Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 2
18 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 Sport Mánudagurinn 20. janúar 2003 Efni DV- Sports í dag © Utan vallar, fréttir Esso-deild kvenna Esso-deild kvenna Esso-deild kvenna HM í handknattleik HM í handknattleik HM í handknattleik HM í handknattleik HM í handknattleik HM í handknattleik © © © © © © % HM í handknattleik © HM í handknattleik © Auglýsing © Intersport-deildin © Intersport-deildin © Kvennakarfan © Evrópuboltinn © Enska knattspyrnan © Enska knattspyrnan © íþróttir unglinga © íþróttir unglinga Auglýsing Opna ástralska mótiö í tennis: Serena og Agassi sigurvegarar Andre Agassi og Serena Williams tryggðu sér um helgina sigurinn í einliðaleik karla og kvenna á Opna ástralska mótinu í tennis sem haldið var í Melbourne í Ástraliu. Þar með hefur Serena unnið öll stórmótin fjögur á ferlinum og er aðeins fimmta konan til að gera það. Þetta er hins vegar áttundi sigurinn hjá Agassi á stórmóti á talsvert lengri ferli, en hann er 32 ára gamall og sá elsti til að vinna á stórmóti í tennis í 32 ár. Agassi vann Þjóðverjann Rainer Schuettler auðveldlega í þremur hrinum, 6-2, 6-1 og 6-2, í fyrrinótt og tók það ekki langan tíma að leggja Þjóðverjann að velli. Þetta er stærsti sigur í úrslitaleik í karlaflokki á stórmóti í 98 ára sögu þeirra. Serena Williams vann systur sína í úrslitaleik í þremur hrinum, 7-6, 3-6 og 6-4. Serena, sem er í efsta sæti á styrkleikalista Alþjóða tennissam- bandsins, átti aldrei í neinum vand- ræðum með systur sína, sem er í öðru sæti styrkleikalistans. -PS Stefán enn óákveðinn Framtíð knattspymumannsins Stefáns Gíslasonar er enn óráðin en hann hefur verið án félags síð- an í nóvember er hann rifti samningi við austurríska 1. deildarfélagið Grazer AK. Stefán flutti síðan heim í byrj- un desember og mætti á nokkrar æfingar hjá Keflvíkingum en hann hefur ekki áhuga á því að leik í 1. deildinni þannig að það er ekki i myndinni að spila með þeim næsta sumar. Það gæti þó verið að rofa til hjá honum þvi hann fór á æfingu hjá Fylkismönnum í síðustu viku og samkvæmt heimildum DV- Sports hafa Fylkismenn nokkurn áhuga á leikmanninum, en sem kunnugt er þá leikur eldri bróðir Stefáns, Valur Fannar, með Fylk- ismönnum. DV-Sport hefur einnig heimild- ir fyrir því að Grindavík og Þróttur hafi áhuga á Stefáni. Stefán lék með Fram og KR í efstu deild hér heima áður en hann fór i víking til Noregs og síðan til Austurríkis. -HBG Serena Williams, t.h., ásamt systur sinni sem hún lagði í úrslitaleik, en hún felldi tár að lokinni verðiaunaafhendingu. Áhorfendur í Melbourne hafa ekki verið sérlega hliðhollir þeim systrum í keppninni. Hreinn líklega hættur - hefur ekki fengið nýjan samning hjá KA og íhugar að leggja skóna á hilluna Hreinn hefur verið í herbúðum KA-manna í þrjú ár og hér sést hann á góðri stundu með félaga sínum í liðinu en hann mun ekki brosa í KA-búningnum næsta sumar. Framherjinn Hreinn Hringsson, sem leikið hefur með KA-mönnum undanfarin ár, er væntanlega hætt- ur að leika knattspyrnu. Samningur Hreins við KA-menn rann út eftir síðasta tímabil og hafa KA-menn ekki boðið Hreini nýjan samning og aukinheldur hafa þeir ekki haft fyrir því að tjá honum það að þjónustu hans sé ekki lengur ósk- að hjá félaginu. „Ég er líklegast að hætta þessu boltasparki," sagði Hreinn í samtali við DV-Sport um helgina. Beinn sími: .............. 550 5880 Ljósmyndir: .............. 550 5845 Fax:...................... 550 5020 Netfang:............dvsport@dv.is Fastir starfsmenn: Henry Birgir Gunnarsson (henry@dv.is) Jón Kristján Sigurðsson öks.sport@dv.is) Óskar O. Jónsson (ooj.sport@dv.is) Óskar Hratn Þorvaldsson (oskar@dv.is) Pjetur Sigurðsson (pjetur@dv.is) „Eins og staðan er í dag og ef ég ætla að spila fótbolta þá verð ég að fara suður. Það hafa ekki verið nein samskipti milli mín og KA-manna og þar af leiðandi tel ég ljóst að minna krafta sé ekki lengur óskað hjá félaginu," sagði Hreinn, en er hann ósáttur við framkomu félags- ins i hans garð? „Miðað við það sem maður er bú- inn að ganga í gengum með félaginu undanfarin þijú ár þá hefði maður talið að það minnsta sem þeir hefðu getað gert væri að láta mig vita að þjónustu minnar væri ekki óskað lengur en það hafa þeir ekki gert. Engu að síður ber ég engan kala til félagsins og það eru þeir sem ráða þessu og svona gengur þetta bara,“ sagði Hreinn. Hann lék alla leiki KA í deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim leikjum 6 mörk, og árið áður fór hann á kostum í 1. deildinni, þannig að það þarf ekki að koma á óvart þótt lið af höfuðborgarsvæðinu hafi sett sig í samband við hann. „Það eru tvö lið af höfuðborgar- svæðinu sem hafa verið í sambandi við mig en þar sem mín mál hafa verið upp í lofti þá hef ég ekki gefið þeim nein svör. Svo er ég bundinn í vinnu til 1. mars þannig að það skýrist ekkert á næstunni en ef ég ákveð að leika fyrir sunnan þá yrði það í efstu deild. En eins og staðan er i dag er líklegast að ég taki mér frí frá boltanum,“ sagði Hreinn að lokum. -HBG Utan vallar Ætlunarverkið tókst, íslenska landsliöið hefur náð að tryggja sér sæti í milliriðlum á úrslitakeppni HM í handknattleik, sem eins og flestir vita fer nú fram í Portúgal. Nú stend- ur fyrir dyrum milliriðill þar sem sem við munum mæta Pólverjum og Spánverjum, auk þess sem lið Katars fylgir okkur i milliriðilinn. Það má segja að undanfamir dagar hafi spilast á þann veg sem spáð var og forsvarsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik hafa spáö. Stórir sigr- ar á Grænlendingum, Katörum og Áströlum voru hlutir sem ekki komu á óvart og erfiðar viðureignir við Portúgala, sem voru á heimavelli, og Þjóðverja voru eitthvað sem búast mátti við. Þaö er ekki hægt annað en lýsa ánægju sinni yfir þeim karakter sem liðið hefur sýnt fram að þessu, annars vegar með því að halda haus og ein- beitingu í leikjum sem eru leikur kattarins og músarinnar og hins veg- ar þann sálarstyrk sem þurfti til þess að leggja Portúgala að velli þegar allt virist á enda runnið og sigurinn runn- inn úr greipum okkar. Ég verð þó á móti að lýsa vonbrigð- um mínum yfir lokamínútum leiksins gegn Þjóðverjum þar sem við mætt- um okkar sterkustu mótherjum til þessa. Þarna gerðum við aö engu frá- bæran leik af íslands hálfu í frábær- lega skemmtilegum handboltaleik, sem hafði allt upp á að bjóða, fyrst og fremst mikinn hraða og mikla skemmtun fyrir áhorfendur. Lokamínúturnar eyðilögðu þó þennan leik í huga mínum, sem ég hefði sætt mig við að tapa með einu marki. Guðmundur Guðmundsson verður vart mikið gagnrýndur fyrir val sitt á landsliðinu og virðist ríkja nokkur þjóðarsátt um hann og val hans. Það er þó eitt sem ég er ekki sáttur viö og skil ekki og það er val Guðmundur á Gunnari Berg Viktorssyni, sem skal tekið fram að ég hef ekkert á móti per- sónulega. Ég tel það þó fullsýnt að þessi ágæti leikmaður er engin viðbót N Pjetur Sigurðsson íþróttafréttamaöur á DV-Sporti við þennan landsliðshóp. Hann full- komnaði þetta og sannfærði mig enn frekar í leiknum gegn Katar á laugar- dag, þar sem hann fékk fjögur færi, hvert öðru betra til að skora, en mis- notaði þau öll. Þetta er að mínu mati fullreynt og það hefði mátt leyfa ein- hverjum öðrum, jafnvel ungum og efnilegum, aö fmna lyktina af móti sem þessu. Grænlendingar eru úr leik að þessu sinni og ég sakna þess að þeir hafi ekki komist áfram. Þeir eru jú ekki besta handknattsleikþjóð veraldar, en þeir buðu þó upp á lið sem leit út eins og handknattleikslið. Þeir unnu sér þátttökurétt á mótinu á heiðarlegan hátt og hefðu frekar átt skilið að taka meiri þátt á þessu móti heldur en lið Katars. Þess utan settu áhangendur liðsins skemmtilegan svip á þetta mót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.