Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Qupperneq 14
14
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003
Menning_________________________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Geir Ólafsson og Kristófer Dignus Pétursson: Vörumerki Skjás eins
Fólkiö í landinu stillir því upp.
Ástþór Helgason: Sporbaugur
Frumlegar lausnir á gömlum viöfangsefnum.
Tilnefningar til Menningarverðlauna DV í hönnun 2003:
Forsendan er staðgóð menntun
“Hönnunarmál voru ekki há-
vœr í opinberri umrœðu á síðast-
liðnu ári, fremur en árin þar á
undan. Af einhverjum ástœöum
hefur hin alþjóðlega bylgja um
mikilvœgi hönnunar á öllum
sviöum þjóðfélagsins enn ekki
borist hingað til lands að neinu
marki. Löndin í kringum okkur
hafa þegar markað sér opinbera
stefnu í þessum málum. Þaó höf-
um við enn ekki gert, en mér sýn-
ist ýmislegt benda til þess að
breytingar séu í vœndum, “ segir
Ásrún Kristjánsdóttir, gagnrýn-
andi DV og formaður dómnefnd-
ar í hönnun.
„Fjölmiðlar hafa augljóslega verið að taka
við sér, og beina nú sjónum æ oftar að þess-
um þætti í menningarflórunni," heldur hún
áfram. „Það hefur verið gaman að fylgjast
með skrifum um hönnun í DV undanfarið,
bæði yfirlitsgrein Guðmundar Odds Magnús-
sonar í helgarblaði DV 1. febrúar og svar-
grein Baldurs J. Baldurssonar innanhúss-
arkitekts á mánudaginn var. Þar kom margt
athyglisvert fram og öll umræða um hönnun
er af hinu góða.“
ímyndin í hnotskurn
„Ekki má heldur gleyma því sem vel er
gert í sýningarsölum sveitarfélaganna, þar
voru nokkrar eftirtektarverðar hönnunar-
sýningar settar upp á árinu,“ segir Ásrún.
„Og þá verð ég að minna á sýninguna á
ungri norrænni hönnun í Norræna húsinu núna.
Hún stendur upp úr því sem hér hefur sést lengi
enda samsett af miklum metnaði af Form ísland og
systurfélögum þess annars staðar á Norðurlönd-
um. Þar sjáum við í hnotskurn þá ímynd sem nor-
ræn hönnun hefur í augum annarra þjóða. Sú sýn-
Bergþóra Guönadóttir: Göngusett
Gæöavara fyrir útivistarfólk.
Steinunn Siguröardóttir: Winter lceland
Hún kynnti á síöasta ári nýja fatalínu meö íslensku þema.
ing hefur farið sigurfór viða um heim og ástæða er
til að hvetja áhugamenn um hönnun til að sjá
hana.“
En ekki getur dómnefnd í hönnun eingöngu tek-
ið mið af sýningum því hönnun lýtur ekki sömu
lögmálum og t.d. myndlistarsýningar að þessu
leyti. Hönnun eins hlutar fyrir framleiðslu getur
tekið marga mánuði og tilgangurinn þar er að
framleiða hlutinn, sýna hann og selja í verslunum.
„Þó að hönnun og framleiösla séu i ýmsum
greinum orðnar aðskildir þættir, þegar um fjölda-
framleiðslu er að ræða, þá er ævinlega nauðsyn-
legt að kunna góð skil á efnum og tækni,“ segir Ás-
rún. „Þar að auki er staðgóð listmenntun forsenda
árangursríkrar hönnunar."
Meö Ásrúnu sitja í dómnefnd Torfi Jónsson og
Ómar Sigurbergsson.
Eftirtaldir aöilar eru tilnefndir til Menningar-
verðlauna DV í hönnun að þessu sinni:
Ástþór Helgason
Tilnefndur fyrir silfur- og gullsmiði. Ástþór hef-
ur verið mjög skapandi og ötull við að koma fram
með nýjar hugmyndir og frumlegar lausnir á
gömlum viðfangsefnum sem hann hefur sýnt í
versluninni OR og á sýningum sem hann hefur
tekið þátt í. Á síðustu árum hefur hann ásamt
tveimur félögum sinum í faginu starfrækt verslun-
ina OR við Laugaveg. Þar hefur þeim tekist að
skapa andrúmsloft og umhverfi sem eftir hefur
verið tekið, bæði af landsmönnum sjálfum og er-
lendum ferðamönnum. Margar greinar hafa verið
skrifaðar um OR í erlend tímarit. Má þar m.a.
nefna stóra grein í hinu virta tímariti The Times
á síðasta ári.
Bergþóra Guðnadóttir
Tilnefnd fyrir fatahönnun. Bergþóra er hönnuð-
ur hjá hinu rótgróna íslenska fyrirtæki 66° Norður
sem hefur um árabil framleitt gæðavöru fyrir úti-
vistarfólk ásamt frístundaklæðnaði og búnaði fyr-
ir björgunarsveitir. Fatahönnun á þessu sviði
tekur til margra þátta þar sem efnisnotkun og
tæknileg útfærsla skiptir sköpum. Einstak-
lega vel hefur tekist til við endurhönnun á
búningi fyrir Slysavamafélagið Landsbjörg
sem tekinn var í notkun seint á síðasta ári.
Göngufatnaður eftir Bergþóru úr háþróuðu
efni frá bandarískum framleiðendum samein-
ar alla þætti í stíl og notagildi. Á síðasta ári
tvöfaldaðist velta fyrirtækisins.
Geir Ólafsson og Kristófer Dignus
Pétursson
Tilnefndir fyrir grafiska hönnun. Meðferð
þeirra félaga á vörumerki Skjás eins er dæmi
um hugmyndaríka og ferska meðhöndlun á
vörumerki. Við höfum séð merkið fljóta á og
renna saman við íslenskan ólgusjó, falla ofan
á sléttan vatnsflöt og skvetta, við höfum séð
fólkið í landinu stilla upp merkinu fyrir fram-
an myndavélina og setja upp þýðingarmikinn
svip, svo aðeins örfá dæmi séu nefnd. Vel
hönnuð markaðsetning sem hefur tekist að
búa til ímynd íslenskrar sjónvarpsstöðvar.
Steinunn Siguröardóttir
Tilnefnd fyrir textíl og fatahönnun. Stein-
unn er án vafa einn okkar virtasti hönnuður
og einn af örfáum sem hafa verið í aðstöðu til
þess að hafa alþjóðleg áhrif á stefnur og
strauma í tískuhönnun. Hún stýrði m.a.
prjónahönnunardeildinni fyrir Calvin Klein í
sex ár. í dag er hún yfirhönnuður hjá hinu
heimsfræga fyrirtæki La Perla á Ítalíu. Eftir
að hún tók við stöðunni hefur hún aukið við
framleiðslu fyrirtækisins, sem fram að því
hafði verið þekktast fyrir framleiðslu á dýr-
um undirfatnaði fyrir konur, og kynnti á síð-
asta ári nýja fatalínu með íslensku þema. Á
síðasta ári stofnaði hún einnig eigið fyrirtæki
og setti í framleiðslu fatalinu úr eðalefnum
með vöruheitinu Steinunn. Vörumerkið er
selt í verslunum í hæsta gæðaflokki víðs vegar um
heim.
Tinna Gunnarsdóttir
Tilnefnd fyrir listhönnun. Á hinni árlegu hús-
gagnasýningu í Mílanó, Siera di mobile, hefur
þátttaka hennar vakið sérstaka athygli síðastliðin
tvö ár. Virt hönnunarblöð víðs vegar um heim
kepptust við að skrifa um Tinnu og samstarfskonu
hennar, Karen Chekerdjian. þegar þær í ár kynntu
til sögunnar Rolling Stones, kúlulaga hirslur úr
fjölbreytilegustu efnum, m.a. tré, plasti og málmi.
Kúlurnar hafa ekki fastan samastað, eru á
stöðugri hreyfingu og hafa áhrif á rýmið í kring-
um sig. Þær geta líka brugðið sér í líki lampa, ver-
ið skálar eða stytt mönnum stundir sem gesta-
þrautir. Hið virta safn Kunstindustrimuseet í
Kaupmannahöfn hefur eignast eina kúlu og er hún
nú til sýnis á fastasýningu safnsins sem ætlað er
að sýna framúrskarandi hönnun. Kúlunni er stillt
upp í þeim hluta sýningarinnar sem fjallar um
framtíðina.
Tinna Gunnarsdóttir: Rolling Stones
Kúlulaga hirslur á stööugri hreyfingu.
Fágæti
Á morgun kl. 16 verða róman-
tískir tónleikar í Salnum í
Kópavogi. Þar leika Martial
Nardeau flauta, Greta Guðna-
dóttir fiðla, Guðmundur Krist-
mundsson víóla, Þórunn Ósk
Marinósdóttir víóla og Hrafn-
kell Orri Egilsson selló kvin-
tetta eftir Franz Krommer og
Friedrich Kuhlau sem aldrei
hafa heyrst áður í lifandi flutn-
ingi á íslandi.
íslenskur
flautukór
Myrkir mús-
íkdagar eru í
fullum gangi. Á
morgun kl. 15
verða kammer-
tónleikar í
Borgarleikhús-
inu þar sem
leikin verður
tónlist eftir Charles Ross. Á
sunnudaginn kl. 15 leikur svo
íslenski flautukórinn á sama
stað. Alls teljast til flautukórs-
ins 16 silfurlitaðar flautur sem
munu hljóma saman á vörum
allra helstu flautuleikara lands-
ins
Finnsk bók-
menntakynning
Á morgun kl. 16 kynna Sari
Páivárinne, sendikennari i
finnsku við Háskóla íslands, og
Hannele Jyrkká nýútkomnar
finnskar bækur og nýja
strauma í finnskum bókmennt-
um í Norræna húsinu. Rithöf-
undurinn Petri Tamminen (f.
1966) les upp og kynnir höfund-
arverk sitt á sænsku. Hann hef-
ur verið kallaður meistari hinn-
ar gagnorðu setningar og meitl-
uðu gamansemi.
Kóngurinn
sem vildi
fleira en krúnu
í Norræna
húsinu kl.
14.15 á sunnu-
daginn verður
sýnd norska
bíómyndin
Kóngurinn
sem vildi
fleira en
krúnu frá
1999 eftir
handriti Lars Saabye Christen-
sen, handhafa bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs. Þetta er
nútíma dæmisaga um kóng sem
villist frá höllinni sinni, hún er
fyrir alla aldurshópa og er frítt
inn.
Borgfirðinga-
hátíð
í kvöld koma Borgfirðingar
og Mýramenn vaðandi á skítug-
um skónum inn á Broadway í
Reykjavík og taka þar öll völd á
Borgfirðingahátíð. Þetta er fjöl-
menningarhátíð af bestu sort
þar sem þeytt er saman rjóman-
um af því sem er að gerast í
borgfirsku menningarlífi, söng,
leik og kvikmyndum. Á eftir
verður dansleikur með Stuð-
bandalaginu.
Norræni
sumarháskólinn
Kl. 12.05 í hádeginu á mánudag
verður Norræni sumarháskólinn
kynntur i matsal Reykjavíkur-
Akademíunnar á 4. hæð í JL-hús-
inu við Hringbraut. Sumarskól-
inn er vettvangur þar sem ákveð-
in þemu eru rædd þverfaglega.
Hver námshringur starfar um
þriggja ára tímabil.