Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003
DV
n
Fréttir
Nágrannar fjölskyldunnar taka í
sama streng og lýsa fjölskyldunni sem
ósköp venjulegri fjölskyldu sem lifði
reglusömu og rólegu fjölskyldulífi.
Fjölskyldufaðirinn þótti húslegur og
afar viðfelldinn maður, iðinn við ails
kyns vinnu, bæði inni og úti, og sér-
lega bóngóður ef nágrannana vantaði
aðstoð.
„Hann var svolítið farinn að gefa eft-
ir líkamlega en geðslagið var gott,“
sagði einn nágranna við norska blaðið
Verdens Gang. „Hann fór mikið á veið-
ar, hjálpaði nágrönnum að höggva í
eldinn og var fyrirmyndamágranni í
aila staði. Hvers manns hugijúfi"
Húsmóðurinni er lýst sem hæglátri
en viðfelldinni konu sem þótti þægileg
í umgengni. Hún átti húsið sem íjöl-
skyldan bjó í en það var reist á lóð sem
var í eigu fjölskyldu hennar. Hún hafði
orðið fýrir áfalli fýrir nokkrum árum
þegar faðir hennar og bróðir drukkn-
uðu þegar ís á firðinum nærri heimili
þeirra gaf sig. Þótti hún bera harm
sinn vel en var annars fámál um þá at-
buröi.
Nágrannar fjölskyldunnar eru
harmi slegnir og skilja engan veginn
hvemig þetta gat gerst. Þessi atburður
kórónar heldur válegar fyrstu vikur
þessa árs en samtals hafa 11 manndráp
átt sér stað í Noregi frá áramótum.
Verdens Gang/hlh
Válegur janúar:
11 manndráp
1. janúar
Sómalskur maður fmnst myrtur i
snjónum fyrir utan flóttamannamið-
stöð í Nesna. Flóttamaður frá Ge-
orgíu er handtekinn, grunaður um
verknaðinn.
3. janúar
Maður skotinn og myrtur í Roa.
Húsráðandi, þar sem hinn myrti
var staddur, segist hafa skotið vin
sinn í sjálfsvöm. Maðurinn er
ákærður fyrir manndráp.
10. janúar
Rúmlega þrítugur maður skýtur
rússneska eiginkonu sína til bana í
ibúð þeirra í Tromsö. Tvö börn
þeirra, 13 og 16 ára, voru heima þeg-
ar þetta gerðist.
11. janúar
Tæplega þrítugur sómalskur
maður ræðst á fyrrverandi eigin-
konu og tvö börn, 2 ára og 8 mán-
aða, með hnífi. Þau létust af sárum
sínum.
18. janúar
43 ára gömul kona deyr á leiðinni
á sjúkrahús í Ósló af völdum aivar-
legra höfuðáverka. Sambýlismaður
hennar hringdi og gerði lögreglu
viðvart. Hann var undir miklum
áhrifum fíkniefna og hefur verið
ákærðm- fyrir manndráp.
20. janúar
Hjón og tvö böm þeirra finnast
látin í einbýlishúsi í Sveio á Hörða-
landi. Fjölskylduharmleikur, segir
lögregla, en svo virðist sem eigin-
maðurinn hafi myrt konuna og síð-
an svipt sig lífí.
20. janúar
Par á þrítugsaldri finnst látið í
íbúð í Bodö. Fólkið lést af skotsár-
um en lögregla telur ekki að utanað-
komandi hafi veriö að verki.
20. janúar
Maður hringir í lögregluna í
Vennesla og segist hafa orðið fyrir
skotárás tveggja manna. Maðurinn
var fluttur ilia haldinn í sjúkrahús
en nær sér væntanlega af sárum
sínum. -hlh
Vopn, samvistarslit, áfengi og karlmenn:
Banvæn
blanda
Paul Leer-Salvesen, prófessor í fé-
lagsfræði við háskólann í Agder í
Noregi, segir í viðtali við norska blað-
ið Verdens Gang að samverkandi
þættir eins og vopn, samvistarslit,
áfengi og karlmenn geti stofnað lif og
limum fólks i hættu, ekki síst kvenna
og bama. Eina leiðin til að leysa
þessa hættulegu blöndu upp sé að
fjarlægja vopn af heimilum og grípa
til fyrirbyggjandi aðgerða um leið og
alvarleg tilvistarkreppa eða önnur
vandræði ógna heimilisfriðnum.
Um fjórðungur allra drápsmála í
Noregi varða fólk í sambúð. Þessi
mál geta átt rætur í ósköp hvers-
dagslegum vandamálum sem þróast
á verri veg vegna almennrar vopna-
eigu. Við bætist að margir karl-
menn eigi afar erfitt með að horfast
í augu við sambúðarslit og þá höfn-
unartilfmningu sem slíku getur
fyigt-
Þekkt mynstur
VG ræddi einnig við Peter Isdal
sálfræðing sem segir að sú leið
nokkuð algenga að drepa maka sinn
og fremja síðan sjálfsvíg. Hann seg-
ir núverandi eða fyrrverandi sam-
býlismenn ábyrga fyrir meira en
helmingi morða á konum. Og tölur
frá Bandaríkjunum sýna að í þriðj-
ungi slíkra tilfella stytti karlinn sér
aldur á eftir. í Noregi láta 5-10 kon-
ur árlega lífið fyrir tiiverknað sam-
býlismanna sinna.
Peter Isdal er talsmaður meðferð-
arstöðvar sem fæst við heimilis-
ofbeldi og hefur langa reynslu af
þeim máiaflokki. Hann segist ekki
þekkja bakgrunn hinna válegu at-
burða í Noregi í um helgina en seg-
ir margt sameiginlegt með tilfellum
þar sem morð á maka á sér stað og
síðan sjálfsvíg í kjölfarið.
„Oft verða þessir atburðir í
tengslum við samvistarslit þar sem
konan hefur yfirgefið manninn eða
vill yfirgefa manninn. Sameiginlegt
með þessum málum er oft löng saga
ofbeldis. Það gerist mun sjaldnar að
morð af þessu tagi verði í kjölfar
skyndilegs vanda eða komi fólki að
óvörum, sérstaklega þegar maður-
inn fremur sjálfsvíg í kjölfarið."
Ærumorð
Sálfræðingurinn segir að líkja
megi morðum eins og þeim um helg-
ina við ærumorð. Það viðhorf sé
nefnilega mjög lífseigt í vestrænni
menningu að konan sé eign manns-
ins. Og þegar börnin eru einnig
myrt geti það verið vegna þess að
þau séu eign konunnar.
Um sjálfsvíg karlanna í kjölfar
voðaverkanna segir Isdal að sá
verknaður sé nánast rökrétt afleið-
ing. Körlunum finnist tilgangur lífs-
ins ekki vera fyrir hendi þegar fjöl-
skyldan er ekki lengur til staðar og
að auki losni þeir við að taka afleið-
ingum gjörða sinna, afgreiði þann
þátt málsins sjálfir. -VG/hlh
Par í Bodö samtaka um að enda líf sitt:
Mun fleiri mann-
dráp en í fyrra
Allt bendir til að kona og maður í
sambúð, sem fundust látin í íbúð í
Bodö í Noregi á mánudag, hafi ver-
ið sammála mn að enda líf sitt með
þessum hætti. Þau létust bæði af
skotsárum en engin ummerki eru
eftir þriðja aðila í íbúðinni. Lög-
regla heldur því fram að maðurinn
hafi skotið unnustu sína til bana
áður en hann framdi sjálfsvíg.
Ástæða þessa harmleiks er sögð per-
sónuleg vandamál.
Það sem af eru þessu ári hafa 11
látist á voveiflegan hátt í Noregi,
ríflega tvöfalt fleiri en á svipuðum
tima í fyrra. 17. janúar 2002 höfðu 5
manns látið lífið í manndrápum.
Varðandi tölurnar á þessu ári er
rétt að nefna að sjálfsvíg eru ekki
talin með en í tveimur tilfella um
helgina framdi gjörningsmaðurinn
sjálfsvíg eftir að hafa annars vegar
myrt eiginkonu og tvær dætur og
hins vegar sambýliskonu.
Allt árið í fyrra voru 40 mann-
eskjur fórnarlömb í manndrápsmál-
um í Noregi. Til samanburöar má
nefna að 5 manndráp voru framin
hér á landi á nýliðnu ári.
-hlh/VG
4