Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 40
5»
*
>
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz®
Loforð er loforð
MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 2003
PAni BESTUR
Patrekur Jóhannesson var besti leikmaður
íslenska landsliðsins gegn Grænlendingum í
öðrum leik okkar manna á HM í handbolta.
Hann skoraði sjö mörk í leiknum.
ísland vann með þrettán marka mun
(30-17). En þrátt fyrir töluverða yfirburði var
leikur íslenska liðsins ekki sannfærandi á
köflum og spilaði það undir getu. Þetta var
enginn „glansleikur", svo notuð séu orð
Guðmundar Guðmundssonar landsliðs-
þjálfara. Guðmundur segist vera feginn að
leikirnir við Ástrala og Grænlendinga skuli
vera að baki. Næsta verkefni er leikurinn við
Portúgala á morgun, fimmtudag. Ljóst er að
íslenska liðið verður að spila betur en það
gerði í gær til að leggja Portúgala að velli.
Dómtúlka
þarf í æ fleiri
sakamálum
Útlit og framkvæmd allnokkurs
hluta sakamála er greinilega að
breytast á íslandi. Þegar mánudag-
urinn rann upp var sami héraðs-
dómari í Reykjavík skráður með
fjögur sakamál sem hann tók fyrir í
röð sem ekki er í frásögur færandi.
Hins vegar þurfti dómtúlka í þrem-
ur málanna, þar sem sakborning-
amir tala ekki íslensku, en í því
fjórða og síðasta var hinn ákærði
einnig af erlendu bergi brotinn en
talar íslensku. Málin eru hins vegar
mismunandi - stórt fikniefnamál,
rán, hnífstunga og árás á lögreglu-
mann. Fyrir ekki mjög mörgum
árum hefði veriö nánast útilokað að
þessi staða hefði komið upp. Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, segir að það „hafi greini-
lega stóraukist" að túlka þurfi til
við yfirheyrslur lögreglu vegna er-
lends fólks.
í fyrsta héraðsdómsmálinu á
mánudag kom Þjóðverji fyrir dóm-
inn, ákærður fyrir innflutning á
hálfu öðru kílói af kókaíni í októ-
ber. Hann hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá því hann var handtekinn
og er því einn þeirra sem bæst hafa
í að því er virðist stöðugt stækkandi
hóp erlendra afbrotamanna á Litla-
Hrauni. Hann talar litla sem enga
íslensku og því þurfti þýskur dóm-
túlkur að mæta.
í öðru málinu var tekið fyrir ann-
að mál sem ríkissaksóknari höfðar
en þá þurfti dómtúlk sem kann ví-
etnömsku. í því er piltur ákærður
fyrir að stinga pilt frá sama upp-
runalandi en atburðurinn átti sér
stað við knattspymuvöll Fram við
Safamýri í sumar.
I þriðja sakamáli dómarans, sem
rikissáksóknari sækir einnig, þurfti
líka að fá túlk. Þar eru tveir ungir
menn, fæddir árið 1974 og ‘76,
ákærðir fyrir rán. Dómtúlkur sem
kann arabísku var kvaddur til að
túlka fyrir ungu mennina sem er
gefið að sök að hafa slegið mann í
hnakkann og rænt hann seðlaveski.
Fjórða sakamálið er svo gegn 17
ára pilti sem á ættir að rekja til
Karíbahafsins en hefur síðustu ár
verið búsettur á Vestfjörðum. Hann
er ákærður fyrir svokallað brot
gegn valdstjóminni með því að ráð-
ast að lögreglumanni frá ísafirði og
skalla hann í höfuöið. -Ótt
DV-MYND GVA
Fyrsti túlkurinn af þremur á mánudag
Matthías Frímannsson, til hægri, mætti til að túika fyrir þýskan mann sem
skýldi sér á bak viö trefil. Stuttu síðar kom fyrir dóminn í öðru máli túlkur fyr-
ir tvo arabíska sakborninga en í þriöja málinu kom túlkur sem þýddi fyrir sak-
borning á víetnömsku. í fjörða málinu var sakborningur frá Karíbahafinu.
GABRIEL
HÖGGDEYFAR
hagstæð verð
G^varahlutir
Bfldshöffta 14 • Sími: 567-6744
Sscarpart8@centrum.is
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
UTSALA
40% afsláttur
HM I HANDBOLTA DV-SPORT
BLS. 33-36
Sportvörugerðin hf.
Skipholti 5, s. 562-8383
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
!