Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 35 HANDBOLTl J isca Q Okkar menní i Portúgal Jón Kristján Sigurösson blaöamaöur Hilmar Þór Guömundsson, Ijósmyndari Patrekur skoraði sjö mörk í fyrri hálfleik: eyst verkefni „Ég var ánægður að sjá hvernig menn leystu þetta verkefni og liðið i heild sinni. Það er erfitt að spila gegn liðum sem maður veit fyrir fram að við eigum að klára með stórum mun. Þetta var mun skemmtilegri leikur en gegn Áströlum en Grænlendingar eru seigir og sýndu mikla baráttu,” sagði Patrekur Jóhannesson eftir leikinn. - Nú blasir við fyrsti stórleikur liðsins á heimsmeistaramótinu á fimmtudaginn kemur. Hvernig leggst hann í þig? „Já, það er alveg rétt að þaö verð- ur fyrsti erfiði leikurinn og við verð- um að leika vel gegn þeim. Ég er ekki hræddur og við eigum góða mögu- leika gegn þeim, það verður erfitt en við fáum núna góðan tíma til undir- búnings sem verður nýttur í botn,” sagði Patrekur Jóhannesson. -JKS Fengu góða dóma Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu leik Króata og Argentínu í fyrrakvöld og stóðu sig vel. Leikurinn var mun erfiðari að dæma en haldið var í upphafi enda áttu flestir von á því að Króatar ynnu öruggan sigur. Annað kom á daginn því Argentína sigraði í leiknum með einu marki og eru þetta óvæntustu úrslit á mótinu fram til þessa. -JKS Patrekur Jóhannesson geröi sjö mörk, öll í fyrri hálfleik og var besti maöur íslenska liðsins gegn Grænlendingum í gærkvöld. Paö er gleöiefni aö sjá Patrek ná sér á strik aö nýju. DV-mynd Hilmar Þór Einar Örn Jónsson: Kannski ekki alveg á tánum „Við vorum kannski ekki alveg eins á tánum i þessum leik og gegn Áströlum í fyrrakvöld. Viö ætluð- um að gera of mikið í hverri sókn en þetta haíðist að lokum og ég var aldrei hræddur um að við myndum ekki hafa þetta af á endanum. Vissulega hefðum viö getað gert betur en þetta var allt annað lið en það ástralska. Grænlendingar kunna ýmislegt fyrir sér og vita ná- kvæmlega um hvað þetta snýst. Þeir hafa innanborðs kröftuga og sterka leikmenn og eru góðir hand- boltamenn. Ég hef trú á því að þeir fari upp úr riðlinum sem fjóröa lið,” sagði Éinar Örn Jónsson landsliðs- maður í samtali við DV eftir leikinn við Grænlendinga í gærkvöld. -Að hvaða leyti var ykkar leik- ur öðruvfsi en leikurinn við Ástr- ala? „Fyrsti leikurinn var við Ástrala og við vissum ekki mikið um þeirra styrk og mættum mjög einbeittir í leikinn við þá og keyröum gjörsam- lega yfir þá. Fyrir leikinn við Græn- lendinga vissum við betur út í hvað við vorum að fara og vorum ekki eins einbeittir allan timann. Svona þróast oft leikimir gegn lakari þjóð- um en það var gott að við náðum að hífa sigurinn upp í 13 mörk. - Leik- urinn viö Portúgala leggst vel í mig og ég sé fyrir mér sigur. Við leikum ekkert á miðvikudag og skoðum þá portúgalska liðið. Við höfum leikið við þá áður og vitum hvað þeir geta. Það er pressa á þeim á heimavelii en við ætlum okkur sigur í riðlin- um. Fyrst þurfum við að leggja Portúgala en við unnum þá síðast á HM i Frakklandi og ég hef fuila trú á því að við gerum það aftur á fimmtudaginn,” sagði Einar Örn Jónsson. Skvlduverkefni lokið - þrettán marka sigur á nágrönnum okkar frá Grænlandi íslenska landsliðið í handknatt- leik þurfti að hafa talsvert meira fyrir hlutunum gegn Grænlending- um en gegn Áströlum í Viseu í gærkvöld. íslenska liðið vann ná- granna okkar frá Grænlandi, 30-17, eftir að staðan í hálfleik var 16-8. Mótspyman sem íslendingar fengru var talsverð á köflum en sig- ur íslendinga var samt aldrei í hættu en Grænlendingar sýndu þó að þeir kunna ýmislegt fyrir sér þó að þeir eigi enn þá nokkuð í land. íslenska liðið þurfti ekki á neinum stórleik að halda til knýja fram sig- ur en á köflum var óðagotið þvílíkt að það var eins og liðið ætlaði að skora tvö mörk í sömu sókninni. Engu að síður náði liðið að sýna á köflum ágætan leik en þess á milli datt hann niður í meðalmennsk- una. Það er eflaust erfitt að halda einbeitingunni gegn tveimur slök- um þjóðum í röð en að þessum leikjum loknum má segja að alvar- an hefjist fyrir alvöru. Á fimmtudag mæta íslendingar liði heimamanna í Portúgal og er beð- ið eftir þeim leik með töluverðri eftirvæntingu. íslenska liðið virk- aði eins og vel smurð vél framan af fyrri hálfleik og enginn lék betur á þeim kafla en Patrekur Jóhannes- son sem gerði þá fimm mörk í röð. Ólafur náöi sér ekki á strik Liðið virkaði frískt en á sama tíma náði Ólafúr Stefánsson sér ekki á strik og var alls ekki sjálf- um sér líkur. Þegar á leið á hálf- leikinn dró töluvert úr krafti ís- lenska liðsins en Grænlendingar vont samt alltaf langt undan. í síðari hálfleik hélst leikurinn í jafnvægi og það var ekki fyrr en á lokaspretti hans sem íslenska liðið breikkaði enn frekar bilið og tryggði sér að lokum 13 marka sig- ur sem verður að teljast ásættan- legt gegn þessu grænlenska liði. Guðmundur Guðmundsson lands- liðsþjálfari var með miklar manna- breytingar í leiknum og dreifði álaginu jafnt á leikmenn. Það verð- ur því ekki sagt annað en lykilmenn liðsins mæti óþreyttir til leiksins við Portúgala á fimmtu- dag. Patrekur gleöiefni Það er gleöiefhi að sjá að Patrek- ur Jóhannesson finnur sig á ný eft- ir meiðslin sem hafa plagað hann. Hann átti ágætis leik og var gaman að sjá einstaklingsframtak hans í fyrri hálfleiknum. Gústaf Bjama- son komst einnig vel frá sínu. Rún- ar Sigtryggsson og Sigfús Sigurðs- son unnu vel saman í vörninni á köflum en vömin átti oft í erfið- leikum með að stöðva Jakob Larsen, skyttu Grænlendinga, en hann gerði stóran hluta marka liðsins í leiknum. Vissu verkefni er lokið í keppn- inni en það vissu allir að leikirnir við Ástrala og Grænlendinga yrðu öðruvísi en aðrir en á fimmtudag mun reyna fyrst á styrk íslensla liðsins í keppninni. Sá leikur verð- •ur f öllu falli erfiður enda Portú- galar vel studdir af heimamönnum -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.