Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 14
14 ______________MIÐVIKUDAGUR 22, JANÚAR 2003 Skoðun Ty%r Spurning dagsins Hefurðu séð ísiensku myndina Stella í framboði? Ulja Rut Hlynsdóttlr nemi: Nei, en mig langar mjög mikiö aö sjá hana, mér fannst fyrri myndin frábær. Jóhanna Gelrdal neml: Nei, en mig langar rosalega aö sjá hana. Slgríður Lllja Gunnarsdóttir nemi: Nei, en langar aö sjá hana. Logi Björnsson nemi: Nei, og langar ekkert sérstaklega aö sjá hana. Atli Freyr Víðlsson nemi: Nei. Hörður Ásbjörnsson nemi: Já, hún er mjög góö, enda fyrri myndin frábær. Byrgið í Rockville Veröa „landskil“ starfseminni þar aö bráö? Hvers vegna þarf Byrgið að víkja? Ulja skrifar:____________________________ „Byrgið bíður eftir peningum", segir í fréttum af starfsemi Byrgisins sem nú hefur aðsetur í Rockville á Miðnesheiði. Þar hefur það verið síð- an úr rættist, frá því það var á hrak- hólum í Hafnarfirði. Já, það hafði ræst úr hjá Byrgis-mönnum og varn- arliðið á Miðnesheiði hafði geflð eft- ir byggingarnar fyrir sinn part. Allt var á uppleið og hið opinbera búið að leggja þarna í púkkiö eitthvað á milli 90 og 100 milljóna króna. Það nýjasta er sagt vera það að gera eigi einhvers konar þjónustusamning við Byrgið en er þó ekkert fast ákveðið með hvaða hætti. Ríkið telur aö flytja eigi starfsem- ina eitthvað annað og þá helst í sveitir fyrir austan - rætt hefur ver- ið um Brjánsstaði á Skeiðum eins og kemur fram í frétt í DV í des. sl. Það á eftir að flnna rekstrargrundvöll en um það hafa nú þrjú ráðuneyti sam- einast, að leita að varanlegri lausn, kemur líka fram í frétt DV. „En hvers vegna þarf þá að flytja starfsemina austur í sveitir? Er þarna ekki ein- faldlega verið að „búa til“ nýtt vandamál, nýtt kostnað- ardœmi, sem er svo oft raun- in þegar vinnuhópar hins op- inbera komast á flug?“ Margir furða sig á því hvers vegna starfsemi Byrgisins geti ekki verið áfram í Rockville þar sem búið er að koma sér þokkalega fyrir. Eldhætta, t.d., sagði einhver. Varla er útilokað að búa svo um hnútana að eldhætta sé lítil. Og Rockville býr nú í námunda við eitt best búna og færasta slökkvilið í heimi svo það er bara fyrirsláttur. Talsvert hefur verið rætt um svokölluð „landskil" - skila verði „svæðinu" í sama ásigkomulagi og tekið var við því! Skila landinu hvert? Til vamarliðsins eða hvaö? Dauðans della er þetta. Þetta land- svæði var aldrei nýtt til neins, heið- in er ber og auð og þarna mun eng- um verða not af landsvæði eftir að Byrgið verður rekið brott. Allt sem þarna hefur verið lagt I undanfarin misseri mun glatast og það þarf að byggja upp að nýju annars staðar. En hvers vegna þarf þá að flytja starfsemina austur í sveitir? Er þama ekki einfaldlega verið að „búa til“ nýtt vandamál, nýtt kostnaöar- dæmi, sem er svo oft raunin þegar vinnuhópar hins opinbera komast á flug? Ég segi: Úr því að fallist hefur verið á að rekstrargrundvöllur verði tryggður, og það samþykkt af þrem- ur ráðuneytum, er best að Byrgið fái að halda starfseminni í Rockville og þar verði uppbyggingin og rekstrar- gmndvöllurinn treystur. - Þar hefur mönnum liðið vel og það verður erfitt að rífa sig upp - aðalatriðiö er framtíðin, eins og aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra sagði líka í DV-frétt- inni í desember. Hart er í heimi Rottweilerhunda Karl Karlsson 23 éra, sjálfskipaöur siögæöisvöröur skrifar: Hinir vinsælu og íslenskumæl- andi rapphundar í Rottweiler-geng- inu sendu frá sér nýtt tónlistarband ekki alls fyrir löngu. Lagið heitir B.S.Q.D. og stendur það fyrir „bum- squad“ eða rónagengið. Eins og í textanum segir þá drekka þeir alla undir borðið með rússneskum eðal- vodka. Allir vita að þeir eru al- ræmdir dónar sem er ekkert heil- agt, segjandi hitt og þetta um stjórn- málamenn, jafnvel forsætisráðherr- ann okkar og raunar flesta virta og mikilsmetna þjóðfélagsþegna. Samt sem áður klifar hinn mis- gáfaði Erpur (Blazrocca) sí og æ á að hann sé fyrirmynd ungra krakka vegna þess að hann noti ekki tóbak. „Vitaskuld er betra fyrir ungan aðdáanda að sjá hetj- una sína mígandi drukkna upp á dag heldur en að sjá alþýðuhetjuna púandi ban- eitraðar og um leið stór- hœttulegar sígarettur. - En dœmi hver fyrir sig. “ Vitaskuld er betra fyrir ungan aðdá- anda að sjá hetjuna sína mígandi drukkna upp á dag heldur en að sjá alþýðuhetjuna púandi baneitraðar og um leið stórhættulegar sígarett- ur. - En dæmi hver fyrir sig. í nýja myndbandinu eru rottu- vælandi hundamir hauslausir af drykkju inni á KafFi Austurstræti, rappandi og drekkandi með rónum og ræflum. Þar má einnig sjá barn- unga stúlku bera brjóst sin fyrir framan myndavélamar. Dauða- dmkkin og illa sjúskuð ung stúlka að reyna að fá hina lauslátu dóna í rottugenginu til að hrífast af sér. Ekki kemur í ljós hvort það virkaði í lok myndbandsins. En hver vill vera með svona stúlku?? - XXX Rottweiler góð fyrirmynd? Ég tel töluvert marga kílómetra frá því. Endurvekjum gamla og grafna siðgæðispostula og stöðvum þennan ósóma. Erum við íslendingar ekki með svartan stimpil á okkur varð- andi lauslæti og saurlifnað? Ég vil hann ekki svartari. Og vonandi ekki þú heldur. Garri Riðið heim til Hóla DV-MYND GVA Það var innan við múrvegginn og í sam- félagi við fombókmenntir sem Jón Helga- son prófessor átti sitt sæti. Þessar ljóðlin- ur haföi hver maður á hraðbergi þegar handritadeilan stóð sem hæst. í dag lifum við á breyttum tímum. Áfram eigum við íslendingar - rétt eins og prófssorinn við Eyrarsund - sæti okkar innan við múr- vegg. Enn í dag gömnum við okkur ekki lengur við Eyrbyggju og Eglu - Grettlu og Víga-Glúms sögu. í ljós er komið hve mik- ill áhugi þjóðarinnar á ættfræði er, rétt eins og aösóknin í hina nýju íslendinga- bók Kára Stefánssonar er. Þar sem við sjá- um ljós loga fyrir innan glugga og fólk á sér sæti innan við múrvegginn má víst telja að þar séu ættfræðingar að grúska. Kaþólskari en páfinn Séu menn pikkfastir í einhverri kreddutrú er stundum sagt að þeir séu kaþólskari en páfinn. Ljóst er aö Jóni Arasyni, síðasta kaþólska bisk- upnum, hafa léttvæg þótt þau prinsipp sem trú- bræöur hins hágöfga manns í Róm eiga eftir að fylgja. Skírlífi er ein meginstefna kaþólskrar trúar en Hólabiskupinn þessi gaf ekki mikið fyrir þau, heldur var frjósamur og fjölgaði kyni sínu. Meira að segja svo að nú 450 árum eftir hans daga kemur í ljós að með traustum rökum er hægt að rekja ættir hvers einasta íslendings til hans. Við erum öll frændsystkin einhvers staðar í ættum fram. í þessu sambandi má minna á þá speki að gjaman er sagt að Islendingar séu einsog ein stór fjölskylda þegar i nauðimar rek- ur. Má nú ljóst vera að það helgast ekki einvörð- ungu af fámenni þjóðarinnar, heldur lika genatiskum ástæðum. Ribbaldar og rustamenni Nú um stundir lifum við á tímum ribb- alda og rustamenna. Víða slær í svarra og aðstæður eru oft ekki ólíkar því sem gerð- ist á tímum Jóns Arasonar. í baráttu um auð og völd, áhrif og aðgengi era menn oft gjarnan óvandir að meðulum. Hver veit nema sagan endurtaki sig og aö jafnvel hins vammlausasta fólks á íslandi bíði þvi sömu örlög og Jóns forfóður þess Ara- sonar, að verða hálshöggvið. Hver veit nema leikar fari svo - enda er tilhneigingin sú að sagan endurtaki sig með reglulegu millibjli. Óþarft er á þessari stundu fyrir íslendinga að bera á þessari stundu að frændur þeirra muni ef til vill búa þeim sömu örlög og Jón Arason og synir fengu í kjölfar ferðar sinnar að Sauðafelli í Dölum. Að verða hálshöggvinn. Áfram skulum við því lifa í kristilegum kærleika - og til heið- m-s forfóður sínum, Hólabiskupi sjálfum, munu islensk böm áfram syngja á kné pabba; Riðum heim til Hóla. CjXffL Búnaðarbanklnn Orösporiö á niöurleiö? Bankinn setur niöur Helgi Helgason skrifar: Þegar maður hefur skipt við sama bankann allt frá unglingsárum fer ekki hjá því að manni finnst maður eiga agnarlítinn hlut í honum, þótt maður auðvitað eigi ekki krónu sem hluthafi. En sama er - banki setur niður við hvers konar misferli hon- um tengt, beint eða óbeint. Og þessar nýjustu ákúrur sem bomar em á stjóm Búnaðarbankans vegna leyni- samnings sem einn stjómenda bank- ans á að hafa gert við aðila úti í bæ hafa óheppileg áhrif á orðspor bank- ans, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ábyrgur stjómandi, að ekki sé talað um þegar einn helsti stjómandi bank- ans er kominn í sviðsljósið af sliku tilefni sem nú er í fréttum, á að segja af sér af sjálfsdáðum. Þetta á að liggja í augum uppi fyrir bankastjóminni. íbúöir til sölu Nékvæm skilgreining á staösetn- ingu er þaö sem gildir. 1. hæð eða kjallari? ðrvar hringdi: Maður fer nú að verða leiður á þessum auglýsingum fasteignasal- anna sem auglýsa grimmt, og án þess að hika, kjallara eða jarðhæð sem 1. hæð í húsum. Maður rekur sig oftar en ekki á það að þegar íbúð er auglýst vera á „1. hæð“ þá er um kjallaraíbúð að ræða þegar á reynir, eða í besta falli á jarðhæð. Hér er um óheilindi að ræða í viðskiptum sem veikir traust fólks á fasteignasölunni. í hin- um viðteknu þríbýlishúsum og í blokkunum er ávallt gengiö upp tröppur til að komast á 1. hæð og get- ur því „jarðhæð" aldrei talist til „fyrstu hæðar“ í þeirri merkingu. Ég skora á fasteignasölur að skilgreina betur vaming sinn áður en þær senda frá sér tilkynningar. Það gagn- ast öllum betur, líka þeim. Vesalings presturinn Sigriður Gunnarsdóttir skrifar: Mér er ekki sama hvemig prestar halda á málum. Ég tel kirkjuna skipta máli og ég er ekki ein þeirra sem telja það í lagi að prestar séu að „láta ljós sitt skína“ um nánast hvaða dægurmál sem upp kemur. Mannúð- armál og mannlegur harmleikur einstak- iinga er þar að sjálf- sögðu undanskilinn, enda koma þau mál kannski fyrst í hendur presta áður en lengra er hald- ið. Stríðsæsingar og friðargöngur tel ég hins vegar æsingamál sem kirkj- unni og prestunum væri nær að minnast í fyrirbænum á kyrrlátum staö guðshúsanna. Ég vorkenni pre'st- inum í Neskirkju sem greip til þess ráðs að gerast ræðumaður á mót- mælaútifundi gegn Bandaríkjunum. Hann uppskar auðvitað ekki annað en áframhaldandi athygli í silfrum og kastljósum fjölmiðlanna. Það hefur kannski verið eini tilgangurinn eftir allt? - Langt í frá trúverðug breytni og síst til að lægja öldumar. OV! Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Skaftahlíð 24,105 ReyKjavik. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Séra Orn Báröur Jónsson Uppskar fram- hald athyglinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.