Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 11
Skráning Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi Þann 20. desember sl. hófust viðskipti með hlutabréf Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Söguleg þáttaskil í rekstri félagsins eru orðin að veruleika og um leið markar skráningin tímamót í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði. Kaupþing er eina íslenska félagið sem skráð er samhliða á íslenskum og erlendum verðbréfamarkaði og í samþykki sænska fjármálaeftirlitsins felst viðurkenning á íslenska verðbréfamarkaðnum og þeim fyrirtækjum sem þar eru skráð. Eftir mikið uppbyggingarstarf í tuttugu ár hefur Kaupþing fært út kvíarnar og gert Norðurlöndin að heimamarkaði sínum. Eftir kaupin á verðbréfafyrirtækinu Aragon og síðan sænska bankanum DP Nordiska starfar Kaupþing nú sem norrænn fjárfestingarbanki. Auk reksturs í Lúxemborg, Genf og New York er félagið með starfsemi í fimm borgum á Norðurlöndum: Reykjavík, Kaupmannahöfn, Helsinki, Þórshöfn og Stokkhólmi og stefnan er óhikað sett á frekari landvinninga á þeim vettvangi. Markaðsvirði félaga á sænska hlutabréfamarkaðnum er um 40% af heildarvirði félaga á norrænum markaði. Samanlögð verðmæti félaga á íslenska hlutabréfamarkaðnum eru um 1,4% af norræna markaðnum og Kaupþing tekur sér nú stöðu á meðal tæplega 300 fyrirtækja sem þar eru skráð. Eftir innkomu Kaupþings á sænskan markað er um fjórðungur félagsins í erlendu eignarhaldi, starfsfólki hefur fjölgað um ríflega tvö hundruð og gert er ráð fyrir að um 70% af tekjum Kaupþings komi frá starfseminni erlendis. Markaðsvirði félagsins þann 18. desember sl. var um 27,3 milljarðar íslenskra króna og samkvæmt níu mánaða uppgjöri er eigið fé tæplega 18 milljarðar og heildareignir 218 milljarðar íslenskra króna. Með kaupum á DP Nordiska fjölgar hluthöfum Kaupþings um rúmlega sex þúsund og eru þeir nú um sautján þúsund. Heildarfjöldi starfsmanna er um 560 og af þeim eru yfir 300 starfandi á erlendum vettvangi. Hin trausta undirstaða útrásar Kaupþings felst í samhentum hópi starfsfólks og einstöku samstarfi við stóran hóp íslenskra viðskiptamanna. Mikil þekking og reynsla hefur safnast upp á undanförnum árum og í krafti hennar verður haldið áfram á sömu braut með hagsmuni hluthafa og viðskiptavina að leiðarljósi. KAUPÞING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.