Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Qupperneq 8
24 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 HANDBOLTI J lff taca 0 % Riölakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik í Portúgal lauk í gær: Svíar að vakna - spiluðu frábærlega þegar þeir lögðu Dani í gær Svíar virðast vera að vakna til lífsins á heimsmeistaramótinu í handknattleik eftir frekar brokk- genga spilamennsku í fyrstu fjórum leikjunum. Þeir lögðu Dani, 32-28, í síðustu umferð D-riðils og tryggðu sér sigurinn í riðlinum. Sá bögull fylgir reyndar skammrifl að þeir fara stigalausir í mUliriðil þar sem Slóvenar, sem unnu Svía i riölinum, fylgja þeim upp úr D-riðli. „Nú getum við svekkt okkur á tapinu gegn Slóvenum. Það getur reynst okkur dýrkeypt og komið í veg fyrir að við eigum möguleika á verðlaunum. Við þurfum að vinna bæði Frakka og Ungverja ef við ætl- um okkur að eiga einhverja mögu- leika en það er samt ekki víst að þaö nægi,“ sagði Bengt Johannsson, þjálfari Svía, eftir leikinn en bætti við að hans menn væru að koma sterkir upp og yrðu ekki auðsigrað- ir í næstu leikjum. Gamla brýnið Magnus Wislander skoraði tíu mörk fyrir Svía og Stef- an Lövgren og Johann Pettersson skoruðu fjögur mörk hvor. Lars Christiansen var markahæstur hjá Dönum með sex mörk og Klavs Bru- un Jörgensen skoraði fimm mörk. Torben Winther, þjálfari Dana, viðurkenndi eftir leikinn að Svíar hefðu verið betri aðilinn og átt sig- urinn skilið. „Það er alveg ljóst að við vinnum ekki Svía með þeim vamarleik sem við spiluðum i dag. Þeir voru miklu betri en við í þessum leik,“ sagði Winther en Danir höfðu unnið íjóra leiki í röð gegn Svíum fyrir þennan leik. Slóvenar og Egyptar fylgja Dön- um og Svíum upp úr D-riðli en Sló- venar unnu stórsigur á Alsír, 35-25, í leik þar sem Alsír hefði getað kom- ist í fjórða sætið í riðlinum með Ekki maður á ferli í Grænlandi Griðarlegur áhugi hefur verið fyrir heimsmeistarakeppninni í Grænlandi. Leikjum liðsins er sjón- varpað beint og þegar útsendingar hafa verið í gangi hefur ekki maður sést á ferli. Allir eru heima að horfa en auk þess hefur verið komið fyrir risaskjá í íþróttahúsinu. Grænlendingar fjölmenntu hing- að á heimsmeistaramótið en yfir 100 manns fylgdi liðinu á keppnina og hafa sett skemmtilega umgjörð á leikina með trommuslætti og söngv- um. -JKS Fylgdust með æfingum Guðmundur Guðmundsson lands- liðsþjálfari leyfði þjálfara og leik- mönnum ástralska liðsins að fylgj- ast með tveimur æfingum íslenska liðsins. Marinkovic, þjálfari ástr- alska liðsins, óskaði eftir því að fá að koma á æflngarnar og sá Guð- mundur því ekkert til fyrirstöðu. Markinkovic sagði að hann og leik- mennirnir hefðu lært mikið af þessu og mætti ætla að eitthvaö væri til í þeim orðum því Ástralar hafa tekið miklum framforum frá fyrsta leiknum gegn íslendingum í mótinu. Þar vann íslenska liðið stærsta sigur í heimsmeistara- keppninni frá upphafi. -JKS sigri. Slóvenar stóðust pressuna, Svíum til mikillar hrellingar. Það stefnir allt í hörkubaráttu í D-riðli milliriðlanna þar sem Frakkar og Slóvenar hafa tvö stig en Svíar og Ungverjar ekki neitt. Rænulausir Rússar Rússar eru heillum horfnir og steinlágu fyrir Frökkum, 31-15, í síðustu umferð C-riðils. Það nægði þó ekki Frökkum til að hreppa fyrsta sætið í riölinum því að Króat- ar unnu Ungverja og sigruðu i riðl- inum þar sem þeir lögðu Frakka. Gregory Angutel skoraði fimm mörk fyrir Frakka en Dmitri Schlatchev skoraði fjögur mörk fyr- ir Rússa sem hafa ekki verið jafn slakir í langan tíma. Króatar komu sterkir inn og unnu fjóra síðustu leikina í riðlin- um eftir óvænt tap gegn Argentínu- mönnum í fyrsta leik. Króatar unnu Frakka og Ungverja um helgina, naumlega að visu, en tryggðu sér eins og áður sagði fyrsta sætið í C- riðli. Grænlendingar á leiö heim Helgin var ekki farsæl fyrir vini okkar Grænlendinga. Þeir bjuggust við léttum leikjum gegn Köturum og Áströlum en raunin varð aldeilis önnur. Grænlenska liði féll saman eins og spilaborg og á laugardaginn fógnuðu Ástralar lengi og innilega sínum fyrsta sigri á heimsmeistara- móti. Sören Hilderbrand, þjálfari Grænlendinga, sagði eftir leikinn úrslit hans mikið áfall og sínir menn hefðu leikið undir getu. Það var mikið í húfi í þessum leik en það var eins og liðið hefði ekki þol- að spennuna. í gær töpuðu Græn- lendingar fyrir Köturum sem komust þar með í milliriðil. Sterkir Spánverjar Spánverjar, sem mæta íslending- um í miiliriðli, hafa verið mjög sannfærandi í leikjum sínum í A- riðli og eru taplausir. Þeir unnu Túnisa, 33-25. Juanin skoraði níu mörk fyrir Spánverja og Femando Hernandez skoraði fimm mörk en Wissem Bousnina skoraði fimm mörk fyrir Túnis. Pólverjar, sem verða einnig and- stæðingar Islands í milliriöli, unnu tvo örugga sigra um helgina, gegn Marokkó og Kúveit. -ósk/JKS HANDBOLTI / It? mi fl p®um!]qM/ A-riöill Spánn-Kúveit 45-18 Júgóslavía-Túnis . . . . 28-27 Pólland-Marokkó .... 35-29 Túnis-Spánn 25-33 Júgóslavía-Marokkó . . 34-20 Kúveit-Pólland 21-36 Spánn 550 0 157-106 10 Júgóslavía 5 4 0 1 142-103 8 Pólland 5 3 0 2 140-130 6 Túnis 5 2 0 3 131-129 4 Kúveit 5 10 4 98-168 2 Marokkó 5 0 0 5 113-145 0 B-riöill Ísland-Katar 42-22 Portúgal-Þýskaland . . 29-37 Grænland-Ástralía . . . 21-26 Þýskaland-ísland .. .. 34-29 Portúgal-Ástralía . .. . 42-20 Katar-Grænland 28-23 Þýskaland 5 5 0 0 191-111 10 ísland 5 4 0 1 185-116 8 Portúgal 5 3 0 2 164-126 6 Katar 5 2 0 3 116-159 4 Ástralía 5 10 4 100-192 2 Grænland 5 0 0 5 100-152 0 C-riöili Argenttna-Ungverjaland 29-34 Króatía-Frakkland .. . 23-22 Rússland-Sádi Arabía . 34-17 Króatía-Ungverjaland . 30-29 Sádi-Arabía-Argentína 31-30 Frakkland-Rússland . 31-15 Króatía 5 4 0 1 135-125 8 Frakkland 5 4 0 1 147-103 8 Rússland 5 2 1 2 132-132 5 Ungverjal. 5 2 0 3 154-138 4 Argentína 5 11 3 127-156 3 Sádi-Arabía 5 10 4 114-155 2 D-riðill Alsir-Svíþjóð 28-32 Brasilía-Slóvenía .... 27-30 Danmörk-Egyptaland 35-26 Svíþjóð-Danmörk . . . 32-28 Egyptaland-Brasilía . 31-24 Alsír-Slóvenía 25-35 Svíþjóð 5 4 0 1 147-129 8 Danmörk 5 4 0 1 146-125 8 Slóvenía 5 3 0 2 144-137 6 Egyptaland 5 2 1 2 132-139 5 Alsír 5 0 2 3 119-136 2 Brasilía 5 0 1 4 118-140 1 Leikir í milliriðlum: 29. janúar Spánn-Katar A-riðill Ísland-Pólland A-riöiil Þýskaland-Túnis .... B-riðill Júgóslavía-Portúgal .. B-riðffl Króatía-Egyptaiand . . C-riðffl Danmörk-Rússland . . C-riðill Svíþjóð-Ungverjaland D-riðffl Frakkland-Slóvenía . . D-riðffl 30. janúar Spánn-ísland PóUand-Katar A-riðffl Þýskaland-Júgósiavía B-riðffl Portúgal-Túnis B-riðffl Króatía-Danmörk . . . C-riðffl Rússland-Egyptaland . C-riðffl Svíþjóð-Frakkland . .. D-riðffl Slóvenía-Ungverjaland .... D-riöffl Spánverjar og íslendingar taka meö sér tvö stig A-riðil en Pólverjar og Katarar taka ekki nein stig með sér. Þjóöverjar og Júgóslavar taka með sér tvö stig í B-riðil en Portúgalar og Túnisar taka ekki nein stig með sér. Króatar og Danir taka með sér tvö stig í C-riðil en Rússar og Egyptar taka ekki nein stig með sér. Slóvenar og Frakkar taka með sér tvö stig í D-riðil en Svíar og Ungverjar taka ekki nein stig með sér. -ósk Grænlenska stórskyttan Jacob Larsen reynir hér skot að marki Katara í gær en Grænlendingar uröu að bíta í þaö súra epli að fara stigalausir heim frá HM. DV-mynd Hilmar Þór Þjóðverjar ekki jafn sterkir síðan 1978 - segir Vlado Stenzel, fyrrum þjálfari þýska landsliðsins Vlado Stenzel, sem var þjálfari þýska landsliðsins í handknattleik þegar það varð heimsmeistari í Danmörku 1978, segir liðið ekki vera jafht sterkt í annan tima. í viðtali við þýska blaðamenn um helgina sagði hann að liðið hefði alla burði til að fara alla leið í keppninni. „Það er allt annað að sjá til liðsins, liðið leikur jafna leiki og ég tel það ekki síst að þakka hvað margir leikmenn koma frá Lemgo. Viö verðum þó að halda okkur á jörðinni því enn á talsvert vatn eftir að renna til sjávar á mótinu. Heiner Brand er að byggja upp sterkt lið og það er mikilvægt að liðið standi sig vel því það kemur handboltanum tO góða í Þýskalandi," sagði Stenzel, sem orðinn er 68 ára gamall og situr heima og horfir á leiki þýska liðsins í sjónvarpi. -JKS ALLhandbc^ta Við^’htmdbolta 1*1/0 --t-Ttr- - ' <- ! ...............................

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.