Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
M
agasm
r>v
.Heimurinn sem ég lifi í hefur minnkaö, nú snýst tilvera mín um fjölskylduna og hið smáa. Eg til dæmis elska það
að fara á fætur með syni mínum á morgnana, klæða hann og fara með honum í leikskólann," segir Bubbl meðal
annars hér í viötalinu. Magasín-mynd GVA
Á föstudagsmorgni í febrúar
stendur Jón forseti vaktina á Aust-
urvelli. Ástin var yfir og allt um
kring í lífi hans, enda beið Ingibjörg
kona hans heima á íslandi ótalmörg
ár i festum meðan hann duílaði og
daðraði suður viö Eyrarsund. Hún
elskaði forsetann. Það er gott að
elska. Svo söng Bubbi Morthens,
sem í þessum orðum vindur sér inn
um hringdymar á Borginni, þar
sem ég sit í anddyrinu. Úti er fimb-
ulkuldi en okkar maður er vel
kæddur. Með húfu á höfðinu eins og
rússneskur marskálkur. Það kemst
ekki kuldi á skallann. En mest um
vert er að hafa hlýtt hjarta og elska.
Eins og Bubbi gerir.
Faðmlagið liggur í orðinu
„Ég ætla að einblína á ástina,“
segir Bubbi, þegar við höfum sest
við katFiborðið á Hótel Borg. Brasil-
íukafFið í bollunum er snarpheitt,
rétt eins og ástin getur orðið á góð-
um dögum. Tilefni samtals okkar
eru tónleikar kóngsins sem nú eru
að hefjast og verða þeir einmitt
haldnir á Hótel Borg. Sex kvöld-
skemmtanir eru fyrirhugaðar og sú
fyrsta verður laugardagskvöldið 28.
febrúar.
Yfirskrift tónleikanna er ekki
ákveðin „... en það hljómar vel að
segja bara kósýkvöld með Bubba.
Orðið kósý hefur svo fallegan hljóm.
Faðmlagið liggur í orðinu," segir
okkar maöur sem kveðst á þessum
tónleikum ætla að flytja ástarlög -
og texta frá ferli sínum. Allt frá ís-
bjamarblús til sinnar nýjustu plötu,
Sól að morgni sem kom út fyrir síð-
ustu jól. Auk ýmissa fleiri laga sem
öll eiga það sammerkt að vera róm-
antísk.
Mörg hundruð rósir
í rúmi og tíma hefur Hótel Borg
skipað stóran sess i lífi Bubba. Hér
spilaði hann kornungur á kassagit-
arinn þegar hann var meðal Vísna-
vina og hér stigu Utangarðsmenn
sín fyrstu skref í kringum 1980.
Troðfylltu salinn á sinni fyrstu
skemmtun, öllum að óvörum. Korn-
ungur segist Bubbi hafa farið að
venja komur sínar á Borgina og
drekka kaffi með gáfuspírum eins
og Jónasi stýrimanni, Jónasi Árna-
syni og Ása í Bæ.
Og smollið inn i
kompaní þeirra.
Borgin kemur víðar við sögu í líFi
Bubba. „Hér dönsuðu mamma og
pabbi endur fyrir löngu, hér söng
Haukur frændi og þegar ég var ný-
kominn úr Svíþjóðardvöl árið 1985
sá ég hér unga stúlku. Vissi um leið
að hún yrði konan min. Þetta var
Brynja. Löngum stundum sat ég við
borð hér úti í horni og horfði á
hana. Lét senda til hennar mörg
hundruð rósir sem hún hafði lengi
framan af ekki hugmynd um hvað-
an komu. Á endanum giftist hún
mér.“
Atlasgormar og ung-
mennafélög
Það var á því herrans ári 1930
sem Hótel Borg var tekin í gagnið.
Eigandi hennar og hótelstjóri var
Jóhannes Jósepsson glímukappi.
„Jóhannes varð algjört ædól í æsku
minni og ég drakk í mig söguna af
honum sem Stefán Jónsson skráði,“
segir Bubbi.
„Þetta var maðurinn sem fór út í
hinn stóra heim og glímdi óhrædd-
ur við hvern sem er. Var eins og og
Arnold Schwarzenegger og er á
myndum með kreppta hnefa og Atla-
s-gorma. Hann átti í byrjun síðustu
aldar stóran þátt í stofnun ung-
mennafélaganna sem voru mikils-
verð í sjálfstæðisbaráttunni. Þegar
hann kom heim byggði hann Borg-
ina og gerðist síðan forfallinn lax-
veiðimaður, eins og ég er,“ segir
Bubbi.
Með þessum orðum endurspeglast
enn betur hve samgróið sálu hans
þetta flottasta hótel borgarinnar er.
Heimurinn snýst um hið
smóa
Tónleikar með Bubba hafa gjam-
an verið annað og meira en söngur
hans og gítarspil. Inn á milli hefur
hann komið með hárbeittar ádeilur
í allar áttir á meinsemdir samfélags-
ins sem hann sér. Hinir árlegu Þor-
láksmessutónleikar eru þar órækur
vitnisburður um.
„í dag er ég mörgum árum eldri
en þegar ég var sem reiðastur út í
heiminn og hef mikið þurft að éta
ofan i mig. Heimurinn sem ég lifi I
hefur minnkað, nú snýst tilvera mín
um fjölskylduna og hið smáa. Ég til
dæmis elska það að fara á fætur
með syni mínum á morgnana,
klæða hann og fara meö honum í
leikskólann," segir Bubbi.
„Engu að síður er margt í þjóðfé-
laginu sem mér líkar ekki, eins og
til dæmis skammsýni ráðamanna
varðandi náttúruna. Að íslendingar
ætla að styðja Bandaríkjamenn sem
nú eru að fara í stríð af villi-
mennsku og ofbeldi. Og þessu stýrir
forseti sem er kjörinn af minnihluta
þjóðar sinnar og á met í aftökum,
meðal annars á þroskalieftum, böm-
um og geðsjúkum. Þetta heimsveldi
sem hann stýrir er í fjörbrotunum."
Heimurinn svarthvítur
En hvað sem öðm líður í hverful-
um heimi þá segist Bubbi að mörgu
leyti viðurkenna að Davíð Oddsson
sé ekki sem verstur sem landsfaðir
.. hvað sem hver segir,“ eins og
hann kemst að orði.
„Hann hefur gert margt þrælgott
og ég hef séð að heimurinn er ekki
alveg svarthvítur. En ég hef aldrei
sagt Davið að mér líki ágætlega við
hann en ætti samt að gera það.
Nógu mikið hef ég kastað skít í
hann,“ segir Bubbi sem er orðið
heitt í hamsi í tölu sinni. KafFið í
bollunum okkar er hins vegar ofur-
lítið farið að kólna.
Viðsjár í heimi
Goðsagnir og veruleiki vitna um
aö í styrjöldum sé ástarlif mann-
skepnunnar fjörlegt sem aldrei fyrr.
Þetta var raunin til að mynda í
Flóabardaga fyrir þrettán árum en
þá var í fréttum greint frá því að
aldrei hefðu fleiri smokkar flotið í
holræsakeríi Lundúnaborgar.
YFn þessari frásögn skemmtum
við Bubbi okkar. Erum sammála
um aö við þær kringumstæður og
viðsjár sem nú eru í hinum háska-
lega heimi séu vel við hæfi - raunar
sem aldrei fyrr - að hann syngi um
ástina.
„Ég vil fá pör og hjónafólk á kósý-
kvöldin, þar sem ég ætla að gera
mitt allra besta þótt ég geti engu lof-
að um hver útkoman verði. En von-
andi verður kvöldstundin yndisleg."
Fríríki með fjölda hliða
Glaðhlakkalegir bisnessmenn
æskunnar, sem sátu við hringborið
í hinum salnum á Borginni, eru
staðnir upp. Við höfum fylgst með
þeim í fjarlægð. Úr fjarska hefur
einnig verið fylgst með okkur
Bubba, þar sem andspænis okkur
stendur ungur myndatökumaður
sem er að draga að sér efni í heim-
ildamynd um þennan konung ís-
lenskrar alþýðutónlistar. Mann sem
er að mörgu leyti eyland í þjóðfélag-
inu og erFitt að marka á einhvern
bás. Hann er friríki - en þó með
fleiri hliðar en flestir aðrir.
„I lögum mínum og textum hef ég
alltaf leitast við að skoða þjóðfélagið
frá mörgum hliðum. Ég varð fyrstur
manna til þess að gera texta um
kynferðisofbeldi. í laginu Menn að
hnýta snörur söng ég um sjálfs-
morðin,“ segir Bubbi. „En nú ætla
ég að syngja um ástina, sem er mik-
ilvæg og er eitt af helstu fúntí-
mentölum mannlífsins. En það taka
þvi ekki allir svo. Faðmi maður ein-
hvern þann sem okkur er kær er
eðli íslendingsins hreinlega að
stirðna allur upp af skelfingu. Þetta
er sjúklegt. Ástin er besta veganesti
sem nokkur maður getur fengið."
-sbs
Mnnncín
twwCtyciDn I
** Simi 550-5000
Útgefandi: Útgáfufélagið DV ehf., Skaftahlíð 24.
Ábyrg&armenn: Óli Björn Kárason og Jónas Har-
aldsson.
Umsjónarmaöur: Stefán Kristjánsson.
sk@magasin.is
Blaðamaður: Siguröur Bogi Sævarsson.
sighogi@magasin.is
Auglýsingar: Katrin Theódórsdóttir - kata@dv.is
og Inga Gísla - inga@dv.is
Prentun: Árvakur hf.
Upplag: 80.000 eintök.
Dreifing: Póstdreifing ehf.
Dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu og til áskrif-
enda DV úti á landi.
en þaó hljómar vel aö segja bara
kósýkvöld meö Bubba. Oröiö kósý
hefur svo fallegan hljóm.
Faömlagiö liggur í oröinu/7
Borgin
Bubbi