Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 23
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 3# I>V Sport unglingar Andreas Örn hetja HK-stráka gegn Þór: Þetta var hæfni - sagði Andreas um sigurmarkið sem kom beint úr aukakasti Andreas Örn Aðalsteinsson er 13 ára markvörður hjá HK í Kópavogi og hann sló i gegn á mótinu um síð- ustu helgi og til dæmis skoraði hann glæsilegt sigurmark fyrir sína menn gegn Þór frá Akureyri. Markið kom beint úr aukakasti eftir að leiktíma var lokið. Skot Andreasar sveif yfir varnarvegg Þórsara, í slána og inn. Glæsilegt mark og HK-strákamir fögnuðu með miklum látum í leikslok. DV-Sport var á staðnum og varð vitni að þessu frábæra marki Andr- easar og greip hann tali að leik loknum og spurði hann að því hvernig hann hefði farið að þessu. „Þetta var bara hæfni,“ sagði Andreas af mikilli hógværð í sigur- vímunni með félögum sínum eftir leikinn. Hann sagði að þeim hefði ekki gengið vel á mótinu fram að þessu en vonaðist til þess að þessi sigur myndi auka þeim sjálfstraust í næstu leikjum. Leikurinn við Þórsara var æsispennandi frá fyrstu mínútu og greinilegt að þar voru á ferðinni mjög jöfn lið. Andreas er búinn að fylgjast vel með handboltalandsliðinu undan- farið og hann hefur góða tilfmningu fyrir HM. „Ég hef góða tilfinningu fyrir mótinu og hef trú á strákunum. Ætli þeir verði ekki í svona fimmta til sjötta sæti,“ sagði Andreas og bætti við að hann ætlaði ekki að missa af neinum leik landsliðsins á mótinu. Þar sem Andreas fylgist vel með liðinu hlýtur hann að eiga sér sinn uppáhaldsleikmann. „Óli Stefáns er uppáhaldsleik- •maðurinn minn í íslenska landslið- inu en almennt held ég mikið upp á Thomas Svensson, markvörð sænska landsliðsins," sagðiAndre- as og tjáði blaðamanni einnig það að hann væri ánægður með það að Roland Eradze hefði farið með út og vonast Andreas til þess að hann byrji inn á frekar en Guðmundur Hrafnkelsson. Andreas á líka uppáhaldsleik- mann í HK og það er markvörður- inn Björgvin Gústafsson. Ef Andreas heldur uppteknum hætti með HK-strákunum verður þess ekki langt að bíða að hann fari að banka upp á dyrnar með meist- araflokknum og þá má Bjöggi fara að passa sig. -HBG Óli Stef. bestur - segir Guðjón Kristinn úr Haukum Guðjón Kristinn Helgason er 13 ára strákur sem spilar með liði Hauka úr Hafnarfirði. Hann er bú- inn að æfa handbolta í fimm ár og alltaf með Haukunum. DV-Sport náði tali af Guðjóni skömmu áöur en hann spilaði með félögum sínum gegn Selfossi en fyr- ir þann leik höfðu þeir unnið einn leik og tapað einum. Því var alveg ljóst að leikurinn gegn Selfyssing- um mátti ekki tapast. Stefnan að gera betur Guðjón og félagar voru í fjórða sæti á fyrsta mótinu og því var tak- markið að gera betur að þessu sinni. Guðjón sagði í samtali við blaða- mann að hann væri mjög spenntur fyrir heimsmeistarakeppninni í handbolta en hvemig heldur þann að íslenska landsliðinu komi tii með að ganga á mótinu? Island í 5. sæti „Ég veit það ekki alveg en hef þó trú á því að þeim eigi eftir að ganga mjög vel. Ég er ekki alveg viss um hvaða sæti þeir eiga eftir að lenda í en ef ég þarf að spá ein- hverju þá myndi ég segja að þeir eigi eftir að lenda í fimmta sæti,“ sagði Guðjón en hver er uppáhalds- leikmaður hans í íslenska landslið- inu? Óli og Halldór í uppáhaldi „Það er Óli Stefáns, ekki spurn- ing. En hjá Haukunum er Halldór Ingólfsson í uppáhaldi," sagði Guð- jón að lokum og þarf ekki að koma mikið á óvart að þeir Ólafur og Halldór séu í uppáhaldi hjá Guð- jóni enda spila þeir sömu stöðu og hann. Guðjón er efnileg örvhent skytta og þær hafa ekki verið á hverju strái á íslandi undanfarin ár og hver veit nema þessi efnilegi strák- ur eigi eftir að taka við skyttuhlut- verkinu hjá meistaraflokki Hauka í framtíðinni. Haukar eiga einn efnilegasta örvhenta leikmann landsins sem er Ásgeir Örn HaUgrímsson og virðast Haukarnir framleiða vinstri handar skyttur á færibandi þessa dagana. -HBG Robert Gunnarsson í miklu uppáhaldi - segir Guðmundur Magnússon úr Framliðinu inn að telja dagana fram að HM en hvemig heidur hann að liðinu muni ganga á mótinu? „Ég held að þeim eigi eftir að ganga mjög vel og það kæmi mér ekki mjög á óvart að þeir yrðu með- al fimm efstu liða á mótinu," sagði Guðmundur. Uppáhaldsleikmaður hans í ís- lenska landsliðinu er Ólafur Stef- ánsson en ætli hann eigi sér ein- hverja uppáhaldsleikmenn i Fram- liðinu? „Ég hélt mikiö upp á Róbert Gunnarsson þegar hann spilaði með Fram en ég á mér engan uppáhalds- leikmann í liðinu eftir að hann fór. Mér finnst þeir bara allir mjög góð- ir sem eru I liðinu núna,“ sagði Guðmundur sem þrátt fyrir ungan aldur sýndi góð tHþrif á mótinu og gaf eldri strákum hvergi eftir og er fjóst að þama er á ferð einn af fram- tíðarmönnum Safamýrarliðsins. -HBG Guömundur Magnússon er efni- legur handboltastrákur úr Fram en hann var með yngri leikmönnum á mótinu enda aðeins 11 ára. Hann er búinn að æfa handbolta í þrjú ár og alltaf með Safamýrarliðinu. Hann var í góðu skapi þegar blaðamaður DV-Sport hitti hann enda finnst honum eins og flestum skemmtilegast að keppa. Hann var nokkuð sáttur við gengi Framara eftir fyrstu tvo leikina en þeir höfðu unnið annan þeirra en tapað hinum. Guðmundur var far- Eyþór Lárusson frá Selfossi: Baráttan á vellinum skemmtilegust Eyþór Smárason er 13 ára strák- ur frá Selfossi en hann hefur æft handbolta síðan hann var 10 ára, eða í þrjú ár. Hann æfir líka fót- bolta og er búinn að æfa fótbolta aðeins lengur en handboltami, eða í tíu ár. Honum finnst skemmtilegast að keppa og það sem gerir keppnina svona skemmtilega í augum hans er baráttan á vellinum. Hann var nokkuð sáttur við gengi liðsins það sem af var mót- inu en sagði að þeir hefðu tapað stórt fyrsta leiknum en það gekk miklu betur í öðrum leik liðsins. Unnu deildarmót Selfoss-strákamir gerðu sér reyndar lítið fyrir um daginn og sigruðu deildarmót og var það frá- bær árangur hjá þeim. Eyþór er, eins og flestir hand- boltastrákar, mjög spenntur fyrir HM en hvaða trú hefur hann á ís- lenska liðinu á mótinu? „Mjög góða, held ég, og reikna með því að þeir komist að minnsta kosti í átta liða úrslit. Ég þori nú ekkert að spá um sæti hjá liðinu en það verður einhvers staðar á milli fjórða og áttunda sætis,“ sagði Eyþór en hann heldur mikið upp á Ólaf Stefánsson eins og flest- ir aðrir ungir handknattleiks- menn. Af hverju ætli Ólafur sé í svona miklu uppáhaldi hjá hon- um? Óli Stef. snillingur „Hann er einfaldlega bara snill- ingur,“ sagði Eyþór og algjör óþarfi að ræða það mikið frekar. Meistaraflokkur Selfoss hefur átt heldur erfitt uppdráttar í Esso- deildinni í ár en ætli Eyþór eigi sér einhverja uppáhaldsleikmenn þar? Engir í uppáhaldi heima „Nei, eiginlega ekki. Þeir eru nefnilega ekkert svo góðir. Þannig að þaö er enginn sérstakur i uppá- haldi hjá mér þar,“ sagði Eyþór að lokum við blaðamann DV-Sports og með því var hann rokinn i upp-^ hitun enda mikilvægur leikur fram undan hjá Selfyssingum og öruggara að vera vel heitur þegar baráttan byijar. -HBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.