Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Qupperneq 10
26 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 han.boltiJTI^ cæai Guðmundur Guðmundsson landsliösþjálfari metur stöðuna að lokinni riðlakeppni Það býr meira í liðinu - á leið að settu markmiði, segir landsliðsþjálfarinn „Ég lít ekki þannig á að það hafi verið svekkjandi að tapa fyrir Þjóð- verjunum en auðvitað hefði ég viljað sigur. Við megum hins vegar ekki gleyma því að við settum okk- ur það markmið að við færum með tvö stig í milliriðil. Þar skiptir mótherjinn ekki máli i mínum huga, aðalatriðið er að við gerum okkur grein fyrir því að við vorum bæði að leika vel og illa gegn Þjóð- verjum. Við þurfum aö læra af þess- um leik og hvað gerir okkur sterk- ari sem lið og hvaða þættir veikja okkur. Það er niðurstaðan eftir Þjóð- verjaleikinn og að fara að hengja haus er fáranlegt. Núna erum við með alla möguleika í stöðunni, núna er að fara yfir hlutina og læra og einbeita okkur að verkefnunum sem fram undan eru. Það skiptir öllu í mínum huga en við náðum því markmiði í riðlinum að fara með tvö stig inn í miiliriðilinn, um það snýst málið,” sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari um stöðuna eftir riðlakeppnina sem lauk með leiknum við Þjóðverja. „Við getum alveg séð eftir þennan leik að ef við leikum vel getum við unnið hvaða lið sem er í heiminum. Við verðum að vita hvað fleytir okk- ur þangað og það er það sem við verðum að skoða núna.” - Hver heldur þú að hafi verið vendipunkturinn f leiknum við Þjóðverja? „Hann er þegar að við erum sex á móti fimm og nýtum okkur það ekki. Viö erum í staðinn að fá á okk- ur mörk og nýtum ekki heldur sóknartækifærin í þeirri stöðu. Þetta er vendipunkturinn að mínu mati. Við byrjuðum heldur ekki leikinn nægilega vel í vörninni og við vorum ekki nægilega fljótir til baka. Það eru margir kaflar í leiknum sem hefðu mátt vera betri og eru að skila því þegar upp er staðið að við vinnum ekki leikinn. Við nýttum ekki stöðuna einum fleiri, því miður, og það skipti miklu á mikilvægu augnabliki leiksins.” -- Er liðið núna í þeirri stöðu sem stefnt var að eftir að riðla- keppninni lyki? „Við settum okkur þau markmið að fara með tvö stig í mUliriðilinn en um það snýst málið. Við settum okkur önnur markmið en þau voru að stefna á Ólympíuleika og það er ennþá inni í myndinni. Um það sýnst málið og ekkert annað.” -- Hvað hefur komið þér á óvart í riðlakeppninni? „Ekkert í sjálfu sér. Eitt veit ég þó og það er að það býr miklu meira i liðinu en það hefur sýnt til þessa í keppninni. Við þurfum að kalla það fram en það eru leikmenn í liðinu sem geta bætt sig. Við vitum það og þeir sjálfir vita það einnig. Þess vegna segi ég að það eru allir mögu- leikar i stöðunni.” -- Ertu sáttur við varnarleikinn eins og hann hefur verið leikinn til þessa? „Ef við skoðum vamarleikinn gegn Þjóðverjum þá erum við að fá á okkur 20 mörk í fyrri hálfleik og það koma að minnsta kosti sex mörk upp úr hraðaupphlaupum. Leikurinn var gríðarlega hraður og sóknimir miklu fleiri en menn eiga ekki að einblína á það samt. Ég skal viðurkenna að vamarleikurinn var ekki góður í fyrri hálfleik en varð síðan allt annar og betri í þeim síðari. Þegar tiltölulega litið er eftir af síðari hálfleik erum við aðeins búnir að fá á okkur tíu mörk gegn þessu sterka liði. Það segir sina sögu hvemig vörn við vorum að leika. Þegar vömin er til staðar er liðið að leika hana mjög vel og það eru strákamir búnir að sýna. Ég ætla ekki að kenna henni um, það voru aðrir þættir sem voru að fara með okkur að mínu mati. Við verð- um að skoða það í rólegheitum.” -- Finnst þér það ekki hafa háð liðinu í sókninni að Ólafur er klipptur út í hverjum leik? „Nei, mér finnst við hafa leyst það dæmi vel af hendi. Það var ekki vandamál í Þjóðverjaleiknum og mér ftnnst við alltaf vera að ná betri tökum á þessari uppákomu. Við gerðum áherslubreytingar en í fyrri hálfleik erum við að skora 16 mörk, misnota dauðafæri, tvö víti og dæmd eru af okkur tvö lögleg mörk. Við getum ekki kvartað yfir því þannig að sóknarleikurinn gekk út af fyrir sig fínt. Við færðum Ólaf á miðjuna og Heiðmar inn á hægra vænginn þannig aö mér finnst það liggja í öðrum hlutum að við nýtt- um okkur ekki liðsmuninn.” - Liðið er sem sagt á leið siirni að settu takmarki í keppninni? „Já, að sjálfsögðu erum við á þeirri leið sem við ætluðum okkur. Auðvitað hefðum við viljað vinna leikinn en hann telur að öðru leyti ekkert fyrir okkur. Það skiptir í raun engu hver mótherjinn er í milliriðlinum og að fara út í þannig vangaveltur er eitthvað sem er ekki vænlegt að mínu mati. Við fórum í þennan leik til að vinna og veltum því ekki fyrir okkur hvort við myndum lenda á móti þessum eða hinum.” - Ert þú bjartsýnn á framhald- ið í mótinu? „Við höfum ekki neina ástæðu til annars. Við ætlum aö halda áfram okkar striki og horfa bjartsýnir fram á veginn. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við vorum að spila við eitt besta lið heims og við vorum nánast búnir að vinna það. Við köstuðum því í rauninni frá okkur og þar liggur fullt af tæki- færum fyrir okkur,” sagði Guð- mundur Guðmundsson landsliðs- þjáifari í samtalinu við DV. -JKS Einstefna og mikil barátta Það virkaði óneitanlega upp- örvandi á mann þegar það fréttist að íslenska landsliðið ætti að spila við Katar, þjóð sem maður vissi ekki einu sinni að væri til. Þetta hljómaði eins og uppskrift að sigur- leik. Og þannig varð það. Eina skiptið sem Katarar sáust með lífs- marki var þegar þeir í upphafi leiks sungu hástöfum þjóðsöng sinn, sem hljómaði sprellfjörugur. íslenski þjóðsöngurinn er alltaf jafn leiðin- legur enda nenntu islensku leik- mennimir ekki einu sinni að bæra varimar, nema þá Ólafur Stefáns- son sem alltaf kann sig. Kennslubókardæmi Það setti óneitanlega sitt mark á leikinn hvað Köturum gekk illa að skora. Leikurinn varð því kennslu- bókardæmi um það hversu skelfi- lega leiöinlegur handbolti er þegar einungis annað liðið hefur getu til að spila. Það varð einfaldlega alltof endurtekningasamt að horfa á ís- lenska liðiö skora úr hverri sókn- inni af annarri meðan Katarar klúöraðu hvað eftir annað sínum færum. Gallinn við handboltann er sá að þar er of mörgum karlmönnum hrúgað saman á of lítið svæði. Þeir em því í kös og erfitt að festa augu á einstaklingum. Þó var ekki annað hægt en að taka eftir Gústaf Bjama- syni sem sýndi mikla hugkvæmni í hlaupum og stökkvum. Hann er flottur hvort sem hann er í láréttri eða lóðréttri stöðu. Svo hefur hann tjáningarríkt andlit sem gæðir hann töluverðum kynþokka. Skemmtileg blanda íslenski þjálfarinn virkar eins og skemmtileg blanda af skilningsrík- um sálfræðingi og vöskum skáta- foringja. Maður sem sýnist liklegur til að geta leitt hvaða lið sem er úr blindaþoku og komið því í ömggt skjól. Frönsku dómaramir voru karakt- erlausir og á svipinn eins og þeim leiddist. Fáeinar hræður voru á áhorfendapöllum og var jafnlítið lífsmark með þeim og leikmönnum Katar. Óþolandi vel skipulagt Það var hins vegar líf og fjör í leiknum við Þjóðverja. í keppnis- íþróttum virðast Þjóðverjar alltaf vita hvað þeir eru að gera. Sem ger- ir þá náttúrlega óþolandi. Vel skipulagðir og agaðir. Lausir viö til- finningasemi og alltaf í jafnvægi. Allt eru þetta eiginleikar sem nýtast vel í lífinu (þótt þar vanti hug- myndaríki) og era ávísun á sigur. Þetta var manni ljóst á tólftu mín- útu þegar staðan var 10--7. Þá hafði' ég satt að segja misst móðinn. Það gerðu strákamir mínir (okkar) hins vegar ekki og börðust eins og ljón. Þeir komust yfir og ég skamm- aðist mín fyrir að hafa hætt að trúa á þá. En svo sigu Þjóðverjar fram úr og kom svo sem ekkert á óvart. Samt getum við verið sátt. Okkar menn börðust til síðustu mínútu. Alveg eins og maður á að gera i líf- inu sjálfu. Sérkennilegt yfirskegg Það er ekki gaman að keppnis- leikjum nema þar sé að minnsta kosti einn maður sem hefur skap og sýnir það. Sigfús Sigurðsson sýndi sig sem þannig mann í leiknum gegn Þjóðverjum. Hann er mikill karakter og virkar dálítið ógnvekj- andi. Ég er ekki viss um að maður vildi hitta hann í myrkri en það gæti samt orðið spennandi. í hópi Þjóðverjanna tók maður helst eftir þýska þjálfaranum með sitt sér- kennilega yfirskegg sem minnir helst á rostungstennur. Annars var hraðinn svo mikill í leiknum að það var ansi erfitt að einbeita sér að mönnum, maður var sífellt með auga á mörkunum. Það var alltaf einhver að skora. Mér sýnist að handboltinn sé meiri hópíþrótt en fótboltinn. Það er heldur ekki hægt að sýna mikið einstaklingsfrum- kvæði þegar það má bara stiga þrjú skref með boltann. Mikill galli á þessari annars ágætu íþrótt. allLUhobocta Við^handboUa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.