Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir Sjóntækjafræðingar funda með ráðherra í dag: Gefumst ekki upp - höfum engu aö tapa, segir Kristinn Kristinsson Sjónmæling Sjóntækjafræðingar ætla að haida ótrauðir áfram þrátt fyrir andstööu land- læknis. Þeir krefjast þess aö frumvarp um iagabreytingu veröi iagt fram á yf- irstandandi þingi. Sjóntækjafræðingar munu ganga á fund Jóns Kristjánsson- ar heilbrigðisráðherra í dag til að ræða deiiu um rétt sjóntækja- fræðinga til að mæla sjón í fólki. Sjóntækjafræðingar hófu mæl- ingar á fólki sl. mánudag þrátt fyrir mikla andstöðu augnlækna. Kristinn Kristinsson, sjóntækja- fræðingur í Glerauganu við Faxafen, segir að sjóntækjafræð- ingar muni halda mælingum áfram hvemig sem mál velkist því engu sé lengur að tapa í mál- inu. Flestir sjóntækjafræðingar hafi fengið löggildingu annars staðar á Norðurlöndunum þar sem réttur þeirra til að mæla sjón í fólki sé viðurkenndur. Það skipti því engu máli hvort þeir verði sviptir þeim réttindum sín- um hér á landi þar sem þau séu hvort sem er ekki virt. „Við ætl- um ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana." Á fundi með Sigurði Guðmunds- syni landlækni á fóstudag kom fram að ekki væri hægt að leggja fram frumvarp á þessu vori um lagabreytingu til að höggva á þennan hnút. Var því beint til Fé- lags íslenskra sjóntækjafræðinga að félagsmenn hættu sjónmæling- um. Jafnframt kom fram að yrði tilmælum þessum ekki sinnt myndi embættið grípa til aðgerða. Tilmæli landlæknis voru rædd á félagsfundi Félags ísl. sjóntækja- fræðinga á þriðjudagskvöldið. Þar kom fram sú skoðun að annað- hvort giltu lög nr. 17/1984 eða ekki og ekki væri unnt að krefjast þess að sum ákvæði laganna væru virt fremur en önnur. Meðan ekki stendur til að framfylgja nema sumum ákvæðum laganna telja sjóntækjafræðingar ekki ástæðu til að verða við tilmælum land- læknis. Á fundinum var því ákveðið að sjóntækjafræðingar héldu áfram að starfa með sama hætti og þeir hafa gert um árabil. Kristinn sagðist hafa tjáð land- lækni að búið væri að bíða í mörg ár eftir leiðréttingu og síðast hefði því verið lofað fyrir ári. Nú væru kosningar í vor og hugsanleg mannaskipti í ráðherrastól sem gæti tafið málið enn frekar. „Það er einfaldlega ekki þolinmæði til að bíða lengur." -HKr. Akureyri: Lögreglumaður skallaður Lögreglumaður á Akureyri var skallaður harkalega í andlitið á veitingahúsi í bænum í gær- kvöld. Kvaðning barst vegna manns sem þar lét ófriðlega; hann hafði lent í átökum við ann- an mann og verið vísað út, en við var hann ósáttur. Komu laganna verðir á vettvang sem fengu á vettvangi þessar harkalegu við- tökur. Maðurinn var yfirbugaður og fluttur í fangageymslur, en yf- irheyra átti hann í dag þegar frekar af honum bráir. -sbs Leit á Blönduósi: Lokaði sig inni í íbúð og sofnaði Viðtæk leit var gerð í gærkvöld að vistmanni á ellideild Heil- brigðisstofnunarinnar á Blöndu- ósi, konu á áttræðisaldri sem er með öldrunarsjúkdóm. Allur til- tækur mannskapur var kallaður út um kl. 20.30. Einnig var búið að kalla út sporhund frá Reykja- vík og leitarhunda frá Hólmavík og Akureyri. Eftir að félagar í Björgunarfélaginu Blöndu höfðu leitað allan staðinn og næsta ná- grenni kom i ljós að konan hafði lokað sig inni í íbúð sem er í húsi stofnunarinnar og sofnað þar. Leit var afturkölluð kl. 23.30 og fór betur en á horfðist. Konan var undrandi þegar komið var að henni og spurði: „Var ég nú eitt- hvað að gera af mér, strákar mín- ir.“ -JÖA DV-MYND HARI Árekstur á Bústaðavegi Allharður þriggja bíla árekstur varð neðst á Bústaöavegi í Reykjavík síðdegis í gær. Þurfti að flytja tvo bíla burt með kranabíl og einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans - háskólasjúkrahúss. Loka þurfti Bústaðavegi til vesturs í góða stund vegna óhappsins og var umferð beint niöur í Hlíðahverfi. Ekki liggur fyrir, að sögn lögreglu, hver tildrög þessa óhapps voru. Útlendingastofa yfirheyrði bandaríska sjálfshjálparmanninn: Lögreglan hafði loks upp á John Alden - honum gert að mæta hjá landlæknisembættinu Lögreglan í Hafnarfirði hafði í fyrradag uppi á John Alden, Banda- ríkjamanninum sem haldið hefur svokölluð sjáifshjálpamámskeið hér á landi. Útlendingastofa yfirheyrði manninn í kjölfarið, að sögn Krist- ínar Völundardóttur, lögfræðings stofnunarinnar. Var hann spurður hverra erinda hann væri hér á landi og hve lengi hann hefði dvalið. Stofnunin gerði honum síðan að mæta hjá landlæknisembættinu. John Alden haföi ekki sinnt ítrek- uðum skilaboðum Sigurðar Guð- mundssonar landlæknis um að gefa sig fram við embættið. Útlendinga- eftirlitsdeild lögreglunnar hefur einnig haft mál Aldens til athugun- ar. John Alden. Svo sem fram kom í viðtali blaðs- ins við landlækni nýverið er vitað um 20-25 manns sem hafa þurft að leita sér aðstoðar í heil- brigðiskerfmu eftir að hafa verið á sjálfshjálparnám-. skeiði hjá John Álden á undanfóm- um árum en hann hefur verið með starfsemi hér í um áratug. Þá hefur komið fram í máli viðmælenda blaðsins, sem hafa verið í meðferð hjá honum, að ekki sé að neita að þar hafi fólk fengið góða reynslu en yfirgnæfandi séu þó slæmar afleið- ingar, bæði andlega og íjárhagslega. Þeir sem tekið hafa þátt í námskeið- unum hafa þurft að greiða fyrir þau allt að 10.000 dollara á ári, auk ann- ars kostnaðar við einkatíma, ferða- lög til íjarlægra landa og fleira. Fólk hefur gengist í miklar fjárhagslegar skuldbindingar vegna þessa. Hjá viðmælendum blaðsins hefur komið fram að þeir vilji ekki koma fram undir nafni þar sem þeir óttast að lánaábyrgðir, sem þeir hafa undir- ritað, verði þá látnar falla á þá. Nokkum tíma tók að hafa uppi á John Alden þar sem hann er hvergi skráður hér til heimilis þrátt fyrir að hann hafi dvalið hér langdvölum og haldið umrædd námskeiö síðast- liðin ár. -JSS Kafarar mættir Norskir kafarar eru komnir á vettvang til að reyna að bjarga Guðrúnu Gísladóttur KE sem sökk við Norður-Noreg sl. sumar. Mbl. is hefur eftir Ásgeiri Loga Ásgeirssyni að nú fari björgunar- starf á fullt skrið. Þrír ölvaöir Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavík í nótt. Fjórir voru teknir í fyrrinótt. Lögreglu þykir þetta nokkuð há tala, í ljósi þess að minna hefur verið um ölvun- arakstur undanfarið en stundum áður. Sjónvarp á breiöbandi Síminn-Breiðband hefur hafið stafræna dreifingu sjónvarps á breiðbandsneti sínu. í upphafi verða rúmlega 40 erlendar sjón- varpsstöðvar ásamt yfir 20 er- lendum útvarpsstöðvum. Fáir reykja Innan við 7% luiglinga á aldr- inum tólf til sextán ára reykja samkvæmt könnun héraðslækna og Krabbameinsfélags Reykjavík- ur sem kynnt var í gær. Reyking- ar aukast hins vegar eftir að grunnskóla lýkur, segir í Mbl. Athugi Flugleiöir Úr því þingmenn hafa áhuga á að tryggja streymi erlendra ferða- manna til íslands ættu þeir að beina athygli sinni að grófum brotum Flugleiða á samkeppnis- lögum, með misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu og undirboðum. Þetta segja forráðamenn Iceland Express en rætt var um há flug- vallargjöld á Alþingi í gær. Styrkur vegna Bjargar Tilkynnt var í gær um úthlutun úr verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sig- urðssonar og veitt- ur var 21 styrkur. Rúmar átta miflj- ónir voru í pottin- um. Meðal þeirra sem fengu styrki var Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sem fékk 450 þúsund vegna skrifa sinna um Björgu C. Þorláksson. -sbs j • j+Æ helgarblað Stokkin í framboð í Helgarblaði DV á morgun er viðtal við Þórey Eddu Elís- dóttur, þjóðhetju og stangarstökkvara, sem hefúr sest í annað sæti á fram- boðslista Vinstri- grænna í suðvestur- kjördæmi. Þórey talar um pólitíkina, íþróttimar og dýrið í sjálfri sér. DV fjallar ítarlega um yfirvofandi stríðs- átök í heiminum í ljósi hinna frægu spádóma Nostradamusar. Er heimur- inn að farast og hvenær mun það gerast? Rætt er við Sólveigu Þor- valdsdóttur, forstöðumann Almanna- vama, sem tjáir sig opinskátt um breytingarnar á stofnuninni og sam- skiptin við ráðamenn. Við lítum á söguna af undarlegri bölvun sem indíánahöfðingi á að hafa lagt á emb- ætti Bandaríkjaforseta sem em kosn- ir á ári sem endar á núlli. George Bush er einn þeirra. PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.