Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003
Les til West Ham
Hinn 36 ára gamli Les Ferdinand
gekk í gær til liðs við West Ham frá
Tottenham og gerði hann samning við
félagið út þessa leiktíð. Hann flaug í
gegnum læknisskoðun á mánudags-
kvöldið og mætti svo á sína fyrstu æf-
ingu með Hömrunum í gær. Ferdinand
hafði aðeins verið 5 sinnum í byrjunar-
liði Spurs á þessari leiktíð og í þeim
leikjum skoraði hann 2 mörk. -HBG
-r
Englandsmeistarar Arsenal eru i
mikilli markvarðaleit þessa dagana
og nýjasta nafniö sem oröaö er viö þá
er Marcos, landsliðsmarkvörður
Brasiliu. Aö þvi er BBC greinir frá þá
hefur Arsenal náð samkomulagi við
félag Marcos, Palmeiras, um kaup-
verö og er það sagt rúmar 300 milijón-
ir króna. Marcos kom síðan tilEng-
lands í gærkvöld til þess að hefja við-
ræður viö Arsenal að því er BBC seg-
ir. Marcos er 29 ára gamail og vakti
mikla athygli á HMsíðasta sumar
þar sem hann lék vel með heims-
meisturunum.
Sir Bobby Robson, stjóri Newcastle,
hefur hug á að styrkja lið sitt fyrir
lokaátökin í ensku deildinni og er
hann nú sagöur vilja fá þá Jonathan
Woodgate og Brasiliumanninn
Kleberson tii liðs við félagið. Hann
bauð 7 miUjónir punda í Woodgate
um daginn sem var hafnað en talið er
að Leeds vilji fá á milli 8 og 10 millj-
ónir punda fyrir hann og þar sem
Fowler fór ekki til Man. City um dag-
inn þá eru forráðamenn Leeds vænt-
anlega viljugri til að selja en áður þar
sem þá vantar pening tU aö rétta fjár-
hag félagsins af. Newcastle á síöan að
hafa boðið 5 milljónir punda í Kleber-
son en Leeds var einmitt á höttunum
eftir honum um daginn.
Enska úrvalsdeildarfélagiö Fulham
fær væntanlega ekki að kaupa nýja
leikmenn á næstunni þar sem það
hefur ekki greitt franska félaginu
Lyon að fullu fyrir Steve Marlet en
lokagreiðsla fyrir Marlet átti að ber-
ast í gær en gerði ekki. Knattspymu-
samband Evrópu tekur alvarlega á
slíkum málum og því deginum ljós-
ara að Fulham fær ekki að taka þátt
á leikmannamarkaðnum fyrr en
skuldin viö Lyon hefur að fullu verið
greidd. Marlet var keyptur tU Ful-
ham árið 2001 og samþykkti Fulham
að greiöa tæpan einn og hálfan mUlj-
arð fyrir hann en lokagreiðslan upp á
tæpar 400 mUljónir er enn eftir.
Það eru ekki allir sammála um ágæti þeirra breytinga sem gerðar voru í Formúlu 1:
Hörð viðbrögð framleiðenda
við nýjum reglum FIA
Tilkynnt var um nýjar tækniregl-
ur í Formúlu eitt keppninni á fundi
FLA í síðustu viku og hafa þær vak-
ið hörð viðbrögð bílaframleiðenda.
Samband bílaframleiðenda í grein-
inni sameinaðist um að láta lið sín
berjast gegn spamaðaraðgerðunum
á fundi sínum fyrir viku.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
GPWC Holdings, fyrirtækinu sem
ætlar að setja á stofn keppni fram-
leiðenda árið 2008, verður Formúla
eitt að halda áfram að vera sýning-
arpallur fyrir tækninýjungar eins
og verið hefur. Þeir gagnrýna
einnig að ekki skuli vera veittur
frestur til að breyta reglum. „GPWC
er tilneytt til að segja að sparnaðar-
aðgerðir sem þegar höfðu verið
samþykktar í desember með stuðn-
ingi framleiðenda, hefur að sumu
leyti verið hafnaö af FLA,“ segir í til-
kynningunni.
Hátækni bönnuö
Forseti FLA, Max Mosley sem er
einn af höfundum nýju reglnanna,
varaði áður við að ekki yrði hætt
við reglur sem útilokuðu hátækni-
búnað í bílunum. „Ef framleiðanda
líkar ekki nýju reglumar verður
bara svo að vera,“ er haft eftir
Mosley í Guardian í vikunni. „Ef
framleiðendi hættir í formúlunni
Spólvörnin kom ekki í veg fyrir að Schumacher keyrði Ferrari-bíl sinn út af
við fyrstu æfingu sína á árinu í Barcelona á mánudag. Schumacher missti
stjórn á bílnum á fyrsta hring og skemmdi afturenda bílsins á dekkjavegg
vegna þeirra verður svo líka að
vera.
Það sem við græðum á nýju regl-
unum er miklu meira en það sem
við töpum með fráhvarfi þeirra,"
sagði Mosley. Samkvæmt nýju regl-
um FIA verður frá fyrstu keppni
ársins bannað að nota samkipta-
kerfið milli bíla og viðgerðarliðs i
keppni, en með því er hægt að
breyta stillingum bílanna frá við-
gerðarsvæði. Einnig verður bannað
að nota fjarskiptasamband við öku-
mann og spólvöm og ræsingarbún-
aður verður einnig úti árið 2004 ef
það reynist of dýrt að losna viö
þann búnað fyrr. GPWC segist hafa
tekið vel í það að framleiðendumir
fimm, Ferrari, BMW, Daim-
lerChrysler, Ford og Renault, sæju
öðrum liðum fyrir vélum. Japönsku
framleiðendurnir, Toyota og Honda
eru ekki aðilar að GPWC.
Eldri ökumenn græöa
Að sögn fyrmm liðsstjóra Jagúar-
liðsins, Niki Lauda, verður forvitni-
legt að fylgjast með fyrstu keppn-
inni í Melboume og hvað nýju regl-
urnar hafa í för með sér. Lauda
hafði áður sagt að tæknin væri orð-
in þannig að jafnvel api gæti ekið
formúlubíl í dag. Samt sem áður
náði hann að lenda í malargryfjunni
þegar hann prófaði sjálfur Jagúar
F1 bíl á síðasta ári.
Lauda er sammála Michael
Schumacher að reyndari ökumenn
munu helst græða á breytingunum.
„Ég held persónulega að breyting-
amar munu gera Melboume mjög
spennandi," sagði hann. „Eldri öku-
mennimir, sem ekið hafa áður án
alls rafbúnaðarins, munu eiga auð-
veldar með að aðlagast. Nýliðarnir,
sem aldrei hafa ekið bil án spól-
varnar og hafa þess vegna ekki
þurft að stýra afturendanum með
bensíngjöfinni, munu eiga í meiri
vandræðum þegar þeir hafa bara
einn hring í tímatöku.“ -NG
Miöjumaðurinn Seth Johnson er að
öllum líkindum á leið til Middles-
brough frá Leeds fyrir tæpar 600
milljónir króna. Forráðamenn Boro
voru í viðræðum við Johnson og um-
boðsmann hans í gær og er líklegra
en ella að kaupin gangi í gegn í dag.
Johnson var keyptur til Leeds frá
Derby fyrir 15 mánuðum á tæpan
milljarð og horfa forráðamenn Leeds
því fram á aö tapa miklum peningum
á þessum kaupum. Johnson hefur
lengi þótt einn efnilegasti miðjumað-
ur Englands og hefur leikið einn A-
landsleik fyrir Englendinga.
Graeme Souness, stjóri Blackbum,
er á höttunum eftir vinstri bakveröi
þessa dagana og nú hefur hann
ákveðið að reyna að fá slóvakíska
landsliðsmanninn Vratislav Gresko
frá Parma. Souness vill fá Gresko að
láni út leiktíðina og svo forkaupsrétt
næsta sumar ef hann stendur undir
væntingum næstu mánuði. Gresko
var hraktur frá Inter síðasta sumar
eftir að hafa gert hrapalleg mistök í
lokaleiknum gegn Lazio í fyrra. Hann
hefur ekki náð fótfestu hjá Parma og
aðeins veriö í byrjunarliði félagsins
þrisvar i vetur og telst því ekki
ómíssandi. -HBG
Opna ástralska mótiö í tennis:
Ferreira í undanúrslit
eftir 11 ára hlé
Suður-Afríkumaðurinn Wayne
Ferreira tryggði sér í gær sæti í
undanúrslitum Opna ástralska
mótsins í tennis með þvi að leggja
Spánverjann Juan Carlos Ferrero
7-6, 7-6 og 6-1 og mætir hann
Andre Agassi, stærsta nafninu sem
enn er eftir í keppninni, en Ferrera
hefur aldrei unnið Agassi í þau tíu
skipti sem leiðir þeirra hafa legið
saman.
Andre Agassi, sem lagði Sebast-
ian Grosjean að velli í þremu sett-
um, segir að sér hafi liðið vel í
leiknum og þess vegna hafi sigur-
inn verið auðveldari en ella. Agassi
hefur þrívegis fariö með sigurinn á
mótinu og verður að teljast sigur-
stranglegur á mótinu nú, en hann
er númer tvö á styrkleikalistanum
um þessar mundir.
Venus Williams tryggði sér
einnig sæti í undanúrslitum með
því að leggja Danielu Hantuchovu
nokkuð auðveldlega. Þar mætir
hún belgísku stúlkunni, Justine
Henin-Hardanne sem er í fimmta
sæti á heimsstyrkleikalistanum.
Systumar, þær Serena og Venus
Williams, þykja ekki hafa verið
sannfærandi það sem af er mótinu,
en þær hafa þó vaxið og frammi-
staða þeirra batnað. Það er því
ekki ólíklegt að þær mætist í úr-
slitaleik í einliöaleik kvenna og
það ekki í fyrsta sinn. -PS
Championship
and qualify for
the 2003 Men's
World
Ihampionships
to be played in
Portugal
So, what is handball? What is it like to play? Who plays the game? The skills, the po:
play Handball.
brief history of the game from it's very early beginnings, to íts pioneering era in the early 1900s, to 'amateur' era
ofessional era.
Forsíöa ástralska handboltavefsins þar sem kenndur er handknattleikur og farið yfir sögu hans.
Ástralar frumstæö handboltaþjóð:
Hvað er handbolti?
- er spurt á handboltavefnum í Ástralíu
Það þarf vart að fjölyrða um getu
ástralska landsliösins í handknatt-
leik eftir útreið þá sem það fékk hjá
því íslenska, enda var þar slegið met
í markaskorun á HM frá upphafi.
Handbolti er nú ekki ýkja gömul
íþrótt í Ástralíu, en Ástralar hafa þó
tekið þátt í stórmótum áður og er
þetta í þriðja sinn sem þeir taka
þátt i slíku móti. Þeir léku á HM í
Egyptalandi þar sem þeir töpuðu
öllum leikjum sínum. Ári síðar
voru þeir gestgjafar á Ólympíu-
leikunum í Sydney þar sem það
sama var upp á teningnum.
Á sama móti tefldu Ástralar
einnig fram kvennaliði, en það voru
engir leikmenn né lið til að velja
liðið úr og því var auglýst í
blöðunum eftir leikmönnum. Það
tókst á endanum að fá mann-
skapinn saman og þátttakan var
tryggð.
Ef farið er inn á Ástralska hand-
boltavefinn þá er það fyrsta spum-
ingin sem blasir við: Hvað er hand-
bolti? Hvemig er aö leika hand-
bolta? Hverjir leika handbolta? Síð-
an gefst gestum á vefnum kostur á
að kynnast íþróttinni og reglum
hennar á ítarlegan hátt.
-PS