfell H. 20.30
Dalsmárl kl. 20.30
Bessastaðahr.
Gesthús kl. 20.30
Suðurfell kl. 20.30
m
Lelrubakkl kl. 20.30
Hafnarflörður
Ásvelllr kl. 20. 00
Garðabær
Arnarneshæö kl. 20.30
- Lögregtan haftl veltt leyfí
tyrir þessum bronnum i
höfubborgarsvæölnu
28. desember sI.
E53
Lögreglan hefur gefiö leyfi fyrir 17 brennum á höfuðborgarsvæðinu um áramótin en brennurnar verða Jafnmargar og
í fyrra. Kveikt verður í flestum brennum um klukkan hálfníu, nema þeirri í Hafnarfirði. Kveikt verður í hennl klukkan
átta. Lögreglan blður fólk um að fara varlega og bendir á að notkun hlífðargleraugna sé æskileg, bæði við bálin
sem og þegar skotið er upp flugeldum.