Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 mHDBOlTly mca 3 posöteQii/ . t 3* Sören Hildebrand, þjálfari Grænlendinga: Var ánægður með margt „Ég var ánægður með margt í þessum leik og við verðum sterk- ari með hverjum leik. Þetta var erflður leikur eins og við vissum fyrir fram enda er íslenska liðið mjög sterkt. Mínir menn öölast meiri reynslu með hverjum leik og við sýndum mun beittari leik núna gegn íslendingum en gegn Portúgal i fyrsta leiknum. Við er- um á uppleið og það væri gaman ef okkur tækist aö komast áfram upp úr riðlinum,” sagði Sören Hildebrand, þjálfari Grænlend- inga, í spjalli við DV eftir leikinn. - að þessum leikjum er nú lokið, sagði Guðmundur Guðmundsson „Ég er bara dauðfeginn að þessum fyrstu tveimur leikjum í keppninni er lokið. Nú getum við farið að einbeita okkur að verkefninu gegn Portúgal og það er leikur sem skiptir okkur gríð- arlega miklu máli. Þetta var enginn glansleikur af okkar háifu en við kláruðum þetta samt engu að síður með 13 mörkum. Við vissum það í sjálfu sér að Grænlendingar væru með mun sterkara lið en Ástralar. Við unnum okkur fljótlega í þá stöðu að rúlla á liðinu og það var jákvætt. Fyr- ir leikinn verður ekki hægt að tala um þreytu og menn geta spilað þann leik að fullu. Við hlökkum allir mikið til að mæta Portúgölum og það er næsta verkefnið,” sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í sam- tali við DV. „Ég vil sem minnst um þetta tala, nú er bara Portúgal fram undan og miðvikudagurinn veröur notaður vel til undirbúnings fyrir þann leik. Portúgalar hafa öflugu liði á að skipa, góðar skyttur, góða homamenn og yf- ir höfuð gott lið og sýndu það á Evr- ópumótinu í fyrra. Ég veit að þetta er þrælsterkt lið og svo hafa þeir heima- völlinn og við þurfum að leika vel ætl- uðum við okkur að vinna þá,” sagði Guðmundur Guðmundson. -JKS tvisvar 1 dag Guðmundur Guðmundsson landsliösþjálfari ætlar að vera með tvær æfingar í dag á frídegi mótsins en þriðja umferð í riðlakeppninni verður á fimmtudag. Hluti liðsins verður á morgunæfmgu og aðrir á æfingu síðdegis. Á milli æfmga verður fundur með leikmönnum þar sem farið verður yflr leik Portúgala á myndböndum. Grænlendingar eru meö öflugan hóp stuöningsmanna sem styöja vel viö bakiö á þeim í keppninni í Portúgal. Hér má sjá hluta þeirra eitt hundraö stuöningsmanna sem lögöu á sig feröalag til Portúgals, en þaö er ekki síður mikill áhugi heimafyrir þar sem fólk safnast saman til aö horfa á beinar útsendingar í sjónvarpi. Þetta er í annaö sinn sem Grænlendingar taka þátt í úrslitakeppni HM í handknattleik. DV-mynd Hilmar Þór Sverðið sneri í öfuga átt Það varð uppi fótur og fit í leik Frakka og Sádi-Araba í fyrrakvöld Rafmagnsleysiö: Klukkan fór seint í gang Það var á fleiri keppnisstöðum en í Viseu sem rafmagnið lék menn grátt. í leik íslands og Ástrala í Viseu fór rafmagnið af í 35 mínútur og í Sao Joao da Madeira fór klukkan ekki i gang fyrr en i síðari hálfleik í síðasta leiknum þann daginn og olli þetta ástand að vonum miklum vandræðum fyrir leikmenn sem og áhorfendur. -JKS Guðmundur Hrafnkelsson markvörður: Góða möguleika gegn Portúgal „Þetta var allt öðruvisi leikur en gegn Áströlum en Grænlendingar eru miklu sterkari á öllum sviðum. Grænlendingar leika flnan bolta og eru með tvær öflugar skyttur en að öðru leyti fannst mér okkar leikur ekkert til að hrópa húrra fyrir svona framan af. Við vorum alltaf að rembast og það var eins og leik- m- liðsins gengi ekki nógu vel á köflum. Við vorum líka fullbráðir og sóknarleikurinn var ekki nógu agaöur. Þetta er búið og gert og núna verðum við að fara að huga að næsta leik,” sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður ís- lenska landsliðsins, í samtali við DV. - Hvemig sérð þú fyrir þér framhaldið? „Ég held að við eigum góða möguleika gegn Portúgal á fimmtudag. Mér sýnist að heima- völlurinn komi ekki til með að gefa þeim mikið og ég hef fulla trú á því að við getum unnið þá. Þetta er varla byrjað enn þá en ég er bjart- sýnn á framhaldið og við erum að koma okkur í gírinn hægt og síg- andi,” sagði Guðmundur. en þá tóku þeir síðarnefndu eftir því að fáni landsins, sem var uppi á vegg íþrótta- hallarinnar, var ekki eins og hann átti að vera. Sverð í fánanum sneri í öfuga átt og tóku Sádi-Ara- barnir þessu mjög illa og hótuðu að leika ekki leikinn. Eins og flestir vita eru þeir mjög trúaðir og var þetta meira en þeir þoldu. Brugðið var skjótt við, fáninn tek- inn niður og annar og réttur fáni fenginn í staðinn. Leikurinn gat hafist á réttum tíma en Frakkar unnu síðan öruggan sigur í leikn- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.