Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Qupperneq 32
Miklir möguteikar gervihnattasjónvarpsins bjóöa upp á fjöibreytta dagskrá Verðfrá 39.900, OREIND 5QT) m Auteí<ns3 ■ Kísa«9Uf áorS«166C- Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz (jH) - Loforð er loforð MANUDAGUR 30. DESEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Þórólfur Árnason nýr borgarstjóri: Halldór átti hugmyndina Heimildarmenn DV innan úr Samfylkingunni og Framsóknar- flokknum hafa staðfest að Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins, hafi átt hugmyndina að því að Þórólfur Árnason, fyrrver- andi forstjóri Tals hf., tæki við sem nýr borgarstjóri Reykjavíkurlist- ans. Hugmyndinni mun hafa verið komið á framfæri við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í fyrradag. í því sambandi má benda á að bróð- ir Þórólfs er Árni Páll Ámason lög- 4 •maður, en hann er einn af trúnaðar- mönnum og ráðgjöfum Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylk- ingarinnar, og nýtur jafnframt mikils trausts hjá Halldóri Ásgrímssyni. „Hrófatildur" „Þetta hefur verið mikill hráskinna- leikur um málefni Reykjavíkurborg- ar,“ segir Bjöm Bjamason oddviti sjálfstæðismanna um niðurstöðu R- listans í gær. „Að ekki varð sámstaða um neinn borgarfulltrúa sem eftir- < '♦mann hennar innan R-listans endur- speglar trúnaðarbrest á milli manna þar á bæ. Valið á manni utan borgar- stjómar til að gegna embætti borgar- stjóra stangast á við það grandvallar- markmið R-listans að haga samstarfi vinstri manna í borgarstjóm með öðr- um hætti en á áranum 1978 tU 1982. Engir hafa raunar kveðið fastar að orði í gagnrýni sinni á slíka skipan en einmitt talsmenn R-listans. Ljóst er að ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar um þingframboð fyrir Samfylkinguna splundraði R-listasamstarfi og á rúst- um þess hefur risið pólitískt hrófatUd- ur,“ segir Bjöm Bjamason. -ÓTG Engin slys enn Engin slys sem rekja má tU flug- elda hafa orðið enn sem komið er, samkvæmt upplýsingum frá slysa- deUd Landspítalans. Læknar segjast þó búast við öUu þar sem slysin gera ekki boð á undan sér. Lögreglan vill enn fremur hvetja foreldra ung- menna að hafa sérstakt eftirlit með afkvæmum sínum á næstu dögum svo þau fari sér ekki að voða. -vig ÍFRETTASKOTIÐ SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt. hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV. greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 VAR ÞA EKKERT PUÐUR I R-LISTANUM? Árni Páll, sem er 36 ára, var sterklega orðaður við framboð í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík í vetur og er vonar- stjarna margra I flokknum. Jón Baldvin Hannibalsson skipaði hann á sínum tima til trúnaðar- starfa fyrir íslands hönd í Brussel, hann hefur sérþekkingu á Evrópu- málum og skrifaði m.a. kaflann um utanríkismál í Evrópuúttekt Sam- fylkingarinnar. Á sama tíma hefur hann trúnað Framsóknarflokksins og hefur með- al annars setið í bankaráði Búnað- arbankans með stuðningi flokksins. Þá mun lögfræðistofa hans hafa unniö fjölmörg verkefni fyrir utan- ríkisráðuneytið og hann sjálfur hafa verið Halldóri Ásgrimssyni til ráð- gjafar í Evrópumálum. -ÓTG DV-MYND E.ÓL Farin fyrir fuilt og allt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilkynnti fjölmiölum I gærkvöld aö hún léti ekki kúga sig til aö hætta viö framboö til Alþingis, en þar sem henni heföi veriö stillt upþ viö vegg í málinu heföi hún fallist á aö láta af starfi borgarstjóra. Útilokaö væri aö hún tæki viö því aftur aö loknum þingkosningum. Nýr borgarstjóri tekur væntanlega við 1. febrúar: Þetta er auðvitað spennandi verkefni - segir Þórólfur Árnason, fyrrverandi Tal-forstjóri Þórólfur Árnason. Þórólfur Árna- son, fyrrverandi forstjóri Tals, mun taka við starfi borgar- stjóra af Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur þann 1. febrúar ef samningar við hann ganga eft- ir. Atburðarásin hefur verið afar hröð síðustu sól- arhringa en síðdegis í gær var stíft fundað og ljóst að R-listasamstarf- ið hékk þá á bláþræði. „Þaö var ekki talað við mig um þetta fyrr en um hádegi í gær (laugardag) er Ingibjörg Sólrún hafði samband. Síðan hefur þetta undið hratt upp á sig. Maður var síðan í símanum meira og minna á meðan þetta mótaðist. Þetta er auðvitað gert til að verja meiri- hlutasamstarfið. Ég tel aö það sé bara af hinu góða ef talið er að ég geti gert eitthvað til þess,“ sagði Þórólfur Árnason í samtali við DV á níunda tímanum í gærkvöld. - Ert þú endanlega laus undan störfum fyrir Tal? „Já, ég hætti þar í lok nóvember og það er allt í góðu og frágengið." - Hvernig leggst þá í þig að taka við stöðu borgarstjóra í Reykja- vík? „Þetta er auðvitað spennandi verkefni. Ef þetta er ekki stærsta fyrirtæki landsins, þá er þetta með þeim stærri og flóknari sem gerast í rekstri og stjórnun. Ég hef talið mig vera fagmann í því og hef áhuga á slíku og þetta er bara nýtt svið að kljást við. Ég hef alltaf haft gaman af að vinna með fólki og vona bara að þetta nýtist Reykvík- ingum vel.“ - Eru þá fundir með R-listafólki fram undan? „Ég veit i raun ekkert meira um þaö en Ingibjörg hefur þegar sagt um að ræða við mig. Ég ætla ekkert að skorast úr leik með að tala við þau og allavega skoða þetta.“ -HKr. DV-Sport: Ólafur íþrótta- maður ársins Olafur Stefánsson. Ólafur Stef- ánsson, lands- liðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska liðsins Magdebúrg, . er íþróttamaður ársins 2002 á DV-Sport. Árið hefur verið ein- staklega gott hjá Ólafi sem segir að útnefning DV- Sports væri mikill heiður fyrir sig. Ólafur var valinn besti leikmað- ur þýsku úrvalsdeildarinnar í vor. Hann varð markahæsti leikmaður á EM í Svíþjóð og valinn í úr- valslið mótsins. Ólafur varð síðan Evrópumeistari með Magdeburg. Viðtal er við Ólaf Stefánsson í DV-Sporti í dag en hann kemur heim dag og hefur undirbúning með íslenska landsliðinu fyrir HM í Portúgal. -JKS Formaður uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar: lllgerlegt að bjoða betur Páll Halldórsson. „Menn komust með ærinni fyrir- höfn inn í átta efstu sæti í próf- kjöri og það er ekki auðvelt mál að rífa það upp,“ segir Páll Hall- dórsson, formað- ur uppstillingar- nefndar Samfylk- aðspurður um það, Ögmundsdóttir fengu hins vegar ekki bindandi kosningu ofar á list- anum. Tæknilega er uppstillingar- nefnd því heimilt að bjóða öðrum eitt þessara sæta. „Ég tel að það sé illgjörlegt og á ekki von á það verði gert,“ segir Páll, aðspurður hvort hann geti úti- lokað að þetta verði gert. Sjálf segist Ingibjörg Sólrún ekki gera ráð fyrir að verða ofar á listan- um en í fimmta sæti. -ÓTG otíier jneíliíuélij] fyrir fagmenn og fyrlrtæKI, helmili og skólð, fyrir röð oy reglu, mlg ogþlg. | nýbgiaoegl 14 • slml S54 4443 • If.is/rafport íngarmnar, hvort til greina komi að bjóða Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur sæti ofar á lista flokksins en í fimmta sæti, í Ijósi þess að hún hafi nú fómað borgarstjórastólnum fyrir þingfram- boð. Samfylkingin þyrfti sem kunn- ugt er að bæta verulega við sig fylgi í Reykjavík til að koma fimm þing- mönnum að í norðurkjördæminu. Þeir Helgi Hjörvar og Ágúst Ólaf- ur Ágústsson fengu bindandi kosn- ingu í 7. og 8. sæti í prófkjörinu, en Bryndís Hlöðversdóttir, Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir og Guðrún Stefán Jón sáttur SECURITAS Stefán Jón Hafstein. „Fyrir mig per- sónulega er það mikil sorgar- stund að Ingi- björg Sólrún skuli nú segja af sér,“ segir Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylk- ingarinnar í borgarstjómar- flokki Reykjavík- segir að fundur urlistans. Hann borgarstjórnarflokksins í gærkvöld, þar sem niðurstaðan var samþykkt einróma, hafi verið tilfmninga- þrunginn. Ákvörðun Ingibjargar að velja heldur þingframboð en borgar- stjórastólinn veldur honum þó ekki vonbrigðum. „Ég styð hana eindreg- ið í þessari ákvörðun. Það hefði ein- faldlega verið út úr hennar karakt- er að láta beygja sig og reka sig aft- ur með þessa tiltölulega léttvægu ákvörðun, sem þó reynist gríðarlega stór. Nú er hún komin í landsmálin og hefur frjálsar hendur. Hún er frjáls og á sig sjálf," segir Stefán Jón. -ÓTG VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is E!NN EINN TVEIR LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.