Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 16
16 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 DV Náttúruhamfarir íbúar Mexíkóborgar standa ráöþrota fyrir utan heimili sitt. Mexíkó: Snarpur skjálfti varð 21 að bana Snarpur jarðskjálfti skók jörð í Mið- og Vestur-Mexíkó um tvöleytið í nótt. Samkvæmt fregnum í morg- un hafði að minnsta kosti 21 látið líílð í skjálftanum. Jarðskjálftinn mældist 7,6 á Richterskvarða. „Mikill fjöldi húsa er hruninn. Hér er rafmagnslaust og það vantar lyf,“ sagði starfsmað- ur Rauða krossins, sem var staddur í borginni Colima snemma í morg- un, í samtali við Reuters. Borgin Colima virðist hafa farið mjög illa út úr skjálftanum en þar búa um 125 þúsund manns. Nítján hinna látnu voru búsettir í borginni. Skelfing greip einnig um sig í höf- uðborg landsins, Mexíkóborg, þar sem rafmagnsleysi gerði vart við sig og nokkrar skemmdir urðu á hús- um. Skjálftinn vakti upp erfiðar endurminningar frá árinu 1985 þeg- ar rúmlega tíu þúsund manns létust í jarðskjálfta í höfuðborginni. Borg- arbúar þustu út á götur og stóðu þar ráðþrota. Höfuðborgin virðist hins vegar hafa sloppið við meiri háttar tjón - fyrir utan hræðsluna sem greip um sig. Ráðisl úr laun- sátri í Kúveit Ráðist var úr launsátri á tvo Bandaríkjamenn sem voru á ferð í bíl, skammt frá herstöð Bandaríkja- hers í Kúveit. Annar mannanna, sem unnu fyrir herinn, lést og hinn var alvarlega særður. Mun hafa rignt yfír bifreið þeirra byssukúlum úr sjálfvirkum riffli. Sendiráð Bandaríkjanna í Kúveit fordæmdi atburðinn og sagði hann hryðju- verk, en þetta er í þriðja sinn sem Bandaríkjamaður lætur lífið í álíka árásum í Kúveit siðan í október síð- astliðnum. Upplýsingamálaráðherra Kúveits sagði vegna þessa að ekki væri hægt að útiloka tengsl byssumanns- ins, sem komst undan, við annað hvort Irak eða al-Qaeda. termo HEITUR OGÞURR Sportvörugerdin Skipholt 5, s. 562 6363 Suður- og Norður-Kóreumenn ræddu saman í morgun: Endurtekið efni hjá Norður-Kóreu Nágrannar heilsast Sameiningarráöherrar N- og S-Kóreu, Jeong Se-hyun (til hægri, frá S-Kóreu) og Kim Ryung-sung takast í hendur í upphafi viöræðna í Seoul í gær. Fyrsti dagur viðræðna N- Kóreu og S-Kóreu hófst í Seoul, höfuðborg síðamefnda landsins, í morgun. Þar hvöttu embættis- menn S-Kóreu nágranna sína í norðri til að láta af öllum kjam- orkuáætlun sínum en þvi var svarað með kunnuglegum til- svörum, að N-Kórea hafl engar áætlanir uppi um að framleiða kjamorkuvopn. Fundur þjóð- anna er sá fyrsti síðan N-Kórea sagði sig úr alþjóðlegu sam- komulagi um takmörkun út- breiðslu kjarnorkuvopna í heim- inum. „N-Kórea lagði áherslu á að engar áætlanir væru uppi um framleiðslu kjamorkuvopna," sagði Rhee Bong-jo, talsmaður sameining- arráðuneytis S-Kóreu, um viðræð- umar í morgun. „S-Kórea kom þeim skilaboðum til skila að ef kjamorku- deilan verði ekki leyst muni önnur vandamál nágrannaríkjanna mæta erfiðleikum." Hann bætti því við að viðræðum- ar hefðu hafist á því að fulltrúar S- Kóreu kröfðust þess að innsigli yrðu aftur sett á kjarnaofna N- Kóreu og dragi til baka úrsögn sína úr NPT-sáttmálanum. Stjórnvöld í Pyongyang hafa ætið haldið því fram að eina leiðin til að þeir láti af kjamorkustarfssemi sinni er að Bandaríkjamenn skrifi undir sáttmála þess efnis að engin hemaðarieg íhlutun í N-Kóreu verði gerð af hálfu Bandaríkjamanna. Þó svo að þeir síðastnefndu hafi vissu- lega lofað efiiahagslegum stuðningi á ný við N- Kóreumenn láti þeir af áætl- unum sínum virðast þeir tregir til að skrifa undir slik- an sáttmála. Svo virðist sem að sendi- nefnd N-Kóreu í Seoul hafi takmarkaðan áhuga að ræða kjam- orkudeiluna af mikilli dýpt en þeir segja að þetta sé fyrst og fremst mál þeirra og Bandaríkjanna. Þeir hvetja hins vegar áfram til þess að Kóreu- löndin sameini krafta sína og berjist saman gegn erlendum óvinum. Étur úr lófa lögreglumannsins Taílenskur lögreglumaður gefur sex mánaöa gömlum fílsunga aö éta. Lögregiumenn i höfuöborginni, Bangkok, standa í ströngu þessa dagana en þeim er gert aö reka fílahjarðir af umferöargötum. Fílar eru þjóöartákn Taílands en því miöur valda þeir fjölda umferöarslysa á ári hverju. Herinn jafnaði 60 verslanir við jörðu ísrelskar hersveitir jöfnuðu markað með rúmlega 60 verslunum við jörðu í gær. Markaðurinn var í bænum Nazlat Issa, skammt frá Tulkarm á Vesturbakkanum og mun þetta ein stærsta aðgerð hers- ins af þessu tagi á undanfornum misserum. Talsmaður ísraelsstjórnar sagði í samtali við BBCað markaðurinn hefði verið eyðilagður vegna þess að ekki hefði verið aflað tilskilinna leyfa áður en húsin á svæðinu voru reist. Palestínumenn segja hins vegar að aðgerð hersins miði að því einu að rústa efnahag þjóðarinnar. At- burðurinn í gær varð til þess að fjöldi Palestínumanna kom saman á mótmælafundi. Fundurinn var leystur upp af hernum sem beitti m.a. táragasi á fundarmenn. Allt hrunið Palestínumaöur viröir fyrir sér rústir verslunar sinnar eftir niöurrifsaö- geröir ísraelskra hersveita. Niðurrifið hófst árla í gærmorg- un og voru stórvirkar vinnuvélar notaðar til verksins. Um hádegisbil var markaðurinn rústir einar. Palestinumenn segja að þeim hafl verið gefinn sólarhringsfrestur til að yfirgefa verslunarhúsin en á svæðinu sem var eyðilagt var einnig að fmna heilsugæslustöð og apótek. Ziad Salem, formaður borgarráðs í Nazlat Issa, var harðorður í sam- tölum við fjölmiöla i gær. „ísraelar eru enn og aftúr að ráðast gegn efnahag palestínsku þjóðarinnar. Israelski herinn mun hafa i hyggju að jafna fleiri verslunarhús við jörðu á svæðinu. Talið er að her- inn hafi í hyggju að koma upp varn- argirðingu til þess að hindra sjálfs- morðsárásir frá þessu svæði. Bolton ræðir við S-Kóreu Erindreki Banda- ríkjastjórnar, John Bolton aðstoðar- utanríkisráðherra, hóf í dag viðræður við embættismenn S-Kóreu um lausn kjamorkudeilunn- ar í N-Kóreu. Bolton sagði meðal annars að tími væri kominn til að fara með málið fyrir Öryggisráð SÞ, að það gæti fjallað jafn vel um málið eins og það gerði í íraksdeilunni. Brottflutningur Japana Japönsk yflrvöld eru strax farin að búa sig undir það versta vegna kjarnorkudeilunnar í N-Kóreu og eru byrjuð að gera að uppkast að áætlun um brottflutning japanskra ríkisborgara frá S-Kóreu, sam- kvæmt frétt japansks dagblaðs í morgun. Enn hætta í Ástralíu Miklir vindar og skraufþurrt veð- urfar valda því að eldar brenna enn víða um Ástralíu og ógna nú tilvist tuga bæja víðs vegar um landið. Eldamir í Canberra eru í rénun en í norðvesturhluta Victoria-fylkisins loga þeir glatt og hafa nú þegar brunnið 20 þúsund hektarar af skóg- lendi. „Hrein tilviljun" Skíðamennimir sjö, sem létust í snjóflóði í Kanada í gær, þeirra á meðal þekktur snjóbrettamaður, voru allir vanir því að skíða ótroðn- ar slóðir i afskekktum fjallahlíðum. Þeir sem lifðu af sögðu að ekkert hefði bent til að snjóflóð myndi falla þegar þeir lögðu af stað og sögðu slysið vera „hreina tilviljun" af hálfu náttúrunnar. Rumsfeld biöst afsökunar Fyrr í mánuðinum gagnrýndi Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Banda- ríkjanna, herskyldu- kerfi landsins sem hafði verið beitt áð- ur, til að mynda í Ví- etnam-striðinu, og sagði að þeir sem væru teknir inn í herinn, þjálfaðir í nokkra mánuði og færu svo jafnskjótt og þeir komu, væru hernum í raun ekki til góðs. Demókratar mótmæltu þessu harð- lega og sögðu þetta móðgun við fjöldamargar striðshetjur landsins. Rumsfeld hefur beðist afsökunar á ummælum sínum en sagði orð sín beinast gegn kerfmu, en ekki ein- staklingum. Rómansk-amerískir flestir Samkvæmt síðasta manntali sem var framkvæmt í Bandaríkjunum eru rómansk-amerískir orðnir stærsti minnihlutahópurinn í Bandaríkjunum, með 37,7 milljónir íbúa. Svartir íbúar eru 36,2 milljón- ir. Þó er þetta ekki svo einfalt því að margir rómansk-ameriskir flokka sig einnig sem svertingja og gætir því ákveðinnar tvíræðni. Flokkshús Mugabe í rúst HRáðist var með bensínsprengjum á aðalstöðvar stjórn- málaflokks Roberts Mugabe, forseta Zimbabwe. Einn mun hafa látist og 7 slasast, sumir þeirra mjög alvar- lega. Yfirvöld segja að 50 menn hafi keyrt inn í höfuðborgina Harare og skemmt víða eignir og ógnað vegfar- endum áður en ráðist var á flokks- húsið. Árásin er talin vera af póli- tískum toga en áætlað er að halda hliðarkosningar í einu úthverfa borgarinnar innan skamms.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.