Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003
DV
10
Fréttir
Banar eiginkonu
og tveim dætrum
Það voru hörmulegar fréttir sem
biðu 21 árs stúlku í Haugasundi í Nor-
egi á mánudag þar sem hún beið milli
vonar og ótta frétta af íjölskyldu sinni
í Sveio á Hörðalandi. Hringt hafði ver-
ið í hana fyrr um daginn þar sem fjöl-
fótluð systir hennar, 12 ára, hafði ekki
mætt í skóla þá um morguninn og eng-
inn hafði svarað í síma heima hjá
henni. Við nánari eftirgrennslan kunn-
ingjafólks kom í ljós að öll fjölskylda
hennar var látin. Aðstæður á vettvangi
bentu til þess að faðirinn hefði myrt
móður hennar og tvær systur, 12 og 18
ára, og svipt sig síöan lífi með riffli.
Skyndilega stóö hún uppi án fjöl-
skyldu. En sú staðreynd að hún hafði
flutt að heiman í október síöastliðnum
varð henni til lífs.
Almenningur í Noregi er felmtri
sleginn og stendur skilningsvana
frammi fyrir þeirri staðreynd að heil
fjölskylda skyldi fmnast látin á heimili
sínu i Sveio á Hörðalandi á mánudag.
Ekki er vitað hvenær þessi harmleikur
átti sér stað. Ekkert sást til fjölskyld-
unnar og hallast menn helst að því að
hörmungamar hafi orðið um helgina.
Lögregla er engu nær um ástæður
verknaðarins og segir menn standa
skilningsvana frammi fyrir þessum
ósköpum. Nánari upplýsingar um til-
drög morðanna er ekki að fá sem
stendur en líkin fundust hvert á sínum
stað í húsinu.
Mætti ekki í skóla
Grunsemdir vöknuðu um það á
mánudag að ekki væri allt með felldu
hjá fjölskyldunni. Yngsta dóttirin, sem
er fjölfótluð og I hjólastól, hafði ekki
mætt í skólann þá um morguninn. Það
þótti í hæsta máta óvenjulegt en hún
missti aldrei úr dag í skóla og foreldr-
amir taldir reglufólk. Hringt var heim
til hennar en þar svaraði enginn. Þeg-
ar leið á daginn fóru kennarar og
skólastjóri að ókyrrast. Óttast var að
eitthvað hefði komið fyrir. Eftir árang-
urslausar hringingar á heimilið var
haft samband við elstu dótturina. Fór
svo að kunningjafólk fór að heimili
fjölskyldunnar, vinalegu einbýlishúsi.
Þar svaraði enginn. Ekkert lífsmark
var í húsinu og allt læst. Þá fann mað-
ur opinn glugga á húsinu og komst
þannig inn. Við blasti sjón sem hann
vill öragglega reyna að gleyma sem
fyrst en hefur skekið fjölmiðla i Noregi
síðustu daga. Heil íjölskylda lá í valn-
um eftir harmleik sem enginn skilur.
Engin skilaboð var að frnna í húsinu
né nokkuð sem varpað gæti ljósi á
hina voveiflegu atburði en lögreglan
vinnur ötullega að rannsókn þess. Þar
á bæ er litið á málið sem fjölskyldu-
harmleik. Nær útilokað þykir að utan-
aðkomandi hafi átt þar hlut að máli.
Atvinnulaus frá i sumar
Fjölskyldufaðirinn, Oddvard Stölen,
hafði verið til sjós í mörg ár, síöast
skipstjóri á fragtskipi. Skipinu var lagt
í sumar sem leið vegna verkefnaskorts
og var hann atvinnulaus upp frá því.
Oddvard Stölen hafði kvartað yfir lé-
legu heilsufari siðustu misseri, eink-
um bakverkjum, en þótti annars áreið-
anlegur í vinnu, viðkunnanlegur og
geðprúður í alla staði.
Vinnuveitandinn gaf honum sín
bestu meðmæli í samtali við norska
fjölmiðla. Hann sagði Oddvard Stölen
hafa verið fyrsta flokks sjómann. Sagði
fyrrverandi vinnuveitandi enn fremur
að hann hefði spurst fyrir um vinnu
undanfarið en ekkert var að hafa.
Hefði hann orðið sá fyrsti til að fá
vinnu um borð hefði skipið hafið sigl-
ingar á ný.